Þorleifur Jónsson

21.8.1864 - 18.6.1956
Staða
Bóndi, Alþingismaður
Staður
Staður: Hólar, 781-Höfn í Hornafirði, Sveitarfélagið Hornafjörður, Nesjasveit, Ísland Núverandi sveitarfélag: Sveitarfélagið Hornafjörður, Sveitarfélagið Hornafjörður Sveitarfélag 1950: Nesjahreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: For.: Jón Jónsson (f. 9. mars 1833, d. 19. okt. 1878) bóndi þar og k. h. Þórunn Þorleifsdóttir (f. 15. sept. 1832, d. 1. júní 1906) húsmóðir. Faðir Þorbergs Þorleifssonar alþm.  K. (29. júní 1889) Sigurborg Sigurðardóttir (f. 30. maí 1866, d. 31. júlí 1935) húsmóðir. For.: Sigurður Þórarinsson og 1. k. h. Vilborg Þórðardóttir.  Börn: Þorbergur (1890), Jón (1891), Anna Þórunn Vilborg (1893), Þorbjörg (1895), Sigtryggur (1897), Páll (1898), Sigtryggur (1900), Sigurður (1901), Haukur (1903), Rósa Sigríður (1906).  Nám í Möðruvallaskóla veturinn 1881—1882.       Forráðamaður fyrir búi móður sinnar til 1890 og farkennari á vetrum. Bóndi í Hólum 1890—1935, en átti þar heima áfram til æviloka. Hreppstjóri 1890—1944. Gegndi oftsinnis sýslumannsstörfum í Austur-Skaftafellssýslu. Var í landsbankanefnd 1928—1935.       Alþm. A.-Skaft. 1908—1934 (Sjálfstfl. eldri, Bændafl. eldri, Framsfl.).  1. varaforseti Nd. 1922—1923, 1925, 1927—1929, varaforseti Sþ. 1930—1933.       Formaður þingflokks Framsóknarflokksins 1922—1928.       Ævisaga rituð af honum kom út 1954. Heimildir: Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr: 25505-28521. (1969-1974)
Tengd aðföng