Hallur Símonarson
16.8.1927 - 21.03.2001
Staða
Blaðamaður
Staður
Staður: Bústaðavegur 59, 108-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Fossvogur, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Blaðamaður, þekktur tónlistar- og íþróttamaður. Var á Vesturgötu 34, Reykjavík 1930. Síðast bús. í Reykjavík.
Hallur Símonarson fæddist í Reykjavík 16. ágúst 1927. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 21. mars 2001.
Foreldrar hans voru hjónin Ingibjörg Sigurást (Ásta) Hallsdóttir, f. 15. maí 1895 á Syðstu-Görðum í Kolbeinsstaðahreppi í Hnappadalssýslu, d. 8. júní 1973, og Símon Sveinbjörnsson skipstjóri, f. 22. mars 1881 á Innra-Hólmi í Innri-Akraneshreppi, d. 7. júlí 1935.
Símon og Ásta eignuðust fimm syni, Kristján stýrimann, f. 21.10. 1920, d. 5.8. 1955, kvæntur Herdísi Símonardóttur; Gunnar loftskeytamann, f. 3.8. 1923, d. 21.5. 1953, kvæntur Elínu Runólfsdóttur; Kára, f. 26.7. 1930, dáinn á fyrsta ári, og Símon framkvæmdastjóra, f. 24.9. 1933, var kvæntur Eddu Finnbogadóttur, þau slitu samvistir. Síðari kona hans er Kristín María Magnúsdóttir. Þá átti Hallur tvær hálfsystur, Sigríði Ágústu Dórótheu, f. 8.1. 1908, d. 9.12. 1992, dóttur Sigríðar Jónsdóttur, f. 25.10. 1887, d. 9.1. 1908, og Svövu, f. 2.8. 1917, dóttur Þóru Guðlaugar Þórarinsdóttur, f. 8.10. 1893, d. 16.3. 1929.
Hallur kvæntist 24.12. 1947 Stefaníu Runólfsdóttur, f. 6.6. 1923 á Öndverðarnesi í Neshreppi á Snæfellsnesi. Foreldrar hennar voru Runólfur J. Dagsson, bóndi á Öxl í Breiðavíkurhreppi og síðar sjómaður á Sandi, og kona hans Guðrún Sigurðardóttir.
Börn þeirra eru:
1) Símon Hallsson, borgarendurskoðandi í Reykjavík, f. 2.7. 1946, maki Anna Eyjólfsdóttir myndlistarmaður. Börn þeirra eru Eyjólfur arkitekt, f. 2.10. 1965, kvæntur Adriönnu Bandosz, börn þeirra eru Daníel Thor, f. 31.5. 1996, og Natalia Anna, f. 23.12. 1998; Hallur rekstrarfræðingur, f. 29.9. 1967, barnsmóðir Anna Sigurbjörg Þórisdóttir, slitu samvistir, dætur Tinna Lind, f. 26.10. 1990, og Embla Sigurást, f. 30.1. 1993, sambýliskona Magnea Lena Björnsdóttir, dóttir Irena Huld, f. 31.1. 2000; Guðrún kennaranemi, f. 8.4. 1971, gift Ólafi Erni Jónssyni kerfisfræðingi, börn Anna Margrét, f. 2.12. 1994, Bjarki Már, f. 27.6. 1996, og Hildur Ósk, f. 6.5. 1998.
2) Valgarður Ómar veitingamaður, f. 17.3. 1948. K I. Erla Traustadóttir, skildu, dóttir Sigrún Heba húsmóðir, f. 1.1. 1972, gift Arnari Grétarssyni, atvinnumanni í knattspyrnu, börn Sigurður Örn, f. 8.5. 1991, og Saga Lind, f. 31.1. 1999. Áður átti Erla Trausta Ívarsson sölumann, f. 4.11. 1962. K II. Ruth Ragnarsdóttir, skildu, börn þeirra eru Stefanía leiklistarnemi, f. 4.9. 1976, dóttir Júlíana Frederiksen, f. 10. maí 1996; Ómar Björgvin sölumaður, sonur Nicolai, f. 21.2. 2001; og Hilmir Þór, f. 8.5. 1985. Áður átti Ruth Rakel Þóru Matthíasdóttur veitingamann, f. 10.10. 1970, barn Daníel Hauksson, f. 16.7. 1991. Barnsmóðir Hildur Björnsdóttir, sonur Björn Róbert, f. 17.10. 1979. Barnsmóðir Hrönn Geirlaugsdóttir, sonur Freyr Ómarsson, f. 1.1. 1987.
3) Hallur framkvæmdastjóri, f. 8.5. 1951, kvæntur Jórunni Lísu Kjartansdóttur stjórnarráðsfulltrúa, börn þeirra eru Arnar Hallsson tæknifræðingur, f. 28.9. 1972, kvæntur Guðnýju Steinunni Jónsdóttur líffræðingi, dóttir Valdís Birta, f. 3.8. 1993; og Hallur Már, nemi í félagsvísindadeild Háskóla Íslands, f. 17.12. 1978. Áður átti Lísa Kjartan Andrésson kaupmann, f. 18.4. 1970, kvæntur Helenu Rúnarsdóttur, börn Alexander, f. 14.10. 1990, og Lísa Rún, f. 2. ágúst 1994.
4) Ásta Ingibjörg Hallsdóttir leikskólakennari, f. 13.1. 1953, gift Benedikt Ólafssyni sjóntækjafræðingi, börn þeirra eru Hugborg Erla, f. 12.2. 1981, Ólafur, f. 1.5. 1984, og Anna Lísa, f. 1.9. 1990.
5) Heba Hallsdóttir framkvæmdastjóri, f. 22.1. 1958. M I. Arnbergur Þorvaldsson, slitu samvistir, dóttir Hulda Soffía, f. 6.1. 1978. M II. Jón Salómon Bjarnason framkvæmdastjóri, börn Hallur Símon, f. 12.8. 1987, og Apríl Sól, f. 18.9. 1988.
6) Hulda Guðrún, danskennari og flugfreyja, f. 12.3. 1960.
7) Steinþór Einarsson, skrúðgarðyrkjumeistari, f. 15.1. 1952, ættleiddur. K. I. Katrín Sigurrós Óladóttir, skildu, dóttir Lilja Kolbrún, gift Bjarna Sveinssyni, dóttir Katrín Alda, f. 9.9. 1996. K. II Sylvie Nellie Marie Primel, börn Elsa Nadsja, f. 7.3. 1993, Máni Emeric, f. 22.10. 1997. Áður átti Sylvie dóttur, Ganaelle, f. 14.12. 1979.
8) Birna verkfræðingur, f. 24.12. 1966, maki Gunnar Örn Sigurðsson, börn Bergsteinn, f. 16.4. 1991, og Kári f. 1.8. 1996.
Eftir nám í Ágústarskólanum í Reykjavík og tónlistarnám varð Hallur kunnur íþróttamaður, handhafi Íslandsmeta á gullöld frjálsra íþrótta, fyrirliði fyrsta Íslandsmeistaraliðs Víkings í handknattleik 1946 og lék á kontrabassa í fyrsta KK-sextettinum sem stofnaður var árið 1947. Hann var um langt árabil í fremstu röð bridgespilara, margfaldur Íslandsmeistari og landsliðsmaður og jafnframt liðtækur skákmaður. Hann var varaformaður Víkings 1944-47 og sæmdur gullmerki félagsins. Árið 1948 hóf hann störf á dagblaðinu Tímanum og starfaði við blaðamennsku í rúm fimmtíu ár. Hann var einn af stofnendum samtaka íþróttafréttamanna og var sæmdur heiðursmerki alþjóðasamtaka íþróttafréttamanna 1974. Hallur var heiðursfélagi í Blaðamannafélagi Íslands og handhafi blaðamannaskírteinis nr. 3.
Heimildir:
http://www.mbl.is/greinasafn/grein/597564/?item_num=1&searchid=81ca1e236a3116d3706deb57f0b93f59e470a8ff
islendingabok.is
Tengd aðföng

