Jónas G. Rafnar
26.8.1920 - 12.02.1995
Staða
Alþingismaður, Lögfræðingur, Bankastjóri
Staður
Staður: Miðleiti 7, 103-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting: For.: Jónas Rafnar
(f. 9. febr. 1887, d. 20. okt. 1972) yfirlæknir á Kristneshæli í Eyjafirði
og k. h. Ingibjörg Bjarnadóttir (f. 30. jan. 1894, d. 6. júlí 1971) húsmóðir.
Tengdafaðir Þorsteins Pálssonar alþm. og ráðherra og Jóns Magnússonar vþm.
K. (10. ágúst 1946)
Aðalheiður Bjarnadóttir Rafnar (f. 25. maí 1923) hjúkrunarkona. For.: Bjarni
Jónsson og k. h. Halldóra Jóhanna Sveinsdóttir.
Dætur: Halldóra (1947),
Ingibjörg (1948), Ingibjörg Þórunn (1950), Ásdís (1953).
Stúdentspróf MA 1940. Lögfræðipróf HÍ 1946. Hdl. 1947.
Rak lögfræðiskrifstofu á Akureyri frá miðju ári 1946 til ársloka 1962.
Var jafnframt erindreki Sjálfstæðisflokksins á Norðurlandi. Settur 15.
sept. 1961 bankastjóri við Útvegsbankann í Reykjavík til ársloka. Bankastjóri
Útvegsbankans 1963—1984.
Í síldarútvegsnefnd 1953—1955. Kosinn
1954 í mþn. um brunamál utan Reykjavíkur. Sat þing Alþjóðaþingmannasambandsins
1954. Í stjórn Laxárvirkjunar 1956—1961. Kosinn 1957 í yfirmatsnefnd um
skatt á stóreignir. Bæjarfulltrúi á Akureyri 1958—1962, sat í bæjarráði.
Í flugráði 1960—1963 og bankaráði Seðlabankans 1961—1963. Skip. 1962
formaður endurskoðunarnefndar laga um síldarútvegsnefnd, formaður endurskoðunarnefndar
laga um iðnlánasjóð og í endurskoðunarnefnd laga um loftferðir. Sat á Allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna 1962 og 1970. Í stóriðjunefnd frá 1965 og í stjórn Lánasjóðs
sveitarfélaga frá stofnun hans 1966—1983, formaður. Kosinn 1966 í endurskoðunarnefnd
laga um þingsköp Alþingis. Í stjórn Fiskveiðasjóðs 1967—1973 og í stjórn
Iðnþróunarsjóðs 1973—1977. Stjórnarformaður Sambands íslenskra viðskiptabanka
1977—1978. Í Hafnaráði 1984—1992. Formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands
1985—1986. Formaður stjórnar Össurar hf. í Reykjavík frá 1985. Formaður
Félags fyrrverandi alþingismanna frá stofnun þess 1986 til 1990. Í stjórn
Félags eldri borgara í Reykjavík 1990—1994.
Alþm. Ak. 1949— 1956 og 1959, alþm.
Norðurl. e. 1959—1971 (Sjálfstfl.).
Landsk. vþm. (Ak.) maí 1957.
Forseti Ed. 1967—1971. 2. varaforseti Nd. 1949—1950, 1953—1956, 1960,
1961—1962 og 1963—1967, 1. varaforseti Nd. 1959.
Tengd aðföng


