Karl Steinar Guðnason
27.5.1939
Staða
Forstjóri, Alþingismaður
Staður
Staður: Heiðarbrún 8, 230-Reykjanesbær, Reykjanesbær, Keflavík, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjanesbær, Reykjanesbær
Sveitarfélag 1950: Keflavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
For.: Guðni Jónsson (f. 3. jan. 1906, d. 17. okt. 1957) vélstjóri og skipstjóri þar og k. h. Karólína Kristjánsdóttir (f. 14. júlí 1914, d. 27. jan. 1981) verkakona.
K. (17. júní 1962) Helga Þórdís Þormóðsdóttir (f. 5. sept. 1942) félagsráðgjafi. For.: Þormóður Guðlaugsson og k. h. Guðbjörg Þórhallsdóttir.
Börn: Kalla Björg (1963), Edda Rós (1965), Guðný Hrund (1971), Margeir Steinar (1976).
Kennarapróf KÍ 1960.
Kennari við barnaskóla Keflavíkur 1960—1976, en starfaði jafnframt á skrifstofum verkalýðsfélaganna þar, í fullu starfi þar 1977—1978. Námsstjóri Félagsmálaskóla alþýðu um skeið. Forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins síðan 1993.
Formaður FUJ í Keflavík 1958—1966. Framkvæmdastjóri Æskulýðsráðs Keflavíkur 1962—1966. Í stjórn Sambands ungra jafnaðarmanna 1958—1970, ritari 1962—1970. Í stjórn Æskulýðssambands norrænna jafnaðarmanna 1964—1970. Í bæjarstjórn Keflavíkur 1970—1982. Formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis 1970—1991. Varaformaður Verkamannasambands Íslands 1975—1987 og 1989—1991. Í stjórn Norræna verkalýðssambandsins 1981— 1991. Ritari Menningar- og fræðslusambands alþýðu 1976—1988, formaður 1988—1992. Í flokksstjórn Alþýðuflokksins 1959—1993, ritari 1976—1984. Í stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins 1978—1982, formaður hennar um skeið. Í stjórn Vinnueftirlits ríkisins 1980—1992. Í samstarfsnefnd Alþingis og þjóðkirkjunnar 1983—1987 og 1991—1993. Fulltrúi Íslands í Þingmannasamtökum Norður-Atlantshafsríkjanna 1984—1993, formaður íslensku sendinefndarinnar 1991—1993. Sat þing Alþjóðaþingmannasambandsins 1986—1987. Í Vestnorræna þingmannaráðinu 1992—1993.
Alþm. Reykn. 1978— 1979 og 1987—1993, landsk. alþm. (Reykn.) 1979— 1987 (Alþfl.).
Vþm. Reykn. jan.—febr. 1972 og nóv. 1973.
Forseti Ed. 1987—1988 og 1991. 2. varaforseti Sþ. 1978—1979 og 1979—1980, 1. varaforseti Sþ. 1979 og 1980—1983, 2. varaforseti Ed. 1988—1991, 3. varaforseti Alþingis 1991—1992.
Ritstjóri: Röðull (1960—1966).
Tengd aðföng








