Helgi Jóhannes Sigurgeirsson
20.12.1863 - 23.5.1947
Staða
Gullsmiður
Staður
Núverandi sveitarfélag: Ísafjarðarbær, Ísafjarðarbær
Sveitarfélag 1950: Barðastrandarhreppur
Núverandi sveitarfélag: Vesturbyggð, Vesturbyggð
Staður: Grænhóll, 451-Patreksfirði, Vesturbyggð, Barðaströnd, Ísland
Staður: Mýrartunga 1, 381-Reykhólahreppur, Reykhólahreppur, Reykhólasveit, Ísland
Sveitarfélag 1950: Reykhólahreppur
Staður: Tangagata 32, 400-Ísafirði, Ísafjarðarbær, Ísafjörður, Ísland
Sveitarfélag 1950: Ísafjarðarkaupstaður
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Foreldrar: Sigurgeir Sigurðsson f. 14.11.1829, d. maí 1912 og Björg Jónsdóttir f. 03.10.1833, d. júlí 1917. Þau fóru til Vesturheims árið 1887 frá Ísafirði og létust þar.
Maki I: Sigurrós Sveinsdóttir f. 23.08.1856, d. 18.07.1894.
Maki II: Sesselja Sigríður Kristjánsdóttir, f. 26. desember 1875, d. 28. nóvember 1935.
Börn: Þórarinn, Guðrún, Sigurrós, Kristján, Stefán, Gunnar, Elísabet Ragnheiður, og Elísabet Ragnheiður.
Helgi fæddist á Mýrartungu í Reykhólasókn árið 1863 og bjó með foreldrum sínum á Grænhóli í Hagasókn í manntölum 1870 og 1880.
Helgi var í tvö ár hjá á Þorvaldi lækni Jónssyni á Ísafirði 1875-77, en fór svo til gullsmíðanáms. Hann lærði gullsmíði hjá Einari Skúlasyni gullsmiði og bónda á Tannstaðabakka í Hrútafirði. Hann flutti til Ísafjarðar árið 1885 og rak þar eigið gullsmíðaverkstæði, þar sem hann stundaði gullsmíðar og leturgröft fram á 5. áratug 20. aldar. Hann lést á Ísafirði árið 1947.
Heimildir:
Baldur, 10. tbl. 1947, bls. 1.
Tengd aðföng




