Ólafur Eggert Gunnlaugsson Briem

28.1.1851 - 19.5.1925
Staða
Alþingismaður
Staður
Staður: Álfgeirsvellir, 560-Varmahlíð, Skagafjörður, Efribyggð, Ísland Núverandi sveitarfélag: Skagafjörður, Skagafjörður Sveitarfélag 1950: Lýtingsstaðahreppur Staður: Lýtingsstaðir, 560-Varmahlíð, Skagafjörður, Tungusveit, Ísland Staður: Espihóll, Stórhóll, 601-Akureyri, Eyjafjarðarsveit Sveitarfélag 1950: Hrafnagilshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: F. á Espihóli í Eyjafirði. For.: Eggert Briem (f. 15. okt. 1811, d. 11. mars 1894) þfm. og k. h. Ingibjörg Eiríksdóttir (f. 16. sept. 1827, d. 15. sept. 1890) húsmóðir. Faðir Þorsteins Briems alþm. og ráðherra og tengdafaðir Björns Þórðarsonar forsætisráðherra. K. (1884) Halldóra Pétursdóttir Briem (f. 26. des. 1853, d. 5. júlí 1937) húsmóðir. For.: Pétur Pálmason og k. h. Jórunn Hannesdóttir. Systir Herdísar konu Hálfdanar Guðjónssonar alþm. og Hannesar föður Pálma alþm. og Péturs vþm. Hún átti áður Þorstein Eggertsson bónda á Haukagili í Vatnsdal og með honum Guðrúnu 1. k. Bjarna frá Vogi alþm. Börn: Þorsteinn (1885), Ingibjörg (1886), Kristín (1889), Eggert (1890), Eggert (1891), Jóhanna (1894), Sigríður (1897). Stúdentspróf Lsk. 1870. Skrifari hjá föður sínum 1870—1884. Bóndi á Frostastöðum í Blönduhlíð 1885—1887 og á Álfgeirsvöllum í Efribyggð 1887—1920. Fluttist þá til Reykjavíkur og varð aðstoðarmaður í fjármálaráðuneytinu til æviloka. Umboðsmaður Reynistaðarklaustursjarða 1888—1920. Settur sýslumaður í Skagafjarðarsýslu nokkrum sinnum um lengri eða skemmri tíma. Amtsráðsmaður 1881—1907 þegar amtsráðin voru lögð niður. Oddviti Lýtingsstaðahrepps 1907—1920. Kosinn 1907 í mþn. í skattamálum. Formaður Sambands íslenskra samvinnufélaga frá 1920 til æviloka. Skip. 1924 formaður mþn. um sparnað í ríkisrekstri. Alþm. Skagf. 1886—1919 (Framffl., Framsfl. eldri, Þjóðrfl., Sjálfstfl. eldri, Sambfl., Bændafl. eldri, Framsfl.). Forseti Sþ. 1895, forseti Nd. 1914— 1919. Varaforseti Nd. 1889 og 1894, varaforseti Sþ. 1897—1899, 1. varaforseti Nd. 1909.
Tengd aðföng