Þórhallur Bjarnarson

2.12.1855 - 15.12.1916
Staða
Alþingismaður, Biskup
Staður
Staður: Laufásvegur 48, Laufás, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Þingholt, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Þórhallur var fæddur í Laufási í Eyjafirði, sonur sr. Björns Halldórssonar prófasts og Sigríðar Einarsdóttur konu hans. Hann varð stúdent úr Reykjavíkurskóla 1877 og lauk guðfræðiprófi frá Kaupmannahafnarháskóla. Hann vígðist til Reykholts 1884 og varð prófastur í Borgarfjarðarsýslu sama ár. Næsta ár þjónaði hann í Akureyrarprestakalli en 1885 var hann skipaður prestaskólakennari. Samhliða því embætti gegndi hann störfum dómkirkjuprests um skeið. Þórhallur varð biskup árið1908. Eftir hann liggur fjöldi ritsmíða. Kona hans var Valgerður Jónsdóttir frá Bjarnastöðum í Bárðardal. Börn þeirra voru: Tryggvi bankastjóri, Svava, Björn og Dóra forsetafrú. Heimildir: Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr.1-5235 [1908-1931]. Páll Eggert Ólason: Íslenzkar æviskrár V. Rv. 1952, 140-141. http://www.althingi.is/cv.php4?nfaerslunr=627 (sótt 6. ágúst 2004)
Tengd aðföng