Ásgeir Bjarnason

6.9.1914 - 29.12.2003
Staða
Búfræðikandidat, Alþingismaður, Bóndi, Búfræðingur
Staður
Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð Staður: Ásgarður, 371-Búðardal, Dalabyggð Sveitarfélag 1950: Hvammshreppur Dal.
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Ásgeir Bjarnason. Fæddur 6. september 1914 í Ásgarði. Dáinn 29. desember 2003. Héraðsskólapróf frá Reykholti 1934. Búfræðipróf frá Bændaskólanum á Hólum 1937. Próf við Statens småbrukslærerskule í Sem í Asker í Noregi 1940. Starfsmaður við Vollebekk-tilraunastöð búnaðarháskólans í Ási í Noregi og við Statens Centrala Frökontrollanstalt í Svíþjóð 1941–1942. Bóndi í Ásgarði 1943–1983. Bókari Sparisjóðs Dalasýslu 1944–1956. Hreppsnefnd Hvammshrepps 1945–1950 og 1956–1978. Alþingismaður 1949-1978. Hreppstjóri Hvammshrepps 1956–1984. Formaður Búnaðarsambands Dalamanna 1947–1974. Búnaðarþingsfulltrúi Dalamanna 1950–1986. Norðurlandaráð 1954–1956, 1960–1967 og 1974–1978. Sýslunefnd Dalasýslu 1967–1989. Formaður Búnaðarfélags Íslands 1971–1987. Stjórn Kaupfélags Hvammsfjarðar 1975–1983. For. Bjarni Jensson (1865-1942) bóndi, hreppstjóri ofl. og Salbjörg Jónea Ásgeirsdóttir (1870-1931) ljósmóðir í Ásgarði í Hvammssveit. Systkini hans voru Jóhanna (1891-1983), Jens (1892-1955), Ásgeir (1893-1894), Þuríður (1894-1931), Ósk (1895-1935), Geir (1897-1898), Daníel (1898-1986), Torfi (1899-1991), Jónas (1903-1903), Ragnar (1904-1904), sveinbarn (1905-1905), Hallfríður (1906-1907), Hallfríður (1908-1911), Kartan (1909-1982), Sigríður (1911-1937) og Friðjón (1912-1950). Fyrri kona (1945) Ásgeirs var Emma Benediktsdóttir (1916-1952) húsfreyja. Synir Ásgeirs og Emmu eru Bjarni (1949) og Benedikt (1951). Seinni kona Ásgeirs (1954) var Ingibjörg Sigurðardóttir (1925-2009) húsfreyja. Þau voru barnlaus.  Heimildir: Alþingi. Æviágrip þingmanna frá 1845. Jón Guðnason. 1961. Dalamenn I. Bls. 22. Minning – Ásgeir Bjarnason. Morgunblaðið 16.1.2004. Bls. 46-48.
Tengsl við
Tengd aðföng