Snorri Þorsteinsson
31.7.1930 - 09.07.2014
Staða
Fræðslustjóri, Kennari
Staður
Staður: Hrafnaklettur 2, 310-Borgarnesi, Borgarbyggð, Borgarnes, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Borgarbyggð, Borgarbyggð
Sveitarfélag 1950: Borgarneshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Var á Hvassafelli, Hvammssókn, Mýr. 1930.
Snorri Þorsteinsson fæddist á Hvassafelli í Norðurárdal hinn 31. júlí 1930. Hann lést 9. júlí 2014 á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi.
Foreldrar: Þorsteinn Snorrason bóndi, f. 28.8. 1892 á Laxfossi, Stafholtstungum, d. 2.8. 1978, og Sigurlaug Gísladóttir, f. 6.1. 1891 í Hvammi í Norðurárdal, d. 5.6. 1974.
Bróðir Snorra er Gísli Þorsteinsson, f. 15.12. 1935.
Snorri var kvæntur Eygló Guðmundsdóttur, f. 14.12. 1935, d. 1.11. 2012.
Snorri og Eygló voru barnlaus en Eygló átti dótturina Margréti með fyrri manni sínum Guðjóni Sigurbjörnssyni lækni.
Snorri ólst upp á Hvassafelli og bjó þar þangað til hann tók við starfi fræðslustjóra þá flutti hann í Borgarnes. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1952. Hann stundaði nám við Háskóla Íslands í uppeldisfræði, ensku og íslensku og lauk þaðan BA-prófi í íslensku og sögu svo og kennsluréttindaprófi í uppeldis- og kennslufræðum. Auk þess sótti hann ýmis námskeið hérlendis og erlendis. Frá 1949 var hann farkennari í Norðurárdal og Þverárhlíð. Þá kennari og síðan yfirkennari við Samvinnuskólann í Bifröst. Hann var lengst af fræðslustjóri Vesturlandsumdæmis og síðar forstöðumaður Skólaskrifstofu Vesturlands. Fyrstu árin sem fræðslustjóri var hann jafnframt framkvæmdastjóri heilsugæslustöðvar Borgarness.
Snorri var virkur í félagsmálum og sinnti mörgum árbyrgðarstörfum sem hér verður einungis tæpt á. Hann var í stjórn Ungmennafélagsins Baulu og UMSB á árunum 1949-1958. Hann tók þátt í störfum Framsóknarflokksins á árunum 1949-1971, sat í stjórn FUF í Borgarfirði og var formaður FUF í Mýrasýslu. Hann sat í stjórn SUF og í miðstjórn Framsóknarflokksins og var formaður kjördæmissambands framsóknarmanna í Vesturlandskjördæmi. Hann sat í fyrstu stjórn Kennarasambands Vesturlands og í stjórn Félags fræðslustjóra, hann var einnig fyrsti formaður Sambands verslunarskólakennara. Var formaður Þroskahjálpar á Vesturlandi og í svæðisstjórn um málefni þroskaheftra. Sögufélag Borgarfjarðar var Snorra einkar hugleikið og var hann formaður þess á árnum frá 2000-2014, félagið gaf út Borgfirskar æviskrár ásamt Borgfirðingabók og íbúatali. Snorri var félagi í Rótarý-klúbbi Borgarness og var forseti klúbbsins 2014-2015. Hann gegndi embætti umdæmisstjóra 1999-2000. Eftir hann liggja bækurnar „Sparisjóður í 90 ár. Saga Sparisjóðs Mýrasýslu 1913-2003“ frá 2004 og „Barna- og unglingafræðsla í Mýrasýslu, 1880-2007“ frá 2009 Snorri skrifaði greinar um bókmenntir og sagnfræði, leikþætti, kennsluefni o.fl.
Heimildir:
https://www.islendingabok.is/search
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1516972/
Tengd aðföng







