Jóna Erla Ásgeirsdóttir

10.7.1932 - 03.11.2016
Staða
Húsmæðrakennari, Húsmóðir
Staður
Sveitarfélag 1950: Hveragerði Núverandi sveitarfélag: Hveragerðisbær, Hveragerðisbær Staður: Borgarhraun 10, 810-Hveragerði, Hveragerðisbær Staður: Kálfavík, 401-Ísafirði, Súðavíkurhreppur Sveitarfélag 1950: Ögurhreppur Staður: Galtartunga, 371-Búðardal, Dalabyggð
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Jóna Erla Ásgeirsdóttir. Fædd 10. júlí 1932 í Kálfavík í Skötufirði. Dáin 3. nóvember 2016. Ólst upp á Akureyri og flytur til Reykjavíkur 18 ára. Útskrifast sem handavinnukennari frá Kennaraskólanum 1953. Kennari við Húsmæðraskólann á Staðarfelli 1964-1965. Húsfreyja og bóndi í Galtartungu á Fellsströnd 1965-1999. Síðast búsett í Hveragerði. Foreldrar Erlu voru Ásgeir Ásgeirsson (1910-1990) og Elín Jónsdóttir (1905-1967). Maður Erlu var Ólafur Pétursson bóndi. Systir Erlu sammæðra er Maríanna Bjarnadóttir (1936) og systkini samfeðra eru Þórður (1934), Pétur (1936) og Vigdís Ingibjörg (1938). Fyrri maður (1953) var Bjarki Magnússon (1929-2006) læknir. Börn þeirra eru Magnús K., Hólmfríður og Anna Elín. Seinni maður (1965) Erlu var Ólafur Pétursson (1929) bóndi. Börn þeirra eru Pétur Már og Eva María.  Heimildir: Minningargreinar Mbl. 12.11.2016, bls. 36.
Tengsl við
Tengd aðföng