Páll Pálsson

17.5.1797 - 1.11.1861
Staða
Konrektor, Prófastur, Prestur
Staður
Staður: Hörgsdalur 1, Skaftárhreppur, Síða, Ísland Núverandi sveitarfélag: Skaftárhreppur, Skaftárhreppur Sveitarfélag 1950: Hörgslandshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Foreldrar: Páll Jónsson klausturhaldari að Elliðavatni og seinni kona hans Ragnheiður Guðmundsdóttir, klæðalitara í Leirvogstungu Sæmundssonar. Páll varð stúdent frá Bessastaðaskóla 1815. Vígðist aðstoðarprestur séra Bergs Jónssonar að Kirkjubæjarklaustri 1820. Fékk prestakallið við uppgjöf hans árið 1823 og hélt til æviloka. Páll bjó fyrst á Prestbakka en í Hörgsdal frá 1830 og til æviloka. Hann var prófastur Vestur-Skaftafellssýslu frá 1830. Varð 2. þjóðfundarfulltrúi Skaftfellinga 1851. Maki 1: Matthildur Teitsdóttir (d. 16.5.1850). Þau skildu árið 1842. Börn þeirra (sem upp komust): Sigríður; Ragnheiður; Valgerður; Guðný; Páll; Magnús; Ólafur; Þorgerður; Jón; Matthildur. Maki 2: Guðríður Jónsdóttir (d. 1.12.1888). Börn þeirra (sem upp komust): Páll; Guðríður; Helga. Laundóttir Páls: Sigríður. Í skráningu á grip nr. Þjms. 5513 er að finna eftirfarandi upplýsingar um Pál: Páll prófastur Pálsson (á Elliðavatni, konrektor). Var prestur í Kirkjubæjarklaustri 1823 -61. Heimildir: Íslenzkar æviskrár, IV. Páll E. Ólason. Reykjavík 1951, bls. 135-136.
Tengd aðföng