Kristín Gunnarsdóttir
30.9.1892 - 19.05.1990
Staða
Húsmóðir
Staður
Staður: Ketilsstaðir 2, 870-Vík, Mýrdalshreppur, Mýrdalur, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Mýrdalshreppur, Mýrdalshreppur
Sveitarfélag 1950: Dyrhólahreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: F. í Fagradal, uppalin í Steig
í Mýrdal. Húsmóðir á Ketilsstöðum frá 1926. Eiginmaður Salómon Sæmundsson
frá Stóra-Dal.
Viðbótarupplýsingar af titilblaði
Stúdentasöfnunar 1976:
Kristín fæddist í Fagradal í Hvammshreppi,
en fluttist fjögurra ára gömul að Steig í Dyrhólahrepp og bjó þar til ársins
1926, að hún fluttist að Ketilsstöðum í sömu sveit þar sem hún bjó síðan.
Kristín var í barnaskóla frá tíu
ára aldri til fermingar.
Hún vann fyrst á búi foreldra sinna
og var síðan húsmóðir á Ketilsstöðum.
Foreldrar hennar voru: Gunnar Bjarnason,
f. í Engigarði í Hvammshreppi og Guðríður Þorsteinsdóttir.
Nöfn systkina: Bræður Kristínar
hétu Þorsteinn og Bjarni.
Kristín var gift Salómoni Sæmundssyni,
f. 13. ágúst 1890.
Heimildir: Vestur-Skaftfellingar III, 21.
Stúdentasöfnun 1976, titilblað
fyrir Kristínu Gunnarsdóttur.
Tengd aðföng


