Ólöf Sigvaldadóttir

11.9.1906 - 19.10.2000
Staður
Staður: Þórunnargata 1, 310-Borgarnesi, Borgarbyggð Núverandi sveitarfélag: Borgarbyggð, Borgarbyggð Sveitarfélag 1950: Borgarneshreppur Staður: St. Jósefsspítali , Suðurgata 41, 220-Hafnarfirði, Hafnarfjarðarkaupstaður
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Ólöf Sigvaldadóttir. Fædd 11. september 1906 í Stykkishólmi. Dáin 19. október 2000 á St. Jósefspítala. Uppalin í Stykkishólmi. Kvennaskóli Reykjavíkur 1924-1926 og hússtjórnardeild 1927-1928. Auk þess orgelleik hjá Páli Ísólfssyni. Húsmóðir, kennari og organleikari í Borgarnesi frá 1933. Formaður og heiðursfélagi Kvenfélags Borgarness. Heiðursfélagi hestamannafélagsins Faxa og Bridsfélags Borgarness. Organisti í Stykkishólmskirkju, Helgafellskirkju og Borgarkirkju. Fór á Hrafnistu í Hafnarfirði 1990. For. Sigvaldi Valentínusson (1885-1924) skipstjóri og hafnsögumaður og Guðlaug Halldóra Jóhannsdóttir (1877-1946) í Stykkishólmi. Fyrri maður Ólafar (1933) var Ari Guðmundsson (1895-1959) vegaverkstjóri frá Skálpastöðum í Borgarfirði. Börn þeirra eru drengur (1935-1935), Guðbjörg (1936), Sigvaldi (1937), Guðmundur Auðunn (1940), Hólmsteinn (1941), Unnsteinn (1941), Hreinn Ómar (1944) og Jón Ármann (1946). Seinni maður Ólafar (1963) var Jón Sigurðsson (1897-1992) bókhaldari frá Skíðsholtum í Hraunhreppi. Heimildir: Minning - Ólöf Sigvaldadóttir. Morgunblaðið 28.10.2000. Bls. 56-57. Minning - Ólöf Sigvaldadóttir. Morgunblaðið 2.11.2000. Bls. 50.
Tengsl við
Tengd aðföng