Halldór E. Sigurðsson
9.9.1915 - 25.05.2003
Staða
Bóndi, Ráðherra
Staður
Staður: Espigerði 4, 108-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Sveitarfélag 1950: Fellsstrandarhreppur
Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð, Ísland
Staður: Staðarfell, 371-Búðardal, Dalabyggð, Fellsströnd, Ísland
Annað nafn
Halldór Eggert Sigurðsson
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
For.: Sigurður Eggertsson (f. 21. sept. 1876, d. 6. júní 1922) bóndi og skipstjóri í Suður-Bár í Eyrarsveit og k. h. Ingibjörg Pétursdóttir (f. 6. jan. 1887, d. 9. ágúst 1959) húsmóðir. Bróðir Margrétar Sigurðardóttur vþm. K. (4. sept. 1941) Margrét Gísladóttir (f. 5. júlí 1916, d. 9. nóv. 2004) vefnaðarkennari. For.: Gísli Pálmason og k. h. Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir. Börn: Gísli Vilhjálmur (1943), Sigurður Ingi (1952), Sigurbjörg Guðrún (1955).
Héraðsskólapróf Reykholti 1937. Búfræðipróf Hvanneyri 1938. Óreglulegur nemandi í Samvinnuskólanum hluta úr vetri.
Bóndi að Staðarfelli í Dalasýslu 1937—1955. Sveitarstjóri í Borgarnesi 1955— 1969. Skip. 14. júlí 1971 fjármála- og landbúnaðarráðherra, lausn 2. júlí 1974, en gegndi störfum til 28. ágúst. Skip. 28. ágúst 1974 landbúnaðar- og samgönguráðherra, lausn 27. júní 1978, en gegndi störfum til 1. sept. Starfsmaður í Búnaðarbanka Íslands 1980—1984. Formaður Ungmennasambands Dalamanna 1944—1951. Formaður Fóðurbirgðafélags Fellsstrandar 1940—1955. Í hreppsnefnd Fellsstrandarhrepps 1942— 1955. Formaður skólanefndar Húsmæðraskólans á Staðarfelli 1946—1955. Formaður skólanefndar Fellsstrandar- og Klofningsskólahverfis 1946—1955. Formaður Búnaðarfélags Fellsstrandar 1952—1955. Í miðstjórn Framsóknarflokksins 1953—1979. Í stjórn landshafnar í Rifi á Snæfellsnesi 1960—1971. Í úthlutunarnefnd atvinnuaukningarfjár 1960—1961 og í vinnutímanefnd 1961. Í stjórn Atvinnubótasjóðs, síðar Atvinnujöfnunarsjóðs 1962—1971. Í hreppsnefnd Borgarneshrepps 1962—1970. Formaður Búnaðarsambands Borgarfjarðar 1962— 1971. Endurskoðandi Samvinnubankans 1963—1971. Yfirskoðunarmaður ríkisreikninga 1964—1971. Kosinn 1973 í neyðarráðstafananefnd vegna eldgossins á Heimaey. Skip. 1979 formaður nefndar til að endurskoða ákvæði laga um skyldur ríkissjóðs til fjárframlaga til sjóða og einstakra verkefna, nefndin lauk störfum 1980. Í nefnd til að endurskoða lög um almannatryggingar 1979. Alþm. Mýr. 1956—1959, alþm. Vesturl. 1959—1979 (Framsfl.). Fjármála- og landbúnaðarráðherra 1971—1974, landbúnaðar- og samgönguráðherra 1974—1978. Formaður þingflokks Framsóknarflokksins 1978—1979.
Tengd aðföng







