Ingólfur Albert Guðnason
27.2.1926 - 14.03.2007
Staða
Alþingismaður
Staður
Staður: Laugateigur 7, 105-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Laugarneshverfi, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
For.: Guðni Albert Guðnason (f. 17. okt. 1895, d. 3. apríl 1930) bóndi þar og k. h. Kristín Jósepsdóttir (f. 20. sept. 1898, d. 23. mars 1977) húsmóðir.
K. (25. des. 1947) Anna Guðmundsdóttir (f. 12. júní 1926) húsmóðir. For.: Guðmundur Guðmundsson og Sigríður Jónsdóttir.
Börn: Kolbrún (1951), Guðmundur (1951).
Héraðsskólapróf Reykjum í Hrútafirði 1945. Samvinnuskólapróf 1947. Sótti þriggja mánaða námskeið í meðferð og viðhaldi landbúnaðarvéla í Bandaríkjunum 1956.
Starfsmaður Kaupfélags Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga 1947—1949. Vann við og rak lengst af bifreiðaverkstæði á Laugarbakka í Miðfirði 1950—1959. Sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Vestur-Húnavatnssýslu á Hvammstanga 1959—1995.
Hreppstjóri Hvammstangahrepps 1960—1995. Í hreppsnefnd Hvammstangahrepps 1966—1970. Formaður skólanefndar Reykjaskóla frá 1971. Sat fundi Evrópuráðsins á vegum Alþingis 1980—1983.
Alþm. Norðurl. v. 1979—1983 (Framsfl.).
Tengd aðföng



