Jón Pálmason
28.11.1888 - 01.02.1973
Staða
Bóndi, Alþingismaður
Staður
Staður: Akur, 541-Blönduósi, Húnabyggð, Niðurásar, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Húnabyggð, Húnabyggð
Sveitarfélag 1950: Torfalækjarhreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: For.: Pálmi Jónsson
(f. 5. okt. 1850, d. 7. febr. 1927) bóndi þar, sonur Jóns Pálmasonar alþm.,
og k. h. Ingibjörg Eggertsdóttir (f. 12. mars 1853, d. 11. júní 1911) húsmóðir.
Faðir Pálma Jónssonar alþm. og ráðherra.
K. (26. okt. 1916)
Jónína Valgerður Ólafsdóttir (f. 31. mars 1886, d. 3. jan. 1980) húsmóðir.
For.: Ólafur Jóhannesson og k. h. Margrét Ólafsdóttir, systir Marsibilar
konu Matthíasar Ólafssonar alþm.
Börn: Ingibjörg (1917),
Eggert Jóhann (1919), Margrét Ólafía (1921), Salome (1926), Pálmi (1929).
Búfræðipróf Hólum 1909. Við verklegt nám í gróðrarstöðinni á Akureyri vorið
1909.
Bóndi á Ytri-Löngumýri 1913—1915 og 1917—1923, á Mörk í Laxárdal 1915—
1917, á Akri við Húnavatn 1923—1963, en þar átti hann heimili til æviloka.
Skip. 6. des. 1949 landbúnaðarráðherra, fór einnig með orku- og vegamál,
lausn 2. mars 1950, en gegndi störfum til 14. mars.
Í hreppsnefnd Bólstaðarhlíðarhrepps 1916—1917. Oddviti Svínavatnshrepps
1919—1923. Sýslunefndarmaður Torfalækjarhrepps 1925—1929. Yfirskoðunarmaður
ríkisreikninganna 1937—1963. Sat í mþn. í tilraunamálum 1939—1941. Kosinn
1942 í raforkumálanefnd. Í nýbýlastjórn 1947—1970, bankaráði Landsbankans
1953—1956. Kosinn 1955 í yfirfasteignamatsnefnd. Í bankaráði Búnaðarbankans
1956—1968, form. 1961—1968.
Alþm. A.-Húnv. 1933—1959 (Sjálfstfl.).
Vþm. Norðurl. v. jan.—mars, apríl—júní og des. 1960, jan.—mars, okt.
og nóv. 1961, febr., apríl og nóv. 1962, febr.—mars og apríl 1963.
Landbúnaðarráðherra 1949—1950.
Forseti Sþ. 1945—1949, 1950—1953
og 1959. 2. varaforseti Nd. 1942, 1. varaforseti Nd. 1942.
Heimildir: Aðfangabók Þjóðminjasafnsins
Mannamyndasan 17843-21805 (1949-1956)
Tengd aðföng





