Axel Helgason

12.4.1913 - 17.7.1959
Staða
Lögreglumaður, Forstjóri
Staður
Staður: Kársnesbraut 19, 200-Kópavogi, Kópavogsbær Núverandi sveitarfélag: Kópavogsbær, Kópavogsbær Sveitarfélag 1950: Kópavogshreppur
Annað nafn
Lárus Axel Helgason
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Var í Víkurkauptúni, Víkursókn, V-Skaft. 1930. Löggæslumaður í Reykjavík og síðar forstjóri. Drukknaði. F. í Vík í Mýrdal. Fluttist til Reykjavíkur 1937. Lögregluþjónn og síðar forstjóri. Hann drukknaði í Heiðarvatni. Faðir: Helgi Dagbjartsson, f. 01.08.1877, d. 06.03.1941 Maki: Sonja Björg Helgason, f. 16.11.1918, d. 13.07.2010, Bakkaseli 15, Reykjavík. Axel Helgason var einn brautryðjendanna hjá lögreglunni á fyrri hluta síðustu aldar eða svo. Hann var í götulögreglunni á stríðsárunum þegar Ísland var hernumið af Bretum, en undir stríðslok fór Axel til New York og kynnti sér tæknirannsóknir, ekki síst fingrafarafræði. Seinna fór hann í námsferð til Scotland Yard, en Axel stofnaði fingrafaradeild rannsóknarlögreglunnar og er fyrir mörgum goðsögn í þeim fræðum.  Axel hætti í lögreglunni 1957 og stofnaði Nesti sama ár. Nesti rak bensín- og greiðasölu á tveimur stöðum í Reykjavík. Önnur var við Suðurlandsbraut, hjá Elliðaám, og hin við Hafnarfjarðarveg í Fossvogi. Þarna voru bílalúgur, en þessi bensín- og söluturnahús þóttu alveg einstaklega glæsileg á sínum tíma tíma, en þau hannaði Manfreð Vilhjálmsson arkitekt. Axel, sem var mjög listfengur og var einn stofnenda Myndlistarskólans í Reykjavík, lést af slysförum í Heiðarvatni í Mýrdal langt fyrir aldur fram árið 1959, þá aðeins 46 ára.   Heimildir: Vestur Skaftfellingar I, 52. https://www.islendingabok.is/search https://www.islendingabok.is/compare?indId=15844204 https://www.logreglan.is/breyttir-timar-axel-helgason/
Tengd aðföng