Skúli Alexandersson
9.9.1926 - 23.05.2015
Staða
Alþingismaður
Staður
Staður: Hraunás 1, 360-Hellissandi, Snæfellsbær, Hellissandur, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Snæfellsbær, Snæfellsbær
Sveitarfélag 1950: Neshreppur utan Ennis
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
For.: Alexander Árnason (f. 6. ágúst 1894, d. 11. febr. 1970) bóndi þar og k. h. Sveinsína Ágústsdóttir (f. 7. júní 1901, d. 3. nóv. 1987) húsmóðir.
K. (23. júní 1955) Hrefna Magnúsdóttir (f. 24. júní 1935) verslunarmaður. For.: Magnús Ólafsson og k. h. Ásta Sýrusdóttir.
Börn: Ari (1956), Hulda (1958), Drífa (1962).
Héraðsskólapróf Reykjanesi 1942. Samvinnuskólapróf 1950. Nám í framhaldsdeild Samvinnuskólans 1950— 1951.
Verslunarmaður hjá Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðárkróki 1951—1952 og Kaupfélagi Hellissands 1952— 1955. Rak útgerð 1954—1969. Framkvæmdastjóri Jökuls hf. á Hellissandi síðan 1961. Forstöðumaður Gistihússins Gimli á Hellissandi síðan 1991.
Oddviti Neshrepps utan Ennis 1954—1966, 1970—1974 og 1978—1981. Í stjórn landshafnar í Rifi 1959—1990. Í flugráði 1980—1987 og frá 1991. Í stjórn Sementsverksmiðjunnar 1980—1989. Formaður Skógræktar- og landverndarfélags undir Jökli síðan 1990. Í stjórnskipaðri nefnd til undirbúnings stofnun þjóðgarðs undir Jökli síðan 1994.
Alþm. Vesturl. 1979—1991 (Alþb.).
Vþm. Vesturl. okt.—nóv. og des. 1971, nóv.—des. 1972, des. 1974, maí og des. 1976, des. 1977 og nóv.—des. 1978.
Tengd aðföng






