Bragi Sigurjónsson
9.11.1910 - 29.10.1995
Staða
Kennari, Ráðherra
Staður
Staður: Bjarkarstígur 7, 600-Akureyri, Akureyrarbær
Núverandi sveitarfélag: Akureyrarbær, Akureyrarbær
Sveitarfélag 1950: Akureyri
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
For.: Sigurjón Friðjónsson (f. 22. sept. 1867, d. 26. maí 1950) alþm. og k. h. Kristín Jónsdóttir (f. 22. okt. 1867, d. 27. okt. 1928) húsmóðir.
Bróðir Arnórs Sigurjónssonar vþm., móðurbróðir Inga Tryggvasonar alþm. og Kristínar Halldórsdóttur alþm.
K. (20. sept. 1936) Helga Jónsdóttir (f. 28. jan. 1909) húsmóðir.
Börn: Sigurjón (1937), Hrafn (1938), Þórunn (1940), Gunnhildur (1941), Ragnhildur (1944), Úlfar (1949). Sonur Braga og Björgheiðar Gísladóttur: Helgi Ómar (1954). Sonur Braga og Helgu Sigríðar Sigvaldadóttur: Kormákur Þráinn (1955).
Héraðsskólapróf Laugum 1929. Kennarapróf KÍ 1931. Stúdentspróf MA 1935. Lagði stund á íslensk fræði við Háskóla Íslands 1935—1936.
Kennari í Reykdælahéraði 1936—1938, við Gagnfræðaskóla og Iðnskóla Akureyrar 1938—1946. Tryggingafulltrúi hjá bæjarfógetanum á Akureyri 1946—1964. Útibússtjóri Útvegsbankans á Akureyri 1964—1979. Skip. 15. okt. 1979 landbúnaðar- og iðnaðarráðherra, lausn 4. des. 1979, en gegndi störfum til 8. febr. 1980.
Bæjarfulltrúi á Akureyri 1950—1954 og 1958—1970, forseti bæjarstjórnar 1966— 1970. Í raforkuráði, síðar orkuráði 1962—1975. Kosinn 1968 í hafísnefnd. Skip. 1969 í endurskoðunarnefnd laga um stofnlánadeild landbúnaðarins o. fl. Fulltrúi á þingi Evrópuráðsins 1967—1973. Formaður tryggingaráðs 1979.
Tengd aðföng


