Sigurður Bjarnason
18.12.1915 - 05.01.2012
Staða
Sendiherra, Alþingismaður
Staður
Staður: Nesvegur 101, 170-Seltjarnarnesi, Seltjarnarneskaupstaður
Núverandi sveitarfélag: Seltjarnarneskaupstaður, Seltjarnarnesbær
Sveitarfélag 1950: Seltjarnarneshreppur
Annað nafn
Sigurður frá Vigur
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Frá Vigur.
For.: Bjarni Sigurðsson (f. 24. júlí 1889, d. 30. júlí 1974) bóndi þar, sonur Sigurðar Stefánssonar alþm., bróður Stefáns Stefánssonar alþm. og skólameistara, og k. h. Björg Björnsdóttir (f. 7. júlí 1889, d. 24. jan. 1977) húsmóðir. Bróðir Sigurlaugar Bjarnadóttur alþm.
K. (5. febr. 1956) Ólöf Pálsdóttir (f. 14. apríl 1920) myndhöggvari. For.: Páll Ólafsson, mágur Vilmundar Jónssonar alþm., og k. h. Hildur Stefánsdóttir, föðursystir Ólafs Björnssonar alþm.
Börn: Hildur Helga (1956), Ólafur Páll (1960).
Stúdentspróf MA 1936. Lögfræðipróf HÍ 1941. Framhaldsnám í Cambridge í Englandi 1945.
Blaðamaður og ritstjóri í Reykjavík 1941—1969. Skip. 1970 sendiherra í Danmörku, Írlandi og Tyrklandi og 1973 sendiherra í Kína. Skip. 1976 sendiherra í Englandi, Hollandi og Nígeríu. Starfaði í utanríkisráðuneytinu í Reykjavík 1982—1985, var sendiherra á Kýpur frá 1983 og í Túnis og Indlandi frá 1984 með aðsetur í Reykjavík.
Forseti bæjarstjórnar Ísafjarðar 1946—1950. Stjórnarformaður menningarsjóðs blaðamanna 1946—1962. Skip. 1947 í undirbúningsnefnd löggjafar um þjóðleikhús. Í útvarpsráði 1947—1970, formaður þess 1959. Skip. 1951 í endurskoðunarnefnd laga um skipun prestakalla og endurskoðunarnefnd íþróttalaga. Í Norðurlandaráði 1953—1959 og 1963—1970, formaður Íslandsdeildar og einn af forsetum ráðsins 1953—1956, 1958—1959 og 1963—1970. Kosinn 1956 í milliliðagróðanefnd. Formaður Blaðamannafélags Íslands 1957—1958 og formaður Norræna blaðamannasambandsins sömu ár. Í Þingvallanefnd 1957— 1970 og í úthlutunarnefnd atvinnuaukningarfjár 1959—1960. Í úthlutunarnefnd listamannalauna 1961—1966. Í stjórn Atvinnubótasjóðs, síðar Atvinnujöfnunarsjóðs 1962—1970. Skip. 1962 í nefnd til að gera tillögur um framtíðarskipan ferðamála á Íslandi og 1966 í endurskoðunarnefnd hafnalaga. Kosinn 1966 í endurskoðunarnefnd laga um þingsköp Alþingis. Skip. 1968 í endurskoðunarnefnd laga um utanríkisráðuneyti Íslands og fulltrúa þess erlendis. Sat á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1960—1962. Formaður Norræna félagsins 1965—1970.
Alþm. N.-Ísf. 1942—1959, alþm. Vestf. 1963—1970 (Sjálfstfl.).
Vþm. Vestf. febr.— júní og des. 1960, jan.—febr. og febr. 1961, mars—apríl 1962 og febr.—mars 1963, landsk. vþm. (Vestf.) okt.— nóv. 1962, apríl 1963.
Forseti Nd. 1949—1956 og 1963—1970. 2. varaforseti Nd. 1946—1949, 1. varaforseti Ed. 1959.
Ritstjóri: Vesturland (1942—1959). Morgunblaðið (1947—1969). Stefnir (1950—1954). Ísafold og Vörður (1953—1968).
Heimildir:
Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr.17843-21805. Ísl. samtíðarmenn II, 193.
Tengd aðföng







