Maggi Júl. Magnús
4.10.1886 - 30.12.1941
Staða
Læknir
Staður
Staður: Laugarnes, Reykjavíkurborg
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Maggi Júlíusson Magnús. (Var skírður
Magnús en breytti skírnarnafni sínu og nefndist Maggi. Tók jafnframt
upp ættarnafnið Magnús og mun að jafnaði hafa skrifað nafn sitt M. Júl.
Magnús).
Foreldrar: Pétur Emil Júlíus Halldórsson
héraðslæknir í Klömbrum í Vesturhópi, V-Hún. f. 17.08.1850, d.19.05.1924.
og Ingibjörg Magnúsdóttir húsfreyja, f. 22.01.1849, d. 26.08.1946.
Nám: Stúdent frá Lærða skólanum
1904, Cand med. frá Læknaskólanum 1910, Sérfræðingsleyfi í húð og kynsjúkdómum
1923.
Störf: Vann í Danmörku frá árinu
1910-1912 , stafaði í Reykjavík frá 1913 til æviloka, Ráðinn til
þess að veita ókeypis læknishhjálp við kynsjúkdómum 1923-1934. Læknir við
Holdsveikraspítalann í Laugarnesi frá júlí 1934 til æviloka.
Maki I. Dora Vinter f.29.11.1890
húsfreyja, þau skildu 1919.
Maki II. Þórhildur Eiríksdóttir
(áður Sandholt), f. 17.09.1882, húsfreyja. Synir þeirra 1) Júlíus Maggi,
f. 20.02.1921 kaupmaður og forstjóri í Rvk. 2) Álfur, f. 18.05.1923
(stjúpsonur Magga, sonur Þórhildar af fyrra hjónabandi) 3) Þór Eyjólfur
Egilsson Sandholt, f. 30.03.1913, arkitekt og skólastjóri Iðnskólans í
Rvk.
Heimildir: Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn
nr: 21806-25504. (1957-1969)
Tengd aðföng





