Anna Sigfríður Einarsdóttir Lindström

22.10.1884 - 2.2.1977
Staða
Vesturfari
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Hún g. Lindström. Anna Sigfríður Einarsdóttir frá Ytri-Hlíð í Norður-Múlasýslu. Foreldrar hennar voru Einar Jónsson og Anna Kristín Jónasdóttir, þau dóu bæði milli 1894 og 1898. Anna flutti til Vesturheims í kringum 1905, hún giftist Ernst Theodor Lindström í september árið 1906 í Kenora, Kanada. Þau eignuðust 6 börn. Fjölskyldan bjó á ýmsum stöðum í Norður-Ameríku, m.a. Saskatchewan í Kanada, Minnesota, Iowa, New Jersey og Kaliforníu. Anna lést árið 1977 í Santa Rosa í Kaliforníu. -SBBP 2023 (ýmsar heimildir, m.a. ancestry.com)   Heimildir: Aðfangabók Þjóðminjasafns Íslands. Nr. 28522 - 31552.
Tengd aðföng