Kjartan Ólafsson
2.6.1933
Staða
Ritstjóri, Alþingismaður
Staður
Staður: Kambsvegur 23, 104-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Laugarás, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
F. á Laugum í Súgandafirði 2. júní 1933. For.: Ólafur Jón Ólafsson (f. 16. apríl 1913, d. 26. apríl 1979) kennari, föðurbróðir Ólafs Þ. Þórðarsonar alþm. og afabróðir Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur vþm., og Sigríður Pétursdóttir (f. 21. okt. 1910), móðursystir Ólafs Þ. Þórðarsonar alþm. og ömmusystir Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur vþm.
K. (20. sept. 1957) Gíslrún Sigurbjörnsdóttir (f. 23. sept. 1934) handavinnukennari. For.: Sigurbjörn Einarsson og k. h. Magnea Þorkelsdóttir.
Dætur: Edda (1958), Halla (1959), Signý (1960), Inga (1965), Katla (1975).
Stúdentspróf MA 1953. Nám í íslenskum fræðum í Háskóla Íslands 1954— 1956, í germönskum fræðum í Vín 1956—1958, í heimspekideild Háskóla Íslands 1958—1960. BA-próf í þýsku og mannkynssögu HÍ 1961.
Framkvæmdastjóri Samtaka hernámsandstæðinga 1960—1962. Framkvæmdastjóri Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins 1962—1968. Starfsmaður Alþýðubandalagsins og Þjóðviljans 1969—1972. Ritstjóri Þjóðviljans 1972— 1978 og 1980—1983.
Í miðstjórn Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins 1962—1968 og formaður hennar þann tíma, var einnig í framkvæmdanefnd flokksins flest þau ár. Í miðstjórn Alþýðubandalagsins 1968—1986, nema tvö ár, formaður hennar um skeið. Í framkvæmdastjórn Alþýðubandalagsins flest ár 1970—1983, formaður hennar eitt ár. Varaformaður Alþýðubandalagsins 1977—1983. Í stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins 1978—1979. Í stjórn Þörungavinnslunnar 1979— 1984. Fulltrúi ráðherra í bankaráði Iðnaðarbankans 1979—1984. Í stjórn Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis 1984—1991. Formaður stjórnar Stofnunar Sigurðar Nordals 1990—1993.
Alþm. Vestf. 1978—1979 (Alþb.).
Landsk. vþm. (Vestf.) nóv.—des. 1974, jan.— febr. 1975, nóv.—des. 1977, febr.—mars 1984, júní 1985.
Hefur unnið að sögurannsóknum, birt greinar í tímaritum og ritað verslunarsögu Vestur-Skaftfellinga í þremur bindum (1987, 1991 og 1993).
Ritstjóri: Þjóðviljinn (1972—1978 og 1980—1983).
Heimildir:
Aðfangabók Þjóðminjasafnsins Mms. 31553-34346.
althingi.is
Tengd aðföng











