Kristján Pálsson
1.12.1944
Staða
Alþingismaður, Bæjarstjóri
Staður
Staður: Kjarrmói 3, 260-Reykjanesbær, Reykjanesbær, Njarðvík, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjanesbær, Reykjanesbær
Sveitarfélag 1950: Njarðvíkurhreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
For.: Páll Pálsson (f. 1. apríl 1914, d. 19. des. 1994) skipstjóri frá Hnífsdal og k. h. Ólöf Karvelsdóttir (f. 15. nóv. 1916) húsmóðir.
K. 1. (1970) Aðalheiður Una Jóhannesdóttir (f. 8. jan. 1942) skrifstofumaður. Þau skildu. For.: Jóhannes S. Guðfinnsson og k. h. Þóra Laufey Finnbogadóttir.
K. 2. (23. mars 1978) Sóley Halla Þórhallsdóttir (f. 11. júlí 1953) kennari. For.: Þórhallur Halldórsson og k. h. Sigrún Sturludóttir.
Dætur Kristjáns og Aðalheiðar: Arndís (1969), Ólöf (1970).
Dætur Kristjáns og Sóleyjar: Hallgerður Lind (1978), Sigrún (1980).
Vélavarðanámskeið Fiskifélags Íslands 1963. Farmannapróf Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1967. Stúdentspróf TÍ 1975. Próf í útgerðartækni TÍ 1977.
Sjómaður á fiskiskipum og farskipum 1960-1976. Sveitarstjóri á Suðureyri 1977-1980. Framkvæmdastjóri Útvers hf. í Ólafsvík 1980-1986. Bæjarstjóri í Ólafsvík 1986-1990. Bæjarstjóri í Njarðvík 1990-1994.
Í bæjarstjórn Ólafsvíkur 1982-1990, í bæjarráði í 6 ár. Í stjórn verkamannabústaða í Ólafsvík 1986-1989. Í stjórn Útvers hf. í Ólafsvík 1986-1988, formaður. Formaður atvinnumálanefndar Ólafsvíkur 1983-1986. Formaður Umf. Stefnis í Súgandafirði og Umf. Víkings í Ólafsvík. Í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 1990-1994, formaður um skeið. Í stjórn hafnarinnar Keflavík-Njarðvík 1990-1994, formaður um skeið, og í stjórn Vatnsveitu Suðurnesja. Í nefnd um frísvæði á Suðurnesjum 1993-1995. Formaður umdæmanefndar um sameiningu sveitarfélaga á Suðurnesjum 1994. Sat þing Vestur-Evrópusambandsins 1995, formaður Íslandsdeildar þess síðan 1999. Sat á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1997.
Alþm. Reykn. 1995-2003 (Sjálfstfl., Ufl.).
Samgöngunefnd 1995-1999, félagsmálanefnd 1995-1999 og 1999-2003, allsherjarnefnd 1995-1999, umhverfisnefnd 1996-2003, sérnefnd um stjórnarskrármál 1996-1997, fjárlaganefnd 1999-2003.
Íslandsdeild VES-þingsins 1999-2003 (form.).
Heimildir:
www.althingi.is
Tengd aðföng
