Guðríður Friðlaug Guðjónsdóttir
01.11.1926 - 25.06.2016
Staður
Staður: Harastaðir, 371-Búðardal, Dalabyggð, Fellsströnd, Ísland
Staður: Emmuberg, Ymjaberg, 371-Búðardal, Dalabyggð, Skógarströnd, Ísland
Staður: Hörðuból, Harðarból, 371-Búðardal, Dalabyggð, Hörðudalur, Ísland
Staður: Gunnarsbraut 8, Silfurtún, 370-Búðardal, Dalabyggð, Búðardalur, Ísland
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Guðríður Friðlaug Guðjónsdóttir (Lauga). Fædd 1. nóvember 1926 á Harastöðum. Dáin 25. júní 2016 á sjúkrahúsinu á Akranesi. Starfstúlka við Staðarfellsskóla 1945-1946. Húsmæðraskólinn á Staðarfelli 1947-1948. Húsfreyja á Hörðubóli í Hörðudal 1948-1950. Húsmóðir í Reykjavík 1950-1952 og á Emmubergi á Skógarströnd 1952-2000. Húsmóðir í Reykjavík 2000-2011. Silfurtún í Búðardal 2011-2016. For. Guðjón Sigurðsson (1901-1994) bóndi og Sigríður Sigurðardóttir (1901-1966) húsfreyja á Harastöðum á Fellsströnd. Systkini hennar voru Sigríður Guðrún (1929-2011), Jóhanna Sigurást (1931-2014), Aðalsteinn Páll (1933-2020), Valgerður Ólafía (1936-2010), Sigurður Pétur (1938) og Guðmundur Agnar (1941-2021). Maður Guðríðar (1951) var Guðmundur Jónsson (1925-2010) bóndi. Börn þeirra eru Guðjón Bergmann (1949-2007), Kristín Sigríður (1951), Sigríður Kolbrún (1952-2004), Ingibjörg Emma (1957-2024). Kristjana Eygló (1958) og Guðmundur Flosi (1965).
Heimildir: Minning - Guðríður Friðlaug Guðjónsdóttir. Morgunblaðið 5.7.2016. Bls. 22.
Þórður Kárason ofl. 1977. Byggðir Snæfellsness. Bls. 472.
Tengd aðföng

