Guðný Guðbergsdóttir

30.03.1922 - 18.03.1990
Staða
Húsmóðir
Staður
Staður: Austurgata 3, 220-Hafnarfjörður, Hafnarfjarðarkaupstaður Staður: Grandavegur 36, 107-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Vesturbær, Ísland Staður: Markland 2, 108-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Fossvogur, Ísland
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Guðný Guðbergsdóttir (Gugga). Fædd 30. mars 1922 í Hafnarfirði. Dáin 18. mars 1990. Stofnfélagi íþróttafélagsins Hauka í Hafnarfirði. Húsmæðraskólinn á Staðarfelli 1945-1946. Húsmóðir á Grandavegi 36 (Stóra-Skipholti) í Reykjavík og víðar. Rak vefnaðarvöruverslun í Ásgarði, starfaði hjá Álafoss og í móttöku Landspítalans. For. Guðbergur Guðmundur Jóhannsson (1893-1976) sjómaður og María Guðnadóttir (1896-1973) húsmóðir á Austurgötu 3 í Hafnarfirði. Bræður hennar eru Guðbjörn (1923), Jóhann Rúnar (1930) og Guðmundur (1937). Maður Guðnýjar (1946) var Óli Björgvin Jónsson (1918-2005) íþróttakennari og knattspyrnuþjálfari. Börn þeirrra eru Hólmfríður María (1946), Jón Már (1948) og Jens Valur (1958). Heimildir: Einar Kristjánsson og Steinunn Þorgilsdóttir. 1967. Staðarfellsskóli 40 ára. Bls. 27-28. Minning – Guðný Guðbergsdóttir. Morgunblaðið 3.4.1990. Bls. 39.
Tengd aðföng