Kristensa Áslaug Georgsdóttir
17.10.1924 - 29.3.2014
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Kristensa Áslaug Georgsdóttir. Fædd 17. október 1924 í Reykjavík. Dáin 29. mars 2014 á heilbrigðisstofnun Þingeyinga. Húsmæðraskólinn á Staðarfelli 1945-1946. Húsmóðir og verkakona í Hafnarfirði 1951-1984 og á Húsavík 1984-2014. For. Georg Grundfjörð og Guðfinna Bjarnadóttir. Hálfsystkini samfeðra voru Guðrún (1908-), Rósa Aðalheiður (1919-), Sigurvin Grundfjörð (1920-), Bjarnfríður Valný (1922-), Þorgils (1923-), Georg Kristján (1925-), Haukur Garðar (1927-), Ingvar Alfreð (1929-), Ester (1931-), Friðrik Heiðar (1934-), Elsa (1937-), Bjarni (1940-) og Jónas (1942). Fósturforeldrar hennar voru Magnús Jónsson (1870-) og Jóhanna Elísdóttir (1890-) á Kolgröfum í Kolgrafarfirði. Uppeldissystir hennar var María Magnúsdóttir (1915-). Maður Áslaugar (1951) var Stefán Helgi Halldórsson (). Dóttir þeirra er Jóhanna (1957).
Heimildir: Einar Kristjánsson og Steinunn Þorgilsdóttir. 1967. Staðarfellsskóli 40 ára. Bls. 27-28.
Minning – Áslaug Georgsdóttir. Morgunblaðið 5.4.2014. Bls. 41.
Tengd aðföng
