Sveinn Eiríksson
8.10.1860 - 3.3.1952
Staða
Snikkari, Vesturfari, Trésmiður
Staður
Staður: Bræðraborgarstígur 3, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Vesturbær, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Núverandi sveitarfélag: Foam Lake, Foam Lake
Annað nafn
Sveinn katólski Eiríksson
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Katólski.
Niðursetningur í Rauðholti, Hjaltastaðasókn, N-Múl. 1870. Fermdur í Hjaltastaðasókn 1875. Fór 1878 frá Hóli í Hjaltastaðasókn að Bót í Kirkjubæjarsókn. Vinnumaður á Sauðhagahjáleigu, Vallanesssókn, S-Múl. 1880. Fór til Danmerkur til að læra trésmíði, bjó þar um tíma og rak verslun. Fór 1895 til Íslands. Trésmíðameistari á Bræðraborgarstíg 3, Reykjavík 1901. Fór til Vesturheims, Kanada 1903. Varð bóndi í Foam Lake byggð, Saskatchevan, mun hafa átt talsverðan fjölda afkomenda. Var í MacKenzie, Saskatchewan, Kanada 1906. Bóndi í Humboldt, Saskatchewan, Kanada 1911. Bóndi í Foam Lake, Saskatchewan, Kanada 1916. Bóndi í Foam Lake, Saskatchewan, Kanada 1921.
Heimildir:
Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr.17843-21805
Tengd aðföng



