Jóhann Ársælsson

7.12.1943
Staða
Skipasmiður, Alþingismaður
Staður
Staður: Vesturgata 59b, 300-Akranes, Akraneskaupstaður, Akranes, Ísland Núverandi sveitarfélag: Akraneskaupstaður, Akraneskaupstaður Sveitarfélag 1950: Akranes
Ítarupplýsingar
Vefbirting: F. í Ólafsvík 7. des. 1943. For.: Ársæll Jónsson (f. 25. sept. 1918, d. 12. ágúst 1996) frá Arnarstapa, vitavörður og bóndi, síðan hafnarstjóri í Rifi og k. h. Anna Sigrún Jóhannsdóttir (f. 3. júní 1919) húsmóðir. K. (27. maí 1966) Guðbjörg Róbertsdóttir (f. 10. júlí 1944) skólaritari. For.: Róbert E. Duplease og Þorgerður Jóna Oddsdóttir. Börn: Ársæll (1966), Ægir (1968), Kári (1970), Gerður Jóhanna (1976). Nám í skipasmíði 1961-1965, skipasmíðameistari 1965. Framkvæmdastjóri Bátastöðvarinnar Knarrar á Akranesi 1974-1991 og 1995-1999. Bæjarfulltrúi á Akranesi 1974-1982 og 1986-1990. Í stjórn Sementsverksmiðju ríkisins 1977-1981. Í stjórn HAB 1979-1987. Í miðstjórn Alþýðubandalagsins síðan 1987. Í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins 1992-1993. Í bankaráði Landsbankans 1995-1998.   Alþm. Vesturl. 1991-1995 (Alþb.) og 1999-2003 (Samf.), alþm. Norðvest. 2003-2007. Vþm. Vesturl. okt. 1984. Sjávarútvegsnefnd 1991-1995 og 1999-2007, samgöngunefnd 1991-1995 og 2003-2004, umhverfisnefnd 2000-2003, sérnefnd um stjórnarskrármál 1999 og 2000-2002, kjörbréfanefnd 2003-2007, iðnaðarnefnd 2004-2007, landbúnaðarnefnd 2006-2007. Heimildir: http://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=280
Tengd aðföng