Gísli Halldórsson
12.8.1914 - 08.10.2012
Staða
Arkitekt
Staður
Staður: Tómasarhagi 31, 107-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Hagar, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Foreldrar: Halldór Halldórsson og Guðlaug Jónsdóttir.
Maki: Inger Margrét Erichsen f. 25.12.1908.
Störf: Rekur teiknistofu og teiknaði meðal annars íþróttaleikvang og sýningarhúsið í Laugardal. Forseti ÍSÍ frá 1962.
Ferill Gísla í íþróttahreyfingunni á Íslandi var einstakur. Í starfi sínu sem arkitekt teiknaði hann fjölmörg félagsheimili og íþróttamannvirki, m.a. íþróttaleikvanginn í Laugardal og Laugardalshöllina. Gísli var lengi borgarfulltrúi og var forseti borgarstjórnar um fjögurra ára skeið. Hann var einnig formaður í stjórn íþróttavallanna í Reykjavík 1958-1961 og formaður Íþróttaráðs 1961-1974. Gísli starfaði um árabil fyrir Knattspyrnufélag Reykjavíkur og var formaður bygginganefndar KR í tæp 30 ár. Hann var í stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur frá stofnun þess 1944 til ársins 1962, þar af formaður í 13 ár. Forseti Íþróttasambands Íslands var hann árin 1962-1980 og átti sæti í Ólympíunefnd Íslands 1951-1994, þar af formaður í 22 ár.
Gísli hlaut fjölmargar viðurkenningar, bæði á vettvangi íþróttanna og vettvangi annarra félagasamtaka. Hann var m.a. Heiðursforseti ÍSÍ frá 1994, heiðursfélagi í KR frá 1974 og heiðursfélagi í Arkitektafélagi Íslands frá 2002. Gísli var einnig vel þekktur á alþjóðavettvangi íþróttanna og þar mikils metinn. Hann hlaut Heiðursorðu Alþjóðaólympíunefndarinnar árið 1983, Heiðursorðu Ólympíunefndar Litháens árið 1991 og Gullorðu Heimssambands ólympíunefnda árið 2002. Gísli hlaut riddarakross fálkaorðunnar árið 1963 og stórriddarakross fálkaorðunnar árið 1974.
Eiginkona Gísla var Margrét Halldórsdóttir. Margrét lést árið 1987. Sonur þeirra er Leifur Gíslason byggingarfræðingur.
Heimildir:
http://isi.is/frettir/frett/2012/10/12/Gisli-Halldorsson-latinn/
Tengd aðföng








