Sveinn Sæmundsson

9.4.1923 - 26.03.2017
Staða
Rafvélavirki, Markaðsstjóri, Rithöfundur, Blaðafulltrúi
Staður
Staður: Kópavogsbraut 96, 200-Kópavogi, Kópavogsbær Núverandi sveitarfélag: Kópavogsbær, Kópavogsbær Sveitarfélag 1950: Kópavogshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Rafvélavirki, blaðamaður, blaðafulltrúi, markaðsstjóri og rihöfundur. Var í Sigtúnum, Akranessókn, Borg. 1930. síðast búsettur í Kópavogi. Foreldrar hans voru Karólína Stefánsdóttir, f. 1891, d. 1986, og Sæmundur Eggertsson, f. 1896, d. 1969. Systkini hans eru Auður Ásdís, f. 1925, og Eggert, f. 1928, d. 1990. Sveinn var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Hrefna Guðmundsdóttir en eftirlifandi eiginkona hans til 59 ára er María Jónsdóttir. Börn: 1) Guðmundur Ágúst, f. 1946, d. 1947. 2) Kolbrún, f. 1948, maki Ævar Pálmi Eyjólfsson. Börn; Sólveig, Eyjólfur Pétur og Ævar Pálmi. Barnabörn eru 11 og tvö barnabarnabörn. 3) Erla, f. 1950, maki Pétur J. Eiríksson. Börn; Jóhanna Dögg og Freyja. Eitt barnabarn. 4) Goði, f. 1958, maki Anna K. Marteinsdóttir. Börn; Guðrún Rína, Styrmir og Marta. Barnabörn eru 5. 5) Sindri, f. 1962, maki Sigríður Einarsdóttir. Börn; Linda Mjöll, Fannar og Íris Fanney. Barnabörn eru 4. Sveinn ólst upp á Akranesi og nam rafvélavirkjun í Iðnskólanum og hjá Bræðrunum Ormsson. Að námi loknu starfaði hann um tíma sjálfstætt en réðst fljótlega til Eimskipa og sigldi á Fossunum. Hann dvaldi um árabil við nám og störf í Vancouver í Kanada og hjá AEG í Hamborg. Eftir heimkomu starfaði hann sem blaðamaður og ljósmyndari á Tímanum og síðar á Alþýðublaðinu. Árið 1957 hóf Sveinn starf sem blaðafulltrúi hjá Flugfélagi Íslands. Við sameiningu Loftleiða og Flugfélags Íslands og stofnun Flugleiða 1973 var Sveinn ráðinn blaðafulltrúi Flugleiða, starf sem hann gegndi í tæp 30 ár en síðustu árin hjá Flugleiðum söðlaði Sveinn um og gegndi starfi markaðsstjóra innanlandsflugs. Sveinn skrifaði fjölda greina og viðtala í blöð og tímarit en jafnframt var hann mikilvirkur rithöfundur og eftir hann liggja alls 13 bækur sem komu út á árunum 1965-1992. Vikulegir viðtalsþættir Sveins í Ríkisútvarpinu nutu einnig mikilla vinsælda. Sveinn var um árabil formaður Rithöfundasambands Íslands, forseti Skotsambands Íslands og formaður stangveiðifélagsins Ármanna. Sveinn lék um árabil á trompet með Lúðrasveitinni Svani.   Heimildir: https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1635937/?item_num=0&searchid=225e48eea2e687fcdba76b49920527ee5fe4943d https://www.islendingabok.is/search
Tengd aðföng