Jörundur Jónsson
25.12.1826 - 1.10.1888
Staða
Útgerðarmaður
Staður
Núverandi sveitarfélag: Akureyrarbær, Akureyrarbær
Sveitarfélag 1950: Hríseyjarhreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Jörundur Jónsson var útvegsbóndi í
Hrísey, nefndur Hákarla-Jörundur.
Foreldrar hans voru Jón Björnsson á
Gunnólfsá í¦álafsfirði og Guðrún Loftsdóttir frá Grund í Höfðahverfi. Jörundur
fluttist 1862 til Hríseyjar og keypti jörðina Syðstabæ. Hann rak þar útgerð,
einkum hákarlaveiðar og varð annálaður sjósóknari og aflamaður. Vegna þess
var hann oftast nefndur Hákarla-Jörundur. Fyrri kona Jörundar var Svanhildur
Jónsdóttir frá Bakka í Svarfaðardal. Börn þeirra voru: Jóhannes, hafnsögumaður
og útgerðarmaður í Hrísey, Sigtryggur í Hringsdal á Látraströnd, Björn,
útgerðarmaður í Hrísey og Loftur sem fluttist til Vesturheims.
Seinni kona Jörundar var Margrá‚át
Guðmundsdóttir frá Moldhaugum. Börn þeirra sem komust upp voru:
Svanhildur, Sigrún, Guðmundur, útgerðarmaður
og skipsstjóri í?áorgeirsfirði, Aðalsteinn, Þorgerður og Jörundur, útgerðarmaður
í Hrísey. Hárkarla-Jörundur ættleiddi Þorstein, son seinni konu sinnar.
Sonarsonur Jörundar er Guðmundur Jörundsson
sem rekur samnefnt fyrirtæki í Reykjavík.
Tengd aðföng