Guðmundur Sveinsson

11.08.1920 - 24.03.2011
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Guðmundur Sveinsson. Fæddur 11 ágúst 1920 á Hofsstöðum. Dáinn 24. mars 2011 á Reykhólum. Bóndi í Miðjanesi 1944-1948, Borg 1948-1952 og í Gröf í Þorskafirði 1952-1989. For. Sveinn Sæmundsson (1879-1949) bóndi og Sesselja Oddmundsdóttir (1885-1935) á Hofsstöðum í Þorskafirði. Systkini hans voru Jón (1904-1904), Guðmundur Friðjón (1905-1905), Bjarnveig Þorgerður (1907-1993), Ragnar Trausti (1908-1994), Jón (1911-2001), Hallgrímur (1912-1996), Guðrún (1914-1984), Sigríður Ingibjörg (1916-1992), Elísabet (1918-2001), Hákon (1924-2004) og Arndis (1924-2001). Kona Guðmundar var Halldóra Guðjónsdóttir (1916-2013) húsfreyja. Dætur þeirra voru Ósk Jóhanna (1946) og Arndís Ögn (1954). Dóttir Halldóru og stjúpdóttir Guðmundar er Guðrún Kolbrún Pálsdóttir (1939). Heimildir: Finnbogi Jónsson ofl. 2014. Hjalla meður græna. Bls. 297-298 og 339-342.
Tengsl við
Tengd aðföng