Jóhann Hermannsson
6.10.1921 - 16.10.2005
Staða
Skrifstofumaður
Staður
Staður: Laugarbrekka 10, 640-Húsavík, Norðurþing, Húsavík, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Norðurþing, Norðurþing
Sveitarfélag 1950: Húsavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Jóhann Hermannsson fæddist á Bakka við Húsavík 6. október 1921. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 16. október 2005.
Foreldrar hans voru hjónin Friðný Óladóttir, f. í Sveinungsvík í Þistilfirði 9. janúar 1889, d. 1. febrúar 1964, og Hermann Stefánsson, f. í Landamóti í Ljósavatnshreppi 24. júlí 1887, d. 7. október 1957, ábúendur á Bakka.
Jóhann ólst upp á Bakka og var hann fimmti í röð átta systkina. Eldri voru Jónína, Óli, Guðbjörg og Þórunn en yngri Stefán, Anna og Gunnar. Anna er nú ein á lífi af systkininum.
Maki: Guðrún Sigurbjörg Tryggvadóttir frá Garði í Húsavík, f. 23. október 1923.
Þau eignuðust þrjá syni:
1) Tryggvi, f. 10. apríl 1949, kvæntur Guðlaugu Sigmarsdóttur, f. 14. júlí 1948. Börn: Sigmar, Guðrún og Ágústa. Barnabörnin eru fimm.
2) Hermann, 26. maí 1954, kvæntur Gerði Gísladóttur, f. 20. mars 1955. Börn: Borgar Þór, Gísli Arnar, Olga María og Jóhann.
3) Óskar, f. 7. febrúar 1962, kvæntur Yuliu Gogascheva, f. 27. febrúar 1967. Börn: Ásrún, Andrés, Ester, Friðný Karitas, Ísólfur Unnar og Eyja Alexandra.
Jóhann eignaðist jafnframt dótturina Hjördísi Ásberg, f. 22.11.1956, með Sigurbjörgu Guðmundsdóttur, f. 24.11.1914, d. 15.01.2008. Börn hennar eru Guðmundur Gauti og Elísa Björg.
Jóhann gekk í skóla á Húsavík og á Laugum. Hann stundaði síðar sjómennsku um árabil, var á vetrarvertíð á Suðurnesjum og gerði út trillu frá Húsavík. Árið 1955 gerðist hann starfsmaður skattanefndar Húsavíkur og jafnframt framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Húsavíkur um alllangt skeið. Hann var umboðsmaður skattstjóra frá 1962 þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Jóhann var kjörinn í fyrstu bæjarstjórn Húsavíkur árið 1950. Þar sat hann óslitið til ársins 1974 og var forseti bæjarstjórnar um skeið. Hann sat í ýmsum stjórnum, ráðum og nefndum. Jóhann var um árabil í stjórn Kaupfélags Þingeyinga og í stjórn Fiskiðjusamlags Húsavíkur. Hann var lengi í ritnefnd Árbókar Þingeyinga og árið 1993 vann hann ásamt öðrum að útgáfu kortabókar sem bar nafnið Húsavíkurland, örnefni og söguminjar og kom út á vegum Safnahússins á Húsavík. Hann var einnig í Sögunefnd sem skipuð var vegna ritunar sögu Húsavíkur. Jóhann tók mikinn þátt í félagslífi á Húsavík. Hann starfaði áratugum saman í Rotaryklúbbi Húsavíkur, karlakórnum Þrymi og Bridgefélagi Húsavíkur.
Heimildir:
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1045174/?item_num=0&searchid=96e2acd073c69684db0d15f0b2e25ed4f5a4ff96
Tengd aðföng




