Guðrún Marsibil Guðmundsdóttir
22.6.1874 - 17.5.1956
Staða
Húsfreyja
Staður
Staður: Fell, 510-Hólmavík, Strandabyggð, Kollafjörður, Ísland
Staður: Hvolssel, Svínadalssel - Snorrastaðir, 371-Búðardal, Dalabyggð, Saurbær, Ísland
Staður: Einfætingsgil, 500-Stað, Strandabyggð, Bitra, Ísland
Staður: Bær í Króksfirði, 381-Reykhólahreppur, Reykhólahreppur, Reykhólasveit, Ísland
Staður: Gil, 415-Bolungarvík, Bolungarvíkurkaupstaður, Syðridalur í Bolungarvík, Ísland
Staður: Fjarðarhorn, 381-Reykhólahreppur, Reykhólahreppur, Gufudalssveit, Ísland
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Guðrún Marsibil Guðmundsdóttir. Fædd 22. júní 1874 á Felli í Kollafirði. Dáin 17. maí 1956. Húsfreyja í Hvolsseli 1896-1899, á Einfætingsgili í Bitru 1899-1914, Bæ í Króksfirði 1914-1915, Fjarðarhorni í Gufudalssveit 1915-1921 og á Hóli í Bolungarvík frá 1921. For. Guðmundur Jónsson (1828-1898) bóndi og Magðalena Guðmundsdóttir (1837-1882) húsfreyja á Borgum í Hrútafirði. Maður Guðrúnar (1894) var Zakarías Einarsson (1863-1938) frá Snartartungu í Bitru. Börn þeirra voru Herdís (1896-1991), Ólafur (1901-1985), Sigríður (1903-1994), Magðalena Guðný (1904-1998), Ragúel (1906-1906), Guðmundur Skúli (1907-1988), Ingólfur (1908-1926), Guðrún (1910-2008), Leifur (1911-1965), Sigurbjarni Ágúst (1913-1984), Þorkell (1915-), Samúel (1916-2001) og Magnús Kristinn (1920-1998).
Heimildir: Hjalla meður græna. 2014. Bls. 435-436.
Jón Guðnason. 1955. Strandamenn. Bls. 163-164.
Jón Guðnason. 1961. Dalamenn II. Bls. 459.
Tengd aðföng
