Guðmundur Í. Guðmundsson
17.7.1909 - 19.12.1987
Staða
Alþingismaður, Sendiherra
Staður
Staður: Sólvallagata 8, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Vesturbær, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Guðmundur Ívarsson
F. í Hafnarfirði 17. júlí 1909, d. 19. des. 1987.
For.: Guðmundur Magnússon (f. 26. okt. 1879, d. 29. okt. 1960) skipstjóri þar og k. h. Margrét Guðmundsdóttir (f. 20. mars 1878, d. 7. okt. 1959) húsmóðir.
K. (19. sept. 1942) Rósa Ingólfsdóttir (f. 27. júní 1911) húsmóðir. For.: Ingólfur Lárusson og k. h. Vigdís Árnadóttir.
Synir: Guðmundur Ingólfur (1943), Ingólfur Vignir (1944), Grétar (1946), Örn (1949), Ævar (1950).
Stúdentspróf MR 1930. Lögfræðipróf HÍ 1934. Hrl. 1939.
Gerðist að loknu prófi fulltrúi á málaflutningsskrifstofu Stefáns Jóh. Stefánssonar alþm. og Ásgeirs Guðmundssonar, varð meðeigandi Stefáns Jóhanns 1. jan. 1936 og rak málaflutningsskrifstofuna með honum til 1945. Skip. 1945 sýslumaður í Gullbringu- og Kjósarsýslu og bæjarfógeti í Hafnarfirði, lausn 1965, en gegndi ekki embætti eftir að hann varð ráðherra árið 1956. Settur bæjarfógeti í Kópavogskaupstað júní til ágúst 1955. Skip. 24. júlí 1956 utanríkisráðherra, lausn 4. des. 1958, en gegndi störfum til 23. des. Skip. 23. des. 1958 utanríkis- og fjármálaráðherra, lausn 19. nóv. 1959, en gegndi störfum til 20. nóv. og var þá skip. utanríkisráðherra að nýju, lausn 31. ágúst 1965. Skip. 1965 sendiherra í Stóra-Bretlandi og Hollandi með aðsetri í Lundúnum, jafnframt sendiherra á Spáni og í Portúgal 1965 og í Nígeríu 1971. Sendiherra í Bandaríkjunum og jafnframt í Argentínu, Brasilíu, Kanada, Mexíkó og á Kúbu 1971—1973. Sendiherra í Svíþjóð, Finnlandi og Austurríki með setu í Stokkhólmi 1973—1977. Sendiherra í Belgíu og Lúxemborg, hjá Evrópubandalaginu og Atlantshafsbandalaginu 1977—1979.
Skip. 1936 í nefnd til að gera tillögur um vinnulöggjöf, formaður nefndarinnar. Kosinn 1943 í mþn. í skattamálum og mþn. um launakjör alþingismanna. Skip. 1947 í nefnd til að endurskoða skatta- og útsvarslöggjöfina. Í flugráði 1947— 1956 og í varnarmálanefnd 1952—1953. Kosinn 1954 í mþn. um brunamál utan Reykjavíkur. Varaformaður Alþýðuflokksins 1954—1965. Sótti fund Þingmannasamtaka Norður-Atlantshafsríkjanna 1955. Í bankaráði Útvegsbankans 1957—1965, formaður þess 1961—1965. Skip. 1958 í sendinefnd Íslands á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Genf um réttarreglur á hafinu.
Landsk. alþm. (G.-K., Reykn.) 1942—1949 og 1952—1965 (Alþfl.).
Landsk. vþm. (G.-K.) jan.— mars og okt. 1950 og nóv.—des. 1951.
Utanríkisráðherra 1956—1958 og 1959—1965, utanríkis- og fjármálaráðherra 1958—1959.
2. varaforseti Ed. 1943—1946 og 1947—1949, 1. varaforseti Ed. 1946— 1947.
Heimildir:
http://www.althingi.is/cv.php4?nfaerslunr=189
Tengd aðföng










