Margrét Lára Rögnvaldsdóttir
30.10.1935 - 11.09.2000
Staða
Kaupfélagsstjórafrú, Húsmóðir, Afgreiðslukona, Leiðbeinandi
Staður
Staður: Ásar, 371-Búðardal, Dalabyggð, Saurbær, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð, Ísland
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Staður: Álfheimar 48, 104-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Staður: Ólafsdalur, 371-Búðardal, Dalabyggð, Saurbær, Ísland
Sveitarfélag 1950: Saurbæjarhreppur Dal.
Staður: Gullsmári 10, 201-Kópavogur, Kópavogsbær, Smárahverfi, Ísland
Sveitarfélag 1950: Kópavogshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Margrét Lára Rögnvaldsdóttir. Fædd 30. október 1935 í Ólafsdal. Dáin 12. september 2000 í Gullsmára 10. Kaupfélagsstjórafrú á Ásum við Salthólmavík. Afgreiðslustörf og leiðbeinandi við félagsstarf aldraðra í Reykjavík frá 1973. For. Rögnvaldur Guðmundsson (1898-1986) og Sigríður Guðjónsdóttir (1889-1971) í Ólafsdal. Bræður hennar voru Guðjón (1929) og Guuðmundur (1933). Hálfsystkini sammæðra voru Sigurgeir (1910-1910), Sigríður Geirlaug (1911-1988), Gunnhildur Steinunn (1913) og Guðmundur Kristinn (1916-1970). Maður Margrétar (1957) var Guðmundur Vilhjálmur Hjálmarsson (1909-1973) kaupfélagsstjóri. Börn þeirra eru Rögnvaldur (1958), Áslaug (1960) og Sigríður (1965). Sambýlismaður Margrétar (1979) var Sigurður Sveinsson (1931) úr Vestur-Skaftafellssýslu.
Heimildir:
Jón Guðnason. 1961. Dalamenn II. Bls. 379.
Minning - Margrét Lára Rögnvaldsdóttir. Morgunblaðið 20.9.2000. Bls. 38.
Tengd aðföng

