Ull

In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Karl (1879)
Object-related numbers
Museumnumber a: 1249 "Museumnumber b": 1966-1
Questions / Answers
Allar spurningar og svör
Nr. 1249

p1
ULL OG TÓVINNA 3.
Faðir minn var vefari og óf fyrir heimilið en tók ekki vefnað. Ég
lærði vefnað af föður mínum og óf töluvert á tímabili æfinnar fyrir heimilið.
Á tímabilinu í kringum 1890 tók faðir minn oft vefara. Hér í dalnum var
afbragðs vefari Guðmundur Jónsson frá Strjúkastöðum síðar bóndi á
Auðólfsst. hér í dal. Hann byrjaði að vefa innan við fermingu, og á 14.ári
fékk faðir minn hann eitt sinn til að klára vef fyrir sig, og óf hann þá
yfir 10 al á dag, af nokkuð fínu vaðmáli. Eftir að hann varð fullorðinn
óf hann oft 10-15 al. af vaðmáli á dag. Rakti stundum og setti upp vef
á dag. Hann var afburða vefari, og fór hér víða um og óf. Stundum tók hann
vefnað heim. Víða var það að ákveðnir menn á heimilinu ófu,og höfðu þá
lítinn annan starfa. Fyrir jól var oft lítið ofið. þó var stundum
settur upp tvistvefur fyrir jól, var það haft í milliskyrtur millipils,
þau þá oft með bekkjum að neðan, en annars röndótt. Milliskyrtur


p2
voru venjulega langröndóttar.
Þá voru ofnar stundum úr tvisti (þ.e. bómullargarn) þær voru oft rúðóttar.
Æfinlega var sjáfsagt að klára vef fyrir jól. Hér var vefstóllinn hafður
í baðstofu, og þótti taka mikið pláss. Sumstaðar þar sem vefstóll var ekki
í baðstofu var minna hirt um að klára vef fyrir jól, og til var að sumir
vefarar höfðu uppi vef allt sumarið og gripu í að vefa í rigningu eða vondu
veðri jafnvel um sláttinn. Misjafnt var það hvað menn sátu lengi
við vefnað, en þeir sem ekki sinntu öðru sátu oft við allan daginn. Það
var ákaflega breytilegt hvað menn ófu, enda ákaflega misjafnt hvað þráðurinn
hélt vel, ef mikið slitnaði gekk oft seint að vefa. Oft var ekki ofið nema
6-7 al af fínu verki 4-5 lóða verki, en stundum upp í 10 al og það þótti
ágætt. Einu sinni man ég að ég óf um 16-18 alnir að meðaltali á dag, það
var svo góður þráður að 10 eð 12 þræðir slitnuðu allan vefinn. Þann þráð
spann Margrét Eiríksdóttir, er lengi bjó á Sækambi

p3
í Víðidal var hún
þá orðinn gömul kona. Af tvisti var oft hægt að vefa 10-12 al á dag miðað
við 12 klst. Sumir sátu miklu lengur við vefnað, en ófu oft ekki meira
fanst mér enda er vefnaður erfiður. Hér ófu nær eingöngu karlmenn og byrjuðu
oft um 14 ára aldur. Ákveðin greiðsla var fyrir vefnað var tekið á alin,
og var misjafnt eftir því hvort verkið var fínt eða gróft. Um aldamótin
var algengt 15-16 og upp í 20 aura á alin. Eitthvað voru vaðmál seld í
kaupstaði fyrir fisk, en miklu meira var selt af smjöri og tólg fyrir fiskmeti.
Eins fengu hjá oft vaðmál upp í kaup. Strax eftir nýár voru vefir settir
upp, og þá látið stija fyrir að vefa í nærföt. Fyrir og um aldamót voru
flestir í vaðmálsskyrtum næst sér og vaðmálsbuxum. Prjónaföt komu seinna.
Var það fínt vaðmál sérstaklega í skyrtum 4-5 lóða verk oftast grófara
í buxum 6-7 lóða verk. 32 lóð eru í pundi eða 1/2 kg. og er miðað við að
hespan sé svona og svona mörg lóð (t.d. 5-6 lóð)

p4
Hér var alltaf talað
um vefstól. Ég heyrði talað um kljásteinavefnað, en hann var lagður niður
löngu fyrir mitt minni, og mig minnir að hvorki faðir minn (f.1844) eða
móðir mín (f.1847) sæu aldrei ofið í honum en þau vissu nokkurn veginn
hvernig það var gert. Helsti vefstólasmiðir þegar ég man fyrsti var
Friðfinnur Jónsson bróðir Guðm. Jónss.er getið er hér að framan og Þorlákur
Þorlákss. í vesturhópshólum V.Hún. Ég þekkti bæði vefstóla með slöngurifinu
uppi (okkar vefstóll var þannig) og með rifinn fyrir neðan bómuna. Þóttu
þeir vefstólar taka minna pláss, var frekar hægt að hafa þá undir súð.
Annað var líka breytilegt, að skammelin sem stigið var á voru stundum á
aftur slánni, og var þá stigið á þau fremst. Stundum voru stíg skammelin
neðan á fram slánni og gengu aftur af henni. Það gjörði stigið léttara.
Laga þá skammelin á gólfinu oftast eða um það bil, en

p5
bogið járn lá þá
aftur fyrir slána, og það ás í gegnum skammelin, Svo var á okkar vefstól.
Annars lágu skammelin ofan á slánni og teinn þar í gegnum þau. Tvíbreiðir
vefstólar þekktust hér ekki fyrr en seinna, en ég man ekki hvenær að kom
tvíbreiður vefstóll hér í Svartárdalnum, og þá um leið hraðskytta. Tvíbreiðir
vefstólar voru að gerð svipaðir hinum nema miklu breiðari ég held að þeir
hafi tekið tveggja aln. breiðan vef. Annars áttu vaðmál að vera 1 al og
3 þuml á breidd, og við það var jafnan miðað. Flest heimili hér áttu vefstól,
þau sem ekki áttu vefstól komu þá vefnaði fyrir. Ég man nnú ekki hvað nýjir
vefstólar kostuðu en líklega hefur það verið 60-80 kr. Hvorugur vefstóllinn
íslenski B eða C er líkur þeim vefstólum er hér voru smíðaðir. Skammelin
voru venjulega gert á slána undir setubekknum og sú slá var niðurundir
gólfi. Setubekkurinn var oft kræktur, en engin slá undir setubeknum, honum
krækt beint

p6
í stólpann að framan.
Aftur á móti eru vefshausarnir á B eins og var á okkar vefstól. Á
sumum vefstólum voru svo kallaðar vippur (bogin tré) yfir höföldunum á
okkar vefstól voru það hjól, sem höföldunum var krækt í eða sem snærin
láu yfir, ofan í höföldin var það miklu liðugra, en þessar vippur. Skeiðarslagið
var klofið að ofan og teinn á milli armanna, sem lá í járntnnum sem var
ofan á barðinu er skeiðar slagið hékk á, mátti færa skeiðarslagið nær og
fjær þar uppi, því tannirnar eða fölsin uppi voru 4-5. Hliðarstykkin á
vefstólmun voru fast samsett, á milli þeirra var svo skammelasláin að framan
og önnur slá eins að aftan, gengur þær í gegnum fram og aftur stólpana,
og fleygar reknir niður til þess að halda vefstólnum saman (sjá nr.23)á
vefstól(). Að aftan var svo þráðarbóman grópuð útfyrir afturstólpann, og
trétappi rekinn gegnum hana inn í afturstólpann. Að ofan hélt saman hafalda
sláin eða hafalda bóman (sem sumir kölluðu). Hún hafði hök út fyrir grindina,
svo að hliðar

p7
stykkin gátu ekki
gengið sundur, Brjóstbóman að framan var sett ofan í framstólpan og hök
á henni að utan og innan veitti það mikinn stuðning. Rifunum var svo bara
smeygt í. Mátti því taka allan vefstólinn sundur, mjög fljótlega, og geyma
hann þannig. Hér var jafnan talað um vefjarskeiðar eða bara skeiðar.
Ég heyrði ekki ritti nefnt fyrr en hér á húsmæðraskólanum á Blönduósi.
Eitthvað af vefjarskeiðum þær grófustu voru heima smíðaðar. Ég átti eina
heimasmíðaða skeið úr látúni eða úr eir tannirnar. Hún hafði 48 tannir
á kvarteli. Svo voru skeiðar með 60 tönnum á kvarteli (=6þuml.) fínar skeiðar
voru ekki notaðar á ullar verk. Á tvisti voru notaðar 100-120 140 og 150
tanna á kvarteli. Skeiðar voru yfirleitt 5 kvartel á lengd. Skeiðar voru
svo kallaðar 60 eða 80 tanna osfrv. Vefjar skyttur voru venjulega
úr beyki eða öðrum góðum viði. Ég sá skyttu úr rauðaviði, ágæta.


p8
Neðan á skyttunum
voru látnar þynnur eða látúns eir sleginn flatur, svo þar rynni betur um
skilið, svo var venjulega látuns brydding sett á hvorum enda svo að viðurinn
trosnaði ekki upp. Í skyttunni var svo teinn til þess að láta spóluna á.
Var hann ýmist laus eða fastur á öðrum enda í lykkju, var svo látuns fjöður
að framan, eða þeim megin sem teinninn var laus, og honum þrýst niður í
gat á fjöðrinni, þegar spólan var komin á. Væri teininn laus, var
þeim megin sem fjöðrin var ekki, látúns plata með gróp um í fyrir spóluteininum.
Ef teininn hefði leikið í tré mundi hann fljótlega hafa slitið því og dottið
úr. Spólurnar voru venjulega rendar úr tré. Faðir minn átti (og ég
síðar) spólur úr látuni með snúðum á endunum. þar voru dálítið þungar en
að öðru ágætar. Þar voru smíðaðar af Þorsteini Hjálmarsyni er bjó í Hvarfi
í Víðidal. Hann var afbragðs

p9
smiður. Smíðaði ágæta
rokka hesputré ofl. Fiskroð vissi ég aldrei notað fyrir spólur.
Spólurokkurinn var venjulegur rokkur, fremur sterkur, en í stað snældu
umbúning var einn með einni trissu, sem spólunni var smeygt á, og að framan
var ekki vanalegur uppstandari eða brúða heldur uppstandari með rauf framan
í til þess að láta teininn leika í (sjá mynd). Var þessu tré sem oftast
var vinkil beygt stungið ofan í gatið, sem brúðan var í. Að hafa þetta
tré þannig en ekki beint, var til þess að teininum væri lengri og tæki
líka balbúnu snældur. Því á þennan sama rokk var balbínað (sjá síðar)
Spanstokk heyrði ég aldrei nefndan heldur spjálk sem haft var til
þess að halda úr jöðrunum á voðinni (sjá mynd). Spjálkir voru með tvennu
móti (sjá mynd). Á annari gekk spýtan inn í klofna fjöl og 2 naglar í gegn
sem mátti færa til í götunum og lengja þannig spjálkina. Hún

p10
var tvær fjalir mjóar
með skornum inn í að utan, var svo snæri í gegnum gat á annari fjölinni
sem mátti færa til í skorunum á hinni fjölinni og þannig lengja spjálkina.
Voru svo tvö typpi sem snérust á nagla, sem héldu spjálkinni, svo
að hún hlypi ekki upp, þegar voðin strengdi á henni. Þannig er spjálkin
á mínum vefstól. Að setja upp vef. (Leggja upp). Ef
um ullar verk var að ræða var byrjað á því að vigta hespurnar, því hér
var aldrei lagt upp úr hnyklum. Voru nú hespurnar t.d. að meðaltali 8 lóð,
og ullin í verkinu væri sæmilega hrein og ekki mikil haustull í því (hún
var þyngri) þá var algengt að leggja upp úr hespunni 1 al og 6 þml eða
6.5 þml. eða úr 20 hespum 25 al 10 þml. Var þá varpið á slöngunni 999 þræðir
á 27 þml.(1al 3þml) sem var algeng breidd á vaðmáli. Þetta var hægt að
reikna úr því að hver hespa hafði ákveðna lengd. Hespan var 11 skreppur


p11
og hver skreppa 44
þræðir og hverr þráður (umferðir á hesputrénu) var 2 al og 15 þml. Var
hver hespa því 1270 alin. Annars höfðu allir vefarar töflur yfir þetta,
hve hæfilegt var að leggja upp úr hverri hespu eftir þyngd, og hvar margir
þræðir komu þá á þumlung. Ég á svona töflur. Hér var æfinlega talað að
um 5,6 eða 8 lóða verk og var þá miðað við að hespan væri 5-6 eða
8 lóð að þyngd að meðaltali. því sjaldan voru 2 hespur nákvæmlega jafn
þungar, en mjög litlu munaði það hjá góðum spunakonum. Um leið og lagt
var upp var athugað hvað hentugt var að fá marga þræði á slöngurnar eða
hvað skyldi varpa mikið með hliðsjón af skeiðinni. T.d. ef hespan
var að meðaltali 5 1/4-6 lóð og skeiðin hafði 90 tannir á kvarteli eða
360 á alin og þá 405 tannir á 27 þml-sem var vanal.breidd þá var hæfilegt
að fá á slönguna 1215 þræði, það voru 3 þræðir í tönn og var það talið
vel varpað á 6 lóða verk, og þá

p12
mátti leggja upp
1al og 1.1 þml úr hespu eða 20 al og 22 þml úr 20 hespum, en vont var að
rekja svo alveg upp og mundi því varla vera lagt upp meira 20al og 20þml.
úr 20 hespum, og átti þá að fást 1215 þræðir á slöngu og voru þá 3 þræðir
í tönn á 90 tanna skeið eða sem hafði 405 tannir á 27þml. Ef ekki
voru til hentugar skeiðar varð stundum að hafa 3 þræði í annari tönn og
4 þræði í hinni eða jafnvel 4 þræði í þriðju hverri tönn, en það þótti
alltaf slæmt, best var að hafa jafnl. í öllum tönnum. Stundum var því varpað
meira eða minna, ef illa stóð á tanna fjölda í skeið. Venjuleg tvist
hespa (bómullargarn) var 10 skippur og 10 þræðir, og er sú hespa 1181 1/4al
og við það mátti miða, en vanalega var ekki lagt eins nákvæmt upp úr tvisti,
minna gerði þá að þar yrði afgangur. Hér er miðað við ívaf sé jafn
gróft og þráðurinn, ef ívaf var grófara mátti varpa minna


p13
Að reikna í skeið.
Skeiðar þær sem ég þekkti voru 45 tn. á kvarteli, á ábreiðu verk.
60 tanna á nokkuð gróft ullarverk. 70 og 80 tanna og jafnast 90 tanna á
fínt ullarverk. 120-140 og 150 tanna á tvists. Voru oft tveir þræðir í
tönn á þessum fínustu skeiðinni. Stundum var ull höfð í ívafi í tvist,
mátti þá varpa meira. Í næsta kafla á undan er talað um að reikna
í skeið, því það var jafnan gjört um leið og lagt var upp. Að reikna í
vef. Var vanalega kallað að leggja upp, eða að setja upp vefi átti
þó frekar við allt þar til farið var að vefa. Að reikna út munstur í vef
átti frekast við tvist vef, því þá var munstur oft margbrotið. Að öðru
leyti er frá þessu sagt í kafla 7 hér á undan Hér var jöfnum höndum
talað um ívaf eða fyrirvafi. Vöflur hefi ég ekki heyrt

p14
Vanalegast var talað
um uppistöðu og ívaf. Ef talað var um varp þá var átt við þráða fjölda
á slöngunni. Rakgrind (ekki talað um rakningargrind) Alltaf
kölluð rakgrind. Rakgrindur voru allar svipaðar, þó voru misháar, og ef
til vill misbreiðar. Rakgrindur voru oft smíðaðar úr 1 1/4"x4"
borðum. Var það ferköntuð grind eða (sjá mynd) grindur um 2 1/2x2al. Gekk
grindin utan yfir að ofan, en var innaní að neðan og voru það grópaðar
saman um miðjuna og var járn stungið á gegnum samskeitin að ofan og neðan
og snérist grindin á þessum járnum. Var þá oft höfð fjöl undir járninu
að neðan, og járnið þar með holu sem járnið í grindinn snerist í. Einnig
var járnplata í grindinni svo að járnið snerist ekki, var það bæði að ofan
og neðan. Járnið að ofan lék oftast í tré, þó sá það leiki í gjarðajárni
og stundum í leðri. Voru bæði járnin að ofan og neðan ferköntuð í grindina,
en sívöl að ofan og neðan. Einhver þverslá var höfð yfir

p15
grindinni sem efra
járnið lék í. Tvær mjóar slár (1"x1") lágu þvert yfir um miðja
grindina, og var rennt það í fals. Þetta var til þess að grindin svignaði
ekki inn um miðjuna, þegar rakið var á hana. Ég sá líka rakgrindur smíðaðar
úr 2"x4" battingu og þá þurftu ekki þessar milli slár.
Skilhælarnir voru festir í 4"x 1 1/4" slá sem var með
skornum á endunum, og var þessi slá klemmd á milli langslánna í rakgrindinni.
Hælarnir voru oft 3 að ofan en 2 að neðan. Fáir notuðu nema tvo hæla að
ofan oft 1 að neðan, en höfðu vartág að neðan til að aðgreina fetana. Vartág
var band sem brugðið var um hvern feta, og svo bundið um endana á skafti
því er sett var á rifinn, þegar slangan var sett upp í vefstólinn. Skilhælaslárnar
voru eins að ofan og neðan. Voru slár þessar oft bundnar til þess að vera
viss um að þær högguðust ekki. Rakgrindur voru ekki til á öllum bæjum,
sem

p16
sem áttu vefstóla.
Fóru þeir þá á aðra bæi til að rekja. Balbínustóll og balbínusnældur.
Balbínustóll var vanalega úr 1 1/4x4" borðum. Var það aflöng
grind með slá upp og ofan í miðjunni, svo að tvær snældur voru hver við
endan á annari. Hér tók balbínu stóllinn 12 snældur, eða 6 hvoru megin
í stólnum. Þessar snældur voru með stórum snúðum, svo að á þær komust fleiri
hespur. Þær voru um 8 þml. langar. Teinar lágu í gegnum stólinn og snældurna.
Voru þeir fyrst er ég man úr tré, en seinna úr járni eða eir, skröltu þær
meira eftir að hætt var að nota tréteina. Sami rokkur var notaður
til þess að balbína á og spóla. Var þá rekið tré með teininum þegar balbínað
var til þess að festa snældurnar. Að vinda þráðinn á balbínu snældurnar
var kallar að balbína.

p17
Rakningsspaði:
Rakningsspaða sá ég aldrei, en heyrði getið um hann. Gét því ekki lýst
honum. Rakningsstokkur: Hér var aldrei rakið nema af snældum,
ef margir voru litir eins og stundum var í tvistdúk svo að balbínu snældurnar
dugðu ekki, þá voru notaðar rokksnældur sem hafðar voru í snældustól.
Rakning á rakgrind: Rakgrindin var ýmist sett upp í baðstofu (og
svo var hér) eða skemmu eða skála. Oft hafði vefari krakka eð stúlku til
þess að sjá ef slitnaði, og til að bæta saman. Sumir röktu allt af einir.
Lengd voðarinnar var mæld á kvarða eða alin mál, og sett merki við á uppistöðu
þráðinn, sem mældur var. Rakningsspaða var aldrei nataður eins og ég hefi
áður sagt.

p18
Aldrei voru hafðir
tveir þræðir í hafaldi þegar byrjað var að rekja voru allir þræðirnir hnýttir
saman og smeygt upp á efri hælinn. Var svo farið t.d. ofan á hinum hælunum
þá farið var niður og neðan á honum þá farið var upp. Var þetta kölluð
feta skil og ef til vill stundum þráðaskil. Ég hefi áður sagt hvernig gengið
var frá hælunum. Frá skilinu að neðan var gengið eins og að ofan en þar
var höfð vartá (það er band) sem brugðið var um hvern feta. Gangaskil hefi
ég ekki heyrt. Umferð á grindinni var bara kölluð umferð eða feti. Var
talað um fyrstu umferð á grindinni. Var oft strengd dálítið á fyrstu fetunum
til að forðast slaka í jaðri. Því fyrstu fetarnir vildu verða slakir af,
því snældurnar runnu létt meðan þær voru fullar. Varptág heyrði ég ekki
heldur vartá. Fetaband heyrði ég en fátítt. Vel má vera að varptá sé réttara
en vartá. Stundum var merkt við 20 feta ef þurfti að ýta saman á skilhælunnnum
að neðan.

p19
Það þótti sjálfsagt
að rekja á auða grind en ekki utan á fyrri umferðir því þá varð fetinn
lengri. Flestir röktu aðra umferðina ofan við, en hina neðan við. Þó sá
ég afbragðs vefara, sem alltaf rakti ofan við, hvort sem hann fór upp eða
ofan. Fullrakin uppistaða hét slanga. Bundið var spotti í skilin
bæði að ofan og neðan áður slangan var tekin niður. Byrjað var að taka
slönguna af efri hæl og svo var slangan fléttuð niður, það er hægri hendi
brugðið gegnum lykkju og slangan tekin þar í geng. Var slangan niður tekin
eins og stór fléttingur. Var það kalla að taka af grindinni eða taka ofan
slönguna, hélt þá sá sem tók ofan við grindina með fætinum svo að hún snerist
ekki of hratt. Ef átti að setja upp fleirlita uppistöður var algengt
að vefja upp á spil eða eldspýtustokk litina í þeirri röð sem þeir áttu
að vera, mátti þá glöggt sjá munstrið, var svo rakið samkvæmt því.

p20
Ég tek til dæmið,
röndótt milliskyrtu efni með 32 þráðum hvítum 4 brúnum 2 bláum. Þá hefi
ég á 8 snældum hvítt, það verða tvær umferðir upp og tvær ofan. Svo hefi
ég á 2 snældum brúnt. það er 1 umferð niður og 1 upp. Svo hefi ég annaðhvort
á 1 snældu blátt og fer upp og niður, eða ég hefi á 2 snældum og fer eina
umferð niður og slít frá. Byrja svo aftur á brúnu og fæ 4 þræði og þá hvítt.
Allir vita að voðin skreppur saman eða hleypur úr vefstólnum, en
ég heyrði aldrei neitt um það hvað mikið það væri. Enda voru allar ullarvoðir
þæfðar og þá styttust þær mikið og hlypu líka á breiddina. Rakið
á vegghæla:. Sá ég aldrei. Rakið á rúmstólpum sá ég ekki heldur.
Hafalda grind: Hafalda grind aflangur ferhyrningur með mjóum
(sjá mynd) trétein í miðju sem var hæfilega sver fyrir hafaldaaugað.


p21
Var svo hafaldið
lagt yfir annan arm grindarinnar hnýtt að fast við mið teininn og
lagt yfir hann (til að mynda augað) og hnýtt að hinu megin og svo hnýtt
að hinum arminum. Svona var haldið áfram þar til grindin var nær full.
Þá var efri sláin tekin upp af hún var feld ofan á hliðarstuðlana, og fest
með trétöppunum í geng og höföldin tekin upp af. Ekki höfðum við neitt
áhald til þess að rekja höföldin á. Það voru bara reknir tveir 3 eða 4
þml. naglar í fjöl og haflada garninu undið inn þá, og svo skorið á við
annan endann og sú fjöl var alls ekki geymd, þvi höföld voru ekki hnýtt
nema með ára millibili. Margir áttu ekki afalda grind en fengu hana lánaða.
Hafalda efni og höföld: Þau höföld sem ég fyrst man voru
úr heimaunnum þræði -togþræði. Hafði amma mín Kristin Kristmundsd. í Miðhófi
spunnið hann. Var hann afar jafn og snöggur, líkastur fínu seglgarni. Var
mér sagt að hann væri soðin en í hverju

p22
man ég ekki, en sviðinn
var hann ekki. Hafalda hnýtingu hefi ég áður lýst (17). Hafalda hnútar
voru réttir rembihnútar, sumir kölluðu það rifhnúta, seinast voru oftast
hnýttir 3 eða 4 hnútar. Ég held að sama aðferð hafi verið höfð við alla
hafalda hnýtingar. Miðhluti hafaldsins var augað eða hafaldsaugað. Ef höföld
voru geymd (sem oft var) var hnýtt að þeim að ofan og neðan svo að hægt
væri að smeygja hafalda sköftunum í þau, síðan voru þau hengd upp á rakalausum
stað. Um 1890-1900 fóru að koma stálaugu, þau voru pöntuð í gegnum pöntunarfélögin,
og voru ódýr. Þau voru með dálítið stóru auga í miðju og svo smágötum á
endunum til þess að hnýta í. Þau voru svo hnýtt á hafaldagrind, en þá tekinn
burtu teininn í miðjunni en settur nagli hæfilegur fyrir stálaugað í neðri
slána á hafaldagrindinni, og auganu smeygt þar á, og bundið svo frá báðum
hliðum. Var oft notaður saman snúinn

p23
tvistur í þessi stálaugu
og dugði vel. Eins og áður segir hét band það sem brugðið var um fetana
að neðan þá rakið var vartág, hún var svo bundin út fyrir endana á sívölu
skafti sem felt var inn í rauf eða kýlingu á efri eða aftari rifunni (Rifskaftinu).
Bandið sem var haft til þess að halda höföldunum á hafaldasköftunum vissi
ég ekki til að hefði neitt nafn. Var sagað upp á endana á sköftunum, og
bandið sett þar í og svo bundið utan um endana á sköftunum. (Hafaldasköftunum).
Vefjakambur: Það er sennilega nafnið á því sem var hér jafnan
kallaður Eknir. Eknirinn var um það bil 1 al og 6 þml á lengd og um 6þml
á breidd. Voru það 2 sterkir listar til hliðanna og eins til endanna. Var
annar hliðarlistinn festur með töppum við enda listana og mátti taka hann
burtu þegar látið var í eknirinn. Hann var með 6o tindum úr tré.

p24
Að láta í Kamb:
Hér var jafnan sagt að láta í eknirinn. Var fetum inn í slöngunni dreift
jafnt um eknirinn og jafn breitt og vefurinn átti að vera (á 27þml). Sívalaskaftið
sem ég hefi áður getið hét rifskaft. Þráðurinn sem festur var við skaftið
(fetaþráðurinn) hét eins og ég hafi aður sagt vartá. Var sagað upp í endana
á því og vartáin strengd þar í og svo bundið utan um skaftendana. Aftur
á móti var kallaður skilþráður sem bundinn var í skilin áður en tekið var
ofan af rakgrindinni. Að festa upp: Var aldrei sagt hér.
heldur að setja upp vef eða setja til. Að bóna vef: Hér nefndist
það að vinda slönguna upp á rifinn. Að vinda upp á rifinn aldrei annað.
Hér voru jafnan hafðir kragar til þess að halda við jaðra slöngunnar á
rifnum. Voru þeir

p25
venjulega 8 kantaðir
eða 6 kantaðir og féllu fast að rifnum, sumir voru bara borð 8 köntuð með
gati fyrir rifinu og oftast rauf fyrir rifskaftið. Var svo járni stungið
í gegnum rifinn fast utan við kragana svo að þeir gengju ekki út. Sumir
kragar voru í tvennu lagi og festir saman með gjarða járni (venjulega)
öðru megin, en hinu megin voru vinkilbeygð járn með götum sem nagli gekk
í gegnum með ró á endanum (mottering) og mátti þá skrúfa kragann svo að
hann sat blýfstur. Var þetta sérstaklega gert ef voðir var eitthvað
misbreiðar. Þrír unnu við að setja upp slönguna eða að vinda
upp rifinn. Einn hélt í slönguna annar vatt upp á rifinn og sá þriðji hélt
við eknirinn. Það þurfti að halda fast og jafnt í slönguna og aldrei slaka
á. Sá sem hélt við eknirinn varð að gæta þess að jafnt var undið að krögunum.
Hér voru aldrei notuð rifsköft, en slangan var látin ganga jafnt


p26
úti að krögunum allan
tímann aldrei látin dragast að sér. Þegar búðið var að vinda upp á rifinu
voru skilsköflin sett í skilin og skilþráðurinn leystur. Þau voru bundin
saman. Gat voru á endunum á þeim í því skini, og þau svo bundin við aftur
bómuna. Að draga í höföld: Vanalegast drógu tveir í höföld.
Annar rétti en hinn dróg í gegnum augun. Margir höfðu vírkrók við að draga
í höföld, og allir eftir að stálaugu fóru að tiðkast. Lék þá sá sem rétti
þráðinn á krókinn og sleppti honum ekki fyrr en han var kominn í gengnum
augað. Þá sá ég að maður dró einn í höföld, og var furðu fljótur, enda
snillingur við allt er að vefnaði lauk. Þegar búið var að draga í 50-100
þræði þá var hnýtt á endana svo að ekki dragist úraftur. Maðurinn sem dróg
í höföldin, tók einhvern slátt af höföldinu í greiparnar á hverju skafti
í vinstri

p27
höndina, tók svo
eitt og eitt hafald af hverju skafti, sem hann dróg í, og færði það svo
frá þegar búið var að draga í. Einstaka vefarar drógu alltaf
í, í röð t.d. fremsta næst fremsta, næst aftasta og aftasta eða 1,2,3,4.
Aðrir drógu í í króka t.d. fremsta næst aftasta, næst fremsta og
aftasta. Þannig drógu við hér venjulega í á vaðmáli en í röð á dúk. Hvernig
dregið var í höföldin réði munstrinu. Að draga í skeið: Þegar
dregið var í skeiðina var hún venjulega sett upp á höföldin. Rétti annar
skeiðina, en hinn dróg í. Var til þess notaðar nokkuð breiður krókur úr
blikki eða látúnsþynnu, vírkrók var varla hægt að nota því að hann snerist
í skeiðinni. Þegar komnir voru 50-100 þræðir var hnýtt að, eins og þegar
dregið var í höföldin. Að hnýta fram, og uppbindingu:
Það var vanalega kallað að hnýta á skaftið. Ég man ekki að það skaft
væri kallað neitt.

p28
Skaftið var fest
við rifinu með þremur snærum. Voru alltaf höfð sömu snærin til þess, og
geymd í spólustokknum. Sérstakur stokkur var hafður fyrir spólurnar. Voru
þessi snæri kappmelluð utan um rifinn og undnir minnst tveir snúningar
upp á hann, svo lágu snærin yfir frambómuna og þar hnýtt utan um skaftið.
Byrjað var að hnýta, svo sem tvo hnúta á milli skaftið, svo var byrjað
á jöðrunum, og hnýtt alltaf á víxl. Varð að gæta þess að jafn stíft væri
á öllum þráðum. Hnýttir voru venjulegir réttir rembihnútar eða rifhnútar,
teknir t.d. 50 þræðir (eða færri) þeim skift, sem næst í tvennt, og hnýttir
fram fyrir skaftið. Snærin voru kölluð vefjarsnæri. Munstrið var komið
í skeið og höföldinu, þurfti ekki um það að hugsa við hnýtingu. Snærin
voru svo tekin þegar búið var að vefa um 2 álnir. Að draga fyrir:
Ég man nú ekki til að ég heyrði talað um að draga fyrir. Það var
bara talað um að

p29
byrja að vefa. Hér
var aldrei talað um annað en að gefa í eða gefa fyrir. Ívafið var
þannig gefið fyrir, að vefarinn færði ívafið í stærri eða minni boga með
einu eða tveimur fingrum fram undir skeiðina, og hélt því þannig þar til
að hann hafði stigið niður skammelið eða skammelin ef fleiri voru stígin.
Þá sleppti hann ívafinu og tók í skeiðarslagið og sló því fram. Stundum
voru slegin tvö slög, ef fast skyldi vefa. Mismikið var gefið í, var það
undir ýmsu komið t.d. hvað mikið var varpað, þá þurfti minna að gefa í,
eða ef fyrir vafið var grófar en þráðurinn ofl. Spálkin (hér var
alltaf notuð íslenskan) var til þess að teygja voðina á breiddina svo að
minna reyndi á jarðarþræðina, og tennur skeiðarinnar. Ef lítið var varpað
þá gekk voðin saman sem kallað var. Vefarar höfðu alltaf mæliþráð til þess
að vita hvað þeir ófu daglega. Var það álnaband með hnút á enda var það
svo fært við hverja alin.

p30
Ýmsar voru misfellur
í vefnaði sem oft stafaði af uppsetningu. Algengast var slaki í jörðum
(jaðrar voru misslakir). Stafaði það ýmist af því að fyrstu fetarnir á
rakgrindinni voru of lausir, því að snældurnar gengu liðugar meðan mikið
var á þeim, en tóku meira í þegar minnkaði á þeim. Stundum var slak í jöðrum
af því að klaufalega var undið upp á rifinn, slangan lagðist ekki jafnt
að krögunum. Var töluverður vandi að vinda upp á rifinn. Sumir reyndu að
strengja á jaðri með því að setja eitthvað undir voðina á neðri rifinu,
Sagt var að einn vefari hefði þurft að setja það stórtreyju á neðri rifinu
til þess að taka af slaka á jaðri. Þráðaslit var algengt bæði af
því að þráður var ekki snúðmikill eða var ójafnt spunninum þá gengu hólarnir
illa í gegnum höföldin. Skilgöllum man ég ekki eftir nema skil voru minni
þar sem jaðar var stirður. Við þráðaslit var ekki annað að gera en að bæta.


p31
Aldrei man ég eftir
því að það væri kennt aðsókn þó slitnaði í vefi. Hér var hver vindingur
upp á framrif kölluð færa. Verkmótið heyrði ég aldrei talað um, og ekki
áfæru. Að bóma var heldur ekki sagt. Að fella vefi: Vanalega
var sagt að fella vef, eða taka niður voðina. Þráðar endarnir voru vanalega
kallaðir undarlás, þó heyrði ég nefndar afvikur (það var sunnlenska), en
aldrei önnur nöfn á þessum endum. Þessir endar voru oft brúkaðir til þess
að bæta með ullarföt, þegar um ullar undanlás var að ræða. Tvistur var
brúkaður sem saumagarn í stað tvinna bæði til þess að þræða með ofl. Voðin
var undin upp af framrifnum, og var kallaður vefjarstrangi. Þóf:
Oft voru voðirnar þvegnar fyrst úr heitri keytu

p32
og síðan úr heitu
vatni undir þæfingu. Síðan var voðin undin, og þurfti helst til þess þrjá
menn. Voru það gjarna 1 karlmaður og 2 konur. Vanalega var settur járnkarl
eða sterk spýta þversum í dyr (ofan bæjardyrnar) og voðinni brugðið það
um, svo var karlmaðurinn með sterkum staf helst um 2 1/2-3al á lengd, það
var voðinni líka brugðið um, og svo endarnir lagðir saman, svo að voðin
var tvöföld. Karlmaðurinn með stafinn vatt svo uppá voðina, og stakk þá
gjarnan stafnum í jörðin til þess að halda við þegar mikið fór að vindast.
Kona hélt svo undir voðina svo að hún færi ekki niður í hlaðið, hún strauk
líka vatnið af voðinni jafnóðum og hún var undin. Þegar voðin var orðin
mjög undin, setti konan sem hélt undir voðina lit á hana, og byrjaði þá
upp við járnkallinn í dyrunum og hélt áfram þar til liðir voru komnir á
alla voðina, og togaði þá karlmaðurinn fast. Vattst þá voðin

p33
ágætlega. Hin stúlkan
sem var við voðina hafði ekki annað að gjöra en halda við járnkarlinn í
dyrunum. Hér voru það oftast heimamenn sem þæfðu, en stundum fóru sérstakir
menn um sem þæfðu. Hér vissi ég aldrei að kvenmenn þæfðu vaðmál. Vanalega
þæfðu menn hér í baðstofu. Var þá rækilega þveginn bletturinn sem þæfa
átti á, og koffortum eða öðru raðað í kringum blettinn, og fært að borð
eða annað sem þófarinn gæti stutt sig við. Sumir vildu þæfa í fjósbás,
ég held að þeim hafi þótt það hlýrra. Var þá hurð sett í básinn undir þófið.
Einstaka þæfðu fyrst í tunnu og þá í vatni eða keytu, ég held að það hafi
aðallega verið gert til þess að þurfa ekki að þvo eða þvæla vaðmálið áður
en þæft var. Þetta var kallað að þæfa vota þóf. Svo var vaðmálið undið
eins og áður er sagt og þæft þura þóf. Vanalega voru menn í nærfötum einum
við

p34
þóf (einni skyrtu
og nærbuxum) og brettu þá nærbuxurnar upp undir hné. Voðin var svo troðin
með fótunum, og velt fram og aftur, svo að öll voðin stigist sem jafnast.
Þegar voðin fó.r að þæfast var hún hrist upp. til þess að hrista af henni
lóna. Stundum var voðin kippt. Það er tveir menn tóku ákveðna lengd af
voðinni og kipptu og hristu hana á milli sín, og átti þá helst að smella
í. Var þannig öll voðin hristi og teygð. Þegar voðin fór að fara í birgður,
var þófi vanalega hætt. Annars var misjafnt hvað vaðmál var þæft
mikið, eftir því hvað það átti að vera ofl. Æfinlega var þófara gefin einhver
glaðning. Hann fékk gott að borða, oft baunir og ket, og svo kaffi og lummur.
Aldrei heyrði ég neina þófara þulu. Ekki man ég eftir að nein ákveðin laun
voru fyrir það að þæfa voð. Hæfilegt þótti -eða það fyllsta- að þæfa 20
álnir. Væri voð mikið lengri var henni skift venjulega. Voðir voru
venjulega pressaðar í rúmi undir undirsæng. Ég man ekki til að þær

p35
voru neitt þurkaðar
eftir þófið. Voðin þornaði mikið í þófinni. Voðin var lögð margföld undir
sængina. Fyrir aldamótin, komu Ási í Hegranesi Ska. Vélar til þess
að lógskera og pressa og ég held að lita, voru voðir í utanyfirföt stundum
sendar þangað, og var mikill munur á hvað þær voru fallegar á eftir.
Vefnaðarsýnishorn: Því miður eru víst engin vefnaðarsýnishorn til
hér. Ég óf á yngri árum millipils úr tvisti, voru þau langröndótt með bekkjum
neðan til. Einnig óf ég salons ábreiður yfir rúm og ábreiður með hringavefnaði,
en það er allt orðið ónýtt. Söðuláklæði var líka hér til fyrst þá ég man
eftir. Var það merkilegt og mun amma mín Kristín Kristmundsdóttir í Miðhópi
hafa átt það. Ég held að Halldóra Bjarnadóttir hafi nú tekið upp
munstrið úr því á klæði. Annars var helst ofið vaðmál og dúkur og vormeldúkur.


p36
Ég læt fylgja hér
með tvo hnúta reipahnút og algengan eða réttan rembi hnút en sem sumir
kalla rifhnút. Voru þessir hnútar algengir þá bætt var í vefstól,
og réttur rembihnútur var brúkaður þá hnýtt voru höföld. Ef þið
vilduð fá uppskrift af vefjartöflu þeirri en ég brúkaði við að setja upp
ullarvef, þá get ég gefið ykkur uppskrift af henni, en sennilega hafið
þið nóg af slíku.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Ull
Keyword:
Tóvinna