Ull og tóvinna III

Þjóðminjasafn Íslands – Spurningaskrá 15 Ull og tóvinna 3 Nr. spurningaskrár 1966-1 Til að nálgast pdf. skjal með öllum svörum heimildafólks ýttu á forsíðu skráarinnar hér til hliðar (Mynd 2 af 2). Til að nálgast frekari upplýsingar má senda póst á thjodhattasafn@thjodminjasafn.is Titilmynd skráarinnar: Ljósm. Hans Kuhn. Safnnr. Lpr. 2003-774 Hér að neðan má sjá þær spurningar sem heimildafólk þjóðháttadeildar fékk sendar í tengslum við skrána: Þjóðháttaskráning Þjóðminjasafnsins XV. Apríl 1966. Ull og tóvinna III. Í spurningaská þeirri, sem hér fer á eftir, er fjallað um vefnað. Efnið er svo mikið, að því verða ekki gerð skil í einni spurningaská. Mun önnur spurningaská send út varðandi einstakar vefnaðargerðir (einskeftu, glit, salún, vaðmál o.s.frv.) og annað, er vefnað varðar og hér er ekki spurt um. Leggja verður áherslu á, að svörin miðist einkum við vefnað eins og hann var á sveitaheimilum, áður en áhrifa frá húsmæðraskólum og prentuðum vefnaðarbókum fer að gæta. Um þau áhrif er þó gott að fá fræðslu í sérstökum kafla, er að því kemur. Vefnaður: Segið frá vefnaði almennt. Hvenær hófst t.d. vefnaður að hausti og hvenær var honum að jafnaði lokið að vetri? Hvað var einkum látið ganga fyrir í vefnaði hvers vetrar ef vefa þurfti margar voðir? Var reynt að fella vef fyrir jól og setja ekki til að nýju, fyrr en kom fram um nýár? Hverjir önnuðust einkum um vefnað? Hafði ákveðinn heimilismaður einn það verk með höndum að vefa? Sat hann í vefnum frá fótaferð til háttumála eða aðeins milli mála, sem kallað var? Hvað þóttu góð afköst í vefnaði daglangt og að hvaða leyti var það breytilegt miðað við einstakar vefnaðargerðir? Á hvaða aldri byrjuðu börn eða unglingar að vefa? Voru einstakir menn, karlar eða konur, sem höfðu atvinnu af vefnaði? Fóru þeir milli bæja að vefa eða tóku þeir vefnað heim til sín? Var nokkur ákveðin greiðsla fyrir vefnað, t.d. miðað við álnatal voðar? Var vefnaður notaður í vöruskiptaverslun? Segið frá því. Vefstóll: Undir hvaða nafni gekk vefstóll í daglegu tali (vefstóll, vefstaður)? Þekkjast nokkrar sagnir um gamla kljásteinavefstaðinn? Vita menn, hvenær notkun hans lagðist niður með öllu? Hafa einstakir hlutar hans verið til í geymslum eða annars staðar fram á daga núlifandi manna? Segið frá smíði vefstóla og vefstólasmiðum. Segið frá mismunandi gerðum vefstóla, t.d. að því er varðar staðsetningu slöngurifsins. Þekktust tvíbreiðir vefstólar? Segið frá þeim. Segið frá hraðskyttuvefstólum. Áttu flest heimili vefstól? Hvernig fóru menn að að öðrum kosti (fengu vefstól lánaðan, fengu ofið hjá nágrönnum t.d.)? Segið frá gangverði vefstóla í kaupum og sölum. Á blöðunum, sem fylgja skránni, eru myndir af vefstólum, tveimur íslenskum (A og B) og einum útlendum hraðskyttuvefstól (C). Hverja gerðina kannist þér helst við? Ef um sérstök frávik er að ræða væri gott að fá þeim lýst. Ætlast er til, að svarendur skrifi heiti hinna einstöku hluta við tilsvarandi númer á seinna blaðinu og sendi síðan myndablöðin aftur með svörunum. Ef nöfn þekkjast á fleiri hlutum eru menn vinsamlegast beðnir að bæta þeim við. Skeið. Segið frá vefjarskeiðum. Nefndust þær annað (ritti t.d.)? Voru vefjarskeiðar heimasmíðaðar? Segið frá smíði og smíðaefni (hvalskíði, eir, látún, harðviður t.d.). Voru vefjarskeiðar yfirleitt af svipaðri lengd (fimm kvartel)? Við hvað var stærð vefjarskeiðar miðuð (tannafjölda í ákveðinni lengd, kvarteli t.d.)? Voru heiti skeiða miðuð við þá talningu (80 tanna skeið t.d.)? Vefskytta: Segið frá vefskyttum, smíðaefni og gerð. Voru þær með sérstökum útbúnaði að neðan til þess, að þær rynnu betur um skilið? Hvað nefndist spóluteinninn í skyttunni (ríll, prími, spóluteinn t.d.)? Voru sérstakar tréspólur (renndar eða tálgaðar) til að spóla á ívafið? Hvaða efni, annað en tré, var notað til að spóla á? Var fiskroð t.d. notað til þess (spóluroð)? Spólurokkur: Hvað nefndist áhaldið, sem spólað var á við vefnað (spólurokkur t.d.)? Var spólurokkur smíðaður sérstaklega til þeirra nota? Lýsið honum. Voru gamlir rokkar notaðir í sama tilgangi? Var þá settur í þá sérstakur spóluteinn í stað snælduumbúnings? Spanstokkur: Lýsið áhaldinu, sem haft var til að halda út jöðrum á voð, er ofið var. Gerið það t.d. með teikningu. Hvað nefndist það (spanstokkur, spjálk t.d.)? Að leggja upp: Hvað nefndist verkið við að reikna út uppistöðuþráð í hverja einstaka voð, er vefa átti (“að leggja upp” eða annað)? Segið frá mismunandi aðferðum við þann útreikning, ef þekktar voru, og þá hver algengust var (t.d. hesputré, sem ákvað lengd þráðar, vigt á hespum eða hnyklum). Var farið um þetta ákveðnum orðum, miðað við þyngd þráðar (t.d. “fimm lóða verk”, “tveggja álna þráður” o.s.frv.)? Hvað var venjulega lagt upp úr þráðarmörk í hnyklum (tvær, þrjár álnir t.d.)? Voru sauðarvölurnar, sem undið var á, dregnar frá þyngd hnyklanna? Hvernig? Segið sem vandlegast frá þessu og öllum orðum, er um það voru notuð. Að reikna í skeið: Hvað nefndist verkið við að ákveða fjölda uppistöðuþráða í breidd voðar, er vefa átti (“að reikna í skeið” t.d.)? Hvað nefndist það, ef sá útreikningur stóðst ekki að fullu og uppistaða var gisnari en ætlað var í upphafi (að voðin væri varplítil t.d.)? Að reikna í vef: Hvað nefndist verkið við að ákveða efnismagn í uppistöðu og ívaf voðar og þá um leið munstur (“að reikna út í vef” t.d.)? Segið frá, hvernig að því var unnið. Hvaða orð voru notuð um uppistöðu í vef (uppistaða, varp t.d.)? Hvaða orð voru notuð um ívafið (fyrirvaf, ívaf, veftur t.d.)? Rakningsgrind: Hvað nefndist áhaldið, sem uppistaða í voð var rakin á (rakgrind, rakningsgrind t.d.)? Voru mismunandi gerðir til af rakningsgrindum? Lýsið því. Hvað nefndist tréð, sem skilhælar voru festir á (hælatré, krísholt, skilkambur t.d.)? Hvernig var rakningsgrind fest upp við notkun? Voru rakningsgrindur til á flestum heimilum, sem áttu vefstóla? Balbínur, balbínustóll: Hvað nefndust snældur, sem uppistöðuþráður var rakinn af á rakningsgrindina (balbínur t.d.)? Lýsið þeim. Var sérstakt áhald til að festa balbínusnældur á við notkun (balbínustóll)? Lýsið því. Voru til sérstakir rokkar til að spóla á þráðinn á balbínusnældurnar (balbínurokkur)? Lýsið balbínurokk. Hvað nefndist verkið við að spóla á balbínusnældu (“að balbína” t.d.)? Rakningsspaði: Var sérstakt áhald notað til þess að halda uppistöðuþráðum í réttri röð og taka skil á þá, er rakið var á rakningsgrind? Hvað nefndist það (rakspaði, rakningsspaði t.d.)? Lýsið rakningsspaða. Teiknið rakningsspaða, ef hægt er, og greinið frá stærð hans. Rakningsstokkur: Voru sérstakir kassar með hnyklahólfum notaðir, er rakið var af hnyklum á rakningsgrind? Hvað nefndust þeir? Lýsið þeim. Hvaða ílát voru að öðrum kosti notuð undir hnyklana? Rakning á rakningsgrind: Hvar var rakningsgrindin (rakgrindin) sett upp, er rakið var í vef? Hve margir unnu að því að rekja (rakningskona og aðstoðarmaður t.d.)? Hvernig var lengd voðarinnar mæld, áður en byrjað var að rekja? Var t.d. sett merki á einhvern uppistöðuþráðinn? Hvernig voru uppistöðuþræðirnir þræddir í rakningsspaðann (rakspaðann), ef hann var notaður við verkið? Var þræðingin miðuð við þráðafjölda í hafaldi, er ofið var (tveir þræðir í gati á rakningsspaða, tveir þræðir í hafaldi t.d.)? Voru þráðarvölur látnar leika á uppistöðuþráðunum, er rekið var, til að jafna þá (taka af snurður)? Hvernig var fyrsta skilið tekið á þræðina, áður en byrjað var að rekja upp á grindina? Hvað nefndist skilið (þráðaskil t.d.)? Hvernig var gengið frá því á efra hælatrénu? Hvernig var gengið frá skilinu á neðra hælatrénu og hvað nefndist það skil (gangaskil t.d.)? Hvað nefndist ein þráðaumferð niður og upp á rakningsgrindinni (gangur t.d.)? Hvað nefndist ein umferð á grindinni (upp eða niður) (feti t.d.)? Hvað nefndist rakning fyrsta fetans á grindina (“að leggja á grind” t.d.)? Hvernig var rekið upp eftir grindinni, þegar búið var að rekja fyrsta fetann? Hvernig var þráðaskilið þá tekið, og hvernig var gengið frá því? Voru sett merki í gangaskilin að neðan við ákveðinn þráðfjölda (hverja 100 þræði)? Var einn bandspotti notaður við það? Nefndist hann eitthvað (varptág, fetaband t.d.)? Segið frá rakningu án rakningsspaða. Var ákveðin regla í sambandi við áferð feta á grindinni (að rekja ofan eða neðan við fetana, ekki utan á)? Hvað nefndist fullrakin uppistaða á grind (slanga t.d.)? Hvernig var gengið frá skilum á henni, áður en hún var tekin af grindinni? Hvernig var hún tekin af grindinni? Nefndist það nokkuð (“að fika ofan” t.d.)? Þekktust mismunandi handtök við að rekja á rakningsgrindur? Segið sérstaklega frá, hvernig háttað var rakningu á tví- eða fleirlitri uppistöðu. Var eitthvert almennt álit varðandi mismun á lengd slöngu og voðar, sem átti að vefa úr henni, t.d. að rekja þyrfti þverhönd fram yfir hverja alin í voð? Var þetta nefnt eitthvað, t.d. að voðin skryppi? Rakið á veggjahæla: Var algengt að rekja í voðir á veggjahæla? Lýsið hælunum. Hvað var það nefnt (“að rekja á hælum” t.d.)? Nefndust hælarnir nokkuð sérstakt? Voru skilhælar geymdir frá ári til árs? Hvar var rakið (úti eða inni)? Hvernig var gengið frá skilhælum og hælum milli þeirra, er rakið var? Lýsið rakningu. Rakið á rúmstólpa: Kom fyrir, að rakið var til vefjar á rúmstólpa í baðstofu? Lýsið því. Hafaldagrind: Hvað nefndist áhaldið, sem höföld voru hnýtt á (hafaldagrind t.d.)? Lýsið hafaldagrind, helst með teikningu. Var sérstakt áhald til að rekja á hafaldaefnið eða var það hluti af hafaldagrindinni sjálfri? Hét það nokkuð sérstakt? Lýsið því. Hafaldaefni og höföld: Var efni í höföld unnið heima (úr dregnu togi t.d.)? Hvaða aðferðir voru þá til að gera hafaldaþráðinn snöggan og haldgóðan (sjóða hann í tólg, svíða hann t.d.)? Segið frá því. Hvernig var rakið í höföldin? Segið frá hafaldahnýtingu. Lýsið hafaldahnút. Voru mismunandi aðferðir við hafaldahnýtingu ? Hvað nefndist miðhluti hafalds (hafaldaauga t.d.)? Segið frá geymslu hafalda. Segið frá stálhöföldum. Hvenær var byrjað að nota þau? Hét bandið eitthvað, sem varnaði höföldum að dragast úr af hafaldasköftunum, er ofið var (vartág, þan t.d.)? Vefjarkambur: Lýsið vefjarkambi, smíði hans og gerð. Nefndist hann nokkuð annað? Að láta í kamb: Hvað nefndist verkið við að dreifa slöngunni í vefjarkambinn (“að láta í kamb”, “að leggja í kamb” eða annað)? Lýsið því. Hvað nefndist skaftið, sem sett var í gangaskilið og tengt við slöngurifinn (plógskaft, rifskaft t.d.)? Hvað nefndist þráðurinn, sem festur var við skaftið og dreginn í fremra gangaskilið (skilþráður t.d.)? Lýsið, hvernig frá þessu var gengið. Að festa upp: Hvað nefndist einu nafni verkið við að vinda slönguna upp á slöngurifinn, draga í höföld og skeið og festa uppistöðu í framrif (að festa upp, setja upp, setja til eða annað)? Að bóma vef: Hvað nefndist verkið við að vinda slönguna upp á slöngurifinn (að bóma, að rifja t.d.)? Hvernig var gengið frá festingu fyrir plógskaft (rifskaft) á slöngurifnum? Voru sérstök áhöld notuð til að halda að jöðrunum á slöngunni, er bómað (rifjað) var (kragar – lausasnúðar – rifklæði)? Lýsið þeim. Hve margir unnu saman að því að vinda slönguna á rifinn? Lýsið verkinu. Hvers þurfti einkum að gæta í sambandi við áferð slöngunnar á rifnum? Voru rifsköft notuð með jöfnu millibili til stöðvunar? Hvernig var gengið frá þeim? Var slangan látin “ganga að sér” á rifnum smátt og smátt, er bómað var? Hvað var það nefnt (“að hálsa” t.d.)? Hvernig var gengið frá skilsköftum og slönguendanum, er búið var að bóma? Að draga í höföld: Hvað nefndist verkið við að draga í höföld? Var hafaldasköftunum haldið stöðugum með einhverjum hætti, meðan dregið var í þau (hafaldakambur)? Hvernig var unnið að því að draga í höföldin? Unnu tveir saman við það verk, og rétti annar þá fram þræðina? Hvernig var gengið frá þráðarendunum, framan við höföldin? Að draga í skeið: Hvað nefndist áhaldið, sem var notað við að draga í skeið (krækja, krókur, gikkur t.d.)? Lýsið því. Unnu tveir að því að draga í skeiðina? Hvernig var gengið frá skeiðinni, meðan dregið var í hana? Lýsið verkinu. Að hnýta fram: Hvað nefndist skaftið, sem uppistaðan var hnýtt fram á (framhnýtingarskaft t.d.)? Hvað nefndist verkið við að hnýta á skaftið (að binda fram, hnýta fram, hnýta á skaft eða annað? Lýsið framhnýtingu. Hvernig var framhnýtingarskaftið fest við voðmeiðinn (bómuna, rifinn)? Uppbinding: Lýsið uppbindingu í vefstól. Segið frá vefstólssnærum. Segið frá hnútum við uppbindingu. Nefndust hnútar eitthvað (verfjarhnútur t.d.)? Voru nokkur ákveðin nöfn notuð um vefstólssnæri, t.d. við upphnýtingu í sambandi við einstakar vefnaðargerðir eða munstur, er vefa átti? Að draga fyrir: Hvað var það nefnt, er farið var að skjóta skyttunni um skilið og byrjað var á voðinni (að draga fyrir t.d.)? Lýsið mismunandi aðferðum við að gefa ívaf í voð og segið frá orðum, er því lúta (gefa í, gefa upp í, bandborið, mikið bandað, vel bandað o.s.frv.). Var ívafið gefið fyrir í einum stórum boga eða mörgum smábogum? Lýsið aðslætti slagborðs (skeiðarhalds). Lýsið notkun spanstokks. Hvað var það nefnt, ef voð hélt ekki fullri breidd í vefnaði (það vefst inn t.d.)? Var voð mæld með mælibandi jafnóðum og hún var ofin? Hvernig? Segið frá helstu misfellum, er fram komu í vefnaði (skilgöllum, þráðasliti o.s.frv.). Hvernig var úr þeim bætt? Þótti það boða eitthvað, ef uppistöðuþræðir slitnuðu venju fremur, er ofið var (aðsókn t.d.)? Hvað nefndist hver einstök vinding voðar upp á voðmeið (bómu, framrif) (áfæra t.d.)? Hvað var verkið nefnt (að bóma t.d.)? Að fella vef: Hvað nendist það, er vefnaði á voð var lokið og hún ver tekin úr vefstólnum (að fella vef t.d.)? Hvað nefndust þráðarendr, sem gengu af, er vefur var felldur (afvikur, hrafanbuxur, krummabuxur, undanlás t.d.)? Hvað var gert við þá? Þóf: Segið frá hitun vatns eða keytu á voð undir þæfingu, og hvernig bleytt var í voðinni. Hvernig og hvar var undið úr voðinni, áður en byrjað var á þófinu? Hverjir önnuðust einkum um þæfingu (heimamenn, afbæjarmenn, karlar, konur)? Hvar voru voðir þæfðar (í fjósi, í baðstofu t.d.)? Voru mismunandi aðferðir notaðar við þóf (þæft undir fótum á palli, hurð, þæft í tunnu, votaþóf t.d.)? Hvernig klæddu menn sig til starfsins? Lýsið þófinu sjálfu. Var voðin oft aðgætt í þófinu og hrist upp? Hvernig var það gert og hvað nefndist verkið? Við hvað var miðað, er voð þótti fullþæfð? Fékk þófarinn einhvern aukaglaðning, meðan á þófinu stóð (þófarabita, þófaraköku)? Lýsið því. Kunna menn þófaraþulu (Bárður minn á jökli t.d.)? Skrifið hana. Voru nokkur ákveðin laun fyrir þæfingu á voð? Hvernig var gengið frá voðinni, þegar búið var að þæfa hana? Hvernig var hún pressuð? Voru voðir sendar í verksmiðjur, utanlands eða innan, til lóskurðar eða litunar? Segið frá því. Vefnaðarsýnishorn: Þjóðminjasafni Íslands væri hin mesta þökk á að fá send gömul vefnaðarsýnishorn, ásamt greinargerð um aldur, uppruna, vefnaðargerð, litun og vefara, er ofið hefur. Einstakir munir úr íslenskum vefnaði, hverju nafni sem nefnist, eru Þjóðminjasafninu að sjálfsögðu mjög kærkomnir og skiptir útlit þeirra ekki máli, gatslitnir hlutir eru jafnvel þegnir og heilir. Leggur safnið á það áherslu, að vefnaðarsýnishorn séu ekki klippt úr heilum hlutum eða hlutum, er enn haldast saman. Vinir safnsins gerðu því mikinn greiða með því að leita í hirslum sínum og geymslum að gömlum, íslenskum vefnaði og senda safninu hann til varðveislu og ekki síður með því að koma þessari ósk á framfæri við alla, sem líklegir eru til liðveislu. Ad. Spurningaskrá nr. XV. Svarendur eru vinsamlega beðnir að skrifa þau heiti, sem þeir þekkja á hlutum vefstólsins, við viðkomandi númer á næsta blaði og senda síðan blöðin aftur til safnsins með svörunum, sbr. það sem segir inni í skránni. Ef nöfn þekkjast á fleiri hlutum en hér er merkt við, skal þeim bætt við.
Questions and Answers