Ull

In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Karl (1891)
Object-related numbers
Museumnumber a: 1275 "Museumnumber b": 1966-1
Questions / Answers
Allar spurningar og svör
Nr. 1275

p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Meðan tóvinna og vefnaður var stundaður af kappi
á heimilum var venjulega byrjað að vefa í nóvember. Ég heyrði
áhugasamar húsmæður segja: "Það er ekki álitleg með tóskapinn, ef
ekki er búið að fella vef fyrir jól". Ef lá fyrir að vefa í
utanyfirföt var það látið ganga fyrir. Oftast ófu karlmenn.
Fengu sumir auknefnið vefari, t.d. Gísli vefari á Héraði. Til
voru og konur, sem urðu afkastamiklar við vefnað og stunduðu hann fram
á efri ár. Ef ég man rétt hef ég áður nefnt Margréti Ólafsd. á Héraði.
Hér í Vopafirði var Aðalbjörg Þorsteinsd, lengi húsfreyja á Rauðhólum,
kunn fyrir lægni og duganð við vefnað. Oddný Metúsalemsd.,
húsfreyja í Ytri-Hlíð, hefur ofið fram á síðustu ár. Áður fyrr heimilinu
til hagsbóta, á seinni árum sér til ánægju, þrátt fyrir annasöm heimilisstörf.


p2
Um það hve lengi
var setið í vefstólnum á dag vil ég segja þetta. Ég veit dæmi um
það, að menn byrjuðu að vefa kl. 7-8 að morgni og hættu ekki fyrr en kl.
10 að kvöldi. Alltaf mun hafa verið ætluð ein stund til miðdegisverðar,
vanalega kl. 2-3 og 2 önnur hlé, samtals aðra klukkustund. Var þá
setan í vefstólnum fullar 12 stundir á dag. Sjaldan held ég að þetta
áframhald hafi staðið margar vikur í einu. Bestu afköst í
vefnaði voru 18-20 álnir á dag, og voru sjaldgæf. Varla munu þau
hafa náðst nema vefurinn væri frekar grófur, ofið vaðmál eða einskefta
og vefarinn kappsamur. Annars þóttu 10-12 álnir á dag góð afköst,
þó ofið væri vaðmál, ef bandið var fínt, og ofið dag eftir dag.
Aðrar vefnaðargerðir var seinlegra að vefa og eins ef vefa átti
röndótt eða köflótt. Varla held ég að unglingar hafi byrjað
að

p3
vefa fyrr en 16-17
ára, svo heitið gæti. Ekki vissi ég til þess að neinir lifðu á því
eingöngu að vefa. Hvorttveggja var að vísu til, að menn ferðuðust
um og ófu og að menn tóku vefnað heim, en það var tímabundið. Sjaldan
meira en 2-3 mánuði á vetri, því oft voru fleirri en einn í sveit, sem
þetta gátu gert. Greiðsla var 20 aurar á alin fyrst þegar ég man eftir.
Var líklega komið í 40-50 aura fyrir fyrra stríð, 1914-18. Síðar
hækkaði þetta upp í kr. 1,5o-2.oo kr. á alin.

p4
Vefstóll: Orðið
vefstóll hefur eingöngu verið notað um þetta áhald, þar sem ég þekki til.
Ég hef ekki kynnst neinum mönnum, sem hafa séð kljásteinavefstól.
Nágrannar mínir Gísli og Þorsteinn, sem ég hef áður nefnt segjast
ekki muna eftir neinu honum tilheyrandi frá sínum uppvaxtarárum í Suðursveit.
Ég sá nokkuð marga vefstóla á uppvaxtarárum mínum á Héraði.
Ég get þó ekki nefnt nokkurn vefstólasmið. Þó hef ég fyrir
satt að Þórarinn Sölvason á Ormarsstöðum hafi smíðað sinn vefstól. Hef
ég nefnt Þórarinn áður, ef ég man rétt. Ekki minnist ég þess
að ég sæi nema einn vefstól, einsog og mynd A sýnir, að því leyti að bóman
væri svona hátt uppi. Var mér sagt að það væri eldri gerð. Sama
segja og vinir mínur úr Suðursveitinni. Þetta virðist manni einkennilegt.
Þeir hafa þó verið plássfrekir og ekki nentað vel í lágreystu

p5
baðstofunum áður
fyrr. Eitt var frábrugðið á þeim vefstól, sem ég sá og mynd
A sýnir. Skeiðarhaldið var þar fest á slá nr. 10 og að sjálfsögðu slána
á móti. Þar snéri upp, það sem niður snýr á skeiðarhaldinu á mynd A. Umbúnaður
um skeiðina var eins og með því að ýta höföldunum lítið eitt aftur, gætum
við hugsað okkur að skeiðin kæmi á sama stað, slá nr.5 yrði að neðan og
hin sláin ofar. Mætti hún vera aðeins grennri. Þá yrði að búa
svo um slá nr. 5, að hún gæti ekki dottið niður. Sé ég þá ekki betur
en sú tegund af vefstól sé komin, sem ég sá áður fyrr. Ég þykist
muna það alveg greinilega að umbúnaður á skeiðarhaldinu var svona. Þarna
var það hangandi en ekki standandi. Ég nota hér orðið skeiðarhald
hvk., en hef þó á tilfinningunni að það hafi meira verið notað í kk. skeiðarhaldari,
á mínum uppvaxtarárum.

p6
Ég kannast ekki við
að orðin fram-rifur og aftur-rifur væru notað á Héraði fyrst þegar ég man
eftir. Þau komu síðar. Ásinn sem vefjarslangan var
undin á kallaðist bóma, en ásinn, vem voðin vattst á var kallaður rifur.
Á öllum vefstólum, sem ég man eftir frá þeim tíma voru bóma og rifur
á sömu hæð, eins og sýnt er á mynd B og skeiðarhaldið fest eins og mynd
A sýnir. Aðeinn einn var af annarri gerð, þ.e. bæði bóma og skeiðarhald
fest að ofan eins og áður segir.

Bræðurnir Gísli og
Þorsteinn segja, að mörgum gömlum vefstólunum hafi verið breytt þannig,
að bóman var færð niður. Ef ég skil mynd B rétt, er skeiðarhaldið
þar fest að ofan. Ef til vill hefur að verið stundum. Hitt
var áreiðanlega algengara að frágangurinn væri eins og mynd A sýnir. Þegar
vefurinn fór að nálgast skeiðina þurfti "að færa". Þá var
lyft upp hleypiloku og slakað á bómunni um 3-4 þuml., gæti ég trúað.

p7
Á enda rifsins var
tenntur kragi dálítið stærri en gildleiki rifsins. Á vefstólinn,
nálægt kraganum var komið fyrir litlu bognu járni, sem kallaðist stillir.
Annar endi hans var þunnur með gati í gegn. Hinn endinn var
meitillaga og gat fallið niður milli tanna kragans, þegar vefurinn var
strengdur eftir hverja færu. Með nagla, sem gekk í gegnum gat stillisins
var hann festur við vefstólinn, en hinn endinn nam við kragann. Hakar
voru á enda rifsins, svo hægt væri að vinda upp á hann, þegar slakað hafði
verið á bómunni. Þessi umbúnaður og kraginn var kallaður rifshaus.
Á enda bómunnar voru samskonar hakar, en í stað tennta kragans voru
standar með jöfnu bili, sem ásamt hleypilokunni, tempruðu lengd hverrar
færu.

p8
Vefjarkeið: Ekki
hef ég heyrt annað nafn á þessum hlut. Í daglegu tali var þó sagt
skeið. Ég veit ekki til að þær vefjarskeiðar, sem ég sá, væru heimasmíðaðar.
Ég held að þær hafi allar verið úr járni eða stáli. Þær voru allar
af svipaðri lengd, ekki þó alveg jafnlangar, ef ég man rétt. Nágrannar
mínir, Gísli og Þorsteinn segja að þær hafi allar verið jafnlangar. Ég
man ekki hvort ég heyrði talað um 60 tanna skeið, en ég heyrði áreiðanlega
nefnda 70,80,90 og 100 tanna skeið. Gísli og Þorsteinn segjast muna
eftir 60 og jafnvel 50 tanna skeið. Allir, sem ég hef talað við segja,
að þessi tala sé miðuð við ákveðna lengd á skeiðinni, þ.e. eitt kvartel
= 1/4 úr alin. Með öðrum orðum: Með þessum tölum var
það táknað hve grófar eða fínar skeiðarnar voru. Algengastar voru
70 og 80 tanna skeiðar, einnig voru 90 og 100 tanna skeiðar allmikið notaðar.
Ég þykist og muna eftir 120 tanna skeið.

p9
Vefjarskytta - vefskytta:
Í æsku minni heyrði ég bæði þessi orð, oftar það fyrra. Oftast
var þó í daglegu tali sagt skytta. Vefarar lögðu sig fram um að eignast
góðar skyttur, ekki síður en smiðir að eignast góð verkfæri. Allar
skyttur, sem ég sá, voru úr tré og líkar að lögum, en handbragð og trjátegundir
gat verið misjafnt. Flestar voru úr harðviði, ask eða eik. Áttu
þær að vera léttar, vel fágaðar og þær áttu að smjúga gegnum skilið eins
og silungur gegnum vatnið. Flestar voru úr látúns- eða koparvír,
sem barinn var sléttur og síðan sorfinn og fágaður. Þegar lengdin
var fundin voru endarnir beygðir og síðan negldir upp í botn skyttunnar.
Spóluteinninn var venjulega úr samskonar vír. Oft var og felldur
vír á báða enda skytturnnar. Fremur var það gert til prýðis en gagns,
held ég.

p10
Spólurokkur: Ég
sá spólurokk, heimagerðan, einfaldan og ekkert listasmíði, en var þó notaður
árum saman. Hugsum okkur 2 borð hlið við hlið. Lengd
1 1/2-2 álnir, breidd 5-6 þuml., þykkt 2/3-1 þuml. tengd saman með 3-4
listum. Undir hvorn enda eru settir 2 fætur álíka og á rokk. Ofan
á þetta skammel voru greyptir eða festir vel 4 uppstandarar, tveir og tveir
hvorum megin, segjum 4-5 þuml. frá endum. Hjólinu var komið fyrir
á uppstandarana hægra megin. Var hæð og bilin milli þeirra við það
miðuð. Við uppstandarana hinum megin var festur grunnur kassi.
Í honum var útbúnaður fyrir spóluteininn með áfastri trissu. Hjólið
og trissan var tengt saman með snúru. Sá rokkur, sem ég hef sérstaklega
í huga var handsnúinn. Litla breytingu þurfti að gera til þess að
hægt væri að stíga hann.

p11
Spanstokkur: Ekki
þekki ég annað nafn á áhaldi því, er haft var til að strengja jaðra voðarinnar
þegar ofið var. Var hann í 2 hlutum, eins og reynt er að sýna. Smánaglar
voru í hvorum enda, sem stungið var í jaðrana. Hlutar hans voru tengdir
saman með nagla, sem gekk í gegnum göt á báðum álmum hans. Samanlögð
lengd beggja arma átti að vera jöfn breidd slöngunnar í skeiðinni hverju

sinni.

p12
Balbínur: Það
voru snældur, sem uppistöðuþráðurinn var undinn á, áður en rakið var. Þær
voru lengri og gildari en rokksnældur og snúðarnir stærri og báðir eins.
Það var hægt að balbína á spólurokk, ef fenginn var tilheyrandi teinn
og trissa. Líka sá ég gamlan spunarokk,sem breytt hafði verið í balbínurokk.
Verkið kallaðist að balbína, hliðstætt því að spóla. Balbínustóll:
Þegar átti að vinda af rokksnældu voru þær venjulega látnar í snældustól.
Eins var gert við balbínurnar, þegar átti að fara að rekja í vefinn.
Þær voru látnar í balbínustól. Hann var mjög einfaldur að gerð.
Hugsum okkur gluggakarm, dálítið lengri en hann er breiður, með póst
í miðju á lengri veginn. Boruð voru göt með jöfnu bili, bæði á hliðar
og miðslá. Í þau voru látnir hæfilega langir járnteinar. Voru
2 balbínur látnar á hvern, t.d. 6-8 hvorum megin.

p13
Rakgrind - rakningsgrind.
Fyrra orðið var nær eingöngu notað á Héraði um þetta áhald,
þegar ég var að alast þar upp. Ekki man ég eftir nema einni gerð
af þeim. Líklegt er þó að þær hafi verið fleirri. Reyni
ég þá að lýsa rakgrind. Hugsum okkur 2 krosstré, jafnarma með gati
í miðju, sem grópuð hafa verið saman vinkilrétt. Súla var sett í
gegnum gatið á krosstrjánum. Var hún ofurlítið hærri en grindin átti
að vera. Þá hugsum við okkur 4 renglur (slár) jafn langar. Á
hvorn enda þeirra voru endar krosstrjánna greyptir þannig, að lengd þeirra
takmarkaði hæð rakgrindarinnar. Venjulega var rakið í húsi eða stofu
undir baðstofulofti. Stundum í gestastofu í frammihúsi. Að
ofan var rakgrindin fest í loftsbita eða í borð eða blankabút, sem þá var
negldur neðan í loftið. En hún stóð á gólfinu á plankastúf eða skammeli
lágu eða háu eftir ástæðum. Rakgrindur voru færri en vefstólar.

p14
Rakningsspaði: Þetta
áhald sá ég aldrei meðan ég var á Héraði og ekki heldur síðan ég kom hingað
í Vopnafjörð. Vinir mínir úr Suðursveitinni segja að hann hafi ekki
þekkst þar. Aftur segist ung kona Oddný P Jóhannsd., sem fyrir 12-14
árum var á húsmæðraskólanum á Hallormsstað, kannast við rakningsspaða.
Hann hefði verið notaður þar, þegar vefir voru raktir. Þetta
er dálítið spjald með götum, 4-5 cm. á lengd og með skafti. Eru þræðirnir
þræddir í götin og haldið um skaftið með annarri hendinni, og síðan rakið
á grindina á venjulegan hátt. Rakningsstokkur: Ég man
ekki eftir þessu orði frá æskuárum mínum. Ég sá rakið af hnyklum.
Þurfti að hólfa þá sundur, til þess að ekki færi allt í flækju. Man
ég eftir einum slíkum kassa með allmörgum hólfum. Þó þurfti a bæta
við plaggakassa og kembulár, man ég eftir. Gaman þótti

p15
okkur krökkunum að
passa hnyklana, að þeir hoppuðu ekki upp úr hólfunum meðan rakið var. Gaman
var og að sjá að endingu á hvað þessi eða hinn hnykilinn hafði verið undinn
eða hvort undinn hafði verið hönk til að byrja með. Rakning
á grind: Alltaf voru amk. 2 við að rekja vefinn, gjarnan karlmaður
og kvenmaður, venjulega sá eða sú, sem ætlaði að vefa og einhver annar.
Lengd voðarinnar var mæld þannig að mældur var einn þráður af einhverri
balbínunni, t.d. 30, 40 eða 50 álnir, eða hvað sem vefurinn átti að vera.
Þar var hnýttur ullarlagður eða léreftspjatla á þráðinn. Síðan
var þráðurinn undinn á balbínuna aftur. Þá tók rakningsmaðurinn alla
þræðina, jafnaði endana og hnýtti á hnút. Nú skipti hann þráðunum
í jafna hluta og setti lykkjuna á þann hæl, sem næst var enda hæltrésins.
Var nú byrjað að rekja, þ.e. leggja á grindina. Farið var ofan
við miðhælinn

p16
neðan við hinn og
fetað áfram niður grindina, þangað til kom að merkinu. Þar var neðra
hæltréð fest, og var þá snúið við, brugðið ofan og neðan við hælana á víxl
og myndaðist þannig skil. Ég þykist muna að spotta væri brugðið um
ákveðinn þráðafjölda í neðra skilinu, líkt og gert var um knekk á hespu.
Minnir mig að það væri miðað við 5 eða 6 umferðir á rakgrindinni.
Þræðirnir í hverri umferð voru kallaður "feti", hvort sem
farið var niður eða upp grindina þegar rakið var. Eins var talað
um feta, t.d. þegar farið var að leggja í kamb. Þess var
gætt, þegar rakið var, að hver feti kæmi þétt ofan við þann næsta. Þannig
myndaðist samfellt belti, sem lá í bugðum niður alla grindina og breikkaði
sífellt meðan haldið var áfram að rekja.

Fullrakin uppistaða
á grind kallaðist vefjarslanga eða bara slanga. Bundinn var

p17
spotti í skilið við
hvern hæl bæði að ofan og neðan og vel gengið frá öllu. Einnig var
bundið á 2 stöðum, utanum slönguna við hvern hring á grindinni, til þess
að hún flóknaði ekki. Síðan var slangan losuð af efri hælnum og fléttuð
niður grindina í svokallaða möskva. Þurfti að styðja vel við grindina á
meðan, svo að slangan hrapaði ekki. Sömu handtök voru alltaf notuð við
að taka slöngu af grind. Ekki vissi ég dæmi til að slanga flóknaði,
jafnvel þó hún væri sett í poka og borin milli bæja.

p18
Hafaldagrind: Þetta
áhald sá ég í æsku minni. Var það afskaplega fábrotið. Fjórar
renglur voru greyptar saman hornrétt. Mun hafa verið 32-33 vm. bil
milli hliðarfjala. Lengd líklega 45-50 cm. gæti ég trúað. Mitt á
milli hliðarfjala lá grönn slá, kúpt eða sívöl. Takmarkaði hún stærð
augans, sem líklega hefur verið 1 1/2 cm. eða svo. Áður voru höföld
unnin úr togþræði. Ekki sá ég það gert. Þau höföld, sem ég
man eftir og sá hnýtt, voru úr samskonar garni og silunganet, virtist mér.
Að rekja hafaldaefnið var að vinda það upp á fjöl, sem var
nokkuð lengri en breidd hafaldagrindarinnar. Tveir unnu saman að
því að hnýta höföldin. Nú skáru þeir efnið af fjölinni þannig að
hver umferð varð tveir spottar. Tóku þeir sinn endann hvor, tengdu
þá saman og hnýttu síðan hafaldið þannig: Þeir jöfnuðu endana, tengdu
þá saman í miðju og um leið batt annar sínum spotta um miðslána með 2 hnútum,
þ.e. "hnýtti augað".

p19
Síðan batt hvor um
sig um hliðarslána sín megin með 2 hnútum og tengdu að lokum endana saman
með einum hnút. Á þennan hátt sá ég höföld hnýtt. Augað fylgdi
efri hlutanum. Á honum voru 5 hnútar. Hinn hlutinn var tengdur
í augað, hnýttur um gangstæða hlið hafaldagrindarinnar, hnútar þrír. Síðar
settur á neðra hafaldaskaftið. Ofurlítið bil átti að vera milli hnútanna
tveggja, sem mynduðu hafaldið og endahnútanna. Í þetta bil var dreginn
þráður. Voru endar hans vandlega bundnir um enda hafaldaskaftanna.
Voru þar oft tálgaðar skorur í sköftin, til þess að stöðva bandið.
Stundum voru festar lykkjur á sköftin í sama tilgangi. Bandið, sem
ég hér tala um, kallaðist leyniband eða leyniþráður.

Ég hygg að stálhöföld
hafi lítið verið notuð hér um slóðir. Það var aðeins augað, sem var
úr stáli. Ég man að þau voru talin dýr, entust lítið, af því að þau
vildu ryðga og uppistaðan slitnaði meira í þeim.

p20
Vefjarkambur: Ég
hygg að það hafi varla brugðist að þar sem vefstóll var á heimili, þar
var líka vefjarkambur. Var hann notaður þegar bómað var, þ.e. slangan
undin á afurrifinn, bómuna. Ég man ekki, að ég heyrði annað nafn
á þessu áhaldi. Margbrotið var það ekki, líktist nokkuð hrífuhaus
með lindum. Var hann nokkuð lengri og gildari en venjulegur hrífuhaus
og alveg beinn. Borað var fyrir tönnum kambsins, eins og tindum í
hrífuhaus. Voru þær álíka gildar og lítið eitt lengri en venjulegir
hrífutindar úr tré. Efni og smíði var vandað eins og föng voru á.
Því miður get ég ekki sagt hve langur kamburinn var, né hve langar
og þéttar tennurnar voru. Ég þykist muna eftir kambi, sem í voru
35 tennur. Aðalhluti kambsins, sem tennurnar voru negldar í náði 3-4 cm.
út fyrir endatennurnar beggja megin. Þar á voru greyptir kubbar,
sem voru allt að helmingi lengri en tennurnar. Á þessu endakubba
voru gerðir stallar jafnir hæð tindanna, en þunnir

p21
geirar stóðu upp
úr þeim miðjum. Ofan á þetta var sett passandi fellilok. Var
gat eða skora á endum þess. Féll það slétt og nákvæmlega á tindana
og áðurnefnda stalla. Gat var borað á hvorn geira ofan við lokið,
og það síðan fest með splitti. Brúnirnar á hliðum loksins féllu lítið
eitt niður á tindana. Að láta í kamb: Verkið að dreifa
slöngunni í vefjarkambinn var hér um slóðir kallað "að leggja í kamb".
Var það fast orðtak um það verk. Vefarinn vissi alltaf
hve margir þræðir voru í slöngunni, og þá líka hver breiddin yrði þegar
búið væri að draga í höföldin. Breiddin í kambinum átti að vera sú
sama og í höföldunum. Með þetta í huga var auðvelt að reikna út þráðafjölda
í tönn á kambinum.

p22
Að festa upp: Það
var í stuttu máli þetta: Að vinda slönguna á bómuna, afturrifinn,
draga í höföld og skeið og festa uppistöðu í framrif, þ.e. festa slönguna
í vefstólinns, svo að hægt væri að byrja að vefa. Að bóma
vef: Ásinn, sem slangan var undin á kallaðist bóma, síðar afturrifur,
sem er ljótt orð. Að bóma var að vinda slönguna á bómuna. Eftir endilangri
bómunni, frá rifshaus og aftur var heflað plógfar, íhvolf lægð. Í
það var rifskaftið sett. Á bómunni voru svokallaðir kragar. Voru
það 2 tréplötur á stærð við nokkuð stóran disk með gati í miðju. Áttu þeir
að falla nokkurn veginn á bómuna, en vera þó hreyfanlegir. Gegnum bómuna
voru boruð göt, 6-8 hvorum megin. Utan á kragana voru negldar 2 litlar
lykkjur hvor á móti annarri. Nú voru kragarnir færðir til á bómunni
þannig að þeir kæmu yfir enda plógsskaftsins og bilið milli væri jafnt
og breidd slöngunnar í kambinum. Mátti setja þá

p23
fasta með vír, sem
þræddur var í götin á bómunni og lykkjurnar á krögunum.

Gerð voru vik upp
í kragana, af því að plógskaftið féll ekki alveg niður í farið. Var
það líka bundið við bómuna á 2-3 stöðum. Venjulega voru 3
við að bóma. Einn vatt upp á rifinn, annar hafði auga á kambinum
og þriðji sá um áferð á bómunni. Það átti að vinda jafnt og rólega,
enda runnu þræðirnir venjulega viðstöðulaust gegnum kambinn. En stundum
sást þó slitinn þráður, snurða eða slaki, sem þurfti að laga. Oft
var það kvenmaður, sem sá um bómuna. Þurfti hún að vera aðgæti og
handfljót. Áferðin átti að vera sem jöfnust og sléttust, en það vildu
myndast garðar og lægðir og þó sérstaklega út við kragana. Höfðu
þær ekki við að jafna á bómunni, þó hægt vær undið. Ekki man ég eftir
að nein áhöld væru notuð við að slétta á vómunni. Að verki loknu
vor slönguendinn bundinn við brjóstbómuna (sjá mynd B).

p24
Að draga í höföld:
Þetta var fast orðtak um að þræða slönguþræðina í höföldin. Tveir
hjálpuðust að við það verk. Annar var framan við höföldin og dró
í. Hinn var aftan við þau og rétti þræðina. Efri hafaldasköftin
voru bundin saman meðan verkið stóð yfir. Að öðru leyti voru þau
laus. Ef áætlað var að ekki þurfti að nota öll höföldin, þótti lögulegra
að skilja þau ónotuðu eftir beggja megin. Var byrjað á að binda utanum
þessi auka höföld. Nú taldi maðurinn, sem ætlaði að draga í, 25 höföld
á fremsta skafti og setti þau milli þumalfingurs og vísifingurs vinstri
handar, þá tók hann af næsta skafti álíka mörg höföld, án þess að telja
og setti þau milli vísifingurs og löngutangar, sama gerði hann við þriðja
skaftið og setti þau höföld milli löngutangar og græðifingurs, og loks
tók hann höföld af fjórða skafti og setti milli græðifingurs og litlafingurs.
Nú hafði hann gott vald á höföldunum. Hann byrjaði á aftasta
skafti hægra megin, og áfram röðina fram. Byrjaði svo aftur og endurtók


p25
röðina í sífellu.
Þegar hann dró í síðasta hafaldið á fyrsta skaftinu, þá vissi hann
að fyrstu 100 þræðirnir voru komnir í höföld. Þá tók hann endana,
jafnaði slaka og hnýtti á þá lykkju framan við höföldin. Var þetta
endurtekið þangað til verkinu var lokið. Gengið var frá skilsköftunum
og kamburinn fjarlægður, áður en farið var að draga í höföldin. Hjálparmaðurinn
átti alltaf að vera viðbúinn með þráð og gæta þess, eftir því sem hægt
var, að þeir kæmu í réttri röð. Að draga í skeið: Þetta
verk vann aðeins einn maður þar sem ég þekkti til. Áhaldið, sem hann
notaði, kallaðist venjulega krækja. Gikkur þekktist einnig. Báðir
endar skeiðarinnar voru festir við höföldin, gjarnan aukahöföldin. Átti
hún að vera lárétt og önnur brún hennar að falla að fremsta hafaldinu,
neðan við þráðahnútana. Verkið byrjaði og maðurinn leysti fyrstu
100 þræðina, tók 3 þá ystu og setti með krækjunni gegnum skeiðina þar sem


p26
hann ákvað að byrja.
Dálítið var breytilegt hve margir þræðir voru hafðir í tönn, ýmist
2 eða 3. Þegar hundraðið var búið var hnýtt að því neðan við skeiðina.
Að hnýta fram: Þetta var fast orðtak hér um verkið
að hnýta slönguþráðunum á skaft, sem svo var tengt við framrifinn. Því
miður man ég ekkert hvað þetta skaft var kallað, en það var tengt við rifinn
með 3-4 jafnlöngum snærum. Var nú búið að draga í skeiðina og setja
hana í skeiðarhaldarann. Voru endarnir leystir, hvort hundrað, og
hnýttir við skaftið í 4 knippum, minnir mig, hvert. Uppbinding:
Hér mun vera átt við að tengja saman skammel, hliðarskammel og hafaldasköftin.
Þetta var venjulega kallað "að krækja upp" í vefstólnum.
Þetta var mismunandi eftir því hvað ofið var og treyti ég mér ekki
að fara út í það. Lykkjur voru í skammelunum. Í neðri hafaldasköftunum
snæri með krókum, sem tengdust í lykkjurnar.

p27
Að draga fyrir: Þetta
var fast orðtak um að byrja að vefa. Oft var skilið óhreint til að
byrja með. Varð að greiða skyttunni leið fyrstu ferðirnar. Venjulega
lagaðist þetta fljótt. Það tilheyrði sumum vefnaði, t.d. vaðmáli
"að gefa upp í". Það var að grípa með hendi gegnum uppistöðuna
framan við ívafsþráðinn um leið og hann raktist af spólunni, og ýta honum
nær skeiðinni. Lá þráðurinn í boga þegar stigið var, og slegið með
skeiðarhaldinu, sem hvorttveggja gerðist í einu. Þetta gerði voðina
þéttari. Ef uppistöðuþræðir slitnuðu var talað um að bæta vefinn,
þegar það var lagfært. Þegar voðin nálgaðist skeiðina þurfti "að
færa", þ.e. lyfta hleypilokunni, slaka á bómunni og vinda upp á framrifinn.


p28
Þóf: Það var
talið vandaverk að þæfa og voru oft fengnir til þess æfðir þófarar. Vandinn
var að voðin þófnaði öll jafnt. Fyrst þurfti að bleyta vel og rækilega
í þófinu, þ.e. þvo voðina vandlega. Var það gert á líkan hátt og
þegar ullin var þvegin, nema að voðin var þvegin inni og bæði þvottaefnið
og verkið sjálft vandað enn betur. Voðin var undin úti. Hjálpuðust
2 að við það, og þó helst 3. Undu 2 voðina líkt og þegar snúið var
upp á hespu, en sá þriðji sá um að hún óhreinkaðist ekki. Oft var
voðin brotin saman fjórföld og sköft látin í lykkjurnar, til þess að hægt
væri að vinda betur. Ég sá þæft í fjósi, á hurð eða hlera.
Oftast var þó þæft í baðstofu, uppi eða niðri, t.d. í skoti við rúmgafl
og var þá gjarnan stóll himum megin. Þótti þófaranum gott að geta
stutt niður höndum. Oftast var hann aðeins klæddur nærbuxum og einni
skyrtu meðan á verkinu stóð, en hann vildi helst vera þar sem hlýtt var.
Oft stóð verkið 4-6 klukkutíma, minnir mig, og ef til vill lengur.


p29
Venjulega vann þófarinn
kappsamlega meðan á verkinu stóð, stjáklaði, þjarkaði og snéri þófinu alla
vega undir fótum sér, enda varð hann oft sveittur. Þér talið
um hvort þófið hafi verið hrist. Það var vanalega gert tvisvar og
hvíldi þófarinn sig á meðan. Annars var það oftar kallað "að
kippa" þófið. Það gerðu 2 menn. Þeir byrjuðu á öðrum enda
voðarinnar, tóku fyrir 1-1 1/2 alin í einu. Tóku þeir nú sinn jaðarinn
í hvora hönd sína og létu þær mætast um leið. Síðan kipptu þeir höndunum
til hliðar hart og títt, eins og breidd voðarinnar leyfði. Á þennan
hátt áttu þeir á svipstundu að hreinsa öll óhreinindi af þófinu.
Það var regla að þófarinn fengi aukaglaðningu, þegar hann var að
þæfa. Vanalega var það kaffi og pönnukökur, stundum súkkulaði eða annað
góðgæti. Ekki minnist ég þess, að ég hafi heyrt hvaða reglur giltu
um kaup þófara. Ekki mátti dragast lengi að ganga frá voðinni, þegar búið
var að þæfa. Var hún vafin upp á fjöl. Átti hún að vera dálítið lengri
en vefurinn vr breiður og 5-6 þuml.

p30
mun hafa þótt æskileg
breidd. Ekki þótti nóg að vinda einu sinni. Þurfti alltaf að
vinda voðina upp tvisvar. Þurftu 2 að vinna þetta verk. Sátu
þeir hvor á móti öðrum, oft annar á rúmi, hinn á stól og hafði annar fjölina.
Endi voðarinnar var lagður slétt á fjölina og 2 fyrstu vafningar
vafðir þétt og varlega. Eftir það var athugað við hvern vafning að
hann lægi sléttur á fjölinni, sérstaklega jaðrarnir. Var það áréttað
með því að annar hélt við fjölina, en hinn togaði þéttingsfast í voðina.
Þannig var haldið áfram þangað til allur vefurinn var kominn á fjölina.
Ekki var látið sitja við svo búið. Áður en margir dagar liður,
var voðin undin á aðra fjöl. Var nú byrjað þar, sem áður var endað
og mjög á sama hátt. Verkið var vandað, engu síður en áður, enda
var dúkurinn að jafnaði fastar og betur undinn í síðara skiftið. Var
síðan látið brigði utan um voðina og hún látin undir farg, t.d. þungt koffort
eða kistu. Var hún talsvert ólík, þegar hún síðar var rakin af fjölinni,
og ún hafði áður verið, þegar hún lá á gólfinu og átti að fara að þæfa.


p31
Ekki vissi ég til
þess að þeir, sem þæfðu fótaþóf, færu með vísur eða þulur sér til flýtis
eða fulltingis. En móðir mín kenndi okkur krökkunum þulu, sem hún
sagði að ágætt væri að hafa yfir og helst að syngja þegar við ættum að
þæfa sokka eða vettlinga. Minnir mig að hún segja að hún héti þófaraþula.
Sagði hún að, ef við færum með þuluna 10-12 sinnum og kepptumst jafnfram
við að þæfa, þá mundi þófið verða langt komið. Og ef það yrði ekki
alveg búið, þá skyldum við bara byrja á þulunni aftur. Þetta sagði
hún. Hér kemur þulan. Ég veit ekki hvort ég man hana alla.
Bárður minn á Jökli - komdu og leggstu á þófið mitt - ég skal gefa
þér lóna - innan í skóna - og vettling á klóna - þegar ég kann að prjóna
- naglabrot í bátinn þinn - hálfskeifu undir hestinn þinn - mórautt lamb
og gimburskel - og meira til ef þú þæfir vel. Meira man ég
ekki, enda komin tími til að hætta.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Ull
Keyword:
Tóvinna