Tóvinna

In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (1902)
Object-related numbers
Museumnumber a: 1317 "Museumnumber b": 1966-1
Questions / Answers
Allar spurningar og svör
Nr. 1317

p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Vefnaður hófst, norður í Sléttuhreppi, aldrei fyrr
en eftir áramót, og það sama gilti um næstu hreppa. Það var svo margt
annað að starfa til jóla, að ekki vannst tími til að setja upp vef fyrir
jól og vefa að nokkrum mun. Eftir sláturstíð, á haustin, var venjulega
byrjað á að spinna og prjóna sokka, vettlinga og þau föt sem prjónuð voru,
og að öllu jöfnu var spunnið fyrir jól í verkið, sem sett var upp í vefstólinn
eftir áramót. Lítil ljós og léleg, munu einnig hafa verið ástæða
fyrir því, að ekki var sett upp í vefstól fyrir jól. Ljós voru ekki
önnur en lýsislampi og týra, og lítill olíulampi til hátíðabrigða (ef til
var olía á hann). Tvær manneskjur settu vefinn upp, en svo
var ofið oftast af einum, að jafnaði, sem sat í vefstólnum frá fótaferð
til háttumála. Börn eða unglingar

p2
byrjuðu að hjálpa
til um 13-14 ára. Ekki tíðkaðist það þar sem ég ólst upp, að menn
færu á milli bæja til að vefa, an það mun hafa átt sér stað annarsstaðar,
svo sem í Víkursveit í Strandasýslu, að menn gerðu það, og tóku 1.50 kr.
fyrir að vefa 1 alin. Vefstóll: Enginn af þeim sem
ég hefi talað við, kannast við kljásteinsvefstaðinn, og vita ekki hvenær
hann lagðist niður. Vefstólar voru smíðaðir norður í hreppunum. Í
Grunnavíkurhreppi, smíðaði Jakob Hagalinsson allt tréverkið í vefstólinn,
en Benedikt Hermannsson, Reykjarfirði, smíðaði öll járn í hann. Þessir
menn lærðu báðir hjá Stíg Stígssyni á Horni, en hann var jafnvígur á tré
og járn, og smíðaði vefstóla að öllu leyti fyrir Sléttuhrepp. Og
víðar um landið munu hans vefstólar hafa farið. Hann var

p3
einnig skipasmiður
með afbrigðum og smíðaði allan saum í skipið og einnig ræðin.
Skeið: Vefjarskeiðar nefndust þær. Þær voru ekki heimasmíðaðar.
Stærð þeirra var miðuð við tannafjölda, 60 tanna skeið.
Vefskytta: Efni í vefskyttu var oftast blikk. Spóluteinninn
í skyttunni nefndist rill eða spóluteinn. Spólurnar voru renndar.
Efnið svellharður rauðaviður.

p4
Spólurokkur: Áhaldið
sem spólað var á nefndist spólurokkur. Venjulega voru notaðir gamlir rokkar.
Það var settur í þá sérstakur spóluteinn í stað snælduumbúnings.
Að leggja upp: Verkið við að reikna út uppistöðuþráð
í voð, er vefa átti, nefndist að leggja upp. Efnið í voðina var undið
í hnykla. Sauðarvölur voru alltaf notaðar til að vinda á, en þær voru alltaf
dregnar frá þyngd hnyklanna. Venjulega voru 2 1/2 alin lögð uppúr
þráðarmörk í hnyklum.

p5
Að reikna í skeið:
Verkið við að ákveða fjölda uppistöðuþráða í breidd voðar, er vefa
átti, nefndist að reikna í skeið. Ef uppistaðan varð gisnari en ætlað
var, var það kölluð "vefjargleypa". Að reikna í vef: Verkið
nefndist "að reikna út í vef", og uppistaða í vef "uppistaða",
en ívafið "fyrirvaf". Rakningsgrind: Áhaldið sem
uppistaða í voð var rakin á, var kölluð rakningsgrind. Tréð, sem
skilhælar voru festir á hét "skilkambur. Rakningsgrindur voru til
á öllum heimilum sem áttu vefstóla.

p6
Rakningsstokkur:
Ílátið sem hnyklarnir voru látnir velta í, er rakið var á rakningsgrind,
var venjulega tréfata. Rakning á Rakningsgrind: Rakningsgrindin
var venjulega sett upp í útihúsi eða bæjardyrum, ef rúmgóðar voru. 2
unnu að því að rekja. Vefarinn og unglingur eða kvenmaður. Lengd
voðarinnar var mæld með því að setja rauðan bandspotta, sem merki á uppistöðþráðinn.
1 þráður var hafður í hafaldi, gat var borað á stórgripavölu, og
hún látin leika á uppustöðuþráðunum til þess að jafna þá.

p7
Hafaldagrind: Áhaldið
sem höföld voru hnýtt á hét hafaldagrind. (Hér er teikning af hafaldagrind).
Hafaldaefni og höföld: Efni í höföld var unnið heima úr dregnu
togi. Þráðurinn var spunninn jafn og hnökralaus, hafður dálítið snúðharður,
svo þrinnaður, og þá varð hann snöggur eins og garn, og haldgóður. Elstu
menn muna ekki eftir öðru en þráðarhöföldum.

p8
Verkið við að dreyfa
slöndunni í vefjarkambinn var nefnt "að láta í kamb". Skaftið,
sem sett var í gangaskilið og tengt við slöngurifinn hét plógskaft.
Að festa upp: Verkið við að vinda slönguna upp á slöngurifinn, draga
í höföld og skeið og festa uppistöðu í framrif nefndist "að festa
upp". Að draga í skeið: Áhaldið sem notað var við að
draga í skeið nefndist "krókur eða gikkur". Tveir unnu
að því að draga í skeiðina, annar þeirra rétti.

p10
Að hnýta fram: Skaftið
sem uppistaðan var hnýtt fram á, nefndist "framhnýtingarskaft"
og verkið við að hnýta á skaftið "að hnýta á skaft". Að
fella vef: Er vefnaði á voð var lokið og hún var tekin úr vefstólnum,
það var nefnt "að fella vef". Þráðarendar sem gengu af,
er vefur var felldur voru nefndir "afvikur". Þeir voru
notaðir til að bæta með vaðmálsföt. Engu var kastað.
Þóf: Átta fjórðunga pottur var settur á stærstu hlóðirnar í eldhúsinu,
bornar í hann 2 fjórðungsfötur af vatni

p11
og 4 fötur af keytu,
hitað snarpheitt, svo var voðin látin smátt og smátt ofaní pottin. Byrjað
á öðrum endanum, þangað til voðin var öll komin niður í pottinn. Ef
voðin var þunn, þá fór minna fyrir henni, og var þá hægara að hreyfa til
í pottinum, en það var gjört með þar til gerðum spaða, sem einnig var notaður
til þess að kreysta voðina að barminum og botni pottsins. Voðin var
fest saman á báðum endum, og því tvöföld. Hún var því undin þannig,
að 2 göngustafir voru látnir sitt í hvorn enda á voðinni og svo var hún
undin með því að snúa stöfunum öfugt, hver á móti öðrum. Með því
snérist voðin í vöndul, og um leið úr henni allt vatn. 2 karlmenn
undu venjulega voðina. Það var venjulega þæft á baðstofulofti, því
þar var mestur ylur frá fólkinu, sem vann í baðstofunum. Um annan
hita var ekki að ræða.

p12
Heimamenn önnuðust
oftast þóf, annaðhvort karl eða kona. Þæft var á hurð. Fólk
var oftast léttklætt við þóf, því úr þófi fékkst nógur hiti. Karlmenn voru
á einni skyrtu og nærbuxum, og auðvitað berfættir, en konan í skyrtu og
millipilsi. Svo var stappað á þófinu lengi dags, og passað var að
þófið færðist ekki út af hurðinni. Tvisvar til þrisvar var voðin
hrist, en til þess þurfti 2 menn. "Þófarabitinn" var rúgmjöls
flatkaka og hnoðað ofaná hana íslensku smjöri, og svo kæfu þar ofaná, en
þófarabitinn fór nú algjörlega eftir því hve húsmóðirin var rausnarleg.
Eftir þófið var voðin hrist vandlega, svo var hún vafin upp á fjöl
og slétt úr henni mjög vandlega. Svo var látið stykki utan um hana,
og lögð undir farg, kistu eða koffort með þungavöru. Voðir voru aldrei
sendar héðan úr þessum nyrstu hreppum til útlanda til litunnar.


p13
Hér kemur svo þófaraþulan:
Bárður minn á jökli - leggst þú á með mér - ég skal gefa þér lóna
- leppana inní skóna - mórautt lamb og gimburskel - og meira ef þú þæfir
vel - hálfskó undir hestinn þinn - og þá gengur þófið. Vefnaðarsýnishorn:
Ég sendi hér með sýnishorn af vaðmáli. Bótin er 51 árs gömul,
og er úr karlmannajakka. Spunnið í vaðmálið og ofið af Ketilríði
Jóhannesdóttur í Reykjarfirði á Ströndum, með hjálp Jakobs Kristjánssonar,
sem þá var ungur, giftur Matthildi Benediktsd. Vaðmálið var ofið
1915.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Tóvinna
Keyword:
Ull