Tóvinna

In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (1904)
Object-related numbers
Museumnumber a: 6551 "Museumnumber b": 1966-1
Questions / Answers
Allar spurningar og svör
Nr. 6551

p1
Ull og tóvinna 3.
Þegar haustannir voru búnar, upptaka garðávaxta og sláturgerð, var
strax komið með kamba og rokka úr sumargeymslu inní baðstofu, og byrjað
að tæta ullina, spinna í það vef, sem átti að vefa fyrir jól, einnig var
ofið úr tvisti í milliskyrtur og svuntur. Vefur var alltaf felldur
nokkru fyrir jól og vefstóll tekinn niður og fluttur út í skemmu, og ekki
settur upp aftur fyrr en eftir hátíðar. Auðvitað þurfti að
sauma fyrir jólin úr því efni, sem ofið var, sumt var vaðmál og annað í
skyrtur og svuntur, og var litum fallega raðað saman. Konur unnu
mest að vefnaði, þó var einstaka karlmaður, sem kunni að vefa, misjafnt
hvað vel var ofið. Tvær systur þekkti ég, sem voru mestu hamhleypur.
Hjá þeim var aldrei neitt fát. Því hjá öðrum var ekki alltaf
gefið jafnt uppí eða spanstokkur færður hæfilega oft. Sama konan
sat alla daga í vefstólnum og óf af kappi. Matmálstímar og kaffi
var eina hvíldin. Aldrei sá ég börn vefn, en stúlkur komnar yfir
fermingu, ófu vaðmálsvend og einskeftu, það var svo auðvelt. Ekki
heyrði ég talað um borgun fyrir að vefa fyrir nágrannann. Oft var
það fátækt fólk, sem átti ekki vefstól, kom á stundum greiði á móti, t.d.
að spinna fyrir húsmóðurina. Engin vefnaður til verslunar, þar sem
ég þekkti, ef voru 16-18 menn í heimili. Þurfti svo mikið vaðmál bæði í
nærföt og utanyfirföt.

p2
Vefstóll: Þar
sem ég þekkti til var aðeins eitt nafn á vefstól, vefstóll. Gamla
kljásteinsvefstólinn sá ég aldrei. Helst væri að leita að honum á
Byggðasöfnum. Því miður var of mörgu af gömlu dóti fleygt heima hjá
mínum fósturforeldrum. Voru synir hjónanna smiðir. Einn þeirra
smíðaði vefstólinn fyrir heimilið og mörg önnur heimili var ofið fyrir.
Systurnar voru svo duglegar að vefa. Ekki var vefstóll lánaður af
bæ. Ekki hægt um að flytja hann yfir djúp vatnsföll, heldur var ofið fyrir
þau heimili, sem engan átti vefstólinn og enginn kunni að vefa. Ég
kannast við vefstól A. Sjón mín er svo léleg, að ég treysti mér ekki
í þá lýsingu. Ég er blind á öðru auga og léleg sjón á hinu.

p3
Skeið: Sú skeið,
sem ég man eftir var gljáandi eins og væri tennurnar úr stáli, og var ekki
smíðuð heima. Var keypt, ég veit ekki hvaðan. Skeiðin var miðuð
við tannafjölda, svo þegar dregið var í skeiðina var þráðurinn settur á
gikkinn. Talað var um að hafa 2 í tönn osfrv. Vefskytta:
Alltaf var valið gott efni í skyttur á þeim, sem ég sá var vönduð
smíði, mjög vel yfirfarnar fyrst með grófum sandpappír, síðan fínum sandpappír,
sumar með þunnum látúnsrenningum, til þess þær rynnu betur í skilið. Teinninn
nefndist spóluteinn. Spólurnar voru renndar í rennibekk, gerðar vel
sléttar og hálar, svo bandið festist ekki í ójöfnur. Sá aldrei spólur
nema úr tré. Spólurokkur: Spólurokkur var gamall
rokkur, sem hætt var að spinna á, en hægt að nota til að spóla á. Var
þá settur sérstakur spóluteinn og lagður þannig að spólan passaði á teininn.


p4
Spanstokkur: Aldrei
heyrði ég annað nafn á honum. (Teikning). Í endum voru fínar klær,
sem settar voru í voðina til hliðar, og héldu henni þaninni, svo ekki kæmi
skekkja á jaðrana. Að leggja upp: Talað var um að leggja
upp í vefinn. Elstu konurnar á bænum sáu alltaf um að setja upp vefinn
og reiknuðu allt rétt út. Þær voru svo vanar að festa upp vef. Hvíldi
öll vegsemd á þeim. Ég held þær hafi reiknað allt út í huganum, eftir
þyngd þráðarins. Ekki sá ég sauðarvölur vigtaðar, en þá giskað á
þyngd þeirra eftir fyrstu vigtun. Að reikna í skeið: Alltaf
var reiknað út hvað margir þræðir voru í tönn, áður en byrjað var að draga
í hana, t.d. 2 í tönn, eftir því hvernig fólk hafði þráðinn fínann eða
grófan. Þar var aldrei neitt feil. Tvær konur unnu við að draga
í skeiðina, önnur rétti þræðina á gikkinn, hin dró hann gegnum skeiðina.
Ég vissi aldrei um annað en að allur útreikningur stæðist.


p5
Að reikna í vef:
Það var venjulega ein kona, sem reiknaði það, ef vefurinn var þetta
meiri vandi. Ég held að engin hafi sett up vef, nema sú eða sá væri
alltaf viss. Svo það komu aldrei nein mistök, þar sem ég þekkti til.
Orðið var uppistaða um uppistöðu í vef, svo ívaf, sem var spólað
og látið í skyttuna. Rakningsgrind: Rakningsgrind var
ekki til heima. Allir vefir raktir á hæla, em stungnir voru í veggi,
og aldrei var neitt feil. Balbínur: Ég sá sérstakan
balbínurokk eða balbínustól. Rokkurinn var eins í lögun og spunarokkur,
nema í hjóli, sem smíðað var og fest í afturstjaka, small alltaf í eftir
svo og svo margar umferðir, og eftir því var reiknað. Verkið var
kallað að balbína. Rakningsspaði: Ég sá aldrei rakningsspaða.
Vissi að þeir voru til þar sem rakningsgrind var á bæ.

p6
Rakningsstokkur:
Ég sá þá ekki. Þeir hafa kannske verið til á betri bæjum. Hnyklarnir
voru látnir í alllanga kassa og djúp ílát, svo þeir skyldu ekki hoppa upp
úr. Rakning á rakningsgrind: Ég get lítið sagt um þetta,
þar sem heima var ekki þessi grind, en þó rakið væri á hæla, var ef þráðurinn
var hvítur, sett rautt band til leiðbeiningar. Alltaf tekin skil
og alltaf sett merki við gangaskilin. Þó allt væri rakið á hæla.
Bandspottinn var nefndur fetaband. Fullrakinn uppistaða var
nefnd slanga. Rakið á veggjahæla: Það var kallað að
rekja á hæla. Ekki man ég að þeir nefndust neitt sérstakt, nema skilhælarnir
og munu þeir hafa verið geymdir. Annars voru alltaf valdar vel sléttar
spýtur svo bandið festist ekki við þá. Oftast var rakið í stórri
og bjartri hlöðu þegar komið var pláss, búið að gefa nokkuð úr henni.
Rakið á rúmstólpa: Vissi aldrei til að rakið væri á rúmstólpa,
enda ekki handhægt þar sem margt fólk var í baðstofum og lítil börn.

p7
Hafaldagrind: Ég
man aðeins eftir hafaldagrind, sem var til heima, svo þegar hætt var að
vefa, hefur henni verið fleygt eins og fleirru þegar nýjar kynslóðir taka
við. Hún var ekki mjög stór. Ég treysti mér ekki að teikna
hana. Ekki man ég eftir neinu áhaldi til hjálpar, aðeins hendurnar,
sem kunnu verkið. Hafaldaefni og höföld: Efni í höföld
var spunnið úr togi, samkembt grátt og hvítt. Bandið varð að vera
snuðrulaust þó nokkuð harðsnúið líkt og þráður, nema mikið grófara. Það
mun hafa verið í hespum, sem soðnar voru í vatni, og svo þegar þær voru
þurrar, voru þær undnar fast í hnykla, síðan hnýtt á hafaldagrind með hnútum,
sem við áttu. Miðhluti var hafaldaaugað. Sá aldrei stálhöföld.
Bandið sem varnaði því að höföld drægist út af hét vartág.
Vefjarkambur: Ég man vel hvernig hann var þó ég treysti mér
ekki að teikna ann. Það varð að vanda smíði hans eins og allt tilheyrandi
vefstólnum.

p8
Að láta í kamb: Oftast
var sagt að láta í kamb. Skaftið sem sett var í gangaskilið var af
sumum nefnt plógskaft og öðrum rifskaft. Allt var sama meiningin.
Þráðurinn var alltaf nefndur skilþráður. Að festa upp:
Að festa upp vef, eða setja upp vef var nokkuð sama.
Að bóma vef: Alltaf sagt að bóma, ég held til endanna hafi verið
kragar á rifinu, svo enginn hætta var að slangan lenti útaf. Það
kom aldrei fyrir. Þegar slangan var sett á rifinn, sem hún var undin
upp á varð að halda jafnt á móti, því ein snéri rif og annar gaf eftir
jafnt og vel af slöngunni. Tveir unnu alltaf við að koma slöngunni
á rifinn, oftast karlmaður, sem snéri bómunni, kona sá um að enginn slaki
yrði á.

Að draga í höföld:
Það var gróp, sem hafaldaskiptin voru fest í. Alltaf unnu tveir við
að draga í höföldin, einn setti, annar sat framan við höföldin og dró í
gegn. Það var viss tala af þráðum sem hnýtt var á, ekki losað nema
eitt knippi í einu, og aftur hnýtt að. Þegar búið var gegnum augun
á höföldunum.

p9
Að draga í skeið:
Áhaldið sem notað var til að draga í skeiðina hét gikkur. Skeiðin
var sett í sömu hæð og höföldin áður. Kona stóð aftan við skeiðina,
önnur sat framan við og rétti gikkinn inn á milli tanna skeiðarinnar, og
hin lét þráðinn upp á gikkinn, sem var dreginn í gegn. Að
hnýta fram: Ekki man ég eftir neinu nafni á því, bara talaðum að
hnýta fram, og svo fest við fremri bómuna, sem vaðmálið kom svo á þegar
byrjað var að vefa. Alltaf sagt að hnýta fram. Uppbinding:
Ekki veit ég um nöfn á vefstólssnærum, veit bara að skaftið var bundið
við fremri bómu. Að draga fyrir: Þegar skyttunni var
fyrst skotið í skilið, var það kallað að draga fyrir. Þá var byrjað
að vefa. Gefið var upp í með vinstri hendi og gefið í einum boga,
misjafnlega langa í hvern vef, svo var slegið að með skeiðarhaldi. Spanstokkur
var festur eftir reglu vefjarkonunnar, svo aldrei var látið vefast inn
alltaf sama breidd. Aldrei skilgallar, en ef þráður var linspunninn þá
var hnýtt saman aftur með þannig hnút að hann gengi greiðlega gegnum skeiðina.
Engin hjátrú. Vinding upp á bómu nefndist áfæra.

p10
Að fella vef: Það
var alltaf nefnt að fella vefinn. Þræðir voru stundum nefndir afvikur
eða hrafnabuxur. Veit ekki hvað við þá var gert. Þóf: Bárður
minn á jökli - leggstu nú á þófið mitt - ég skal gefa þér lóna - innan
í skóna - naglabrot í bátinn þinn - ef þú leggst á þófið mitt.
Ekki voru allir þófarar eins. Sumir þóttu mjög góðir og þæfðu vel
og voru þeir fengnir á bæi til að þæfa. Voðin var þvegin úr snarp
heitu vatni, sem hitað var í stórum potti úti í hlóðareldhúsi, síðan var
hún lögð saman í miðju og endar látnir mætast, svo var tekin stór og sterk
stöng og smeygt í endann, sem lokaður var. Stöngin skorðuð við dyrastafi
bæjardyra, í hinn endann var lítil stöng eða stafur. Karlmaður stóð
við þann endann og snéri stafnum í sífellu. Nú varð snúðurinn að
vera jafn. Haldið áfram þar til ekkert vatn lak úr vaðmálinu, og gekk sá
er á snéri og spyrnti við fótum, svo ekki kæmi snuðra á voðina. Húsmóðirin
eða vefjarkonar voru viðstaddar og sögðu körlunum til, síðan var vaðmálið
látið á þann stað sem átti að þæfa helst í baðstofuhorni og settar kistur
og koffort fyrir svo vaðmálið var alltaf á sama stað, og kólnaði ekki.
Þófari var snöggklæddur í skyrtu og nærbuxum, var þó oftast of heitt.


p11
Aldrei máttu koma
brigður á voðina. Var hún af og til hrist upp af tveimur konum, sem
hristu það með samtaka átaki í báða jaðra og létu smella hátt í, hrökk
þá lóin af því, svo var haldið áfram þófinu, sem konur dæmdu um hvenær
var búið. Þá var voðin undin upp á breiða rúmfjöl. Það varð líka
að vanda, svo endar væru jafnir, síðan var fjölin sett undir þunga kistu
til að pressa vaðmálið sem best. Eftir hæfilegan tíma var vaðmálið
tekið af fjölinni, og var þá slétt og fallegt. Þegar átti að sauma
fín föt, jafnvel peysuföt, var vaðmálið sent til lóskurðar og litunar.
Aukabitar handa þófara voru alltaf heima, sykraðar pönnukökur og
gott kaffi. Einn góðan þófara þekkti ég, sem var lánaður til að þæfa
á bæ sem var víst nóg til af hangikjöti. Þegar heimafólk fór fram
í eldhús að borða var þófaranum færður matur þangað sem hann var að þæfa.
Að lokinni máltíð kom einhver heimamanna upp á pallinn, og sér að
þófarinn er búinn að borða, og segir við hann: "Já, þú ert búinn að
borða". Þá svarar þófarinn: "Það er ekki lengi gert að
borða kartöflur og graut". Var öðru vanur frá sínu heimili.
Vefnaðarsýnishorn: Hef ekki getað útvegað það, því ég er í
Hveragerði á hælinu. Vefkonan semur - vaðmálin ný - með sköftum
þremur - og skilfjöl í - en þegar krókur kemur - kvöl er að því.
Vefarinn hefur vanda þann - sem veiga-skorðin mörg kann - að festa upp
í hleinar hann - hver ein ekki nemur - þegar hann krókur kemur - athuga
hlýtur um það mann - svo allt sé skorðum í - annars kemur krókur - og kvöl
er að því. Vaðmálsdans: Svo vefum við mjúka - og dýrindis
dúka - Vefum mjúka - dýra dúka - skjótum skyttu í skil - vefum mjúka dýra
dúka - skjótum skyttu í skil.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Tóvinna
Keyword:
Ull