Tóvinna

In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Karl (1908)
Object-related numbers
Museumnumber a: 1472 "Museumnumber b": 1966-1
Questions / Answers
Allar spurningar og svör
Nr. 1472

p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Misjafnt var hvenær vefnaður hófst haust hvert.
Oft var ekki byrjað fyrr en liðið var á nóvember, stundum þó fyrr,
t.d. ef efni í voð var til frá fyrra vetri. Gott þótti, ef hægt var
að fella voð fyrir jól. Ekki þótti gott að eiga voð í vefstól langt fram
yfir sumarmál. Væri voð felld fyrir jól, var önnur aldrei sett til
fyrr en eftir nýjár.

Mjög misjafnt var
á hverju byrjað var á haustin. Fór það að sjálfsögðu eftir því, á
hverju lá mest. Væri til efni í voð að hausti, var að sjálfsögðu
oft byrjað á henni. Að öðru jöfnu var þó helst byrjað á vaðmáli og
öðru efni í hversdags utanyfirföt. Fínni voðir voru fremur látnar
bíða þar til á útmánuðum. Lá oft minna á þeim og einnig æskilegt
að fá dagsbirtu við þær. Leiðinlegt þótti, að voð stæði uppi
um jólin, nema þá helst, ef sérstakt herbergi var fyrir vefstól, en það
var ekki mjög víða. Eingöngu óf fulltíða fólk, börn og unglingar
ekki nema þá stund og stund til að læra. Sumir sögðu að karlmenn
hefðu ekki ofið í gamla vefstaðnum og ekki fyrr en vefstóllinn kom, þar
sem mátti sitja.

p2
Venjulega var það
aðeins einn heimilismaður, sem óf hverju sinni. Sjaldgæft var að einn væri
að grípa í vef hjá öðrum. Sumir gerðu ekkert annað en að
vefa að vetrinum. Stundum var fenginn maður á heimili til að vefa,
og gerði sá ekki annað. Mörg heimili voru þó ekki betur mennt en
svo, að vefarinn varð að láta sér nægja að annast vefinn milli mála eða
í ígripum. Mjög var misjafnt hversu mikið góður vefari óf
á dag. Fór það mjög eftir, hve fínt efni var í voðinni. Vaðmál
var fremur fljótofið, og ófu vanir vefarar af því 12-15 álnir á dag. Einna
best gekk fram klæðavefnaður. Salúnsvefnaður var að sjálfsögðu seinlegur,
sömuleiðis sængurver, sem voru ofin úr vefjargarni. Einnig var mjög
seinlegt að vefa veftarvormeldúk. Vefturinn hlóðst í hann og gekk
seint fram. Efni í milliskyrtur var einnig seinofið eða í svuntur,
millipils og annað slíkt. Börn byrjuðu stundum mjög ung að taka í vefstól,
jafnvel yngri en 10 ára. Ég man það um sjálfan mig, að þegar ég byrjaði,
var ég ekki stærri en svo, að ég gat ekki setið í setubekknum, en hallaði
bakinu aftur að honum. Náði ég því varla að skjóta skyttunni eða slá, en
handtökin lærði ég. Unglingar hafa varla

p3
ofið neitt að ráði,
fyrr en þeir voru komnir nokkuð yfir fermingu. Sumir höfðu
það að atvinnu að vefa. Þannig var t.d. um hinn fræga vefara Gunnar
Hinriksson, sem var löngum hér eystra. Hann var fyrir mitt minni,
en ég man eftir einum manni öðrum, sem gerði ekki annað að vetrinum en
vefa. Hann tók einkum vefnað heim til sín, en fór einnig á aðra bæi
að vefa. Ekki þekki ég til að sérstakt verðlag hafi verið
í gildi um vefnað né neinn ákveðinn texti. Vefstóll: Bæði
var notað vefstaður og vefstóll. Hygg ég að einkum hafi fullorðið
fólk notað vefstaður, en notkun orðsins vefstóll farið vaxandi. Ekki þekki
ég neinar sagnir um gamla kljásteinavefstaðinn, nema heyrt hef ég að talið
hafi verið fullkomið dagsverk að vefa í honum eina alin. Tveir menn hafi
þó getað hjálpast að við vefnaðinn, og hafi þá mátt vefa hálfa aðra alin
á dag. Ekki þekki ég hvenær hann lagðist niður, en hygg að það sé
mjög langt. Enga hluta þekki ég úr honum nema kljásteina.
Um vefstólasmíði þekki ég ekkert sérstakt.

p4
Ég þekkti ekki margar
gerðir vefstóla. Helsti munur var, hvar slöngurif var komið fyrir.
Stundum var hann niðri, þ.e. báðir rifir voru í sömu hæð. En
í þeim vefstól, sem til var á mínu heimili, var hann að ofan. Í kverkinni,
þar sem kjálkinn kom í afturokann, var þykk og sterk spýta sett til styrktar,
svipuð rúmbrík, og þannig var auðvitað báðum megin. Gegnum þessar
spýtur var gat, og þar var rifurinn, sbr. merkingu á vefstólsteikningunni.
Tvíbreiða vefstóla þekkti ég ekki fyrr en seint. Einn
var smíðaður fyrir heimili foreldra minna, en það var ekki fyrr en 1940.
Hraðskyttuvefstól þekkti ég ekki. Mörg heimili áttu vefstól,
þó ekki nærri öll. Menn fengu vefstól lánaðan eða komu vefnaði fyrir
hjá nágrönnum. Ég þekki ekkert um gangverð vefstóla. þó
minnir mig að tvíbreiði vefstóllinn, em smíðaður var fyrir heimili foreldra
minna 1940, hafi kostað 600 krónur, mjög vandaður að allri gerð.
Vefstóll sá er ég vandist, var um ýmislegt frábrugðinn vefstól á
teikningu A. Frávik voru þessi:

p5
Uppistöður þær sem
sýndar eru á teikningunni aftan við slagborðið, og ná upp í kjálkann (merkt
a) voru engar, en þess í stað voru, sem fyrr segir, sterkar bríkur, þar
sem kjálkinn kemur í afturokann, en göt á, og þar í var efri rifurinn.
Sláin nr. 14 var ekki, en afturbóman, 17 náði í gegnum okana og var
fest með fleygum eins og 13, og hélt hún hliðarstykkjunum saman að aftanverðu.
Þversláin að framan, sem voðin liggur á, hét frambóma. Var hún fest
þannig, að efri endi framokanna var stallaður inn í miðju (sbr. teikningu
A), en endar bómunnar stallaðir á móti, en gat í gegnum hvort tveggja.
Gegnum það gekk skrúfnagli og hélt vefstólnum saman að framanverðu. Róin
var að aftanverðu, en í þeim enda naglanna, sem fram vissi var hringur.
Í þessum hringum voru hankar úr íslensku nautsleðri. Var lykkjunni
brugðið niður fyrir kjálkana, sem ég hef merkt xx. Á þessum kjálkum
lá setubekkurinn. Út frá hvorum enda setubekksins miðjum gekk spaði,
um þriggja fingra breiður, en skora gerð fyrir þá í hvorn kjálka. Setubekkurinn
var klæddur gæruskinni. Uppbindingin var allt öðruvísi, en
sýnt er á teikningu A. Ofan á kjálkunun, nálægt þar sem merkt er
11, lá tré þvert yfir.

p6
Það var hafaldatréð.
Það lá þar laust, en lítill klampi var neðan á því hvorum megin.
Námu þeir út við kjálkana, og færðist hafaldatréð þannig ekki úr
stað. Tvær öflugar trétrissur héngu í sterkum snærislykkjum, hvor
um sig rétt fyrir innan hvorn kjálka. Á trissuhjólinu lá snæri, hvor
endi um spannar langur frá hjólinu, og var lítil trissa bundin í hvorn
enda, en snæri lék á hjólum þeirra og lykkja á endum. Þannig hanga
vorum megin tvær litlar trissur í einni stórri, en samtals fjórar snærislykkjur
hvorum megin niður úr litlu trissunum. Í þessum lykkjum voru hafaldasköftin,
en þau voru fjögur. Þverskammelin voru einnig fjögur, fest innan
á vefstólinn vinstra megin. Í þeim voru kengir úr járni og einnig
neðan í sköftunum, en tengt með grannri járnfesti. Skammelin voru
auðvitað líka fjögur, fest á skammelatréð (nr 19 á teikningu a). Voru
engir járnkengir í þeim og þau tengd mað grannri járnfesti. Þess
má að vísu geta, að þessar festar voru orðnar margar ónýtar, og voru notuð
bönd í staðinn. Engin skammel voru fest í fótatréð (nr 25 á teikningu).
Svona var alltaf bundið upp og aldrei breytt, þótt breyta ætti um
gerð vefnaðar. Gerð vefnaðar var einungis ákveðin með ídrættinum


p7
og hvernig stigið
var. Slagborðið var ekki fest að neðan, svo sem sýnt er á teikningunni.
Þrjár skorur voru gerðar ofan í kjálkana dálítið fyrir hafaldatréð.
Þar hékk slagborðið. Þegar búið var að færa, var það auðvitað
haft í fremstu skorunni, en fært aftar eftir því sem vefnaðurinn gekk fram,
en fært að nýju í fremstu skoru, þegar ný færa byrjaði. Þess
má geta, að hausinn á rifnum var mjög rammbyggilegur, enda reyndi mikið
á hann. Kross var á endanum, og var haldið um þær álmur þegar undið
var á rifinn. Innan við krosstréð var jarngjörð utan um hausinn,
en út úr gjörðinni stóðu gildir naglaendar með litlu millibili, en á hliðfjöl
vefstólsins var stilli úr járni og nam það við einn naglann og hélt þannig
rifnum föstum, þegar hert hafði verið á. Skeið: Skeið
var einnig nefnd ritti. Voru bæði nöfnin notuð, þó ekki jöfnum höndum.
T.d. var venjulega sagt að draga í skeið (ekki ritti), en aftur á
móti talað um svo og svo margra tanna ritti. Aldrei þekkti ég að
skeiðar væru heimasmíðaðar. Þær voru

p8
ætíð aðkeyptar úr
stáli. Fínleiki tanna var miðaður við hvað margar væru á kvarteli.
60 tanna ritti var það grófasta sem notað var, helst á tvöfaldan
þráð. Ekki man ég eftir fínna ritti en 120 tanna, og var það ekki
haft nema uppistaða væri vefjargarn. Val á skeið fór að sjálfsögðu
mest eftir því, hvernig uppistaðan var. Áferð var gróf, væri uppistaða
fín, en ritti gróft. Væri ritti fínt, en uppistaða gróf, t.d. tvinnaður
þráður, vildi rittið skafa ló úr uppistöðu. Við það veiktust þræðirnir
og vildu slitna. Fyrir kom, að slík ló vildi safnast á vefinn. Varð
þá að tína hana burt, annars gat jafnvel svo farið að lóarhólkar mynduðust
utan um þræðina, og gátu þeir átt þátt í því, að þræðirnir slitnuðu. Skeiðar
voru ætíð 5 kvartela langar. Skyttur: Skyttur voru
venjulega úr eik. Voru þær eir- eða látúnsslegnar á endum, einnig
eir- eða látúnsþynnur neðan á þeim um miðju, nokkru lengri en spólan, svo
að þær rynnu betur. Að sjálfsögðu var aflangt gat á miðju, þar sem
spólan var, en á stöku skyttum var þó botn þar í. Spóluteinninn hafði
ekkert nafn nema

p9
spóluteinn. Hann
var venjulega úr eir eða látuni. Tréspólur þekkti ég aldrei. Venjulega
voru spóluhólkar úr þunnri járnplötu. Eftir að aluminíumplötur fengust,
þóttu þær tilvaldar í spóluhólka. Stundum var spólað á spil. Ekki
þekkti ég að fiskroð væri notað. Spólurokkur: Ekki
var smíðaður sérstakur spólurokkur, heldur var spólað á spunarokk. Var
þá smíðaður sérstakur spólutittur. Var hann úr tré. Gekk annar endi
hans inn í rokkpípuna, en spóluhólknum smeygt upp á hinn. Var síðan rokkurinn
stiginn, og var bandinu stýrt á spóluna með annarri hendi, en í hinni hendinni
var höfð vala og stutt með henni framan við spóluendann, svo að spólutitturinn
dytti ekki fram úr pípunni. Vefturinn átti helst ekki að vera mjög
laus á spólunni. Venja var að spóla þannig að byrja fyrst að spóla
hnúða nálægt spóluendum og síðan á miðjuna, annars vildi hlaupa af spólunni,
en það mátti ekki koma fyrir.

p10
Spanstokkur: Áhaldið
sem haft var til að halda út jöðrum á voð, nefndist ætíð spanstokkur. Sjá
teikningu, sem fylgir með. Að leggja upp: Að ákveða
lengd voðar miðað við þráð var kallað að leggja upp. Venjulegasta
aðferðin var sú, að vigta þráðinn og ákveða síðan lengd voðar með tilliti
til þess, hve smár hann var. Völur voru að sjálfsögðu reiknaðar frá.
Var giskað á þyngd þreirra, en ekki man ég eftir, að nein ákveðin
tala valna væri í mörk. Að sjálfsögðu var mjög misjafnt, hversu mikið
mátti leggja upp úr mörk þráðar. Fór það bæði eftir stærð þráðar
og varpi voðar. Væri venjulegt vaðmál og uppistaða einfaldur þráður,
var oft miðað við mörk í alin. þó var talað um tveggja álna þráð,
væri varp ekki mikið og þráður fínn. Oft var hafður tvinnaður þráður
í utanyfirföt, er karlmenn gengu í að vetri til, þá dugði ekki mörk í alin,
og sama var að segja væri voð mjög vörpuð, t.d. þráðarvormeldúkur.

p11
Venjulega var höfð
sama aðferð við að leggja upp úr hespum sem hnyklum, þ.e. að vigta þráðinn.
Þó man ég einu sinni eftir hesputré sem mældi þráðinn. Ég hygg
þó, að slík hesputré hafi verið sjaldgæf sunnan lands, var þetta hið eina
er ég þekkti, var það norðlenskt að uppruna. Kona úr Ljósavatnshreppi var
eitt sinn á heimili foreldra minna, einkum til að spinna. Hún var
mjög fíntætt eins og hún sagði, að sumir norðlendingar nefndu að sem sunnlendingar
kalla að vera vel vinnandi, þ.e. hög á ullarvinnu. Hún þekkti slík
hesputré úr sinni heimbyggð og útvegaði foreldrum mínum eitt slíkt. Hesputréð
stóð á þremur fótum, sem báru uppi blökk, svipað og rokkur væri. Á
blökkinni stóð uppstandari, sem bar hesputréð. Er hesputrénu var
snúið, hreyfði það áfram tannhjól um eina tönn við hvern snúning. Í
tannhjólinu var 51 tönn, og er hjólið hafði snúist einn hring, hreyfði
það við litlu stilli. Var þá komin ein skreppa, þ.e. 51 umferð í
hverri skreppu, og var hver skreppa merkt með því að bregða bandi um. Hesputréð
var 2 álnir ummáls. Mátti þá vita með vissu, hversu langt var í hverri
hespu. Þurfti ekki annað en telja skreppur og margfalda með 51x2,
kom þá álnafjöldinn út. Þessi hesputré

p12
voru kölluð skrepputré.
En eins og fyrr var fram tekið voru slík hesputré ekki tíðkanleg,
var þetta hið eina sem ég vissi af í mínu byggðarlagi. Að
reikna í skeið: Venjulega var miðað við að draga í skeiðina alla,
það var út úr ritti, eins og það var kallað. Á gömlum skeiðum voru
2-3 ystu tennurnar þó stundum beyglaðar og voru þá, ef til vill hafðar
auðar. Þegar lokið var að rekja, var að sjálfsögðu þekkt hvað margt var
á. Síðan var deilt með tannafjölda skeiðar í þráðafjölda voðar, og
kom þá fram hvað margt skyldi vera í tönn. Að sjálfsögðu gekk ekki
alltaf upp í þeirri deilingu, og var það þá jafnað með því að hafa ekki
janmargt í öllum tönnum, t.d. 2 í annarri hverri tönn og 3 í hinni. Til
frekari jöfnunar mátti t.d. sleppa nokkrum ystu tönnunum, ef með þurfti.
Komið gat fyrir, að ekki yrði jafnmikið á voðinni allri og gert hafði
verið ráð fyrir, ef illa raktist úr eins og það var kallað. Gat það
orðið til þess, að þræðir yrði að vera gisnari en gert hafði

p13
verið ráð fyrir í
upphafi, voðin var varpminni en ráð hafði verið fyrir gert. Þó var
reynt að láta það ekki breytast mikið frá því sem ætlað hafði verið, og
þá stundum tekið til þess ráðs að hafa voðina heldur mjórri.
Að reikna í vef: Það var kallað að reikna í vef að ákveða efnismagn
í uppistöðu og fyrirvaf. Það var gert með vigtum, svo sem fyrr segir,
einkum þó uppistaðan. Auðveldara var að eiga við ívafið, þar mátti
spinna viðbót, er leið á vefinn, ef þörf gerðist. Varp var
haft um það hversu þéttir þræðir voru í voð. Væri þeir þéttir, var
kallað að voðin væri vörpuð eða varpmikil eða að varpið væri mikið. Væri
þræðir gisnir, hlóðst veftur meira í vefina. Þá var voðin veftuð.
Ívafið var venjulega kallað veftur, stundum fyrirvaf, sjaldnast ívaf. Helst
skiptist á um nöfn á ívafinu í vefnum sjálfum. En væri talað um það
áður en það kom í vefinn, var ætíð notað veftur. T.d. var alltaf
talað um að spinna veft, aldrei spinna fyrirvaf eða ívaf.

p14
Rakningsgrind hét
það sem uppistaðan var rakin á. Talað heyrði ég um rakningsgrind sem lá
á hliðinni, borin uppi af stólpum, sem til þess voru gerðir, en aldrei
sá ég þann útbúnað. Þær rakningsgrindur sem ég sá, stóðu upp á endann
er rakið var, gerðar af tré, tveir ferhyrningar sem mynduðu kross, en mátti
leggja saman. Trén sem skilhælarnir voru festir á, nefndust krísholt.
Voru tveir hælar í hvoru krísholti, ekki á miðju, heldur úr þeim
enda sem að enda uppistöðu vissi. Ætíð var þó bætt þriðja hæl í efra
krísholt hvert skifti er rakið var, svo að hælar voru þar raunverulega
þrír. Rakningsgrind var fest þannig upp: Þverslá var
sett upp milli stoða í baðstofu í um það bil seilingarhæð. Á miðju
hennar var lykkja úr leðri. Út úr miðju hvors enda rakningsgrindar gekk
stuttur tréás, hvor tæplega fets langur út úr grind. Gekk annar gegnum
leðurlykkjuna. Á gólfið var venjulega hvolft tóbaksfjöl, en á hana
var lögð hella. Neðri ásinn, sem hafði nagla í enda, lék á hellunni.
Rakningsgrind var til á flestum bæjum sem áttu vefstóla.
Væri rakningsgrind ekki til, fóru menn á aðra bæi til að fá að rekja.


p15
Balbínur: Balbínur
voru snældur, sem garn var spólað á, og var síðan rakið af þeim. Þær
voru ætíð 10 saman. Leggurinn var fyllilega þverhandar langur, báðir
snúðar jafnstórir og talsvert stærri en aftari snúður á rokksnældu. Þegar
rakið var af balbínum, var notaður rakningsstokkur. Það var langur
og grunnur kassi, hólfaður sundur, 5 hólfa langur, en 2 hólfa breiður,
en göt á milligerðum. Mátti stinga þar í járnteini, og runnu spólurnar
á honum. Að spóla garn á balbínur nefndist að balbína. Var
til þess notaður venjulegur spunarokkur, hnokkatréð tekið af teininum,
en balbínan sett í staðinn og rokkurinn síðan stiginn eins og við venjulegan
spuna. Aldrei var balbínað annað en vefjargarn. Þráður
var ætíð undinn í hnykla og þeir látnir velta í hólfunum 10 í rakningsstokknum.
Áður en balbínur komu, varð að vinda vefjargarnið í hnykla. Það
þótti seinlegt verk. Rakningsspaði: Sumir notuðu rakningsspaða,
en ég sá það aldrei gert. Hann var með handfangi, en göt á, jafnmörg og
þræðir í feta, þ.e. venjulega

p16
10. Hann mun
hafa verið um 25-30 cm. langur. Var hann hafður til að þræðir flæktust
ekki saman. Rakningsstokkur. Rakningsstokk hef ég áður
lýst. Var hann venjulega notaður þegar rakið var. Að öðrum
kosti varð að nota fötur og dalla til að láta hnykla velta í. Auðvitað
mátti ekki nema einn hnykill vera í hverju íláti. Rakning
á rakningsgrind: Áður hef ég lýst hvernig rakningsgrind var sett
upp. Einn vann að því að rekja. Börnum þótti rakning merkisviðburður.
Ef börn voru á heimilinu, voru þau jafnan nærstödd er rakið var og
fús að rétt hjálparhönd. Lengd voðar var mæld með því að marka fyrst
alin á borðsbrún, og síðan mælt það við. Þumalfingursbreidd lögð
fram yfir hverja alin. Síðan var merkt með því að binda í þráðinn
bandi af öðrum lit. Væri rakningsspaði notaður, var hafður aðeins
einn þráður

p17
í hverju gati og
aldrei var nema einn þráður i hverju hafaldi. Gott þótti að festa krók
upp í baðstofusperru og láta þræðina fyrst fara þangað til að allir yrðu
jafnstríðir og engar snurður. Ekki var þetta þó nærri alltaf gert.
Þegar rakning hófst, var byrjað á því að binda efra krísholt
fast, síðan bundinn einn þverhnútur á alla þræði fetans. Staðið var
þannig, að rakningsstokkur var til vinstri, en rakningsgrind til hægri.
Var því haldið vinstri hendi um þræðina, en grindinni ýtt áfram með
hinni hægri. Þannig var rakið utan á grindina niður á við hring eftir hring,
uns komið var að markinu í þræðinum. Þá var neðra krísholt sett í
og bundið fast. Brugðið var um hælana þannig, að fyrst var brugðið fyrir
neðan þann sem fyrr var komið að og síðan út fyrir hinn. Þ.e. fyrst
fyrir ofan hann og síðan niður fyrir, síðan fyrir ofan fyrri hælinn. Á
sama hátt var brugðið um hælana á efra krísholti. Band var haft á
neðra krísholti og brugðið milli eins og skreppu, er hundrað var komið.
Var venjulega notað sokkaband. Rakið var þannig, að fetinn
var látinn leggjast fyrir neðan það sem komið var, en ýtt upp að með þeirri
hendi sem var á grindinni (hægri hendi). Bandið

p18
sem bundið var til
að telja hundruðin, nefndist hundraðsband. Að lokum var bundið í
skilið að neðan og einnig ofan og skorið sundur utan á ysta hæl efra krísholts.
Fullrakin uppistaða nefndist slanga. Ekki nefndist
það neinu nafni að rekja slönguna niður, aðeins sagt að taka af grindinni.
Rakið var af grindinni ofan frá og niður eftir. Gengið var
þannig frá slöngunni, að fyrst var búin til lykkja, síðan brugðið hendi
gengum hana, tekið um slönguna og hún dregin tvöföld í gegn, og myndaðist
þá önnur lykkja, síðan dregið gegnum hana og þannig koll af kolli.
Ef voð átti að vera langröndótt (teinótt), var reynt að rekja teinana
með. Þó var þess varla kostur, ef voð átti að vera stórbekkjótt.
Þá varð að slíta frá og rekja hinn litinn sérstaklega. En ef
voru tiltölulega mjóir teinar, var þeim bætt við og voru þá fleirri þræðir
í þeim fetanum. Tveir fetar nefndust gangur. Oft var lagt
fram yfir í hverri voð um hálf alin, nokkuð þó misjafnt eftir því hve löng
voðin var. Rakið á veggjarhæla: Þá voru reknir hælar
í veggjarholur úti. Ekki voru hælarnir

p19
hafðir í beinni línu,
heldur alltaf annar ofar og annar neðar. Síðan varð að hlaupa með
hnykilinn, þ.e. það var rakið á einum, og varð því rakningsmaður að hlaupa
næstum sömu vegalengd og nam lengd alls þráðar í voðinni. Þetta varið
niður lagt löngu fyrir mína tíð, og ég hygg að þetta hafi naumast verið
gert í minni foreldra minna, en móðir mín þekkti, er hún var ung, gamlan
mann, sem hafði gert þetta. Sagði hann að rakið hefði verið úti og
kvaðst aldrei hafa rakið í svo köldu veðri, að ekki hefði hann verið sveittur
við rakninguna. Heyrt hef ég talað um, að rakið hafi verið
á rúmstólpa, en þekki ekki til, að það hafi verið gert. Hafaldagrind:
Höföld voru hnýtt með tvennum hætti. Stundum var hvert hafald
hnýtt út af fyrir sig. Slík höföld sá ég í vefstól, en aldrei sá
ég þau hnýtt, en ég held að þau hafi verið hnýtt á þessa leið: Notuð
var sérstök fjöl, hafaldafjöl sbr. teikningu. Var lengd hennar eins
og hálf hafaldslengd, dálítill naddur út úr hlið hennar rétt við annan
endann. Var hafaldagarninu brugðið á þann

p20
endann sem fjær var
naddinum, síðan hnýtt um naddin, þ.e. báðum megin við hann, og þannig myndað
augað. Síðan var farið sömu leið til baka með garnið og hnýtt saman
á þeim enda fjalarinnar, em byrjað var á, þ.e. þeim sem fjær var naddinum,
og síðan skorið frá. Var þá komið eitt hafald. Því var smeygt
fram af og síðan hnýtt hið næsta. Þannig var hvert hafald laust frá
öðru. Í vefstól voru allir hnútar á því skafti sem upp snéri. Hnúturinn
sem notaður var, var rifhnútur eða rembihnútur. Ég vandist
ekki svona hafaldahnýtingu, heldur að notuð væri hafaldagrind, sbr. teikningu.
Það var trégrind, að breidd eins og hafaldslengd skyldi vera, en
sívalur tréás eftir henni endilangri um miðju. Þá var ætíð notuð netnál.
Var hafaldagarnið rakið í hana. Síðan var endi garnsins festur
um aðra hliðarálmuna t.d. a., út við enda. Síðan var garninu brugðið
um hina álmuna b, og allt að miðspýtunni c. Síðan var settur hnútur
báðum megin við miðspýtuna, fyrst b megin, síðan c megin, þ.e. settur hesta
hnútur um þann teyming, sem fyrst hafði verið rakinn á leið frá a til b.
Með þessum hnútum, hvorum sínu megin við sívölu spýtuna, var hafaldsaguað
myndað. Síðan var netnálinni brugðið fyrir álmuna og síðan næsta
hafald hnýtt á sömu lund. Með þessum hætti voru

p21
öll höföld samföst.
Taka mátti þverspýtuna d úr og ná þannig höföldunum fram af.
Hafaldaþráður var unninn úr togi. Stundum var honum ekkert
gert nema vinda hann fast í hnykil. Stundum var hann undinn gegnum
ljós.

Stálhöföld þekkti
ég aldrei, en grannt netagarn var oft haft í höföld, er það fór að fást.
Það var sterkt, en hnútar harðir og óþjálir.

Ekkert nafn þekkti
ég á bandi því, sem haft var neðan á neðra skafti til að höföld færi ekki
út af. Þegar vefnaði var lokið vor hvert, var bundið um sköftin
efri og neðri og allt saman hengt upp á einhverjum góðum stað, þar sem
öruggt var, að ekki væri saggi, t.d. upp á loft. Þá voru höföldin
tilbúin á sínum sköftum næsta haust. Vefjarkambur: Kamburinn
var úr tré með tré tönnum að gildleika svipað og venjulegur blýantur, en
bil á milli þeirra rúmlega fingursbreidd. Lengdin var að sjálfsögðu miðuð
við lengd skeiðar, þ.e. 5 kvartel.

p22
Á kambinum var lok
og gróp eftir því endilöngu, sem tennurnar féllu í. Upp úr endum
kambsins, skammt fyrir utan tennur, gengu flatir tréfleinar og upp í gegnum
göt sem voru á lokinu, og mátti loka þar með fleygum, em reknir voru gegnum
fleinana. Þar að auki var bundið yfir kambinn áður en farið var að
bóma. Að láta í kamb: Verkið var kallað að láta í kambinn.
Það var unnið þannig, að kamburinn var opnaður og lagður þannig,
að tennur snéru upp, en slangan lögð yfir kambinn og reiknað út, hvað mikið
þyrfti að vera í hverri tönn. Aldrei var feta skift milli tveggja
tanna. Ekki var alltaf hægt að hafa jafnmikið í öllum tönnum, en
aldrei munaði það svo miklu að kæmi að sök. Skaftið sem sett var
í skilið (venjulega járnteinn), var ekki nefnt neinu nafni. Það féll
ofan í rauf sem var eftir rifnum endilöngum. Að festa upp:
Að setja til var það kallað að koma uppistöðu í vefstól og undirbúa
vefnaðinn sjálfann.

p23
Að bóma vef: Að
vinda slöngu upp á rif nefndist að bóma. Skaftið var sett ofan í
rauf, sem var á rifnum. Kragarnir voru settir á rifinn, og gengu
þeir upp á enda skaftsins. Kragarnir voru úr tré, en hólkur úr sléttu
járni utan um rifinn, um 10 cm. langur, og vafðist uppistaðan ofan á hann.
Til að bóma þurfti amk. 3 menn. Einn vatt upp á amk.
einn hélt í slönguna. Lá hún niður fyrir afturbómuna, síðan undir
vefstólinn og fram fyrir hann. Sá sem hélt í, sat þá á gólfinu flötum
beinum fyrir framan vefstólinn og spyrnti í fótatréð. Sá þriðji leit
eftir, að rétt yndist upp á, þræðir flæktust ekki í kambinum og verkið
væri yfirleitt rétt unnið. Þetta gerði venjulega vefarinn sjálfur.
Talað heyrði ég um, að sumir hefði ekki kraga, en léti sköft utan
á rifinn með nokkru millibili, en aldrei sá ég það gert. Sumir létu
uppistöðuna ganga að sér smátt og smátt. Það var kallað að hálsa.
Skilskaft var bundið við afturbómuna. Þegar búið var
að bóma, var slönguendinn látinn lafa niður, en skift í nokkra lokka, sem
snéru þá upp á sig hver um sig.

p24
Að draga í höföld:
Verkið var kallað að draga í höföld. Voru þá hafaldasköftin
bundin saman að neðan, þannig að snærið var krosslagt milli hverra skafta,
og lágu þau þess vegna ekki alveg fast saman. Venjulega unnu tveir
að því, annar rétti, en hinn dró í. Þó kom fyrir, ef mann vantaði,
að aðeins einn maður vann verkið. Alltaf var byrjað hægra megin í
vefstólnum (miðað við að sitja í setubekk). Var þá venja að telja
25 höföld á fremsta skafti, en taka ótalið af hinum og halda öllu í greip
vinstri handar. Þá var hægt að fylgjast með, hvenær 100 var komið.
Sumir notuðu krækju og stungu henni gegnum auga hafaldsins, en aðrir
brugðu með fingrunum. Ef enginn rétti, varð ekki notuð krækja. Ég
man, að ég dró eitt sinn dálítið í einn, af því að mann vantaði til að
rétta. Vann ég verkið þannig, að auk þess sem ég hélt höföldunum
í vinstri hendi, hélt ég fetanum milli löngutangar og baugfingurs. Gat
ég það notað þumalfingur og vísifingur beggja handa til að bregða þræðinum
gegnum hafaldsaugað. En þetta var auðvitað ekki fljótlegt. Ef
salún var eða bekki, var hver bekkur hnýttur fyrir sig, annars 100. Hnýttur
var einn þverhnútur (lykkjuhnútur).

p25
Að draga í skeið:
Notuð var krækja. Oft var notuð eir- eða járnplata sem krókur
hafði verið gerður á. Stundum var þó hafður járnkrókur úr mjóum vír
og skeftur. Tveir unnu að því að draga í skeið. Vanan mann þurti
til að rétta, en óvanur maður gat dregið í. Slagborðið var á bundið
við frambómuna, en sá sem dró í, sat í setubekknum. Helsti vandinn
var að hlaupa ekki yfir tönn, en á því var varla hætt, nema skeið væri
mjög smátennt. Þegar dálítið var komið, var því skift í tvennt og
hnýttur lykkjuhnútur. Að hnýta fram: Járnteinn var
notaður, framhnýtingarteinn. Verkið kallaðist að hnýta fram. Fjöldi
þráða í hnút var ekki fast ákveðinn, en betra þótti að hafa hnútana ekki
mjög stóra. Eitt hundrað var því í þó nokkra hnúta. Þremur
sterkum snærum var vafið um rifinn og þau bundin í framhnýtingarteininn.
Var ekki hægt að taka þau burt fyrr en svo mikið hafði verið ofið,
að komið var meira en eitt vaf á rifinn. Gróp var eftir endilöngum
rifnum, og skyldi teinninn liggja í því.

p26
Mig minnir að stundum
hafi það verið gert, er nokkur vöf af voðinni voru kominn á rifinn, að
framhnýtingarteinninn var tekinn úr. Hnútarnir klipptir burt og síðan
undið upp á rifinn aftur. Var þá endinn á voðinni látinn leggjast
ofan í raufina á rifnum og teinninn lagður þar ofan á. Þetta var gert til
þess að hnútarnir skemmdu ekki voðina, en það hefði getað komið fyrir,
ef hnútarnir voru harðir og harðstrengt á vefnum. Uppbinding:
Keðjur grannar voru upphaflega notaðar í vefstól þeim er ég vandist
við. Þær gengu síðar úr sér, og voru sett snæri í staðinn. Járnkengir
voru í skammelum, og var bundið í þá upp í þverskammelin, sem voru fest
í hliðarfjöl vefstólsins vinstra megin. Úr þeim gengu önnur bönd
upp í hafaldasköftin. Tengt var þannig að það skammel, sem var lengst
til hægri, var í sambandi við fremsta skaft og síðan áfram í röð. Uppbindingu
ar aldrei breytt, hvernig sem ofið var. Það var allt ákveðið með
því að draga í og stíga á mismunandi hátt.

p27
Að draga fyrir: Byrjað
var að vefa í skörðin, þ.e. glufurnar í uppistöðu vegna hnútanna. Til
þess var oft notað grófara band. Að skjóta skyttunni um skilið var
helst kallað að draga fyrir. Ein umferð, t.d. einu sinni frá hægri
til vinstri,var kölluð einn fyrirdráttur. Alltaf var byrjað að skjóta
skyttu frá hægri, og þar var endað hvert skifti sem hætt var. Skaftvaf
var það sem ofið var frá því að staðið var á ákveðnum skammelum, og þar
til staðið var á þeim aftur. Í einskeftu voru t.d. aðeins tveir fyrirdrættir,
eitt skaftvaf. Þegar hófst að vefa það, var staðið hægra fæti á 2
hægri skammelum og 2 fremri sköftin voru niðri. Síðan var skotið hægri
hendi til vinstri, og 2 vinstri skammelin, og þar með aftari sköftin voru
stigin niður. Þegar skyttunni hafði aftur verið skotið til baka,
stigið og slegið, var aftur staðið hægra fæti á hægri skammelunum tveimur.
Var þá skaftvafinu lokið. Væri ofið vaðmál, voru 4 fyrirdrættir
í skaftvafi, þ.e. frá því að staðið var á ystu sköftunum, og þar til staðið
var á þeim aftur. Föst regla var, að þegar vinstri hönd tók á móti
skyttunni, skyldi stigið vinstra fæti og gagnstætt.

p28
Gefið var þannig
í, að þegar skyttu hafði verið skotið, var fingrum þeirrar handar, sem
þá var laus, smeygt niður milli þráðanna um miðju og fyrirvafinu ýtt fram,
mikið eða lítið eftir því hversu mikið skyldi gefa í. Ef vefnaður
var sérstaklega vandaður var gefið í á 2 stöðum. Ef mikið var gefið
í, var kallað að væri veftað. Sláttur var mjög misjafn, eftir
því hversu mikið skyldi slá. Oft dugði eitt högg. Þá þótti
betra að leggja veftinn að, áður en lokið var að stíga. Síðan var
lausu hendinni gripið um mitt slagborðið og slegið létt högg eða fast eftir
því hvað skyldi slá. Stundum voru slegin 2 högg. Sumir tóku jafnvel
báðum höndum um slagborðið og héldu þá skyttunni í annarri.
Spanstokkur var hafður til að halda út voðinni, ef hún vildi ganga saman.
Spanstokk skyldi færa oft, þó aldrei alveg á fremstu brún voðar.
Einkum átti að færa spanstokk oft, ef voð vildi ganga saman.
Margt gat komið fram í vefnaði sem lagfæra þurfti. Mjög gat verið
tafsamt ef þræðir í uppistöðu vildu slitna. Var ætíð hafður við hendina
lítill hnykill af samskonar efni og var í uppistöðu

p29
til að bæta. Þessi
hnykill var kallaður þráðarbót. Stundum var skil ekki hreint. Komið
gat fyrir að þræðir beggja hafalda gengu ekki jafnlangt niður. Mynduðust
þá 2 skil. Gat þá komið fyrir, að skytta lenti í röngu skili. Kom
þá rangvefja. Hún kom að sjálfsögðu einnig væri rangt stigið. Þótti
það mikill galli í voð. Mjög þótti illt, ef voðin gekk meira fram
öðru megin, skekktist fyrir, eins og það var kallað. Helsta ráðið
var að hafa spanstokkinn skakkann, þ.e. framar þeim megin, sem meir gekk
fram, og gefa skakkt í, þ.e. meira þeim megin sem meir gekk fram.
Þá kom fyrir, að hafaldasköftin gengu ekki jafnmikið niður í báða
enda, er þau voru stigin niður. þá var sagt sköftunum steypir. Þá
varð skilið auðvitað lítið þeim megin,sem minna gekk niður. Helsta
ráðið var að taka í sköftin og rétta þau við. Þetta var tafsamt,
en oft mátti laga gallann á þann hátt. Ef voð var ljós og fín, breiddu
menn oft klút á frambómu eða höfðu sérstaka hlífðarsvuntu.
Sjálfsagt þótti að hafa mæliþráð álnar langan til að fylgjast með hvað
ofið væri. Var hann látinn vera í voðinni, venjulega ekki allfjarri
jaðri hægra megin.

p30
Færa nefndist það
sem voð var færð áfram í einu, og það var kallað færa. Hér
má nefna eitt orð, sem stundum var notað, en sumum þótti orðleysa. Það
er orðið vefaður, (nafnorð, karlkyns). Það þýddi svipað og vefur.
Helst man ég eftir að þetta væri notað, ef segja þurfti, að einhver hlutur
lægi á vefnum. Dæmi: Vettlingarnir liggja á vefaðinum. Voru
þeir þá á vefnum einhversstaðar milli frambómu og afturbómu.
Að fella vef: Að ljúka vef var kallað að fella vef eða fella voð.
Þráðarendar, sem gengu af, nefndust afvikur og voru notaðar í nálþráð.
Auðvitað varð síðast að setja snæri um afturrifinn (vefjarsnærin) og binda
í teininn. Þau voru þrjú. Það var kallað að setja snærin í
eða að snæra. Að sjálfsögðu varð skilið illt þegar teinninn var kominn
fram undir höföld og voðin afur undir höföld. Bæta mátti úr í bili
með því að hafa slakt á, en ekki þótti hyggilegt að nýta svo vel út, að
afvikurnar yrðu mjög stuttar, þá voru þær ónýtar, annars þótti gott að
sauma með þeim eða bæta.

p31
Mjög var misjafnt
hve gott var að stíga niður. Var sagt að það stigist vel eða illa.
Væri mjög strítt á, steigst verr. Þóf: Þvælið
var hitað í stórum potti upp undir suðu. Síðan var hellt á voðina
í bala. Síðan var hún undin. Það var gert þannig, að hún var
lögð tvöföld, sköftum brugðið í lykkjurnar á báðum endum og síðan snúið
á. Aðeins karlmenn þæfðu, stundum heimamenn, en stundum voru fengnir
menn til þess. Tunnuþóf þekkti ég ekki, var alltaf þæft undir fótunum,
á hurð, úti í fjósbás. Ætíð voru menn á nærklæðum einum. Þangað
var mönnum færður matur og drykkur, því að ekki mátti víkja af þæfunni.
Voð í þófi var kölluð þæfa. Voðin var höfð í hrúgu, og svo
veltu menn henni undir fótum sér og spörkuðu á henni. Þó hef ég heyrt
getið um eitt dæmi, þar sem þæft var þannig, að voðin var brotin margföld
og síðan hoppað á henni. Hafði þófnað þannig ótrúlega vel. Voðin
var hrist upp einu sinni eða tvisar. Tóku 2 hana milli sín, höfðu
nokkra faðma milli sín í einu, héldu í brúnirnar

p32
og kipptu síðan snögg
í, auðvitað báðir í senn. Þá þæfðist betur. Þetta var líka
kallað að kippa. Ætíð var gefinn þófarabiti. Var það
oft smurð kaka með vænni kæfusneið eða eitthvert annað slíkt góðgæti. Svipaðan
bita fékk vefarinn oft, er hann hafði fellt voð, og nefndist hann vefjarbiti.
Oftast var voðin að loknu þófi undin upp á rúmfjöl og látin þorna
þar. Nauðslynleg þótti að vinda hana fast. Var það gert þannig,
að fyrst var voðin undin upp á rúmfjöl stundarfast, eftir því sem unnt
var. Síðan var undið upp á aðra fjöl ofan af henni. Gerðu það
2 menn. Hélt hvor á sinni fjöl og toguðust á. Með þessum hætti
tókst að vinda voðina fast. Þekkt er þófaraþulan. Ég
lærði hana þannig: Bárður minn á Jökli - leggstu á þófið mitt - ég
skal gefa þér lóna - leppana í skóna - þegar ég kann að prjóna - naglabrot
í bátinn þinn - hálfskeifu undir hestinn þinn -

p33
mórautt lamb og gimburskel
- og meira ef þú þæfir vel. Þegar voðin var þornuð í stranganum,
var hún undin niður og brotin saman í rúmslengd, og látin undir undirsæng
í rúmi og dúkur eða eitthvert stykki lagt undir og ofan á. Þar pressaðist
hún. Ekki man ég eftir því, að voðir væri sendar til lóskurðar
og litunar, en stöku sinnum til þæfingar og pressunar. Þetta gat
verið gott, en gafst þó ekki ætíð vel. Einu sinni man ég að voð sem
þannig var send, var þæfð allt of mikið, varð svo mikill bálkur, að varð
að eyðileggja hana.

p34
Um spanstokk og skyttu:
Um eða skömmu eftir 1920 fór Loftur Bjarnason, móðurbróðir minn,
í skóg ásamt Sigurði Bjarnasyni, og voru þeir báðir heimilismenn hjá foreldrum
mínum, sem bjuggu þá að Skarði í Eystrihreppi. Fóru þeir í Ásólfsstaðaskóg
og voru þar um kveld langt inni í skógi að skógarhöggi og klyfjabandi.
Komu að þeim nautgripir, og meðal þeirra var bolatappur einn, er
lét allófriðlega. Fór Loftur að reka hann burt og rak hann alllangt
inn úr. Fór tuddi þar fram af bakka og niður moldar- og vikurskriðu.
Sér Loftur þá, að eitthvað liggur í skriðunni. Fór hann að gæta að.
Var það þá spanstokkur úr maghony, látúnsbúinn, vel smíðaður, en
sýnilega dálítið notaður. Þetta var langt frá öllum mannavegum, en
þó virtist spanstokkurinn vera þar nýkominn. Var hann óveðraður og
lítt eða ekki fallið á látúnið. Hvernig hann var þanbað kominn virðist
lítt skýranlegt. Hann var síðan notaður á heimili foreldra minna.
Hann er af þeirri gerð, sem sýnd er á teikningu þeirri er fylgir
skýrslunni, neðri teikningin. Fyrir allmörgum árum átti nágranni
minn einn, Jón Einarsson leið um svonefndan Gyldurhaga (í Landnámu heitir
hann Gyldarhagi). Gyldurhaginn er gilgljufur, sumsstaðar vítt með
fallegum grasbrekkum og hvömmum, en sumsstaðar þröngt og á einum stað svo,
að lítið er meira en vegarbreidd. Skammt þar fyrir innan liggur vegurinn
undir kletti, svo nálægt að maður á hestbaki getur næstum tekið hendi í
klettinn. Eitt sinn er Jón fór um Gyldurhagann og reið undir klettinum,
sá hann, að þar lá á syllu einni vefjarskytta, dálítið slitin, en vel smíðuð.
Jón hafði skyttuna með sér. Enginn kannaðist við hana. Var
hún síðan notuð við vefnað og er sennilega til enn.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Tóvinna
Keyword:
Ull