Tóvinna

In preservation at
National Museum of Iceland
Main information
Gender / Year of Submittee
Karl (1901)
Object-related numbers
Museumnumber a: 1347
"Museumnumber b": 1966-1
Questions / Answers
Allar spurningar og svör
Nr. 1347
p1
ULL OG TÓVINNA 3
Vefnaður: Á fyrsta og öðrum tug þessarar aldar var enn mest
af fatnaði fólks unnið á heimilunum, og að langmestu leyti úr ull.
Aðallega var unnið vaðmál úr ullinni, en þó einnig nokkuð af prjónlesi,
sem einkum voru sokkar, bæði til heimilisnoktunar og sölu, (smáband). Smábandið
var fyrst og fremst unnið fyrir jólin og þá selt í verslanir til
útflutnings. Það var því sjaldgæft að vefstóll væri "borinn
inn" fyrr en eftir nýár, þó kom það fyrir ef efni í föt, eða rekkjuvoðir,
vatnaði. Misjafnt var hvenær vefnaði var lokið á vorin. Á
heimilum, sem tóku í vefnað frá öðrum bæjum, gat það dregist fram um sumarmál
að vefstóll væri "borinn fram". En á öðrum heimilum var
það oftast nærri góulokum. Venjulega mun hafa verið byrjað að vefa
hinar grófari voðir t.d. í hversdagsföt.
p2
Karlmenn ófu, og
venjulega sami maðurinn á hverjum bæ, allt, sem vefa þurfti hvern vetur.
Unglingar hjálpuðu til við að "setja til" vefinn.
Eftir 1900 munu flestir vefarar hafa, jafnframt vefnaðinum, haft einhverja
fjárgæslu, eða annað, með höndum, og því ekki setið í vefstólnum frá morgni
til kvölds. Það þóttu góð afköst að vefa 10-12 álnir á dag þó einstaka
maður kunni að hafa afkastað eitthvað meiru. Af fínum vef gat þetta
orðið allt að heilmingi minna, einkum ef þáðurinn "hélt illa"
þ.e. slitnaði mikið. Þar sem ég þekkti til fóru unglinar
ekki að vefa fyrr en eftir fermingu, 15-16 ára. Ekki þekkti ég að
vefarar færu á milli bæja, en eins og áður segir tóku sum heimili efni
í vefnað fyrir aðra. Lítið mun hafa verið um vöruskiptaverslun með
vefnað eftir 1900, en stöku sinnum
p3
var vaðmálsbút stungið
að þeim, sem vitað var að þurftu þess með. Kom þá stundum greiði
í einhverri mynd á móti. Nafnið vefstóll var eina nafnið, sem ég
þekkti á þessu verkfæri. Um vefstólasmiði og smíði vefstóla get ég
lítið sagt. Vefstólar í minni sveit, voru lítið eða ekki frábrugðnir
hvor öðrum. Til voru heimili, sem ekki áttu vefstóla. Þau heimili
komu efni í vefnað til nágranna eða kunningja. Þegar ég var að alast
upp, á árunum 1901-1916, voru þar sem ég þekkti til, gamlir vefstólar,
og voru þeir notaðir þar til heimavefnaði var hætt um 1920, eða litlu síðar.
Um kaup og sölu vefstóla vissi ég ekki annað en að um 1930 keypti
ég gamlan vefstól á kr. 50,00. Þennan vefstól á ég enn. Af
vefstólum þeim, sem myndirnar eru af, þær er fylgja spurningaskránni, er
vefstóll A líkastur þeim vefstólum, sem ég þekkti. Þó er hann í nokkrum
smáatriðum öðruvísi. Þessi eru helst.
p4
Slöngurifurinn lék
í götum aftast á kjálkanum sem merktur er (10) á mynd A. Slagborðið
hékk á járnteini framarlega á kjálkanum (10). Á uppistöðufjalir slagborðsins,
(sem á listanum Heiti á vefstól A. er nefnt slagborðskjálki) voru teknar
raufar fyrir vefstólskjálkann, og fyrir þær lá áðurnefndur járnteinn, sem
festur var í uppistöðufjalirnar nálægt efri enda þeirra. Járnteininn
lék svo í skoru á þar til gerðu járni ofan á vefstólskjálkanum. Setubekkurinn
var kræktur á framstuðlana (stólpana) (2) en í þeim voru járnkengir. Járnkrókar,
um 15cm. langir voru festir í kengi á seturbekksfjölinni. Þurfti
þá ekki að losa nema annan krókinn þegar farið var í vefstólinn, eða úr
honum. Skammelin (22)(20) voru aðeins að framverðu. Spjálk
hét fjöl,(reyndar voru það tvær smáfjalir, er festar voru saman með selgargni)
til þess ætluð að þverstrengja með voðina. Henni verður nánar lýst
síðar. Vefjarskeiðar, sem ég þekkti voru úr stáli, útlendar. Kaupfélögin
fluttu þær inn eftir pöntunum manna. Greinarmunur var gerður á vefjarskeiðunum,(sem
reyndar voru oftast aðeins
p5
nefndar skeiðar)
eftir því hversu þær voru þétttenntar. Talað var um 80-100 eða 120 reira
skeið, en rifurnar á skeiðinni voru kallaðar reirar. Með þessu var
átt við að á hverju kvarteli skeiðarinnar væru svona margir reirar, en
þær voru 5 kvartel. Vefjarskyttan, í daglegu tali aðeins nefnd skyttan,
var úr tré.
Á báða enda hennar
var festur vír, sem að nokkru féll inn í smáskoru á trénu. Þessir vírar
voru til þess að þræðirnir í vefjarskilinu festust síður á skyttuendanum
þegar henni var skotið í gegnum skilið. Að vísu var skyttan þannig
smíðuð að endar hennar vísuðu lítið eitt upp á við svo minni hætta væri
á því að þeir snertu þræðina í skilinu að neðanverðu. Neðan á skyttunni
miðri, eða yfir neðra opi spóluhússins, voru festir 2-3 vírar, af sama
efni og á enda hennar, þeir voru til þess að skyttan rynni betur í gegnum
skilið. Teinninn fyrir spóluna, í spóluhúsinu, var einnig úr vír,
kræktur fastur í annan endann, en
p6
small inn í gat á
smá blikkplötu, sem var fest hinumegin í spóluhúsinu. Teinninn hafði
ekki annað nafn. Tréspólur bæði renndar og tálgaðar,- aðallega þó tálgaðar
- voru notaðar til þess að spóla ívafið á. Víðast hvar voru sérstakir
rokkar, spólurokkar, notaðir til að spóla á, og smíðaðir sérstaklega til
þeirra nota, svo og til að balbína á þá. Sumstaðar voru þó notaðir
gamlir spunarokkar við þetta verk, og þá settur í þá teinn til þeirra nota.
Spólurokkar voru mjög óvandaðir að smíði, "uppistandari"
úr fjöl eða kubb, sem lauslega hefur verið heflað slétt. Á sumum
rokkum var þó renndur húnn. Hola var ofarlega að framan í "uppistandaranum"
fyrir aftari enda spólu og balbínuteinsins. Að framverðu voru teinarnir
festir í holu á standi, eða hæl, sem lék laus í gati á fjöl, er stóð framúr
"uppistandaranum". Götin á fjölinni voru reyndar tvö, annað
fyrir spóluteininn hitt fyrir balbínuteininn. Hælnum mátti snúa til
að vild, þegar spólurnar voru látnar á hann,
p7
eða teknar af honum.
Annar útbúnaður á spólurokknum var, að mestu, eins og á spunarokkum,
fótaskör, og hjól með snúru. Snúran var þó aðeins einföld.
Áhaldið, sem notað var til þess að halda út jöðrunum á voðinni með þegar
ofið var, hét spjálk, og hefi ég lauslega lýst henni áður, á bls 4, og
geri það betur síðar. Áður en farið var að "rekja"
vef var reiknað út hvað langt mætti "leggja upp". Var sá
útreikningur venjulega byggður á hespufjölda þráðarins, en í hverri hespu
var ákveðin lengd, 12 "knekk" eða "skreppur". En
þessi orð voru notuð nokkuð að jöfnu. Hvert "knekk" var
um 50 hringir á litla hesputréð, en það var algengast. Hver hringur
var rúml. 2 álnir svo hespan var 13-14 hundruð álnir, lék þá nærri að leggja
mætti eina alin upp úr hespunni. Á sumum bæjum var notað mikið stærra
hesputré, og mun hver hringur á því hafa verið allt að helmingi lengri
heldur en á því litla. Oft heyrði ég talað um svo eða svo marga
lóða verk, en ekki veit ég hvort lengd vefjarslöngu var reiknuð út eftir
þyngdinni, sennilega mun það þó hafa verið gert á meðan bandið var undið
í hnykla,
p8
en ekki hespað. Sjálfur
man ég ekki eftir nema hespuðum þræði í "uppistöðu". Oft
var ofið mikið úr tvisti, hann var pantaður í gegnum kaupfélögin. Margir
pöntuðu 2 til 3 liti af tvistunum, og ófu úr honum ýmsar gerðir af bekkjóttu
eð rúðróttu tvisttaui. Þessar tvisthespur voru mikið stærri en íslenskar
ullarbandshespur af litla hesputrénu. Jafnframt því
að reikna út hvað "leggja ætli upp", þ.e. hvað vefjarslangan
skyldi vera löng, þurfti að ákveða hvað voðin ætti að vera varpmikil. En
voð var því varpmeiri þess fleiri þræðir sem voru í uppistöðunni. Eftir
reirafjölda skeiðarinnar var svo reiknað út hve margir þræðir ættu að koma
í hvern reir. Það fór dálítið eftir grófleika uppistöðuþráðarins
hvað margt var "haft á" slöngunni. En að hafa á "merkti"
hvað margir þræðir voru í slöngunni, venjulega munu þeir hafa verið 12-14
hundruð, komu þá um 3 þræðir í hver reir. En þetta fór þó eftir reirafjölda
skeiðarinnar,
p9
þannig að frávik
frá því gátu verið á marga vegu, t.d. að 4 þræðir voru í þriðja hvern reir,
eða á hina hliðina að 2 væru í fjórða hvern o.s.fr.v.
Orðin uppistaða og
ívaf voru nálega undantekningarlaust notuð í minni sveit. Þó heyrði
ég stöku sinnum orðið fyrirvaf haft um ívafið. Áhaldið, sem
uppistaða í vef var rakin á hét rakgrind. Ekki þekkti ég nema eina
gerð af þeim. Rakgrindin var þannig. Aðalhlutar hennar voru
tveir ferhyrningar, uppistöðustólpar um tveggja metra háir, með þverslám
að ofan og neðan um það bil 8-10 cm. frá enda. Uppistöðustólparnir
voru heflaðir vel sléttir, og á milli þeirra tveggja hliða, er út snúa,
er hornið heflað af, svo hliðarnar koma saman í ávölum boga. Á miðjar
þverslárnar var tekið fals, og í miðju þess gat um 2 cm. í þvermál. Þegar
rakgrindin var í notkun, voru grindarhlutarnir feldir saman í fölsunum
og tréhæl stungið í götin bæði að ofan og neðan. Efri hællinn gekk upp
í gat á trébita rétt ofan við
p10
grindina, en neðri
hællinn féll í holu á kubb sem hafður var á gólfinu undir grindinni, miðaðist
þykkt kubbsins við að efri endar rakgrindarinnar væru vel lausir við að
rekast upp í bitann. Þegar búið er að setja upp rakgrindar á þann
hátt, sem lýst er hér að framan, eru næst settar 2 lausar krossslár á milli
uppistöðustólpanna, um miðju þeirra. Þessar slár festast strax vel
þegar farið er að rekja á grindina. Loks eru sett svonefnd "grísholt"
á raqkgrindina. Þau er 2. það efra er sett á áður en byrjað er að
rekja á grindina. "Grisholt" er slá með 2 hælum nærri öðrum
enda, og sýlingum í báða enda. Sýlingarnar falla á horn tveggja uppistöpustólpanna,
og stöðvast við efri þverslá grindarinnar. Síðar verður sagt frá
neðra "grísholtinu". Áður en ég lýsi sjálfri rakningunni
ætla ég að lýsa þeim áhöldum, sem notuð voru við undirbúning hennar, en
þau voru, auk spólurokksins (balbínurokksins) svonefnd króna og snældustóll,
p11
og svo snældurnar,
sem balbínað var á. Snældurnar voru um 20 cm. langar, með breiðum
snúðum á endunum. Snúðarnir voru þunnir, sérstaklega út við raðirnar.
Króna hét áhald það sem hespurnar voru hafðar á þegar balbínað
var, hún var þannig: Neðst var planki ca 4-5 cm. á þykkt og 25-30
cm. á lengd og breidd. Þetta stykki hét krónufótur. Í miðju
þess var spor, í það var uppistöðustandurinn festur, hann var úr tré, en
efst á hann var festur járnhringur. Ofan í tréstandinn var svo rekinn
dálitill járnteinn, sem sjálf krónan snérist á, en hún var úr tveimur trérenningum
sem negldir voru í kross, og gat á, það sem renningarnir mættust. Yfir
þetta gat var negldur bogi úr blikkræmu með gati á. Efsti endi járnteinsins
sem áður getur, en hann var mjórri en aðalteinninn, gekk upp í gatið á
blikkræmunni, og á þessu snérist krónan. Krosstréð (krónan) var með
2-3 götum nærri hverjum enda, í þessi göt var stundið hælum ca 20-25 cm.
háum. Með því að færa hælana til í götunum
p12
var hægt að hafa
hvort sem var stórar eða litlar hespur á krónunni. Snældustóllinn
var trégrind um 150 cm. á hæð og 70 cm. á breidd. Á grindinni miðri,
eftir lengd hennar, var þunn fjöl með götum á, og samsvarandi göt voru
á hliðum grindarinnar. Þegar balbínusnældurnar voru settar í snældustólinn
var grannur járnteinn settur í götin og í gegnum snældurnar, þannig að
tvær og tvær snældur komu samhliða í stólinn, en þó sín hvorum megin við
miðfjölina. Snældustólarnir tóku venjulega 12-16 snældur.
Eins og sagt er hér á undar var spólurokkur notaður til að balbína á. Var
þá settur í hann balbínuteinn, en hann var bæði lengri og sverari heldur
en spóluteinninn, og er því lýst á bls.6 hvernig hann var festur.
Það sem ég þekkti til var rakgrindin sett upp í framhýsi, stofu eða skála.
(Í stofu á mínu heimili, Leifshúsum). Ég hefi áður lýst því hvernig
hún var sett upp. Ekki þekkti ég rakningsspaða eða rakningsstokk.
p13
Einn maður vann að
því að rekja vefinn. Áður en rakning hófst, var einn þráður, af einhverri
snældunni, mældur með alinmáli í þá lengd, sem reiknað hafi verið út að
leggja mætti upp. Þegar lengdin var fengin var tekinn ullarhnoðri,
bréfsnepill eða smádula, og þræðinum fest með línubragði utanum, síðan
var þráðurinn undinn upp á snælduna aftur. Síðan var byrjað að rekja.
Sá sem rakti hélt þráðunum í greipum vinstri handar, þremur eða
fjórum í hverri eftir því hvað rakið var af mörgum snældum. Með
hægri hönd snéri hann rakgrindinni. Það þurfti að halda þráðunum
þéttings fast milli fingranna, til þess að snurðurnar, sem oft voru á þráðinum,
röknuðu. Hjá þeim sem lagnir voru að rekja, og röktu með jöfnum hraða,
helst nokkuð miklum, gekk þetta vel. Faðir minn rakti alltaf hratt.
Rakningin hófst með því að þráðarendunum af öllum snældunum, sem
áður verið hnýtt
p14
saman með þverhnút,
var skipt sem jafnast, og brugðið þannig upp á efra grísholtið, þann hælinn,
sem nær var uppistöðutré grindarinnar. Síðar var öllum þráðunum brugðið
undir aftari hælinn á grísholtinu. Sumir kölluðu grísholtið öðru
nafni hælatré. Nú var rakið niður rakgrindina þar til kom að merkinu
á þræðinum, sem áður er getið, þá var neðra grísholtið sett á grindina,
og bundið fast, því sýlingarnar í enda þess nægðu ekki einar til að halda
því nægilega föstu. Öllum þráðunum var nú brugðið undir annan
hælinn á grísholtinu en yfir hinn og þannig snúið við upp grindina aftur.
Ein ferð niður og upp grindina aftur hét umferð, en gangur aðra leiðina.
Umferðin var því tveir gangar. Opin, sem mynduðust við að
þráðurinn var ýmist brugðið undir eða yfir hælana á grísholtunum nefndist
þráðaskil. Rakið var ýmist ofan á þær umferðir, sem komnar voru
á grindina, eða lítið eitt til hliðar
p15
við þær, þannig að
slangan bæði smábreikkaði og þykknaði. Þegar raktir voru langir vefir,
þurfti að hafa þétta hringina á rakgrindinni, og þá um leið að rekja meira
ofan á þá en annars, svo þeir næðu ekki saman. Ekki vissi ég til
að merki voru setti við ákveðinn þráðafjölda. Fullrakin uppistaða
nefndist slanga, bæði á meðan hún var á grindinni, og eftir að hún var
tekin niður. Áður en slangan var tekin niður var gengið frá skilunum
á henni á þann veg að snærisspottar voru þræddir meðfram báðum hælunum
á grísholtunum og bundið að. Síðan var slangan rakin niður
af grindinni. Byrjað var að losa af efra grísholtinu, eða það tekið
burt, síðan var tekið um slönguna, 25-30 cm. frá enda hennar, með vinstri
hendi og vafinn einn hringur utan um hægri handlegg, þá gripið með hægri
hönd um slönguna og lykkja úr henni dregin í gegn um hringinn og honum
um leið steypt fram af handleggnum.
p16
Síðan var hægri hönd
brugðið aftur í gegnum þá lykkju og slangan dregin í geng á samahátt og
áður, og þannig haldið áfram þar til búið var af grindinni.
Þegar tvílit,-eða marglit- uppistaða var rakin þurfti að vera búið að ákveða,
hvað margir þræðir ættu að vera í hverri rönd. Reyndar þurfti að
ákveða þetta áður en farið var að balbína, því þá ver oftast hægt að rekja
alla litina í einu. Það var vitað að lengd uppistöðu þurfti að vera
nokkru meiri, en voðin sem niður úr vefstólnum kom átti að vera. Þetta
gat þó verið dálítið mismunandi, og fór einkum eftir því hve gróft ívaf
var notað. En ekki er fjarri lagi að meðaltalið hafi verið um þverhönd
(10cm.) á alin. Þetta var kallað að voðin skryppi. Ekki þekkti
ég að rakið væri á veggjahæla eða rúmstólpa, nema reipi, en á fyrstu tveimur
áratugum 20.aldarinnar, var mikið unnið af þeim
p17
úr ullarbandi, einkum
togbandi. Þau voru að sjálfsögðu fléttuð í höndunum. Á sama
tímabili var líka mikið unnið af gjörðum úr ullarbandi. Á mínu heimili
voru þær ofnar í vefstól, og svo mun víða hafa verið gert. Aðrir
brugðu gjarðirnar í höndunum eða stímuðu þær, bæði úr ullarbandi og hrosshári.
Ekki þekkti ég neitt áhald til að rekja í höföld á, en sennilega
hafa heinhverjir í sveitinni átt þau. Höföld voru hnýtt á svonefnda
hafaldagrind, hún var gerð úr, um það bil, 1 1/2x3 cm. trérenningum. Lengd
grindarinnar var um, 60 cm. og breidd 50 cm. Í miðja styttri hliðina
var festur vírteinn, sem smelt var í fals á gagnstæðri hlið. Á þennan
vírtein voru hafaldaaugun sett, áður en byrjað var að hnýta höföldin. Þessi
grind var því við það miðuð að hnýtt væri á stálaugu, en frá því um, eða
fyrir, 1900 voru notuð hafaldaaugu úr stáli. Ekki var ull (tog)
notað sem hafaldaþráður, svo ég vissi til,eftir að farið var að hnýta á
stálaugu, heldur seglgarn. Þegar búið var að hnýta öll
p18
höföldin var seglgarnið
fernisolíuborið, og varð það þá stinnt og glansandi. Hafalda
hnýtingin fór þannig fram: Byrjað var við annan enda vírsins, seglgarninu,
sem búið var að skera í hæfilegar lengdir, smeygt í gegnum gatið, sem var
á enda hafaldaaugans og hnýttur það einn hnútur, síðan var garninu brugðið
út yfir grindina, og þar hnýttur línuhnútur, Þess var vandlega gætt
að garnið væri ekki slakt. Síðan var hnýtt smáauga utan um seglgarnsspotta
sem strengdur hafði verið utan á langhlið hafaldagrindarinnar. Þegar
þessu var lokið var þrætt í gatið á hinum enda hafaldaaugans og farið eins
að þar, að öðru leyti en því að nú var strengt dálítið á garninu. Svona
var haldið áfram þar til lokið var við það sem sett var á hafaldagrindina
í einu, en það voru venjulega hátt á fjórða hundrað augu. Þetta var
svo flutt á hafaldasköftin. Vefjakambar voru fyrst allir úr tré,
en um 1900 fóru sumir að setja í þá járntinda.
p19
Vefjakambar sem ég
þekkti voru mjög óvandaðir að gerð. Neðri hluti hans var trérenningur 3-4
cm. á hvorn veg, í eina hlið hans var gerð smálægð þar sem borað var fyrir
tindunum og þeir reknir í þær holur. Á báðum endum þessa undirtrés
voru hök, eða uppistandarar, sem voru nokkru hærri en tindarnir. Efra
tréð var svipað hinu neðra, nema hvað öllu meira var hvolft upp úr því,
og að á endum þess voru göt sem hökin á neðra trénu gengu upp í gegnum
þegar kambinum var lokað. Féllu þá tindarnir upp í áðurnefnt gróp
á efra trénu. Kambshlutarnir voru svo festir saman með splittum,
eða bundnir saman með snærum þegar bambur var í notkun. Verkið við
að láta í slönguna í kambinum hét einfaldlega "að láta í kambinn".
Það var gert þannig að slangan var fyrst lögð yfir kambinn, t.d.
nálægt miðju hans, síðan voru ákveðið margar umferðir af rakgrindinni lagðar
á milli hverra tveggja tinda, en áður þurfti að vera búið að reikna það
út svo slangan væri sem jöfnust um kambinn.
p20
Skaftið, sem þarna
var sett í enda slöngunnar, í gangaskilið, hét rifskaft. Verkið
við að koma slöngunni á rifinn í vefstólnum, var kallað að vinda upp vefinn.
Allur annar undirbúningur, áður en hægt var að byrja að vefa,hét
"að setja til vef" Allt verkið, sem talað er um í tveim
síðustu málsgreinunum hér á undan, var þó stundum kallað að "setja
upp vef". Þegar byrjað var að koma slönguinni á rifinn, var
fyrsta verkið að koma rifskaftinu fyrir. Það var þannig gert að því
var þrýst inn í þar til gerða skoru á rifunum, og kragarnir á rifunum síðan
dregnir sinn inn á hvorn enda þess. Kragarnir, sem voru tvær trékringlur
voru til þess ætlaðir að halda að slöngunni þegar hún var undin upp á rifinu.
Til þess að halda krögunum föstum á rifunum, voru negldir á hvorn
þeirra 3 skinnræmur, að utanverðu. Ræmurnar voru svo dregnar innfyrir
kragana, meðfram rifunum og sléttað úr þeim þar. þegar svo slangan byrjaði
p21
að koma á rifinn
þrýsti hún skinnræmunum að honum, og sátu þá kragarnir fastir. Þrír
menn unnu við að, vinda upp vefinn. Einn hélt í slönguna, annar
var með vefjarkambinn og stjórnaði sá því að slangan legðist slétt og jafnt
á rifinn, og þriðji "vatt upp" þ.e. snéri rifnum, en á enda hans,
-utan á vefstólnum- var þykkur og allbreiður kragi með tréhælum í hliðinni,
þetta hét hausinn á rifnum. Með hælum þessum fékk sá, sem "vatt
upp" gott átak til að snúa rifnum, en ef fast var haldið í slönguna
gat þurft að taka töluvert á til þess að snúa rifnu. Sá sem hélt
í var framan við vefstólinn, en þaðan lá slangan aftur í gegnum vefstólinn
og undir slá, afturbómuna, á honum. Þessi slá, bóman, var um það
bil í miðri hæð vefstólsins,og hélt saman aðaluppistöðuhlutum hans. Fyrir
ofan þessa slá var kamburinn hafður. Betra þótti að halda nokkuð fast í
slönguna hún lagðist þá þéttar og betur á rifinn. Ekki voru notuð
rifsköft nema á enda slöngunnar.
p22
Á þeim vefstólum
það sem kragar voru á slöngurifnum -en það var ekki allstaðar- var slangan
ekki látin dragast að sér á rifnum, heldur var hún látin falla sem jafnast
að krögunum. Þegar búið var að "vinda upp" vefinn var
skilsköftunum komið fyrir, á sínum stað, og hengd í spotta, sem festir
voru á afturbómuna. Á hvorum spotta voru höfð tvö op þar sem skilsköflunum
var stingið í. Slönguendanum var nú skipt í svonefnda "feta".
En í hverju, "feta" voru venjulega 80-120 þræðir. Ætíð
var þó skipt í fetana af handahófi. Að draga í höföldin var
kallað að þræða. Hafaldasköftin voru bundin saman með snæri
á meðan þrætt var. Tveir menn unnu við það, annar "rétti",
sá sat á kjaftastól, eða öðru, á milli afturbómu og hafalda, hélt með vinstri
hendi um fetann,-einn í einu- en með þeirri hægri greiddi hann gangana
í honum og rétti þræðina til þess, sem þræddi þá í höföldin. Þetta
verk, að rétta, þurfti að vanda því þá komu síður flækjur í skilin þegar
farið var að vefa.
p23
Venjulega voru börn,
eða unglingar, látin "rétta". Þegar búið var að "fella
af" vef var frambóman tekin af vefstólnum, -en hún var fest með skrúfboltum-
til þess að rýmra væri í honum á meðan þrætt var í höföld og skeið.
Sá sem þræddi í höföldin sat framan við þau. Hann byrjaði á því að
taka handfylli sína af höföldum með vinstri hendi, af þeim tók hann svo
eitt og eitt í réttri röð og þræddi í hafaldaaugað með hægri hendi.
Þegar lokið var við að þræða hvern "feta", hnýtti sá, sem þræddi
hnút á alla þræðina framan við höföldin. Við að draga í skeiðina
var notað áhald sem nefndist krókur, hann var úr járni eða blikki beygður
í hálfhring, -til stuðnings- í þann enda, sem haldið var um. Úr fremri
enda króksins var tekið þannig að í hann myndaðist bugur. Í þennan
bug var þræðinum brugðið þegar búið var að reka krókinn í gegnum reirinn
á skeiðinni. Síðan var hann dregin í gegnum skeiðina.
p24
Tveir unnu við að
draga í skeiðina, eða þræða í hana eins og það var kallað hjá okkur. Á
meðan verið var að þræða í skeiðina var hún látin hanga í 2 snærum, sem
fest voru á vefstólskjálkana. Sá sem rétti þræðina sat á milli hafalda
og skeiðar, en hinn, sem rétti krókinn í gegnum skeiðina san að sjálfsögðu
framan við hana. Þegar búið var að draga í t.d. 25 til 40 reira á
skeiðinni, var brugðið hnút á þræðina til þess þeir drægjust síður úr skeiðinni
aftur. Ekki þekkti ég að skaftið, sem hnýtt var á héti öðru nafni
en skaftið. Verkið við að festa þráðarendana utan um skaftið hét að hnýta
á skaftið. Skaftið var fest með þremur snærum við neðri rifinn.
Byrjað var að hnýta þræðina á miðju skaftsins, næst var hnýtt á enda
þess, og síðan frá þeim, -eða miðju skaftinu- sitt á hvað, þar til lokið
var. Flestir vefarar tóku frekar fáa þræði í hvern hnút á skaftið,
með því móti fór styttri spotti af uppistöðunni í hnútinn, því mikið var
lagt upp úr því að uppistöðu þráðurinn notaðist sem best.
p25
Lítið get ég sagt
um vefstólssnæri. Áður er sagt frá snærunum á milli neðri rifs og
skaftsins, sem hnýtt var á. Þegar vef var svo langt komið að rifurinn
var "orðinn ber" þ.e. uppistaðan var búin af honum, þá var rifskaftið
losað með því að draga kragana út af endunum þess. Síðan voru 3 snæri
fest á rifinn og undin utan um hann með jöfnu millibili og endinn þeirra
hnýtt á rifskaftið. Lengd þessara snæra var við það miðuð að þau
gætu fylgt rifskaftinu eftir alveg að höföldunum. Önnur snæri voru
þau, sem héldu milli skammela og skefla, og skefla og hafalda, og þekkti
ekki sérstök nöfn á þeim. Þegar byrjað var að vefa var það kallað
að "draga fyrir" þegar fyrsti ívafsþráðurinn var festur.
Þar sem ég þekkti til var oftastnær "gefið upp í" í einum
stórum boga, um leið var næsta skil stigið og ívafið síðan slegið að voðinni
með slagborðinu, með einu snöggu höggi. Þegar verið var að ljúka
vef og skilið var orðið lítið, þurti þó
p26
að slá 2-3 högg með
slagborðinu. Eins og áður er sagt var spjálkin í tvennu lagi og
voru helmingarnir bundnir saman með selgarni. Þeir endar sem bundnir
voru saman, voru um hálfu mjórri heldur en hinir, og víslögðust töluvert
þannig að spjálkin varð öll nokkuð jafnbreið þegar hún lá flöt. Á
mjórri endum hennar voru 2-4 göt, og mátti lengja og stytta spjálkina með
því að færa seglgarnið á milli gata. Snið var á neðri hlið útendanna
á spjálkinni og var það komið fyrir oddhvössum vírum, þrem í hvorum enda.
Oddum þessum var stungið í jaðra voðarinnar, myndaði þá spjálkin
einskonar burst yfir miðju voðarinnar. Þegar burstinni var þrýst niður
þandist voðin út. Spjálkarhelmingarnir voru að því búnu festir saman
með trésnerli, sem hreyfðist á þolimæði (þolinmóður var trénagli sem snérist
í gati á spjálkarhelmingnum.) á öðrum spjálkarhelmingnum. Þegar
lítið, eða ekkert var "gefið upp í" vildi voðin "ganga saman"
þ.e. mjókka. Það þótti ekki vel ofið. Venjulega var voð mæld
með spotta um leið og ofið var. Spottinn var ein alin, frá hnút
p27
sem hnýttur var á
annan enda hans, síðan var honum stungið á milli uppistöðuþráða, við voðina.
Þegar alinn var búin var spottinn færður á ný, og svo koll af kolli.
Þráðaslit var mjög misjafnt í vefjum, fór það eftir tvennu. Fyrst
og fremst þó því hvernig uppistöðuþráðurinn var unninn, en það var eins
og nærri má geta mjög misjafnt. Bæði gat þráðurinn verið svo snúðharður
að hann hrykki í sundur, einkum ef að snurður voru á honum. Á hinn
bóginn gat hann líka verið of snúðlinur svo að hann drafnaði í sundur,
þetta var þó sjaldgæft nema um fáa þræði í hverjum vef. Svo hætti
eðlilega fínum þræði frekar til að slitna heldur en grófum, að öðru jöfnu.
Enn gátu þráðaskil stafað af því að skilin voru ógerð, en ástæðan
til þess gat verið sú að illa hefði verið "rétt " í höföldin,
það er að segja að þræðirnir í feta "göngunum" voru ekki réttir
fram í eðlilegri röð. Ef skil voru ógerð vildi það frekar koma fyrir
að skyttan sliti þræði. Þegar slitinn þráður var hnýttur saman var
það kallað "að bæta", þá þurfti
p28
að bæta smáspotta
í uppistöðuþráðinn. Lítill hnykill af uppistöðuþræði var ávalt hafður
við höndina til þess að "bæta" með, hann var gjarna geymdur í
spólukassanum. Það þótti ekki góður vefari sem ekki "bætti"
strax og hann varð var við þráð -eða þræði- slitna, því slitinn þráður
vildi flækjast í skilinu og valda með því hættu á enn frekara þráðasliti.
Ef mikil þráðaslit voru, reyndi það oft mjög á þolinmæði vefarans.
Til var sú trú að þráðarslit stafaði frá aðsókn, en ég hald að hennar hafi
þó lítið gætt eftir 1900. Þegar losuð var festingin á efri
rifnum og losað hæfilega mikið af honum, var það kallað "að hleypa
niður". En ein vinding upp á neðri rifinu hét "færa"
eða strenging. Þegar verið var að ljúka við vef hét það "að
fella af" eða "að fella af vefinn". Þetta orðalag
náði bæði yfir vefnaðinn á 5-10 cm. af vefnum og að klippa sundur þræðina
framan við skeiðina. Æfinlega var gengið mjög nærri uppistöðuþræðinum,
eða svo, að síðustu umferðirnar var skyttunni troðið í
p29
gegnum skilið og
bar voðarendinn þess venjulega nokkur merki, varð misþráða. Þráðarendarnir,
sem af gengu þegar vefur var felldur af, voru nefndir afgangar. Þó
heyrði ég þá einnig kallaða hrafnabuxur eða krummabuxur. Ég held
að afgangarnir hafi oftast verið látnir samanvið ullarfætlinga og aðra
ullarsnepla, ásamt ónýtum prjóna og vaðmálstuskum. En þessi samtínungur
var seldur og fluttur út, til vinnslu í ullarverksmiðju. Þó mun ullarverksmíðjan
Gefjun á Akureyri hafa keypt þenna úrgang eftir að hún tók til starfa.
Vatn til að "þvætta" voðir í, sem venja var að blanda
með keytu, var hitað í ullarþvottapottinum á hlóðum í eldhúsi. Þegar
þessi lögur var orðinn snarpheitur var honum ausið í tréstamp, í honum
var voðinni þvælt fram og aftur nokkra stund. Síðan voru endar hennar
teknir og hún lögð saman tvöföld og látið síga það mesta úr henni.
Næsta verk var að vinda voðina, var hún þá borin fram í bæjardyr, þar var
endum hennar vafið utanum staur, eða járnkall, sem síðan var settur þversum
í bæjardyrnar. Í lykkjuna á voðinni var nú sett sívalt trékefli,
og með því snúið upp á hana, og lögurinn þannig undinn úr henni.
p30
Snúið var þangað
til voðin var orðin harður göndull. Við að toga í trékeflið tognaði
ögn á göndlinum, og þannig náðist það síðasta af leginum, sem hægt var
að ná úr voðinni. En talið var að betra þóf fengist ef voðin var
ekki mjög blaut. Síðustu tvo áratugina, sem heimavefnaður var stundaður,
að nokkru ráði á Svalbarðströnd, þæfði hvert heimili fyrir sig, þó sumir
hefðu fengið ofið utan heimilis. Allra síðustu árin kom það þó fyrir
að voðir, sem nota átti í spariföt, voru sendir í þóf í verksmiðjuna Gefjum
á Akureyri. Á heimilunum þæfðu karlmenn. Frá því ég man eftir
mér, 1906, var þæft í baðstofu. Þæft var undir fótum, og á gólfinu,
enda var þá komið timburgólf í allar baðstofur hér í sveit. Á síðari
hluta 19.aldar, mun víða hafa verið þæft í fjósi, á tréfleka, eða í stampi.(Votaþóf)
Sagnir heyrði ég líka um að stundum hefður tveir menn þæft, með fótum,
á milli sín í tunnuskokk. Sú aðferð við þóf, sem ég þekkti var á
þessa leið. Útbúinu var, í einu horni baðstofunnar -eða í baðstofuhúsi-
krókur, með því að borð og kommóða voru sett fyrir hornið þannig að ferhyrningur
myndaðist, var hann um 1.metri á hvern veg. Yfir borðið og kommóðuna
voru breiddar rúmábreiður, til varnar því að kuldi komist á þófinu.
p31
Í þessum krók var
vaðmálið þæft. Fyrir þann, sem þæfði gat það orðið nokkur léttir
að styðja höndunum á borðið eða kommóðuna. Á þessum árum klæddust
menn vaðmálsnærfötum, og voru þófarar venjulega í þeim einum fata við þófið.
Með 30-40 mínútna millibili var voðin tekin upp og hrist það
hægt að "kippa". Það gerðu tveir menn. Þeir tóku
sem svaraði 3 álnum af voðinni í einu, héldu í jaðra hennar, lögðu saman
hendur svo voðin varð tvöföld, kipptu síðan snöggt sundur höndunum, báðir
í senn, og kom þá oft hár smellur. Þótti það góð skemmtun, og var
reynt að hafa smellina sem hæsta. Við þetta sléttist voðin vel í
bili og þæfðist jafnara á eftir. Það var matsatriði hvenær voðin
var talin fullþæfð, en venjulega létu húsmæður smellþæfa flest eð öll vaðmál.
En svellþæfð var sú voð kölluð, sem orðin var stinn átöku. Það
þótti sjálfsagt að gefa þófara aukaleiða. "þófarleiða" oftast
lummukaffi á meðan á þófi stóð. Ekki vissi ég um greiðslur fyrir
þóf. Þegar þófi var lokið og búið að "kippa" vel og rækilega,
var voðin undin upp á fjöl 15-20 cm. breiða. Tveir unnu að því verki, annar
p32
"hélt í"
þ.e. hélt voðinni strengdri og sléttri, en hinn hafði fjölina og vatt upp
á hana. Fjölin var svo löng að góð handarbreidd var hvorumegin utan
við voðina. Við hvern hring -eða annanhvorn- var togast á um voðina
til þess að slétta hana sem best. Þegar lokið var að vinda upp voðina,
var hún sett undir farg til pressunar. Oftast var fergt með kistu,
og þá stundum látið eitthvað ofan á hana til þess að auka þungann.
Vandaðar voðir, sem ætlaðar voru í spariföt, voru stundum sendar í verksmiðju,
til litinar og lóskurðar, aðallega eftir að verksmiðjan Gefjun á Akureyri
tók til starfa.
ÞÓFARAÞULA.
Bárður minn á jökli
leggstu nú á þófið mitt.
Ég skal gefa þér
lóna innan í skóna.
Mjöl á disk, borinn
fisk.
Skeifur undir hestinn
þinn
og naglabrot í hófinu.
Og láttu nú ganga
þófið mitt.
Ýmis afbrigði voru
af þessari þulu, eða einstakar orðabreytingar, en mestur af því er ég búinn
að gleyma.
p33
Hér er svo gáta,
sem ég lærði ungur um vefinn:
"Tugginn er
ég og teygður
tekinn og gerði úr
væta.
Bundinn á burðarlétti
brugðið í ormafelur.
Stungið í stálaglóru.
Strengdur á hrygg
melrakka.
Troðinn og títt um
farinn
af troðfullum dýrabana."

Questionnaire
Record type