Ull

In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Karl (1917)
Object-related numbers
Museumnumber a: 1292 "Museumnumber b": 1966-1
Place
Staður: Kvísker, Tvísker, 785-Öræfum, Sveitarfélagið Hornafjörður, Öræfi, Ísland
Questions / Answers
Allar spurningar og svör
Nr. 1292

p1
Ull og tóvinna 3.
Fram um 1935-40 var að jafnaði ofinn einn eða fleirri vefir á flestum
heimilum hér í sveit, en meira var það þó áður, þegar bæði var ofið í nærföt,
sem farið var að prjóna á þessum tíma, og öll utanyfirföt, milliskyrtudúka
ofl., sem farið var þá að fá úr kaupstað. Mun ég reyna að
gera grein fyrir hvernig þessu var háttað hér, milli síðustu aldamóta og
1920. Tóvinna hófst þegar haustverkum lauk og stóð óslitið til sumarmála,
en það tók langan tíma að spinna allt vefjarband, og var því algengt að
ekki væri farið að vefa fyrr en með góu (seint í feb.). En eftir
það var unnið stanslaust þangað til öllum vefjum var lokið, sem oftast
var um sumarmál. Vefjarband var kallað þráður. Þó kom fyrir
að farið var með stuttan vef fyrir jólin, ef eitthvað vantaði sérstaklega,
svo sem í jólaföt handa börnum. Annars fór það algerlega eftir því
hvernig á stóð, á hverju var byrjað. Oftast voru það húsmæðurnar,
sem sáu um

p2
vefina, amk. þangað
til heimasæturnar gátu tekið við því, enda var góð kunnátta í vefnaði talin
nauðsynleg hverri húsmóður. Heimasæturnar fór því oft fljótt að læra
vefnað og munu stúlkur oft hafa farið að taka í vefnað eftir fermingu.
Dæmi veit ég til (þó ekki úr Öræfum), að stúlkur færu í aðra sveit til
að læra vefnað. Stundum önnuðust þó vinnukonur vefina, en varla nema
þær sem voru svo árum skifti í sömu vist, og dæmi voru til að húsbændur
gerðu það. Oftast var það aðeins einn í heimili, sem óf hvern vef,
og hefði hann ástæður til, sat hann við allan daginn. Góð afköst
þóttu ef ofið var á dag 10-12 álnir, en mjög gott, ef það var 16-18 álnir,
en það veit ég að ein kona óf stundum. Vitanlega voru afköstin misjöfn,
eftir því hvað ofið var. Fljótlegast var að vefa einskeftu, og þar
næst vaðmál, en vandari vefnaður var seinlegri. Ekki get ég sagt
hvað menn voru lengi með einstakar vefnaðartegundir.

p3
Hér í sveit bjargaðist
hvert heimili fyrir sig með vefnað, en einstaka fengu þó lánaðan vefstól.
Ekkert veit ég um notkun kljásteinsvefstóla hér í sveit, nema það
að Ólöf Árnadóttir í Svínafelli óf síðust manna, svo vitað sé, hér í sveit
í slíkum vefstað. Í manntali 1816 er hún talin 62 ára. Hún
varð háöldruð, en hvenær hún hætti að vefa er nú óvíst, en það hefir varla
verið langt fram yfir 1820. Sigríður Ísleifsdóttir, langömmumóðir mín mundi
Ólöfu, enda alin upp í sama heimili, og er sögn þessi frá henni komin,
þannig að hún sagði dóttur sinni, sem sagði föðursystur minni, en hún sagði
mér. Í öðru heimili við sama hlað ólst upp Guðrún Bjarnadóttir
frá Skaftafelli, og var 16 ára 1816, en ekki er ég viss um að það sé sama
konan sem skrifað var upp eftir aðferðin við að vefa í gamla vefstaðnum,
en svo var kljásteinavefstóllinn nefndur amk. oftast hér í sveit.

p4
Ekki er ég alveg
viss um að það hafi átt við vefstaðina að góður vefari gengi þingmannaleið
á hverjum degi meðan verið væri að vefa. Það gæti eins átt við þegar
rakið var á hæla. Hafaldavefstólar voru alltaf nefndir vefstólar,
en þeir útrýmdu hinum svo gersamlega, að nú mun ekkert vera hér til úr
þeim. Þó eru ekki mörg ár síðan til var hvalbeinsskeið úr slíkum
vefstað, og er hún nú hjá Andrési Valberg. Hér í sveit hafa
flest heimili bjargast fyrir sig með smíði búsáhalda, en varla hefir það
verið svo með vefstóla, amk. munu það einkum hafa verið 3 menn, sem smíðuðu
vefstóla eftir að kom að aldamótum 1900. Voru það Jón Einarsson bóndi
í Skaftafelli, Ari Hálfdánarson, hreppstjóri á Fagurhólsmýri og Björn Pálsson,
bóndi á Kvískerjum. Ekki veit ég til að smíði vefstóla væri metið
til verðs, amk. var ekki fast verð á þeim. Allir voru vefstólarnir í höfuðatriðum
af

p5
B gerð, en á þeim
seinni voru þó gerðar umbætur á skeiðarslaginu (skeiðarumbúnaðinum), þannig
að það var fest að neðan. Var þá fremri bóman ekki höfð lengri en
svo, að endar hennar komu jafnlangt út og hliðarfjalir vefstólsins, og
var hringur með tönnum hafður á henni innan við hliðina og greip stilli
úr járni í tennurnar, svo hægt væri að herða á voðinni. Innan við
hringinn var 2 eikarspýtum stungið í kross í gegnum bómuna til að geta
haft afl á henni. Skeiðarslagskjálkarnir voru járnbryddir að neðan, til
að verja þá sliti, en þeir léku á tönnum, sem oft voru sorfnar í koparlön,
þannig að hægt var að færa skeiðarslagið að sér að frá, eftir vild, en
léttara þótti að vefa þegar skeiðarslagið var fest að neðan en ofan. Aftari
bóman var fest eins og á gerð B. Skeiðar voru fengnar úr kaupstað
(nema hrosshársskeiðar, sem voru smíðaðar úr vír), og voru alltaf kallaðar
skeiðar eða vefjarskeiðar. Alltaf voru þær jafnlangar, en misþéttar og
var

p6
talað um svo og svo
margra tanna skeið. Í skyttunum var jafnan valinn viður,
og átti að vera harður, léttur og ekki kleifinn. Undir skyttunni
var hafður eir eða látúnsvír, til að þær rynnu betur um skilið, og var
ekki vandalaust að ganga rétt frá þeim. Teinninn, sem spólan var á, var
nefndur skyttuteinn, en spólurnar voru alltaf úr sauðskinni. Til
að spóla, var notaður rokkur, oftast gamall, og var hafður sérstakur teinn
í staðinn fyriri snældubú. Var hann úr sverum vír, en hjól á honum
fyrir strengina. Spanstokkur var hafður til að halda voðinni sundur.
Hann var með smátindum í endunum, til að festa í voðinni, en var
í tvennu lagi. Gekk ein spækja úr öðru stykkinu milli tveggj, sem
komu úr hinu, og voru mörg göt á öllum spækjunum og teinn í gegn, sem hægt
var að færa til eftir vild, en á spækjunni, sem á milli kom var haft tippi,
sem hægt var að snúa, til að gera stokkinn stífann, en til þess varð að
hafa spöng milli samföstu

p7
spækjanna eða að
2 tippi voru höfð á hinni. Efnið var vegið þegar lagt var upp og
reiknað út eftir vigt, og var talið hæfilegt að mörkin úr hnyklum gerði
1 3/4 alin, en þá var miðað við bandið eitt, en ekki með völunum í hnyklunum.
Ekki hef ég heyrt neitt nafn á verkinu að reikna út, hvað margir
þræðir ættu að koma í tönn í skeiðinni, en það var talið auðvelt verk þegar
búið var að reikna út í höföldin, enda veit ég ekki til að þessir útreikningar
stæðust ekki. Ég treysti mér ekki til að segja nákvæmlega
frá hvernig reiknað var út í einstök munstur, en efnið þegar í vefstólinn
var komið, var kallað uppistaða og veftur. Fram eftir síðustu
öld, held ég að almennt hafi verð rakið á hælum (vegghælum), og var það
jafnvel til fram á þessa öld. Fór það oftast fram í framhúsi og kostaði
mikla göngu. Sömu hælarnir voru notaðir ár eftir ár.

p8
En eftir að kom fram
að aldamótum, var yfirleitt rakið á rakningsgrindur, en algengt var að
menn færu með vefjarefnið af bæ til að rekja það. Rakningsgrindur
voru misstórar, og mun hæðin oftast hafa farið eftir húsinu, sem rakið
var í, því frístandandi grindur þekktust hér ekki, fyrr en Vefnaðarbókin,
leiðbeiningar Halldóru Bjarnadóttur, kom.

Rakningsgrindur þær
sem ég man eftir voru rúmlega mannhæðar háar og voru gerðar úr 2 römmum
með styrktum hornum, og var annar ramminn það stærri að hann féll utanyfir
hinn. Að ofan voru þeir festir saman með all sverum bolta og gekk
hann upp í bita í húsinu. Að neðan var grindin fest saman með þvingu,
sem smíðuð var úr 1" járni og gekk oddur niður úr henni. Hann
lék í holu í steini, sem fastur var í gólfinu. Skilhælarnir voru
festir á fjöl, sem bundin var á grindina, en ekki hef ég heyrt neitt nafn
á henni.

p9
Balbínur þekktust
hér ekki, en rakinskassar voru notaðir. Voru það aflangir kassar
með 2 eða fleirri hólfaröðum fyrir hnykla, o var ekki hafður nema einn
hnykill í hólfi. Ekki mun þó rakinskassi hafa verið til allstaðar,
þar sem rakið var, og voru þá notuð þau ílát sem hendi voru næst.
Rakningsspaði var notaður til að halda uppistöðuþráðunum í réttri
röð, og taka skil á þá. Rakningsspaðinn var úr góðum viði og mig
minnir með 4 gataröðum að endilöngu og handfangi á endanum. Ekki
er ég viss um að muna stærð spaðans, en minnir hann vera um 30 cm. fyrir
utan handfangið. Rakningsgrindur voru oftast settar upp í
bæjardyrum og rakningskona og aðstoðarmaður röktu. Aðstoðarmaðurinn
var oftast unglingur. Lengd voðarinnar var mæld með því að setja
merki á uppistöðuþráð. Til að taka snurður af þræðinum var höfð lykkja
í hverju hólfi rakinskassans, sem þráðurinn

p10
var þræddur gegnum.
Skilin voru tekin þannig að farið var með þráðinn undir annan skilhælinn,
yfir hinn og í hálfhring umhverfis hann, og svo yfir hinn hælinn. Væru
endar fleirri en einn og ekki rakið í spaða var skilið nefnt gangaskil,
en annars þráðaskil. Gangur nefndist ein þráðarumferð upp og niður,
og nefndist lagning fyrsta gagnsins að leggja á grind. Merki voru
sett við hverja 100 þræði og var notaður við það einn bandspotti, en ekki
hafði hann neitt nafn hér. Alltaf var rakið við ganginn (neðan við
eða ofan), en ekki utan á. Fullrakin nefndist uppistaðan slanga,
og var tekin af grindinni, svipað og þegar haldið var, en þó var snúið
á hverja lykkju. Alltaf var byrjað að reka á grindina að neðan. Ekki
hef ég heyrt neitt ákveðið um hvað

p11
voðin yrði styttri
en slangan. Til að útbúa höföldin, var höfð sérstök grind,
hafaldagrind, og var hún gerð úr 5 spýtum úr góðum við. Hliðarspýturnar
voru þunnar (rúmur cm.), en nokkuð breiðar (4-5 cm.), og voru festar vel
í þverstykki, gegngrópað, og var gengið á sama hátt frá efra þverstykkinu,
nema hvað grópið var haft svo rúmt, að auðvelt var að kippa því upp af.
Mitt á milli hliðarspýtanna, var sívalur tréteinn, og var hann festur
á sama hátt. Efnið í höföldin var unnið heima og var notað dregið tog.
Þráðurinn var rakinn á smá tólgarmola og síðan soðinn. Síðan
var bandið rakið á nagla sem voru hafðir með hæfilega löngu millibili,
og síðan skorið á þetta allt í einu. Hafaldagrindin var oftast höfð
á hnjánum, þegar hún var notuð, neðri þverspýtan látin liggja á hnjánum.
Þráðurinn var jafnaður á grindinni, þannig að miðja hans kom á þá
hliðarfjölina, sem nær manni var, en síðan

p12
var endunum brugðið
um miðteininn og hnýtt vel að. Oftast einir 6 hnútar og hert vel
að hverjum hnút. Hafaldsaugað var svo búið til á þann hátt að endunum
var aftur brugðið um teininn og hnýtt þar á sama hátt. Að lokum var
svo bandið hnýtt um hina hliðarspýtuna. Þegar grindin var full, var
þverspýtunni kippt af, og allt dregið af. Hér voru aldrei notuð stálhöföld,
heldur úr góðu tré. Voru hafðar vírlykkju á endunum og snúið utanum
endann, sem hafaldasnúrurnar voru festar í, og vörnuðu þær höföldunum að
fara út af sköftunum. Höföld voru geymd með ýmsum hætti, en oftast
munu þau þó hafa verið hengd upp á vel þurru lofti. Vefjarkamburinn var
bundinn framan við höföldin, stundum á skeiðarslagið, meðan lagt var í
hann, en oftar mun hann þó hafa verið bundinn þvert yfir vefstólinn eða
á hafaldauppihöldin. Vefjarkamburinn var ekki frekar úr völdum

p13
viði. Sá sem
hér var notaður var úr ljósviði og bambustindar ofan á, en heyrt hef ég
að sumsstaðar hafi verið notaðir naglar. Oftast var hafður hálfur
annar gangur milli tinda, þegar lagt ver í kambinn. Plógskaftið var sett
í endann á slöngunni og bundið við aftari bóluna með 3 böndum. Plógskaftið
var amk. stundum járnteinn. Við enda hans var skilþráðurinn festur,
en hann var dreginn gegnum fremra gangaskilið. Yfirleitt
var verkið að koma vefnum í vefstólinn í heild kallað að festa upp vefinn.
En líka var sagt, að setja upp og stundum jafnvel að setja til vef.
Hér þekktist ekki nafnið slöngurifur. Það var alltaf talað
um aftari bómuna. Hún var úr tré, oftast um 12 cm. sver og lægð tekin
eftir henni endilangri, sem plógskaftið var látið falla í. Lausir
trékragar voru hafðir sitt hvoru megin

p14
á bómunni, og gerðu
þeir hvorttveggja, að halda plógskaftinu, og halda slöngunni. Stundum
var naglapinnum stungið í bómuna utan við kragana, til að stöðva þá. Á
enda bómunnar, hægra megin þegar setið var í vefstólnum, voru festir 4
armar til að snúa henni með, en undir þeim var höfð járngjörð, og var hún
nokkru sverari en bóman. Í gegnum göt, sem voru á þessari gjörð með
ca. 2" millibili, voru reknir sverir naglar, eða því um líkir teinar,
en á hlið vefstólsins var ca. 12" löng spýta með járnlykkju í endanum,
sem féll á þessa pinna, og var það til að stöðva bómuna, en spýtan var
höfð það löng, að til hennar næðist úr sætinu þegar þurfti að slaka á bómunni.
Þegar slangan var bómuð urðu 3 að hjálpast að. Einn að snúa
bómunni, annar að jafna slönguna á hana og þriðji að halda við slönguna.
Reynt var að rekja sem jafnast á bómuna og voru kragarnir látnir
halda að þræðinum sitt hvoru megin.

p15
Þegar búið var að
bóma voru grönn sköft (skilsköft) sett í skilin, og endar þeirra tengdir
saman með bandi, en hafðar ca. 2-3" á milli þeirra. Þegar
dregið var í höföldin, voru hafaldasköftin bundin saman á 2 stöðum til
að halda þeim stöðugum. Oftast rétti unglingur endann, en sú sem
annaðist uppsetninguna taldi í höföldin og tók á móti. Við hverja
100 enda var hnýtt framan við höföldin, svo ekki drægist úr og ólagaðist.
Einnig unnu 2 að því að draga í skeiðina, og var til þess notuð krækja,
sem oftast var klippt út úr girði eða öðru þunnu járni. Oftast mun
skeiðin hafa verið bundin ofan á skeiðarslagið meðan dregið var í hana.
Við fremri bómuna var bundinn járnteinn, og voru höfð í honum 3 snæri (vefstólasnæri),
svo löng að teinninn kom rétt að skeiðinni. Var tekinn jafn feti
af efra og neðra skili

p16
og hnýtt um teininn,
og var það kallað að hnýta fram. Þegar búið var að hnýta fram, var
tilbúið að vefa eða að fara að draga fyrir. Þurfti þá að gefa mátulega,
og var það gert með því að láta bandið mynda mátulega mikinn boga. Vefturinn
var svo sleginn að með því að kippa að sér skeiðarslaginu tvisvar til þrisvar.
Þegar búið var að vefa lítið eitt, var álnar langur spotti dreginn gegnum
voðina, og var hann færður í hvort skifti sem búið var að vefa jafnt honum.
Þegar búið var að vefa lítið eitt var spanstokkurinn settur í og
síðan færður eftir þörfum. Fljótlega þurfti að færa á. Var
þá losað skilið á aftari bómunni, og undið upp á hina og var talað um að
búið væri að vefa eina eða fleirri áfærur. Þegar búið var að vefa
var vefurinn felldur, þ.e. afvikur klipptar af, og vefurinn undinn ofan
af bómunni.

p17
Afvikur voru notaðar
í allt sem henta þótti. Þegar búið var að fella vefinn, var voðin
undin upp úr heitu vatni, þ.e. hún var látin í bala með vel heitu vatni
og bleytt vel og var það oft gert í bæjardyrum. Síðan var endanum brugðið
um sterkan staf og endanum snúið nokkrum sinnum um voðina. Svo var
farið með stafinn hæfilega langt frá dyrunum, en annar stafur hafður þar
og voðinni brugðið um hann, og síðan um stafina á víxl, þangað til búið
var að rekja alla voðina á þá. Stafinn, sem í dyrunum var, settu
menn þversum í dyrnar, en hinum var snúið á endum og togað í voðina um
leið. Þegar búið var að snúa eins og hægt var, var strokið um voðina
með lófunum. Að því búnu var voðin tekin saman og lögð á hreinan
hlera, sem hafður var á baðstofugólfi. Oftast mun húsbóndi hafa þæft,
en þó veit ég um einn mann, sem

p18
þæfði fyrir mörg
heimili. Alltaf var þæft undir fótum, og voru menn oftast á nærklæðum
við það verk.

Þegar búið var að
þæfa voðina nokkuð, var hún teygð. Tóku þá 2 menn hana á milli sín,
tóku í jaðrana og toguðu þannig ca. faðms bút á milli sín og gekk það svo
koll af kolli, þar til voðin var búin. Hvað mikið voðin var þæfð
fór eftir því í hvað hún var ætluð, og var matsatriði í hvert skifti. Að
sjálfsögðu könnuðust menn við þuluna um Bárð í jökli, en ekki veit ég til
að hún væri nokkurn tíma kveðin við þóf. Ekki veit ég neitt um hvernig
greitt var fyrir þóf. Þegar búið var að þæfa, var voðin undin upp
á fjöl, oftast rúmfjöl og látin liggja undir fargi nokkra daga til að pressa
hana. Síðan var hún lituð, ef þurfa þótti.

p19
Rétt er að taka fram,
að hér var aldrei undið upp úr keytu þegar þæft var, en voðir munu stundum
hafa verið þvegnar upp úr keytu áður, en alltaf skolaðar vandlega úr vatni
á eftir. Nokkrar eftirhreytur: Unglingar lærðu að vefa
með því að ljúka við vefi, endinn varð oftast verri en aðalvoðin, hvort
sem var. Hér í sveit var ofið auk einskeftu og vaðmáls, hringavefnaður,
nankinsvend. Sá vefnaður barst hingað frá Jóni Hálfdánarsyni í Flatey
á Mýrum, eftir aldamót. Einnig voru ofnar ábreiður og teppi, en sjaldan
og mun lítið hafa verið gert að því eftir aldamót. En til var hér
í sveit, og held ég að víst sé, að það hafi verið heimaunnið, glitofnar
ábreiður, salon, brekán og vel má vera að fleirri tegundir hafi verið til.
Etv. hef ég tekið of djúpt í árinni, að segja að Ólöf Árnadóttir
hafi síðust manna ofið í gamla vefstaðnum hér í sveit, en víst er að

p20
hún óf síðust á innbæjum
í slíkum vefstól. Ég hef engar heimildir um hvenær síðast var ofið
í vefstaðnum, sem til var á Hnappavöllum, en hann var sendur á Forngripasafnið
og ætla ég það hafi verið gert allöngu fyrir síðustu aldamót. Eflaust
eru einhver gögn um þetta í Þjóðminjasafninu, og er líklegt að í þeim sé
getið hvenær hann var síðast notaður. Eins og áður er sagt,
var gerð vefstóla hér líkust þeirri sem merkt er B á myndablaðinu. Þó
var sætið öðruvísi. Það var aðeins breið 1 1/4" fjöl, sem fest
var með alllöngum (6-7") krókum í uppstandarana sitt hvoru meginn.
Til að halda uppi höföldunum voru uppstandarar festir hvor á sína
hlið vefstólsins, og var hvor um sig festur við hliðarfjalirnar með 2 skrúfnöglum,
en grópaðir í að neðan. Stundum var slá yfir þessar fjalir
til styrktar, en efst á milli þeirra, undir þverslánni, voru völtrusköftin
sem hafaldasnúrurnar

p21
léku á. Það
voru sívöl sköft, tæpar 2" í þvermál með skorum nærri endunum fyrir
hafaldasnúruna, en í hvorum enda var teinn, sem gekk í gegnum gat í uppstöndurunum.
Einnig var hann öðruvísi að því leyti, að skammelin voru fest að
framan (sætismegin). Ekki vil ég fullyrða að gerð A hafi ekki þekkst
hér um slóðir, en ég hef ekki séð hana.

Sigurður Björnsson
sagði mér, er hann skilaði skránni að til hefði verið svonefnt bringuþóf,
sem var haft er þæfa átti fína hluti vel og mjúklega. Veltu menn þá þófinu
undir bringu sér á borði. Sigurður kveðst ekki hafa séð þetta, heldur
aðeins heyrt sagt frá því. Hann gleymdi að setja þetta með á skrána.
Þ.M.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Ull
Keyword:
Tóvinna

Place of origin

63°58'40.7"N 16°26'10.4"W