Ull

01.01.1915 - 01.01.1930
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (1909)
Dating
period: 01.01.1915 - 01.01.1930
Object-related numbers
Museumnumber a: 8030 "Museumnumber b": 1966-1
Place
Staður: Kringla, 371-Búðardal, Dalabyggð, Miðdalir, Ísland
Questions / Answers
Allar spurningar og svör
Nr. 8030

p1
Ull og tóvinna 3. Vefnaður: Vefstóllinn
var aldrei settur inn í baðstofu fyrr en á góu eða í byrjun einmánaðar.
Það var ekki búið að spinna og vinna ullina fyrr en þá. Það
var ekki byrjað að vefa fyrr en allt var tilbúið, því eftir að vefnaður
byrjaði var ekki hugsað um annað. Öll sængurver og skyrtur
voru ofin úr tvisti. Lökin voru úr ullarbandi. Sængurnar voru
harðari. Það var alveg furða hvað fljótlegt var að vefa. það var
misjafnt eftir bæjum hver óf. Það var ekki vinnufólk heima, þannig
að mamma óf mest allt. Pabbi óf stundum þegar hann hafði tíma. Það
var ofið á milli mála. Frá því morgunverkin voru búin, og þar til
orðið var dimmt. Þegar við systkinin vorum orðin dálítið stálpuð,
fórum við að geta farið í fjósið ein og þá gat mamma byrjað fyrr að vefa.
Og eldri systir mín gat séð um eldhúsverkin. Einn eldri bróðir
minn lærði að vefa þegar hann var kominn yfir fermingu, og greip í það
líka.

Vinnukona á næsta bæ, Svalbarða,
kom stundum og óf fyrir mömmu. Hún fékk kaup fyrir, sem gekk til
húsbónda hennar. Ég man að hún óf óskaplega fallega dúka. Það
voru ekki fleirri sem komu til okkar til að vefa, en það getur verið að
það hafi komið fólk á hina bæina till þeirra hluta.

p2
Vefstóll: Það var alltaf
talað um vefstól. Kljásteinavefstól hef ég ekki heyrt talað um. Ég
veit ekki hver smíðaði vefstólinn heima.

Vefstóllinn heima hjá okkur var
eins og sést á mynd B. Tvíbreiða vefstóla eða hraðskyttuvefstóla
hef ég ekki heyrt talað um. Það var vefstóll til á næsta bæ og á
flestum öðrum bæjum. Þó ekki öllum. Það kom aldrei fólk að
vefa hjá okkur, né heldur lánuðum við stólinn. Það var óskaplega
milil smíði á vefstólnum og mikill viður sem fór í þá.

Skeið: Ég veit ekki hvort
vefjarskeiðar voru heimasmíðaðar. Þær voru úr einhverjum málmi. Ábyggilega
voru þær miðaðar við einhverja ákveðna lengd. Það voru rimlar á þeim,
þar sem maður setti bandið í gegn. Vefskytta: Skytturnar
voru úr tré. Spóluteinninn var ekki kallaður neitt annað. Spólurnar
voru úr járni. Spólurnar voru settar á skyttuna. Spólurokkur:
Það var alltaf spólað á spólur við vefnað. Spólurnar voru bara
járnhólkar. Ég sá aldrei gamla rokka notaða til að spóla á fyrir
vefnað. Spanstokkur: Hann er til þess að vefurinn dragist
ekki saman. Það var svona spýta um þumlungs breið, með oddi á endanum,
og hún var sett á dúkinn, svo að hann drægist ekki saman og væri alltaf
jafnbreiður. Á endanum á fjölinni voru fínir gaddar, aðeins sverari
en títuprjónar og var þaim stungið í jaðarinn.

p3
Að leggja upp: Það var töluvert
verk að leggja upp í voð. Ég man að pabbi var oft að hjálpa mömmu
við að reikna það út. Það var kallað að reikna út. Það var
farið eftir því hvað voðin átti að vera löng og breið. Það var giskað
á hvað mikið væri í hverjum hnykli. Það var ekki svo erfitt að sjá
það. Fólk var svo vant að sjá það. Að reikna í skeið
og vef: Að reikna í skeið er að ákveða fjölda uppistöðuþráða í breidd
voðar. Verkið við að reikna út efnismagn í uppistöðu og ívaf voðar,
og þá um leið munstur, var kallað að reikna út í vef. Það var alveg
ákveðið hvernig litirnir voru lagðir á milli. Mamma talaði um uppistöðu
og ívaf. Rakningsgrind: Það var engin rakningsgrind
til heima. Hún var fengin lánuð á næsta bæ. Hún var um mannhæðar
há og bundin upp í baðstofuna. Við vorum alltaf 2 krakkar sendir eftir
henni. Sá sem gekk á undan, fór inní hana og hélt á henni þannig.
Hún var ekki mjög þung. Samt urðu alltaf 2 að aækja hana. Hælar
voru utan á grindinni, sem var sett á. Það var ekkert mál að fá rakningsgrindina.
Við pöntuðum hana bara, og svo gerðum við þetta á einum degi.
Balbínur: Ég man ekki eftir balbínum eða balbínustólum.
Rakningsspaði og rakningsstokkur: Ég man ekki eftir neinum
rakningsspaða eða rakningsstokk.

p4
Rakning á rakningsgrind: Þegar
við settum í uppistöðuna á rakningsgrindina vorum við með allt í hnyklum.
Það var mikið verk að gera þetta. Hver hnykill varð að vera
í séríláti til að ekki færi allt í flækju. Það voru vaskaföt og öll
önnur ílát útum allt gólf. Svo þegar einn hnykill var búinn, varð
að binda annan við. Mamma mældi lengd voðarinnar. Hún setti
merki á þráðinn og mældi út frá þráðafjölda í hafaldi. Það var alltaf
sett eins í hafaldið. Það var enginn rakningsspaði notaður heldur
voru puttarnir notaðir. Hafaldagrind: Hún var ekki
til heima hjá mér, en ég heyrði talað um hana. Hún var líka fengin
lánuð af næstu bæjum. Það var mjó spýta til að rekja á hafaldagrindina,
einna líkust skeið. Hafaldaefni og höföld. Höföld voru
úr togi. Það varð að vera slétt og jafnt. Ég hef ekki heyrt
talað um að það væri soðið upp úr tólg til að mykja það. Það var
mikil kúnst að hnýta á höföldin hafaldahnút. Ég gerði það aldrei.
Ég man ekki eftir hvað bandið hét sem varnaði höföldunum að dragast
út af sköftunum. Vefjarkambur: Það má vera að skeiðin
hafi líka verið kölluð vefjarkambur.

p5
Að festa upp: Það var kallað
að setja upp, þegar verið var að vinda slönguna upp á slöngurifin.
Að bóma vef: Það var kallað að bóma, þegar verið var að vefja
upp bandið. Bandið sjálft var kallað slanga. Það gat verið
óskaplega langt. Það var ekki hægt að bóma vef einn. Það varð að
passa vel að bandið dreifðist alveg jafnt um bómuna. Það hlýtur að
hafa verið eitthvað sérstakt áhald til að gera þetta, en ég man ekki eftir
því. Að draga í höföld: Hafaldasköftin voru bundin
föst á meðan verið var að draga í höföldin. Það var setið við þða.
Konan sem dró í höföldin, sag á bekk og svo var annar hinum megin
og rétti einn og einn þráð til hennar. Ég man ekki hvernig gengið var frá
þráðarendum, enda sá ég það ekki því ég var aldrei þeim megin. Ég
bara rétti mömmu þráðinn, og vissi ekkert hvað hún var að gera hinum megin.
Að draga í skeið. Það var notaður krókur til að draga
í skeiðina. Að draga fyrir: Það var kallað að draga
fyrir, þegar farið var að skjóta skyttunni um skilið og byrjað á voðinni.
Einnig var talað um að gefa í. Spanstokkur var áhald, sem sett
var á vefinn til að halda honum jafnbreiðum. Ef vefurinn mjókkaði
var sagt að hann væfist inn. Voðin var mæld af og til með tommustokk
eða rauðmáluðum álnakvarða, sem mamma átti. Sá kvarði var ein alin á legnd.
Á honum handfang og hann var mjög gamall. Ef þráðurinn slitnaði
í vef var strax bætt í. Það var aldrei neitt talað um

p6
trú og hjátrú heima hjá mér, en
ég er viss um að þar sem var margt vinnufólk, þar var mikið rætt um svona.
Þar sem er fleirra fólk er meira talað. Að fella vef:
Vefurinn var felldur þegar voðin var orðin nógu löng. Þráðarendarnir
sem gengu af voru kallaðir afvikur. Þeir voru til ýmissa hluta nytsamlegir,
t.d. til að sauma með. Þóf: Það var all þæft með fótunum.
Sett á gólfið og stigið á því. Það var þvegið gólfið mörgum
sinnum, svo það væri örugglega táhreint. Svo var voðin þvegin úr
volgu vatni á hlóðunum, látið leka úr því í meis uppi á pottinum. Áður
en eldavélin kom var notað gólfið í húsinu, og þegar vel var lekið úr voðinni
var farið með hana þangað, sett á gólfið og gengið á henni. Eftir
að eldavélin kom, var sett kommóða framan við á gólfið í baðstofunni, og
þeir sem gengu á þessu gátu stutt sig við hana.

Það var alltaf þeir sömu sem þæfðu.
Maður úr næstu sveit, kom oftast il að þæfa með pabba. Þá höfðu
hann og pabbi vinnuskifti. Pabbi fór um vorið til að smíða hjá honum
í staðinn. Það hlýtur að hafa verið erfitt verk að þæfa, því þó þeir
væru á nærbrókunum og skyrtunni við það, voru þeir alltaf kófsveittir.
Svo varð að taka voðina öðru hvoru og hrista hana og teygja, til
að hún þófnaði jafnt. Mamma réði því alveg hvenær hætt var að þæfa.
Á meðan þæft var, fengu karlarnir kökubita, sem var alltaf
kölluð þófarakaka. Það var ekki alltaf sama kakan, en oft flatkaka
eða eitthvað sem til var. Allt prjónadót var þæft í höndunum, jafnóðum
og það varð til. Þegar búið var að þæfa var voðunum komið fyrir í
rúmunu, og svo var legið og sofið á þeim. Lóin var aldrei skorin
af. Það var ekki fyrr en á síðustu árum, sem ég heyrði talað um það.
Voðin var miklu mýkri, ef lóin var á.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Ull
Keyword:
Tóvinna

Place of origin

65°1'39.3"N 21°37'36.1"W