Tóvinna

In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (1918)
Object-related numbers
Museumnumber a: 6908 "Museumnumber b": 1966-1
Questions / Answers
Allar spurningar og svör
Nr. 6908 p1 Ull og tóvinna 3:   Vefnaður hófst vanalega í byrjun þorra.  Framan af vetri var unnið í vefinn, kembt og spunnið.  Reynt var að ljúka vefnaði fyrir páska.  Oftast var byrjað á tvisti í tvist.  Þá var bæði uppistaða og fyrirvaf tvistur, og var hann notaður í millipils, kjóla, skyrtur ofl.  Síðan voru vaðmálin ofin.  Þau voru höfð t.d. í buxur, úlpur ofl.  Síðast var ofið í ábreiður.  Það kunnu ekki allir að vefa.  Oftast 1-2 menn á bæ.  Oft var talað um góða og duglega vefara, fóru þeir stundum á aðra bæi til að vefa eða tóku vefnað heim.  Það var yfirleitt ofið milli mála, sem kallað var, nema ofið var á öðrum bæjum, þá var ofið allan daginn.  Það þótti góð afköst að vefa 6-7 álnir á dag.  Það þótti góð borgun að fá 0.25 kr. á 1 alin.  Líka voru verkaskifti algeng.  Börn og unglingar hjálpuðu oft til, réttu í höföld og skeið og einnig við að spóla.     Yfirleitt var talað um vefstól.  Þó var stundum talað um vefstað, t.d. ef þröng var í baðstpfu.  Kljásteinsvefstað þekki ég ekki, aðeins heyrt hans getið.  Vefstólar voru ekki til á hverjum bæ.  Í Haukadal voru aðeins 4-5 til.   p2 Vefjarskeiðar voru ekki heimasmíðaðar.  Þær voru að svipaðri lengd. Það var talað um 80 tanna skeið, einnig 90, 100 og 120 tanna skeið. Spólurnar voru bæði úr tré og járni, stundum úr kindaleggjum og spólan látin í skyttuna á spóluteininn.     Áhaldið sem spólað var á nefndist spólurokkur, stundum voru notaðir gamlir rokkar, og þá var notaður spóluteinn.     Áhaldið sem haft var til að halda út jöðrum á voð, var kallað spjálk. Það var spýta með nöglum til endanna, og mátti bæði lengja hana og stytta eftir því sem voðin var breið.     Ég heyrði talað um að setja til vef, sömuleiðis heyrði ég talað um fimm lóða verk, og einnig tveggja lóða verk.     Það var talað um að reikna út í höföld, og einnig í skeið.  Kann ég ekki að lýsa því nánar.  Ef útreikningur stóðst ekki var voðin varplítil, eða þá væri of mikið varp.   p3 Það voru ekki allstaðar til rakgrindur, þó vefstóll væri til.  Þá var fengið að rekja á þeim bæjum, sem þær voru til á.     Ég treysti mér ekki til að lýsa balbínustól, þó hann væri til á Skarði í Haukadal, þar sem ég ólst upp.  Það var kallað að balbína.  Fengu krakkar helst ekki að koma þar nálægt, sömuleiðis þegar var verið að rekja.   Fullrakin uppistaða á grind nefndist slanga.     Efni í höföldin voru unnin heima.  Það var álitið vandasamt verk, því þráðurinn þurfti að vera seigur.  Var hann gufuseyddur.  Þegar reka mátti bandprjón í gegnum hnykilinn, var hann orðinn fullseyddur.  Þá voru hnyklarnir teknir og ..... þar til þeir voru orðnir kaldir.     Að draga í höföld unnu oftast 2 við, annar rétti en hinn dró í.     Þófið fór vanalega þannig fram, að þæft var undir fótunum í baðstofunni, og voðin stoppuð af.  Oft var voðin hrist upp,sem kallað var, svo ekki kæmu brigður í hana.  Síðan vafinn upp á fjöl og látin þorna þannig. Einnig heyrði ég talað um að þæft væri í tunnu.  Þá var tvennt við það. Þótti það vont verk.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Tóvinna
Keyword:
Ull