Tóvinna

In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Karl (1897)
Object-related numbers
Museumnumber a: 1303 "Museumnumber b": 1966-1
Questions / Answers
Allar spurningar og svör
Nr. 1303

p1
Ull og tóvinna 3.
Ekki er ég nógu kunnugur hér í sveitinni, meira að segja, til að
geta greint frá því með fullri vissu hvenær venja var að byrja vefnað að
hausti, eða öllu heldur fyrripart vetrar, því fyrir veturnætur hygg ég
hafi verið mjög óvenjulegt, að vefur væri upp settur. Heyannir stóðu
tíðast fram að réttum og stundum lengur, og svo kom sláturtíðin. Þar
sem var fjöldi vinnukvenna, má þó vera að ullarvinna hafi byrjað strax
að heyönnum loknum. Ég heyrði talað um gamla konu, sem sennilega
hefir verið uppi um og eftir miðja 19. öld, og var sagt, að hún hefði hagað
sláturgerð þannig, að vinnukonurnar voru með henni í starfi til hádegis,
en þá gaf hún þeim kaffi og sláturbita, og svo fóru þær til baðstofu í
tóvinnuna. Þessi kona hefir sjálfsagt getað látið vinna þráð í voðarstúf
fyrir veturnætur. Ég held, að það hafi verið mjög ótítt að
hægt væri að fella voð fyrir jól, ef hún komst upp fyrir hátíðarnar, enda
var ekki eins mikil áhersla lögð á að gera voð ekki jólafeita, eins og
prjónlesið, en það mátti helst

p2
ekki vera prjónn
í lykkjum yfir jólin, því þá varð flíkin, það sem kallað var jólafeit,
og það mátti engan veginn. Ekki heyrði ég þó talað um viðurlög.
Það þótti æskilegast að þurfa ekki að sinna vefnaði eftir að voryrkjur
hófust fyrir og um Krossmessu eða jafnvel sumarmál, og fór það eftir veðri.
En ósjaldan held ég þó, að vefur hafi staðið uppi nokkuð langt fram
á vorið, amk. eftir að ég man til. Ekki er ég nógu fróður
um það hver voðin var látin ganga fyrir, ef tvær eða fleirri voru upp settar
yfir veturinn, en líklegt þætti mér, að óvandaðri voðinni hafi verið lokið
fyrst, bæði af því, að venjulegast hefir verið nauðsynlegra að koma af
því efninu til heimilsbrúks, og svo var fljótlegra að gimbra upp óvandaðri
þræðinum, heldur en fíngerðara voðarefninu. Þar sem mest
var ofið, eftir að ég man til, var vefnaðurinn aðallega starf húsfreyjanna,
en fleirri gripu þó í það, bæði konur og karlar. Á 2 heimilum hér
í nágrenninu ófu húsbændurnir aðallega. Hér heima óf t.d. elsti bróðir
minn auk mömmu. Ég man ekki eftir nema einu heimili, þar sem vinnukona
var aðal vefarinn.

p3
Af þessu leiddi,
að vefarinn sat yfirleitt ekki við allan vökutímann, því á honum lágu önnur
störf líka. En ég heyrði sagnir um það, að þegar þeir voru ungir,
sem aldnir voru í minni æsku, hafi vinnumaður eða vinnukona setið við vefnað
dögum saman, alveg tafarlaust. Afköst held ég að hafi farið
æði mikið eftir vefnaðargerðinni. Einskefta held ég, að hafi verið talin
fljótofnust, og því mest venjuleg einlit vaðmálsvend. Veipa þótti
t.d. seinofin, því ívafið var af 2 litum, og allmikill setningur við vefnaðinn.
Þetta fór líka mjög eftir fínleik voðarinnar. Smærra fyrirvafið
var skiljanlega seinlegt í vefnaði. Það var mjög seinlegt að vefa
tvist í tvist, sem kallað var, sem sé að bæði uppistaða og fyrirvaf væri
tvistur. En mig minnir, að það hafi þótt úrvalsafköst að vefa tíu
álnir á dag, og þó því aðeins hægt, að voðin væri ekki samofin.
Gamall karl sagði mér eitt sinn, að þá hefði hann skilað mestu dagsverki
á ævi sinni, er hann óf 5 álnir af vaðmáli og risti ofan af 50 ferföðmum
af túnþýfi. Af þessu má ráða, að það |p4 hafi þótt sæmilegt
dagsverk að vefa 5 álnir. Því mér er vel kunnugt um að 50 ferfaðma
ofanafrista var ekki mjög lélegt dagsverk, ef þýfið var erfitt. Úrtökumenn
ristu ofanaf allt að 100 ferföðmum. Á hvaða aldri börn byrjuðu
að vefa veit ég, því miður ekki neitt. Ég man eftir einni konu, sem
sagt var að hefði byrjað að vefa nýfermd. Ég man ekki til
að hafa heyrt getið um neinn, hvorki karl eða konu, sem fór milli bæja
og óf, en það mun hafa borið við, að þeir, sem áttu vefstól og höfðu tíma,
tóku vefnað heim til sín. Eitthvað heyrði ég talað um greiðslu fyrir
vefnað, en man ekki neitt því viðvíkjandi, sem á er byggjandi.
Í bernsku minni, héld ég að venjulegra hafi verið að tala um vefstað, en
vefstóll hefir orðið fólki munntamara síðustu áratugina og nú býst ég við
að þeir, sem annars þekkja til þess verkfæris segi vefstóll.
Í bernsku heyrði ég talað um kljásteinavefstaðinn, og einnig lýst vefnaði
í honum, og ég held að föður

p5
mínum og móður (hann
fæddur 1835, hún 1850) hafi verið kunnug alla aðferð við það starf. Ekki
er ég samt viss um, að þau hafi séð ofið, en tel líklegra, að þau hafi
haft þekkingu sína af frásögn. Veit ég því ekkert hvenær notkun hans
lagðist niður. Ekki veit ég til að neinir hlutar úr kljásteinavefstað hafi
verið til hér í námunda, fram yfir aldamót t.d. Ég minnist þess,
að það var talið mikið labb við að vefa í kljásteinavefstað. Ég held
jafnvel, að það hafi orðið að ganga þingmannaleið til að vefa alinina.
Um smíði vefstóla veit ég mjög lítið, en sjálfsagt hafa margir
smiðir smíðað hann, ef með þurfti. Einn bóndi í Staðarsveit, hér
á Snæfellsnesi vissi ég til að smíðaði vefstóla. Jón Sigurðsson,
Hofgörðum. Hann smíðaði líka hraðskyttuvefstól, en hann sá ég aldrei,
og get því ekki lýst honum. Um gangverð veit ég ekkert.
Ég vissi til að 2 gerðir vorutil af vefstólum hér í sveit, og skifti þar
gerðum staðsetning slöngu, rifsins, ýmist var hann uppá sem kallað var,
sem sé mikið hærri en voðarrifurinn, eða eins og á mynd A

p6
eða að rifirnir voru
jafnhátt eða öllu heldur lágt, eins og á mynd B. Tvíbreiðir vefstólar
voru ekki til hér í sveit, eftir að ég man til, en ég heyrði talað um þá.
Ég held að vefstóll hafi verið til á velflestum heimilum hér í sveit
fyrir um og rétt eftir aldamótin síðustu. Ekki held ég, að þau heimili,
em vefstólslaus voru hafi fengið vefstól lánaðann að neinu ráði, því hann
var vandfluttur, heldur hafi þau fengið ofið hjá nágrönnunum. Eins minnir
mig, að væri vefari til, karl eða kona, á vefstólslausu heimilunum, sem
hafði tíma til, þá dveldi hann á nágrannaheimili, sem vefstól átti, á meðan
hann óf voðina. Ég er alveg frámunalega ófróður um heiti
hinna einstöku hluta vefstólsins. Sjálfsagt hefi ég heyrt einhver
nöfn á þeim, en gleymskan riðið húsum í hausnum á mér. A-gerðin var
til hér heima, einkum hvað snerti slöngurifinn, en slagborðið var hengt
upp, en lék ekki á ramböldum að neðan. Var járnþynna grópuð ofan
í kjálka vefstólsgrindarinnar. Stóð hún svo sem þumlung uppúr, og
voru söguð

p7
í hana hök, líkt
og markið stig á kindareyra og slagborðið hengt þar á. Vefjarskeiðin
var yfirleitt kölluð því nafni, en líka bara skeið. "Hart í
vefstól lamdi skeið", stendur í vísunni. Ég sá aldrei heimasmíðaða
skeið, og held að þær hafi verið fátíðar. Eitthvað rámar mig í að
hafa heyrt talað um hvalskíði í sambandi við vefjarskeiðar, en ekki harðvið,
en aftur eir og látún, einkum látun. Ég held að látúnskeiðar hafi
þótt sérstaklega góðar. Hér heima voru til 2 skeiðar, sem ég man
eftir, og ég held báðar 5 kvartel, önnur 60 tanna, en hin 80, miðað við
tannafjölda á kvartel. Vefskyttur, vefjarskyttur eða skyttur
þurftu að vera úr sérstaklega góðu efni, tekki eða öðrum trjávið, sem var
vel fágunnarhæfur, svo hvergi væri á arða né þurða. Á sumar skyttur
voru festar látúnsþynnur að ofan og neðan, þar sem þær voru þykkastar,
og einnig beygt fyrir báða endana. Ég man nú ekki eftir öðru nafni
en spóluteinn. Spólurnar voru nú af mörgum gerðum. Renndar
og tálgaðar úr tré, járnþynnur beygðar í pípu, og tölur festar á endana
úr tré, beini eða horni,

p8
en um roð heyrði
ég aldrei getið. Áhaldið, sem spólað var á hét spólurokkur,
annað nafn hefi ég ekki heyrt, og var hann smíðaður sérstklega til þeirra
nota. Hann var þannig smíðaður, að tekinn var fjöl 8-10 þuml. breið
og 1-1 1/2 þuml. þykk, söguð skörpustu hornin af öðrum endanum. Þá
voru teknir 2 fjalarbútar um 3ja þuml. breiðir og 7-8 þuml. langir, þykkt
eftir ástæðum eða um þumlungs þykkir. Þessir bútar voru grópaðir
gegnum fjölina þeim megin,sem hornin voru söguð af. Það er að segja
endarnir voru grópaðir í gegn, og stóðu þeir þá um það bil 6 þuml. upp
af fjölinni. Millibilið milli þessarra búta var haft svo sem 1 1/2
þuml. Milli þessarra uppstandara var svo stærra hjólið látið snúast
með venjulegum útbúnaði til þeirra hluta, sem sé ás í gegn og á hann fest
sveif til að snúa með. Hjólið hefir sennilega verið nálega 10 þuml.
í þvermál. Á hinum endanum var svipaður útbúnaður, en uppstandararnir
voru miklu lægri, og hjólið stórum minna í þvermál, eða 3-4 þuml. Í
miðju þessa hjóls var festur spóluteinninn,

p9
en upp á hann var
spólunum rennt. Í hjólarendurnar var grópuð lægð, og lék þar í snúra,
sem snéri litla hjólinu, þegar hinu stóra var snúið með sveifinni, og snérist
það litla miklu hraðar. Jú, gamlir rokkar voru sumsstaðar
notaðir, og ég er ekki viss um að það hafi alltaf verið settur í þá sérstakur
spóluteinn. Annars var ævinlega notaður spólurokkur hér heima.
Áhaldið sem hélt voðinni jafnbreiðri var kallað spjálk. Spanstokk
kannast ég ekki við. Ég er klaufi að teikna, en skal reyna að lýsa
áhaldinu. Teknir voru 2 rimlar eða fjalarbútar, 2-3 þuml. á breidd,
þó líklega aldrei fullir 3, og innan við þuml. þykkir. Þessar fjalir
voru heflaðar og fágaðar, og svo var söguð klauf upp í annan enda annars
bútsins, sem að breidd nam ríflega þriðjung allrar breiddar fjalarinnar.
Á enda hins bútsins var söguð hök á jaðrana, en miðjan látin halda sér
svo breið að hún fyllti útí klaufina á hinni fjölinni. Þegar svo
bút þessum var rennt inní klaufina, gæti ég trúað að samsetningin hafi
numið 1/3 af allri lengd spjálkarinnar.

p10
Þegar spjálkin hafði
verið sett svona saman, voru boruð göt gegnum allt saman, frá jaðri til
jaðars, svo mörg sem þurfa þótti. Tappar voru smíðaðir í götin, og
þegar svo þurfti að þenja voðina, voru tappar færðir til í götunum, þannig
að spjálkin lengdist. Var þá spjálkinni lyft svolítið upp um miðjuna
og tappi látinn þannig í götin að samskeytin gengu í sundur, eftir því
sem mátulegt var talið, og spjálkinni svo þrýst niður og tappa stungið
í annað gat, svo hún gæfi ekki eftir aftur. Líka var notaður hólkur
í þessu skyni, að sjálfögðu aflangur eins og lögun spjálkarinnar heimtaði.
Um uppsetningu vefs, bæði aðferð og orð, er ég því miður,
alltof ófróður. Bæði hefir gleymskan farið fjandalega með mig, og
svo þekkti ég þetta aldrei nógu vel. Hér er heldur til einskis að
leita um fróðleik. Allar vefjarkonur úr heimi horfnar. Ég man vel
eftir orðunum "að leggja upp". Konurnar sögðu sín á milli:
Það er ekki hægt að leggja meira upp úr þessu, en þetta sem þær tiltóku.
Mig minnir endilega, að hér heima segði hesputréð um lengd þráðar,
þannig að taldir væru þræðirnir í hespunni eða snúningar hesputrésins,


p11
þegar hespað var.
Ég kannast vel við orðatiltækin "fimm lóða verk"
og "tveggja álna þráður". Sennilega myndi ég kannast við
miklu fleirri, ef ég væri á það minntur, en ég get ómögulega rifjað neitt
upp. Að sjálfsögðu fór það eftir smæð þráðar eða gildleika,
hve mikið var hægt að leggja upp úr mörkinni, en 2-3 álnir munu hafa verið
talað um. Annars helg ég, að mamma, sem er eina konan, er ég sá setja upp
vef, hafi lítið átt við mælingar eða viktun, heldur séð þetta nokkurnveginn
í hendi sér. Ég gleymdi að geta þess í sambandi við spjálkina, að
oddar voru í endum hennar, sem stungið var í jaðra voðarinnar.
Ég man ekki eftir öðrum orðum en að "reikna í skeið", í sambandi
við það að ákveða fjölda uppistöðuþráða í voðarbreidd, og ég held að önnur
orð hafi ekki verið um það verk höfð. Eins man ég vel eftir að talað
var um, að voð væri varplítil og varpmikil, og þótti hvorugt gott.
Venjulega var það kallað "að reikna út í vef", að ákveða
efnismagn og munstur voðar, en líka var talað

p12
um að setja til voðina
og jafnvel setja niður. En um aðferðina man ég, því miður ekki. Þráðurinn
var held ég, aldrei kallaður annað en uppistaða. Nokkuð algengt
var líka, að tvistur var hafður í uppistöðu. Uppistaðan var t.d.
tvistur, en fyrirvafið þelband. Varð úr því voð, sem kölluð var dúkur.
Dúk-milliskyrtur voru algengar. Ívafið í voðina var lang venjulegast
að nefna fyrirvaf. Ívaf þekktist líka, en var og er meira notað í
öðrum samböndum, t.d. uppistaðan í ræðunni var nú nokkurnveginn heilbrigð
þjóðmálastefna, en ívafið ekkert annað en pólitískur skætingur. Veftur
held ég að hafi verið mjög ótítt í máli fólks í þessu sambandi, og þó man
ég eftir orðinu. Áhaldið sem voðaruppistaðan var rakin á,
hét rakgrind, ekki rakningsgrind. Ég vissi aðeins af 2 gerðum, og
þó mjög svipuðum. Mismunurinn lá í því, að þær voru misháar, og hin lægri
gerðin fest bara að neðan. Hæll gekk gegnum grindina, og ofan í djúpa
holu í kubb, og á þeim hæli snérist grindin. Hin gerðin

p13
var mun hærri eða
um 1,50 m. og slík grind var til hér heima. Henni var þannig fest,
að festur var þykkur kubbur 7-8 þuml. breiður, og um álnar langur í baðstofugólfið.
Í þessum kubb miðjum var hola, svipuð að lögum og eggjabikar,
og þó heldur flárri, og í þessarri holu lék neðri hluti hælsins, sem gekk
upp í gegnum grindurnar. Hak var á hælnum, svo grindin féll ekki
alveg ofaná kubbinn. Þessi kubbur hafði eitthvert heiti, sem ég man
ekki, svo ég þori með að fara. Minnir, að hann væri kallaður sökkholt,
en það er ekki á því að byggja. Komi þetta nafn annarsstaðar frá
líka, mætti búast við að rétt væri minnst. Að ofan var rakgrindinni
fest á líkan hátt, þannig að hæl var stungið niður gegnum miðja endabitana
í römmunum tveim,s em grindin var gerð af, og lék hann í holu, sem var
í borði, er fest var þvert yfir baðstofuna upp undir mæni eða svo til.
Það má kannske geta þess, að upp á þessa fjöl og aðra til jafnháa,
var tveim rokkum smeygt upp undir baðstofumæninn, þegar þeir voru ekki
í notkun. En hæstu menn urðu nú að beygja sig undir

p14
ólukku rokkana.
Skilhælarnir og tréð, sem þeir voru festir í hétu hér grísholt,
ekki krísholt. Hælatré heyrði ég líka nefnt, en aldrei skilkamb.
Rakgrind hygg ég að hafi verið til á flestum heimilum, sem áttu vefstól,
en ekki öllum. Það var ekki ótítt að rakið væri á nágrannabæjum,
þar sem grind var til. Balbínur, balbínustól og tilheyrandi
snældur sá ég ekki í minni bernsku, og heyrði ekki um þessa hluti talað,
svo ég muni. Sama máli gildir með rakningsspaða. Ekki er þó
útilokað, að þessi áhöld hafi verið til einhversstaðar í nándinni.
Kassi var hér til með 4 hólfum, og getur vel verið, að hann hafi
verið kallaður rakningsstokkur eða rakstokkur. En oft voru fleirri
þræðirnir en 4, og voru þá notaðar ýmsar smákyrnur, litlar byttur, vaskaföt
og jafnvel matarskálar. Eins og getið er um að framan var
rakgrindin sett upp í baðstofunni hér heima, og svo hygg ég að verið hafi
víðast. Ég man það enn hve gaman mér þótti að standa inní rakgrindinni


p15
og snúa henni og
snúast með. Annars var þetta bannað, því ef grindin losnaði að ofan, þá
féll hún niður, og gat þá bæði meitt og brotið. Skelfing
finn ég vel, hve margt hefir úr minni fallið, þegar ég fer að lýsa aðferðinni
við rakninguna, en tvo þurfti til, rakningskonu, sem var aðalmaðurinn við
starfið, og svo aðstoðarmann, sem gat verið lítt kunnandi smámaður. Var
það löngum mitt starf í bernsku að sitja þar yfir, passa hnyklana í ílátunum
og segja til, þegar hnykil þraut. Raknings- eða rakspaða vissi ég
aldrei notaðan. Ekki man ég eftir að þráðarvölur væur látnar leika
á uppistöðuþráðunum. Til þess voru notaðar smáir snældusnúðar, beinsnúðar,
flöskustútar, sem brúnirnar höfðu verið sorfnar af, eða eitthvert annað
dót, sem svolítil vikt var í og hægt var að þræða enda í gengum.
Nú get ég ómögulega munað hvernig byrjað var að þræða á hælana í
grísholtinu, en mig minnir að byrjað væri að neðan og rakið upp, þó fullyrði
ég það ekki. Þráðaskil heyrði ég nefnd.

p16
Þegar hafði verið
rakið upp úr á grindinni, voru þræðirnir lagðir ofan á þann hælinn, sem
nær var höndinni, vinstri hællinn,en brugðið undir hinn og upp fyrir, og
svo neðan við þann hælinn, sem áður var lagt ofaná. Því næst snúið við
og rakið niður. Jú, það mun hafa verið kallaður gangur, þegar rakinn
hafði verið ein ferð upp og önnur niður, en ein ferð upp eða niður, feti.
Ég held, að þræðirnir hafi verið lagðir ýmist ofan eða neðan við
það sem áður var rakið, að neðan þegar rakið var niður, en að ofan þegar
upp var rakið. Bandspottinn, sem bundinn var í gagnaskilin, held
ég, að hafi veirð kallaður fetaband. Ég man ekki eftir að hafa heyrt
nefnda varptág. Og þetta merki var að neðan, svo sennilega vefir
verið byrjað efst. Líklega er það eitthvað í sambandi við
þennan feta á rakgrindinni, orðtakið, að vera mikill fyrir fetann, sem
sagt er um þann, sem er umsvifamikill og stórgerður. Fullrakin
uppistaða á grind var alltaf kölluð slanga, og heyrði ég ekki annað nafn.
Ekki

p17
man ég hvernig gengið
var frá skilum, áður en slangan var tekin af grindinni, og heldur ekki
hvernig hún var tekin af, né hvað það verk nefndist. Ég kann
nú ekki að greina frá neinu sérstöku í sambandi við rakningu marglitrar
uppistöðu. En ákveðið var í byrjun, hvað hver rönd uppistöðunnar
átti að vera breið, og fjöldi lituðu þráðanna hafður eftir þeirri ákvörðun.
Var svo öllu raðað niður, þegar lagt var í kambinn, dregið í höföld
og skeið. Það var tvímælalaust ekki algengt að rekja á veggjarhæla
eða rúmstólpa. Þó minnir mig, að ég heyrði þess getið, en í mikilli fjarlægð
að tíma til. Hafaldagrind var til hér, og var það ekki margbrotið
áhald, aðeins 2 hliðarfjalir, svo sem 2 þuml. breiðar. Voru svo 3
smáspýtur tappaðar gegnum þessar fjalir, sívalar til beggja enda, en flöt
um miðjuna. Var svo hafaldaþráðurinn lagður yfir annan enda sívalningsins
og hnýtt beggja megin við miðspýtuna, til að mynda hafaldsaugað, og svo
lokum bundið ofan við sívalninginn á hinum endanum. Þegar svo hnýtt
höfðu verið svo mörg

p18
höföld, sem þurfa
þótti eða þá eins mörg og grindin tók, þá var annarri hliðarfjölinni kippt
af millispýtunum, og höföldin tekin af. Ekki man ég eftir neinu sérstöku
áhaldi til að rekja á hafaldaefnið.

Hafaldaþráðurinn
var, held ég, allstaðar unninn heima, og úr venjulegu togi. Ekki
man ég eftir að hafa heyrt talað um að hann hafi verið soðinn í tólg eða
sviðinn, en hann var seyddur, til þess að fyrirbyggja að hann snurðaði
eða hafaldið snéri upp á sig. Seyðingin minnir mig að færi þannig
fram, að vatn var htiað í potti, en einhver sía eða strigatuska var strengd
yfir pottinn, og hafaldaþráðurinn lagður á hana, svo hann naut gufunnar
upp af vatninu. En passað var að tuskan væri svo strengd, að þráðurinn
færi ekki ofan í það. Ég man ekki eftir neinni sérstakri aðferð við
að rekja í höföldin. Vel má vera að ekki hafi allir farið eins að
við hafaldshnýtingu, en ég hefi hér að framan lýst þeirri aðferð, sem mig
minnir að væri viðhöfð. Mig minnir, að hér væri talað um

p19
hafaldsauga en ekki
hafaldaauga. Það þótti alger nauðsyn að hafaldshnútarnir væru þannig
gerðir, að ekki rynni á þeim. Það er dálítið snúið að lýsa
hafaldahnút, en hann var þannig gerður að eftir að þráðarspottinn hafði
verið lagður yfir annan enda sívalningsins á hafaldagrindinni, var spottanum
til vinstri brugðið yfir þráðinn til hægri, og niður í kring. Var
þá einn snúningur kominn á þráðarendana. Þá var sami þráðarendinn,
sem nú var kominn til vinstri tekinn til baka og með vinstri hönd var honum
brugðið yfir hinn endann, þeim megin, sem að manninum snéri og niður í
kring og hert að. Satt að segja er þetta mjög algengur hnútur, þegar
snæri er saman hnýtt. Þessi hnútur var hnýttur beggja megin við þverrimilinn,
sem takmarkaði hafaldsaugað, og svo ofan við hinn enda sívalninginn. Stálhöföld
vissi ég ekki til, að væru neinsstaðar notuð. Ég er ekki
nógu fróður um geymslu hafalda, en ég man, að þau þóttu vandgeymd. Ég
held að þau hafi ævinlega verið tekin af sköftunum, og mig minnir

p20
að hér væru þau geymd
niðri í rúmi, undir sæng eða yfirleitt þar sem ekki var hætta á slagningi.
Ég kannast við nafnið vartág, og má vel vera að svo hafi heitið bandið,
sem varnaði því að höföldin rinnu útaf hafaldasköftunum.
Vefjarkambur var eina nafnið, sem ég heyrði á þessu vefnaðaráhaldi. Hann
var þannig gerður, að tekin var spýta, sennilega eitthvað kringum 2 þuml.
á kant, og um 6 kvartel á lengd. Í gegnum þessa spýtu, við báða enda,
svo nærri sem óhætt þótti, var grópaður fjalarbútur og minnir mig að þeir
bútar væru sem næst 2 þuml. á breidd og hálfur þuml. á þykkt. Svo
voru boruð göt í sömu rönd og fjalarbútarnir voru grópaðir í, og reknir
í þau göt, trétindar, sívalir, og heldur gildari en venjulegir hrífutindar.
Því miður man ég ekki hve margir tindarnir voru. Svo var tekin önnur
spýta af sömu gerð og sömu lengd og hin fyrri, og meðfarin á sama hátt
og hún, þannig að ástóðust gróp og göt, aðeins heldur rýmra hvorttveggja,,
því þessum kjálka kambsins var kippt af og smellt á eftir

p21
því sem þurfti.
Verkið við að dreyfa slöngunni í vefjarkambinn held ég að hafi alltaf
verið nefnt að láta í kamb, eða láta í kambinn. Þar kom eiginlega
fyrst að því að raða niður litum í uppistöðunni. Þá var lausa kjálkanum
kippt af, og þræðirnir lagðir niður milli tindanna. Ekki man ég hvort
jafnmargir þræðir voru lagðir milli allra tindanna, en hel þó að það hafi
farið eftir litarniðurröðun, og því mismargir þræðirnir í hvern stað. Þetta
minnir mig að væri nefnt að setja til vefinn. Skaftið, sem tengt
var við slöngurifinn heyrði ég kallað rifskaft. Plógskaft kannast
ég ekki við. Þráðurinn, sem dreginn var í gagnaskilið, hét skilþráður,
en því miður kann ég ekki að lýsa hvernig frá þessu var gengið, svo á því
megi byggja, sem réttri lýsingu. Allt verkið við að búa í vefstaðinn,
svo byrja mætti að vefa var, held ég, ábyggilega slmennt kallað að setja
upp, að setja upp vefinn.

Ég heyrði bæði talað
um að bóma og rifja, en

p22
fleirri orð man ég
ekki til, að höfð væru um það verk að vinda upp á slöngurifinn. Það
var rauf eftir slöngurifnum endilöngum, sem rifskaftið féll inn í, en svo
man ég ekki glöggt hvernig það var fest við, held þó að snæri hafi verið
vafið yfir enda rifskaftsins og rifinna, ég man að það var skora allt í
kring við enda skaftsins og getur snærið hafa verið vafið þar yfir. Ég
man ekki eftir neinu áhaldi, nema kambinum í sambandi við að vinda upp
á rifinn. Ég held að það hafi verið æskilegast, að ekki færri en
3 ynnu við að vinda slönguna á rifinu. 2 til að styðja vefjarkambinn
og hagræða slöngunni og 1 til að snúa rifnum. Ekki man ég
til að nein sköft væru notuð, nema þetta eina rifskaft, sem fest var við
slöngurifinn, og ekki get ég munað neitt um það, hvort slangan var látin
ganga að sér, eða hvað það var kallað. Hafaldda ídrátturinn
var almennt kallaður að draga í höföld eða draga í höföldin. Ekki
var þeim haldið stöðugum með neinum hætti hér

p23
heima,og ég held
ekki í nágrenninu heldur, og hafaldakamb kannast ég ekki við.
Tveir unnu við það að draga í höföld, og rétti annar þráðinn, en
hinn þræddi hann gegnum hafaldsaugað. Þegar nógu margir þræðir höfðu
verið dregnir gegnum höföldin, mig minnir að þeir væru 10, voru þeir teknir
saman og knýttur á þá þverhnútur, þannig að dreginn var lykkja í gegn,
en ekki endarnir alveg. Ég held að fjöldi þráðanna hafi líka eitthvað
farið eftir litum. Hér nefndist áhaldið, sem dregið var í
skeiðina með krókur, og líka nefnt krækja, ekki gikkur. Það var látúnsþynna,
nokkuð breið, líklega hálfur þumlungur, og var sagað inn í annan endann
hak eða agnhald til að krækja í þráðinn með. Skeiðin var höfð í slagborðinu.
Verkið fór þannig fram að króknum var smeygt milli tanna skeiðarinnar
og agnhaldið látið snúa upp. Var þráðurinn síðan dreginn í gegn.
Ég held að venjulegast hafi einn unnið við að draga í skeiðina.


p24
Skaftið, sem uppistaðan
var hnýtt framá heyrði ég ekki kallað annað en framhnýtingarskaft, og verkið
að hnýta fram eða hnýta fram á skaft, sjaldnar að binda fram.
Um uppbindingu í vefstól get ég því miður ekkert sagt. Annaðhvort
hefi ég aldrei kunnað það verk, né nein orðatiltæki í sambandi við það,
eða gleymt því svona gersamlega. Ekki er ég nógu viss í hvað
það var nefnt, þegar byrjað var að vefa. Sennilega þó að draga fyrir. Ég
held að ívafið, sem oftar var kallað fyrirvaf, hafi verið gefið fyrir í
einum boga, þar sem ég sá til, þannig að fingrum þeirrar handar, sem ekki
tók við skyttunni í það sinn, var stungið í gegnum uppistöðuna og bandinu,
fyrirvafinu, ýtt fram um miðju. Þetta mun hafa verið kallað að gefa í,
ekki gefa upp í. Var þessi bogi eitthvað misstór eftir því, hvort
átti að vera mikið eða lítið bandað. Ég held að rétthentir vefarar
hafi jafnaðarlegast tekið í slagborðið með hægri hendi. Það voru,
að ég ætla, yfirleitt slegin 2 högg, hið fyrra nokkuð þétt, en hið

p25
síðara léttara.
Spanstokkurinn, sem vanalega var kallaður spjálk, var færður til
eftir því sem vefnaðurinn gekk fram, til þess að voðin héldist jafnbreið.
Var oddunum á endum spjálkarinnar stungið í jaðra voðarinnar, og
spjálkinni hleypt upp um miðjuna á meðan, en síðan þrýst niður svo voðin
teygðist út eftir því, sem mátulegt þótti. Öðru hvoru var voðin mæld
með bandi eða kvarða til öryggis. Jú, það mun hafa verið sagt: voðin
vefst inn, ef hún hélt ekki fullri breidd. Ég er ekki nógu fróður
um misfellur í vefnaði, eða venjuleg viðbrögð við þeim. Ég óf aldrei
sjálfur, en ég held að þráðarendarnir hafi bara verið hnýttir saman þegar
slitnaði. Auðvitað var það talin aðsókn, þegar mikið var um þráðaslit,
og aðrar misfellur í vefnaði, og þótti stundum sannast. Ég held að
hver vinding upp á framrif, hafi frekar verið kölluð færa en áfæra, en
verkið var víst nefnt að bóma. Það var alltaf talað um að fella
vef, þegar lokið var einhverri voðinni. Ég man ekki eftir neinu öðru
nafni á afgöngun, en afvikur. Sumir sögðu reyndar afvökur, hvort
sem það var bara afbökun eða ekki.

p26
Þessir afgangar voru
notaðir í nálþræði, til að stoppa í göt með eða bæta. Vel
má vera að hrafnabuxur eða krummabuxur hafi þekkst, þó ég geti ekki komið
því fyrir mig. En í sambandi við undanlás, er allt annað að vefjast
fyrir mér. Ég held, að grotti undan soði flots, eða öðru slíku hafi
verið nefndur undanlás. Hitað var bæði vatn og keyta á voðina
í stórum potti, þeim stærsta, sem til var. Best var að hægt væri
að bleyta voðina í einu lagi, en væri það ekki hægt, voru endarnir bleyttir
á víxl, helmingur voðarinnar í hvort sinn. Þá var látið síga úr henni
á grind yfir pottinum. Því næst var hún tekin, og helst farið með
hana út á hlað, ef gott var veður. Tóku svo 2 menn sinn í hvorn enda
voðarinnar og strengdu hana á milli sína. Væri voðin of löng til
að halda henni þannig uppi á milli sín, hélt einn undir miðjuna. Síðan
undu mennirnir uppá voðina á milli sín, þannig, að hún vattst upp í hlykki
og hringi, svo tóku þeir í, og reyndu að teygja hana sem allra mest úr
öllum hlykkjum. Þá pressaðist vatnið mjög vel úr. Væri vindingsfólkið
þróttlítið

p27
dugði þetta oft ekki,
til að voðin væri fullundin, og var voðin þá lögð tvöföld, og spýtu rennt
í lykkjuna, en endarnir snúnir utan um aðra spýtu, þannig að ekki raknaði
af. Var svo undið á sama hátt og áður með vogstangarafli spýtnanna.
Ég minnist þess úr sögum og sögnum, að menn ferðuðust um til að þæfa,
en ég held að lítið hafi verið um slíkt hér um slóðir. Þó má vel
vera að einhverjir hafi lagt það lítillega fyrir sig, en hingað að Snorrastöðum
kom aldrei þófari í mínu minni. Ég held að þæfing hafi tvímælalaust
þótt karlmannsverk, en sjálfsagt hafa konur þó þæft stundum. Ekki
er ég nógu fróður um hvernig þæfingu ar hagað almennt, en hér heima var
ævinlega þæft í baðstofunni. Borð, sem var við stafngluggann, var dregið
fram og þæft á gólfinu út við gluggann. Studdi þófari höndum á borðið
til að létt sér verkið. Hann var ber upp að hnjám og velti voðinni
til með fótunum og tróð hana. Ég heyrði talað um tunnuþóf. Var
þá þæft í botnlausri tunnu í báða enda, þæfðu tveir, tvær eða tvennt. Lá
þá

p28
eða sat við hvorn
enda tunnunnar og tróð voðina milli sín með fótunum. Sagt var að
stundum hefðu karl og kona sóst eftir að þæfa saman, og líka að annað sóttist
eftir, en hitt færðist undan. Það mun hafa komið fyrir að þæft væri
í tunnu með botni, og einn maður þæfði niðri í tunnunni, en ég held, að
það hafi verið fátítt. Ég er algerlega ófróður um votaþóf. Voðin
var nokkuð oft aðgætt í þófinu, hrist upp. Það var þannig framkvæmt
að tvær manneskjur, venjulega þófarinn og önnur manneskja til, gjarnan
sú, sem best vit hafði á, hvort þæft var, tóku voðina milli sín í smástúfum,
svona 2 álnir í hvert sinn. Tóku þessar manneskjur höndum sinn í
hvorn jaðar voðarinnar, og lögðu hana saman, á langveginn, svo að hendurnar
snertust. Síðan var höndunum slegið skarpt út til hliðanna. Ef
vel tókst til kom allmikill smellur, þegar jöðrunum var slegið út og teygðist
úr voðinni. Hristist þá lóin af. Þetta var endurtekið nokkrum sinnu,
og því næst tekið fyrir næsta bil, og því veitt sama afgreiðsla.


p29
Það er að brjótast
í mér annað heiti á þessu verki, en að hrista upp voðina, og það var ábyggilega
til, en ég get ómögulega munað það. Hvort það var að slá voðina eða
smella henni. Fjarri fer þó, að ég geti fullyrt nokkuð um þessi heiti.
Ekki kann ég að greina frá neinu, sem fullkomin þæfing var
miðuð við. Ég held jafnvel, að þar hafi ekki verið farið eftir neinu ákveðnu
teikni, heldur eftir heildarútliti voðarinnar. Ég heyrði talað um
þófarabita og þófaraköku, en ekki er ég viss um að þær velgerðir hafi alltaf
verið framreiddar. Þetta hefir kannske tíðkast meir þar sem umferðaþófarar
unnu verkið, og þá ef til vill alkunnir matmenn. Ekki kann ég margar
þulur eða vísur um þóf. Eina vísu lærði ég í bernsku um þóf svohljóðandi:
"Íleppana átti ég að þæfa - Ég nuggaði á þá nokkur göt - því
náttúran var ífrið löt. Þuluna Bárður minn á jökli, heyrði
ég hafða á þessa leið: Bárður minn á jökli - leggst þú á þófið mitt
- Ég skal gefa þér lóna - innan í skóna - Vettlingsspjör á klóna - þegar
ég kann að prjóna - Naglabrot í bátinn þinn - Mórautt lamg og sauði þrjá
- En þú skalt aldrei það fá - þinn aumi drengur - ef illa gengur.

p30
Ekki get ég neitt
sagt um greiðslur fyrir þóf. Þegar voðin var fullþæfð, man ég að
hún var hengd upp á stag, ef þurrt var. Hengd eftir endilöngu á stagið,
og löfðu niður lykkjur beggja vegna, því voðin var oftast lengri en stagið.
Þó held ég að ekki hafi verið talið neitt aðalatriði að gera þetta.
Síðan var voðin tekin og vafin uppá fjöl, t.d. rúmfjöl í breiðara
lagi. Hún var vafin upp eins fast og mögulegt var, og teygð vandlega
út á þverveginn. Því næst var þessi vafningur lagður á slétt gólf
eða pall og

p31
þar ofaná koffort
eða kista með sléttum botni. Þurftu þessi ílát að vera allþung, en
væri ekki völ á nema léttum hirslum, var bætt einhverjum þyngslum þar ofan
á. Stundum var líka slétt fjöl látin ofaná voðarvafninginn, og þunginn
ofan á hana. Þetta var pressunin. Var þetta látið sitja svona
í nokkra daga, allt að viku minnir mig, og síðan, held ég að voðin hafi
verið vafin upp í venjulegan stranga. Ég held að þegar fór að líða
á fyrsta tug þessarar aldar, og á öðrum tugnum, hafi farið að tíðkast dálítið
að senda vaðmál til Reykjavíkur til lóskurðar og jafnvel litunar. Þó
man ég ekki eftir að héðan heimanað væri voð send til litunar.
Þá er nú þessari frásögn lokið, og hefði ég svarið fyrir, þegar ég fór
að leiða hugann að þessu í byrjum, að ég stæði svona hrapalega á gati í
mörgum atriðum. Ég læt hér fylgja 3 vefnaðarsýnishorn. Öll
eru þau úr rúmábreiðum, og eru ofin að ég hygg eftir aldamótin síðustu.
Þó er ég ekki

p32
viss um, nema númer
1 sé ofið fyrir aldamótin. Ég man amk. ekki eftir þegar það ábreiðuefni
ar ofið. Þetta var kallað hringofið. Móðim mín Sólveig Magnúsd.
óf þetta. Númer 2, held ég sé vaðmálsvend, og er ég þó ekki
nógu viss um vendina. Móðir mín óf þetta efni líka, og man ég aðeins eftir
því. Það var allstór strangi af ábreiðuefni. Það voru heimaofnar
ábreiður yfir öllum rúmum hér heima, frá því ég man fyrst eftir, og ég
ætla fram á þriðja tug þessarar aldar. Éf held, að þessi dúkur sé
mikið unninn úr togi, amk. uppistaðan. Númer 3 er að uppistðu til
tvistur, en fyrirvafið er ull. Þetta er því dúkvend. Guðríður
Björnsdóttir húsfreyja í Haukatungu hér í hreppi óf þennan dúk einhverntíma
rétt eftir aldamótin. Hún er nú látin.

Ég held mér þýði
ekkert að vera að reyna að skrifa upp heitin á hinum einstöku hlutum vefstólsins.
Ég er svo grautvitlaus í þeim

p33
efnum, að ég veit
ekki neitt, nema örfá heiti, sem öllum eru kunn. Mig minnir bara,
að þessir armar, sem slagborðið var hengt á væru kallaðir kjálkar. Ég
skrifaði það orð óviljandi í frásögninni hér á undan, en þegar ég fer að
brjóta heilann um það get ég ekki fullvissað mig um að það sé rétt.
Ég verð svo að láta hér við sitja. En viðvíkjandi vefnaðar
sýnishornunum er það að segja, að ég skal reyna að athuga þetta betur í
vor, þegar hreingerning fer fram á bæjum. Hirðusamar konur hafa þann
háttinn á að geyma þessar gömlu tuskur niðri kössum og kyrnum og taka þær
ekki upp til athugunar, nema þegar gert er hreint að vori. Þá láta
þær næst hendinni, það sem þær búast við að þurfa á að halda á næstunni.
En gamall vefnaður er ekki þar á meðal.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Tóvinna
Keyword:
Ull