Bolludagur

In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Karl (1898)
Object-related numbers
Museumnumber a: 1321 "Museumnumber b": 1966-1
Questions / Answers
Allar spurningar og svör
Nr. 1321

p1
Ull og tóvinna 3.
Formáli: Þar sem ég var barn á þeim árum, sem svörin miðast
einkum við, get ég ekki lýst öðru um vefnað, en því sem ég sá og veitti
eftirtekt á mínu æskuheimili. Það var þó ýmislegt, sem ég lærði aldrei
er snerti vefnað, eins og t.d. að reikna út í vef ofl. Vefstóll
föður míns var hraðskyttuvefstóll, líkastur að gerð vefstól C og voru 4
hafaldakambar og 4 sköft á þessum vefstól, sem fest voru við 4 skammel,
er vefarinn steig eftir vissum reglum. Vendin á voðinni fór eftir
því hvernig dregið var í höföldin og varð að stíga skammelin eftir því
hvaða vend var á voðinni. Aldrei lærði ég þessar listir, því ekki
var unglingum treyst til að vefa fyrr en þeir voru orðnir nær tvítugir
að aldri. Sama var að segja um að rekja vef. Hjá foreldrum
mínum var oftast ofið vaðmál, en einnig klæði, dúkur og vormeldúkur, en
ekki einskefta, salon eða glit. Dúkur var oftast úr tvisti ofinn.
Mun ég nú svara spurningunum eftir getu. Faðir minn smíðaði
vefstólinn að öllu leyti.

p2
Vefnaður almennt:
Sjaldan var vefur settur upp fyrir jól, nema efnið væri til frá vetrinum
áður eða þá tvistur hafður í vefinn. Ef svo var, var vefurinn settur
upp um veturnætur og lokið við hann fyrir jól. Oftast var vefur settur
upp í þorrabyrjun, og svo annar í miðgóu, ef þorravoðin var ekki svo löng
að það tæki alla útmáðunina að vefa hana, en sjálfsagt þótti að ljúka vefnaði
fyrir sumarmál, því þá hófst útivinna, ef tíð var góð. Heima hjá
mér ófu faðir minn og elsti hálfbróðir minn aðallega, en fyrir kom þó að
móðir mín og næstlesti hálfbróðir minn gripu í vefinn, ef tími gafst til
þess. Aldrei var ofið nema á milli mála á meðan bartast var. Þóttu
góð afköst á þeim tíma að vefa 3-5 álnir milli mála í hraðskyttuvefstól,
en seinlegra var að vefa í handskyttuvefstól, miðað við vðamál. Austan
vatna voru til menn, sem fóru um að vefa, en ekki veit ég hver laun þeir
fengu auk fæðis.

p3
Vefstóll: Hann
nefndist ætíð vefstóll. Ég hygg að til hafi verið á stöku bæ í Skagafirði
gamlir kljásteinsvefstólar fram undir miðja 19. öld. Jón Samsonarson
alþm. í Keldudal í Hegranesi mun hafa átt einn slíkan, en ekki notað hann.
Úr honum voru til nokkrir kljásteinar fram á mína daga í Hróarsdal,
sem var næsti bær. Allir eru þeir löngu týndir. Eins og ég
tók fram á spássíu formálans, smíðaði faðir minn sjálfur sinn hraðskyttuvefstól.
Grind hans var svipuð grindinni á gerð A, nema uppihöldin (10) náðu
lengra fram og hékk slagborðið niður úr þeim eins og á C, en hinar háu
stoðir að framan frá fótstykki til uppihalda (23) vor ekki, heldur voru
hliðarstoðir úr afltré í uppihöld aftan við slagborð. Að öðru leyti líktist
hann mjög C og vefjarslöngurifur á sama stað, en honum var snúið með þar
til gerðum lykli úr járni (sjá bakhlið). Engum smið man ég eftir
er smíðaði vefstóla til sölu. Um verð á

p4
vefstólum heyrði
ég aldrei talað, en dýrir voru þeir. Sigurður Ólafsson á
Hellulandi, smíðaði sinn vefstól einnig. Það var hraðskyttuvefstóll.
Sigurður fann upp og smíðaði svonefnda "skaftavél". Það
var einskonar hraðskyttuvefstóll, en þannig gerður að ekki þurfti annað
en að slá slagborðinu á ívafið, þá gerði vélin sjálf skilið og skaut skyttunni.
Aldrei sá ég þessa vél, en til mikils skaða eyðilagðist hún. Í þessari
vél var auðvelt að vefa 20-25 álnir á milli mála. Nú er þessi uppgötvun
þessa mæta manns með öllu glötuð. Aldrei sá ég né heyrði talað um
tvíbreiðan vefstól. Hraðskyttuvefstólar voru mjög líkir handskyttuvefstólum
að gerð, nema slagborðið. Í slagborði hraðskyttuvefstóls voru bönd
og kólfur, sem var í sambandi við skyttuhulstrið. Í þennan kólf var
kippt ýmist til hægri eða vinstri og rann þá skyttan með miklum hraða gegnum
skilið og í skyttuhulstrið hinu megin og um leið raktist ívafið af spólunni
í skyttunni. (Hér er teikning á bakhlið blaðsins).

p5
Af 16 bæjum í Hegranesi
var vefstóll á 6 bæjum. Á hinum bæjunum fengu sumar konur ofið hjá
nágrönnunum. Aðrar lögðu oft saman í vef við grannkonur sínar, þannig
að þær lögðu t.d. til 1/3 eða helming af uppistöðu og ívafi í vefinn og
fengu svo 1/3 eða helming voðarinnar eftir því sem þær höfðu lagt til frá
sér. Ekki vissi ég hvað tekið var fyrir að vefa hverja alin voðar,
því faðir minn tók aldrei neitt fyrir, þó hann væfi þannig fyrir nágranna
sína, enda voru þeir flestir fátækir. Um verð á vefstólum er mér
ókunnugt, því þeir gengu sjaldan kaupum og sölum, nema þá helst á uppboðum
á dánarbúum og þar var ekki fast verð. Vefjarskeiðar: Tvær
skeiðar notaði faðir minn, aðra fína á venjulegar voðir og hina grófa til
að vefa brekán úr tvinnuðu bandi og annað gróft vefjarverk. Skeiðar
þessar voru úr stáli og

p6
smíðaðar erlendis.
Lengd skeiðanna var um 5 kvartél. Aldrei vissi ég tannafjölda þeirra
á kvarteli. Vefjarskyttur: Þær voru tvennskonar, hraðskyttur
og handskyttur. Hraðskyttan var lengri en handskyttan. Neðan á hraðskyttunni
voru 2 rúllur, sem snérust á ás. Þær voru sín við hvorn enda á spóluraufinni
(sjá teikningu). Á endum hraðskyttunnar voru oddhvassar hettur úr
stáli, sem gengu inn í leðurhólkana neðan á rennilokunum í slagborðinu,
og var skyttunni skotið gegnum skilið með því að kippa snöggt í kólfinn,
ýmist til hægri eða vinstri. Leðurhólkarnir voru trektlaga. Aðalefni
í hraðskyttum og handskyttum var harðviður, brenni eða maghoni. Neðan á
handskyttum voru spennur eða einskonar skíði úr eir eða látúni, til þess
að þær rynnu betur gegnum skilið.

p7
Faðir minn renndi
spólur í skytturnar, oftast úr brenni (beiki), ef það var til. Aldrei
heyrði ég talað um að voð væri notað í stað spólu eða annað efni en tré.
Spólurokkur: Flestir notuðu gamla rokka til að spóla
á. Var þá settur sérstakur spóluteinn í rokkinn í stað snælduumbúnings.
Trissa með skorum var aftan á spóluteininum. Faðir minn notaði
gamlan svonefndan skotrokk til að spóla á, höfðu 2 hjól verið á honum áður.
Pallur þessa rokks var óvenjulega langur. Fjórir stuðlar voru
upp úr pallinum, tveir á hvorum enda pallsins. Þverslár voru á milli
þessarra stuðla, og á þeim voru skörð fyrir hjólteinana. Upp úr miðjum
þverslánum voru afturstandari og framstandari og biti var á milli standaranna
fyrir ofan hjólin. Jómfrú fyrir spóluteininn

p8
var upp úr framenda
bitans. Spjálk: Það, sem hélt jöðrum voðarinnar út, er ofið
var, var æfinlega nefnt spjálk. Spjálkin var ætíð sett rétt fyrir
framan vefarann í voðina. Í spjálkinni voru 3 járnoddar út úr endunum,
sem gengu í gegnum jaðra voðarinnar. Ekki veit ég hvernig lagt var
upp í vef og ekki hvernig reiknað var í skeið eða vef. Ívaf var ætíð
nefndur þráðurinn á vefjarspólunni og var sá þráður snúðlinari en þráður
í uppistöðunni. Rakningargrind: Hún var ætíð nefnd rakgrind.
Það voru raunar 2 grindur. Var önnur ögn minni en hin þ.e.
lægri. Göt voru gegnum þessar grindur að ofan og neðan og gekk sívalur
hæll eða stutt prik í gegnum þessi göt.

p9
Neðri hællinn lék
í holu í gólfinu, en sá efri lék í svift úr leðri, er fest var á bita neðan
í loftinu. Tréð sem skilhælarnir voru festir á var ætíð nefnt grísholt.
Rakgrindur voru til víðast, þar sem vefstólar voru til. En
væru þær ekki til voru þær fengnar að láni. Aldrei heyrði ég talað um að
rakið væri á hælum. Balbínusnældur og balbínustóll. Þær nefndust
ætíð Balbínusnældur, voru lengri en rokksnældur og með stóra einfalda snúða
á báðum endum. Snælduleggurinn var holur innan og var honum smeygt upp
á spóluteininn á spólurokknum, þegar balbínað var á þær. Oft var
balbínað á 10 snældur í vefn, en stundum á 12 snældur. Svo voru þær
settar í balbínustólinn (sjá teikningu) til að rekja af þeim. Þessir
10 eða 12 þræðir nefndust feti.

p10
Þegar balbínað var,
var hespan sett á svonefnda krónu eða garnavindu og snérist þá krónan,
þegar þráðurinn raktist af hespunni. Einfaldasta gerð af garnvindu
var hin svonefnda krosskróna, sem líktist vængjum á hesputré. Faðir
minn bjó til krónur úr mörgum þunnum, löngum tréræmum, er festar voru í
snúða efst eða neðst á krónuleggnum, var sú samsetning allflókin. Efri
snúðurinn var laus og gat færst upp og niður á leggnum, og mátti því leggja
krónuna saman, þegar hún var ekki í notkun, en svo mátti þenja hana út,
eftir stærð hespunnar, þegar balbínað var af henni. Rakningarspaði:
Notkun hans var óþekkt í Hegranesi. Aldrei var þar heldur rakið
úr hnyklum heldur ætíð af snældum, og var því rakningarstokkur aldrei notaður,
enda sá ég það verkfæri aldrei.

p11
Rakning á rakgrind:
Um rakningu á rakgrind get ég lítið sagt, því við krakkarnir máttum
ekki vera inni þar sem rakið var. Sagt var að við trufluðum þann
sem rakti. Venjulega var aðeins einn maður, sem rakti. Rakgrindin
ar sett upp í stofu frammi í bæ. Inn um glugga þar sá ég að rakningsmaður
setti merki í uppistöðuna með mislitu ullarbandi. Ein umferð á grindinni
upp eða niður nefndist feti. Í fetabandið var einn bandspotti settur,
sem merki að neðan í skilin. Ekki var rakið utan á, heldur ofan eða
neðan við fetana. Fullrakin uppistaða nefndist slanga. Jafnan var
rakið ögn umfram hverja alin í voð til að voðin skryppi ekki saman (styttist)
var þetta nefnt yfirvarp. Hvergi í Hegranesi var rakið á veggjahæla
eða rúmstólpa, en vel getur verið að það hafi tíðkast í öðrum sveitum,
þó ég heyrði aldrei talað um það.

p12
Hafaldagrind og hafaldaefni:
Ég kynntist aldrei hafaldahnýtingu, því höföld föður míns voru öll
með stálaugum og voru stálaugun hnýtt í seglgarn, sem hafði verið áður
bleytt í fernisolíu. En þessi höföld höfðu öll verið sett upp fyrir
mitt minni. Hafaldaaugu úr stáli munu fyrst hafa komið í Skagafjörð
laust eftir 1880 með Gunnari Olafssyni í Ási, sem um það leyti fór til
Danmerkur að læra nýtísku vefnað og flutti heim með sér nýjan hraðskyttuvefstól
með öllu tilheyrandi. Vartóg hét bandið, sem varnaði því að höföldin
færu útaf sköftunum. Vefjarkambur: Það nafn heyrði
ég aldrei á þessu verkfæri. Það var ætíð nefnt eknir. Halldóra
Bjarnadóttir nefnir það fetakamb. Nafnið eiknir mun stafa af því
að tækinu var "ekið" hægt fram og aftur þegar bómað var, til
að greiða sundur þræðina. (sjá teikningu).

p13
Það var nefnt að
leggja í ekni, þegar fetarnir voru lagðir í tennur hans. Skaftið
í gangaskilinu nefndist rifskaft. Rifskaftið var sett í rauf í rifnum
og bundið fast á endunum við rifinn eftir að lagt var í ekninn. Ekki
man ég vel hvernig gengið var frá skilþræðinum. Að setja til. Allt
verkið, við að bóma eða vinda slönguna á slöngurif, draga í höföld og skeið
og festa uppistöðuna við voðrif eða framrif, hét einu nafni að setja til
vefinn. Að bóma: Það var kallað að bóma, að vinda lsönguna
á rifinn. Rifnum var snúið með lykli sem gekk upp á enda rifsins.
Á endum rifsins voru lausir snúðar, sem vörnuðu því að slangan færi
út á ystu enda rifsins. Tveir unnu við að bóma. Annar snéri rifnum
hægt. Hinn passaði eknirinn og gætti þess að þræðir slitnuðu ekki
og hnýtti saman, ef svo fór.

p14
Sá þriðji passaði
slönguna. Skilsköftin voru sett rétt framan við bómuna fyrir aftan
höföldin. Að draga í höföld og skeið: Við það unnu
tveir, annar rétti þræðina, en hinn setti krókinn gegnum hafaldaaugað og
dró þráðinn gegnum það. Þegar búið var að draga vissan þráðafjölda
í höföldin, voru endarnir hnýttir í lykkjuhnút framan við höföldin. Tveir
unnu einnig við að draga í skeið. Annar rétti krókinn gegnum tennur skeiðarinnar,
en hinn rétti þræðina á krókinn. Krókurinn var langur og mjór. Skeiðin
var höfð í slagborðinu á meðan dregið var í hana. Venjulega voru
2 eða 4 þræðir í tönn. Með vissum millibilum var hnýtt framan við
skeiðina. Þegar ídrætti var lokið, var hnýtt á skaftið, sem gekk
á voðrifinn. Þetta skaft var fest við voðrifinn með löngum snærum,
sem bundin voru

p15
um báða enda skaftsins
og fest í voðrifinn. Að draga fyrir: Þegar byrjað var að vefa
var ívafið látið í mörgum smábogum í skilið fyrst. Hét það að gefa
fyrir. Þegar komið var nokkur stúfur af vef, oftast eitt kvartil
(6 þuml.), voru spjálkin set í voðina svo að hún vefðist ekki inn. Ef
þráður slitnaði í uppistöðum var bætt í nýjum þræði og var þá endi hans
oftast laus, en hinn endinn hnýttur aftan við skeiðina. Jú, ég heyrði
talað um að fylgjur sumra gesta vildu slíta þræði, en helst var það sagt
í spaugi. Hver einstök vinding á voðrif nefndist færa. Að fella
vef var það nefnt þegar voð var lokið og hún tekin úr vefstólnum. Þráðarendarnir,
sem gengu af þegar vefur var felldur nefndust undanskurður. Ef þeir
voru nógu langir í nálþráð voru þeir notaðir til að stoppa í göt á sokkum.
Annars voru þeir líka oft

p16
snúnir saman á hrosshárssnældu
og notaðir í hnappheldur á hross ofl. Stundum var þetta notað í lambahöft
á meðan fært var frá. Þóf: Vatnið eða keytan var hituð upp
undir suðu í stórum potti. Síðan var voðin lyppuð niður í stóran
stamp og keytunni hellt yfir hana svo að hún varð vel blaut. Væri
keyta ekki til, var notað vatn, sem grænsápa var leyst upp í. Síðan
var stampurinn borinn fram í bæjardyr. Þar var voðin tekin upp úr
stampinum og lögð saman tvöföld. Skaft var sett í lykkjuna á voðinni.
Annar vindingsmaður gett með boðarlykkjuna fram á hlaðið og gætti
þess að voðin snerti ekki jörð. Hinn vindingsmaðurinn setti skaft
fast í báða enda voðarinnar í dyrunum. Sá, sem gekk fram á hlaðið
snéri nú upp á voðina með

p17
skaftinu og vatt
hana þar til ekki lak lengur úr henni. Síðan var snúið ofan af voðinni
aftur og hún borin inn og sett á hurð eða sléttan tréfleka sem settur var
upp í lokarekkjunni í baðstofunni Þófarinn klæddi sig nú úr öllu nema brók
og skyrtu, því verkið var erfitt og hlýtt í baðstofunni. Síðan steig
hann í lokrekkjuna og var þá tjaldað brekáni fyrir opið á lokrekkjunni.
Þófarinn studdi nú höndum á slána yfir lokrekkjudyrunum og tók til
að hoppa og hamast á voðinni og velti henni aðallega undir fótum sér. Á
klukkustundar fresti var svo þófið athugað og "kippt" sem kallað
var til þess að "brigður" kæmu ekki í voðina og svo að þær hyrfu,
ef komnar voru. Tvo þurfti til að "kippa". Var voðin
þá sett fram á gólf og byrjað á öðrum enda hennar að kippa. Annar
maðurinn hélt í hornin á enda voðarinnar en hinn í jaðra voðarinnar um
þrjár álnir frá enda. Sú lengd var nefnd "færa". Síðan
kipptu þeir snöggt og samtímis í voðina út og að sér þannig að small hátt
í. Voru brigður komnar í voðina var togað fast og sígandi í þær til
að slétta úr þeim. Svo tók endamaður í voðina þar sem hinn hélt áður
og dró hana til sín eina færulengd, en hinn tók í jaðra voðarinnar á nýjum
stað og svo kipptu þeir eins og áður og færðu sig eftir voðinni þar til
búið var að "kippa" henni allri. Þeir stóðu alltaf í sömu
sporum á meðan. Svo var voðin aftur sett á hurðina og þófinu haldið
áfram þar til fullþæft þótti, en það held ég að hafi verið smekks atriði
hverju sinni hvenær fullþæft þótti. Þó munu vígindin hafa átt að
hverfa í lónni.

p18
Votaþóf var þæft
í stampi nálagt ofni eða eldavél vegna hitans. Hafði þá þófarinn
stólbak til að styðja höndum á, er hann þæfði. Þegar kippt var þurfti
að fara út með stampinn og kippa úti, vegna bleytu frá þófinu. Hvíldi
þófarinn sig þá inni, á meðan aðrir kipptu úti, þar sem hann var fáklæddur.
Venjulega drakk hann þá kaffi með lummum. Var það nefnt þófarakaffi.
Sama var með þurraþóf, að þófari drakk meðan kippt var. Venjulega
fékk faðir minn afbæjarmann til að þæfa. Var það ætíð í vinnuskiptum
þannig að faðir minn smíðaði eitthvað úr tré eða járni fyrir þófarann í
staðinn. Að loknu þófi var voðin hengd út á snúru í mörgum lykkjum
og látin þorna. Síðan var hún vafin vandlega upp á breiða fjöl og
þess vandlega gætt að ekki voru brigður í henni og teigt vel á henni. Þetta
urðu tveir að gera.

p19
Svo var vefjarstranginn
settur á borð eða flatt kistulok og breið fjöl sett ofan á hann. Ofan
á fjölina var sett þungt farg, venjulega margir steinar og voðin látin
liggja undir því í 2-3 daga. Aldrei vissi ég til að voðir væru sendar
úr minni sveit í verksmiðjur til lóskurðar, og ef litað var, þá var það
gert heima. Þófaraþulu hef ég aldrei heyrt en oft rauluðu þófarar
vísur á meðan á þófinu stóð. Alls staðar mun hafa verið lagt
niður í Skagafirði að þæfa í tunnu um síðustu aldamót, enda var sú aðferð
bæði erfið og svo þurfti tvo menn þar til að vinna verk, sem einn gat unnið.
Þeir urðu að liggja á hryggnum og sparka viðinni á milli sín innan
í botnlausti tunnu.

p20
Eftirmáli: Vegna
fáfræði minnar um ýmis atriði er snerta vefnað hef ég því miður ekki þurft
að nota öll blöðin, sem þið senduð mér til að skrifa á um vefnað. Datt
mér því í hug að senda ykkur nokkrar dulspár sem fólk hér nyrðra hafði
talsverða trú á í mínu ungdæmi. Það má segja að slíkt teljist einnig
til íslenskra þjóðhátta og þetta er nú óðum að hverfa og gleymast, en það
lýsir þó að nokkru sálarlífi og hugsunarhætti þjóðarinnar á liðnum tímum.
1. Væri maður hársár (þ.e. þyldi illa að tekið væri í hár hans) átti
hann að verða hræddur um konu sína, er hann giftist. Sama var um
konur, þær áttu þá að verða hræddar um mann sinn að hann yrði þeim ótrúr.
2. Klæjaði mann í lófann átti hann að fá gjöf. 3. Klæjaði mann
í nefið átti hann að reiðast innan skamms.

p21
4. Ef manni svelgdist
á kaffinu sem hann drakk var sagt að sækti ofan í hann. Átti þá gestur
að koma sem langaði í kaffi. 5. Ef kýr sló afturundan sér á básnum
átti það að boða gestakomu á bæjum eða í fjósið. Ég hef veitt því
eftirtekt að þetta er rétt, hvernig sem kýrin fer að vita þetta. 6.
Ekki mátti brjóta fótlegg úr kind til mergjar. Þá átti kind að fótbrotna,
sem sá átti, er braut legginn. Til að ná mergnum var því borað gat
í afturenda leggsins og annað gat var borað neðan á legginn og mergurinn
soginn ú um þessi göt. 7. Málbein nefndust þunnu hamarlaga beinin
sitt hvoru megin í tungurótum kinda og í nautgriðum. Þetta bein mátti
ekki brjóta. Ef það var gert átti barn þess er braut beinið að verða
mállaust. Beininu átti að stinga í holu í moldarvegg. 8. Maríufiskur
nefndist fyrsti fiskur sem maður dró á færi úr sjó. Þennan fisk

p22
átti sá, sem dró
hann, að merja og sjóða hann er heim kom og éta hann sjálfur. Þá
átti hann að verða mjög fiskinn. 9. Ætíð átti sláttumaður að brýna
ljá sinn áður en hann gekk ú slægju, hvort sem hann hætti slætti styttri
eða lengri tíma. Að öðrum kosti mundi skrattinn þverbrýna fyrir eggina
á ljánum þar til sláttumaður notaði ljáinn næst. Þetta hefur nú líklega
verið fundið upp af einhverjum vinnukergju bónda sem lét sig muna um brýnslustundina,
þegar byrjað var að nýju að slá. 10. Ekki mátti leggja hrífu frá
sér þannig að tindirnar sneru upp, því þá átti að koma rigning. Tilefni
þessa hefur nú líklega verið það að menn gátu stigið á tindana og meitt
sig eða brotið tindana. 11. Jafnan átti að signa krossmark undir
júgur á kúm og ám, þegar mjöltum lauk.

p23
Þá gátu tilberar
ekki sogið þær, svo að þær fengju illt í júgrið. 12. Ef kind
jarmaði upp á þann, sem átti að slátra henni, mátti ekki lóga henni, því
þá átti hann að verða ógæfumaður. Það vissi ég til að kind var aldrei
slátrað þegar þannig vildi til, heldr var hún jafnan látin lifa. Sagt
að hún bæði um líf. 13. Ef hluti af mjógirni kindar, sem slátrað var að
hausti, var tómur átti það að boða harðan vetrarkafla á næsta vetri. Væri
tómi hlutinn næst vinstrinni átti að verða hart til jóla. Væri það
miðjan úr mjógirninu, átti miðhluti næsta vetrar að verða harður. En
væri tómi hlutinn næst langanum varð einmánuður og vorið hart. Þetta
hygg ég mjög gamla trú, komna frá Rómverjum, sem þóttust oft sjá fyrir
óskeða hluti í innyflum fórnardýra. 14. Mikill fífuvöxtur, einkum klófífu
átti að boða harðan vetur.

p24
Þannig mætti lengi
telja dulspár, sem fólk trúði á og sem ýmsir trúa enn, meira og minna,
en hér læt ég nú staðar numið að sinni. Nýlega heyrði ég
í þjóðháttarþætti útvarpsins um merkisdaga og var svonefndur bolludagur
einn þeirra. En sá sem flutti, virtist ekki vita um uppruna þessa
siðar, sem bolludagur er sprottinn af. Dagurinn hét áður hýðingardagur.
Þannig var það nafn til komið að ekki mátti hýða börn eða refsa þeim
á annan hátt fyrir yfirsjónir á meðan langafasta stóð yfir. Var því það
ráð tekið að hýða þau fyrirfram á mánudag í föstuinngang fyrir brek, sem
þau kynnu að gera á föstunni. Fór þá fjöldi vandarhagga eftir því
hvort barn var baldið eða ekki. Líklega hefur nú hýðandinn stundum
verið hlutdrægur í þessu, ef um hreppsbörn var að ræða, því meðferð þeirra
er svartur blettur á menningarsögu Íslendinga.

p25
Þættu vandarhöggin
of fá á hýðingardaginn miðað við yfirsjónir barns yfir föstutímann, þá
mátti bæta nokkrum vandarhöggum við refsinguna á laugardaginn fyrir páska.
En þætti flenging á hýðingardag hafa verið of hörð átti að bæta það
upp með ýmsu góðgæti um páskana. Þessi hýðingasiður mun nú að mestu
hafa verið aflagður fyrir mitt minni. Að minnsta kosti vorum við
krakkarnir aldrei flengd þannig. En bolluvendir nútímans eiga vafalaust
rót sína að rekja til þessa leiðinlega siðar.

Lokaorð: Kæru
vinir. Þetta verður nú ekki lengra að sinni og bið ég ykkur að fyrirgefa
hve lengi hefur dregist hjá mér vegna búsýsluannríkis, að skrifa þetta.
Bið ykkur líka að taka viljann fyrir verkið og vinda á betri veg
það sem áfátt er í þessu skrifi öllu. Vænt þætti mér um ef þið leyfðuð
orðabókarmönnum

p26
Háskólans að líta
yfir þetta, svo þeir gætu tínt þar upp ef þeir yrðu varir við einhver orð
sem þeim þættu merkileg. Þakka ykkur svo jólakort og vinsemd á liðnu ári
og óska ykkur og safninu árs og friðar á nýbyrjuðu ári. Selnesi á
Skaga 3. febrúar 1967 ykkar einlægur Jón Norðmann Jónasson
Hróarsdal.

Poste skriptum: Því
miður á ég ekkert af gömlum vefnaði til að senda ykkur. En ég skal
athuga hjá eldra vinafólki mínu hér nyðra hvort það á nokkuð slíkt og þá
fá það til að senda ykkur. Með bestu kveðju J.N.J.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Bolludagur
Keyword:
Tóvinna
Keyword:
Ull