Ull

In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (1904)
Object-related numbers
Museumnumber a: 1322 "Museumnumber b": 1966-1
Questions / Answers
Allar spurningar og svör
Nr. 1322

p1
Ull og tóvinna 3:
Hér á heimilinu var alltaf ofið. Húsmóðirin, sem bjó hér á
Kinnarstöðum, Kristín Björnsdóttir, var fyrirmyndar vefari. Óf allar
vefnaðargeðir sem tíðkuðust. Hún kenndi Guðrúnu systur minni að vefa.
Hér var aldrei, eftir að ég man til, settur upp vefur fyrr en eftir áramót,
þegar daginn var farið að lengja, t.d. á þorra. Var þá búið að vinna
í voðirnar. Ef mögulegt var, var vefstóllinn tekinn niður fyrir sumardaginn
fyrsta. Rýmkaðist þá vel í baðstofunni. Þar var ofið. Það
munaði nú um minna, en stóran vefstól, hvað rýmið snerti.
Ofið var oftast milli mála, en þegar var verið að herða við að ljúka af
vefnum fyrir vissan tíma, þá var haldið til dagsins meðan birtan leyfði
t.d. fyrir sumarmálin. Hér í sveit, man ég ekki eftir því
að vefarar færu milli bæja til að vefa, heldur var vefjarefnið flutt þangað
sem vefstóllinn var og vefarinn. Í mínu ungdæmi voru

p2
ekki vefstólar til
á öllum bæjum. Við munum ekki vel hvað þóttu góð afköst, en það mun
hafa verið yfir 10 álnir. Annars fóru afköstin eftir því hver vefjartegundin
var, og hvað efnið var gróft.

p3
Vefstóll: Vefstóll
og vefstaður. Þessi nöfn voru jöfnum höndum notuð hér. Engar
sagnir þekki ég um gamla kljástólinn, en Kristín Björnsd., sú sem kenndi
systur minni að vefa, hafði kynnst honum og talaði um hvílíkur feikna munur
var á honum og þeim nýja. Kristín var fædd 1837. Ég veit því
miður ekki um neinn örmul, sem eftir er af kljásteinsvefstólnum. Ég
get ekkert sagt um smíði vefstóla eða smíði þeirra. Kristin heitin
smíðaði sjálf vefstólinn hér að einhverju leyti, en fékk líka hjálp. Tvíbreiðir
vefstólar þekktust eða það var talað um þé. Þeir voru bara breiðari
en þeir einbreiðu. Hraðskyttuvefstóla veit ég ekkert um. Vefstólar
voru ekki til á öllum heimilum. Það kom fyrir að heimili fengu lánaðan
vefstól, en hitt var algengara að heimilin, sem ekki áttu vefstól, fengu
ofið hjá nágrannanum.

p4
Ég var að virða fyrir
mér myndina af vefstólnum í bókinni Vefnaður eftir Halldóru Bjarnadóttur.
Vefstóllinn hér var ekki líkur þeim vefstól. Vefstóllinn hér
var líkur vefstól B. En á myndina vantar höföldin og hafaldasköftin.
Hliðarnar á vefstólum hétu einu nafni kjálkar. Svo voru sköftin,
sem stigið var á fest við slána undir sætinu, en Kristín sagði að það mætti
líka snúa þeim eins og á B. Vefstóll B er að því leyti frábrugðinn,
að slagborðið í vefstólnum hér, hékk á snaganum, sem ég merki með 30, þannig
að slagborðskjálkanum var smokkað upp á nr. 30. Nr. 30 var með járntinningum
að ofan. Þversláin efst nr. 32 var engin.

p5
Skeið: Ég veit
ekki um annað nafn en skeið, vefjarskeið. Það kom fyrir að skeiðar
voru smíðaðar eða lagaðar heima, en stálið í tennurnar varð að fá að. Ég
vissi til, að Kristín vafði upp eina skeið. Vefjarskeiðar voru yfirleitt
af sömu lengd. Það var til að þær væru styttri en 5 kvartil. Fínleiki
skeiðanna var miðaður við tannafjölda í kvarteli. Hér var og er til
60 tanna skeið, 80 tanna og 90 tanna. Vefjarksyttan: Harðviður
var hafður í vefjarskyttur. Endarnir á skyttunni oru látúns bryddir,
til þess að þræðirnir festust ekki í henni. Skyttan var vel slípuð neðan.
Teinninn hét hér spóluteinn. Renndar tréspólur voru hér til.
Sömuleiðis beinspólur. Þær voru úr sviðafótaleggjum, og sagað
af báðum endum leggjarins. Svo voru járnspólur. Þunnt járn
beygt í hólk. Spóluvoð þekktist ekki hér í minni tíð.

p6
Soólurokkur: Hér
var notaður gamall rokkur íslenskur, kallaður Trausti. Allir stólpar
voru geysilega sverir. Efalaust frá þeim tíma þegar rokkar voru fyrst
notaðir. Nú er hann, því miður ekki lengur til. En það er seint að
iðrast eftir dauðann. Hann vildi kasta af sér, og var því stundum
í ónáð hjá okkur börnunum. Spóluteinn var settur fyrir snælduumbúning.
Spanstokkur hét hér spjálk. Spjálkin var um 5 cm. breið.
Í báðum endum hennar voru járntittir, sem gengu gegnum jaðra voðarinnar,
2 í hvorum enda. (Hér er teikning). Tanginn féll í raufina.
Göt voru boruð mörg í röð gegnum tangana og stóðust þau á. Í
þeim var einn teinn eða í gegnum þau var einn teinn, og þarna mátti lengja
spjálkina. Teinninn verkaði eins og hjörur. Þegar spjálkin
var notuð, var tökkunum í endum

p7
hennar stungið í
gegnum jaðra voðarinna. Á meðan þetta var gert léku spjálkahlutarnir
um teininn. Svo var hún þvinguð flöt og þandi um leið út voðina.
Spjálkina varð að stilla mátulega. Til þess, að hún héldist
lárétt, var hafður hólkur úr leðri, sem var yfir spjálkina. Hann
var hreyfður til, þegar hún var losuð og sett föst. Hann var utan
um tangana, þegar spjálkin var spennt, en færður til annars endans þegar
spjálkin var færð. Þá fór spjálkin aftur svona (teikning). Stundum
voru líka 2 teinar notaðir en enginn hólkur. Var þá annar tekinn
úr spjálkinni þegar hún var hreyfð.

p8
Að leggja upp: Mér
er ókunnugt um útreikning, en mig minnir að reiknað væri með 2 álnum úr
mörkinni af einföldum þræði, meðalgrófum. Völuþyngdin var dregin frá. Ég
man ekki hvað valan var reiknuð mörg lóð. Að reikna í skeið: Ég man
ekki eftir því nafni. Það hét allt einu nafni, að setja til vefinn.
Það var álitin ómynd, ef útreikningurinn stóðst ekki. Það var
kallað varplítið, ef voðin var gisin. Að reikna í vef: Það
var oft kallað að áætla í vef. Efnið var vigtað og áætlað, t.d. 2
álnir úr mörk. Fyrirvaf var líka vigtað, en annars var ekki eins
glöggt með fyrirvafið. Það var bara bætt við ef vantaði. Ég
man ekki hvað margar álnir fengust úr mörkinni af fyrirvafi. Það
fór líka eftir því hvað fyrirvafið var gróft.

p9
Rakgring hét áhaldið,sem
uppistaðan í voð var rakin á. Ég veit ekki um nema eina gerð af rakgrind.
Hún var mynduð úr 2 ferhyrndum grindum. Þær voru lengri en þær voru
breiðar. Gegnum miðjar þverslárnar eru göt og í gegnum þau eftir
grindinni endilangri gekk ás, að sverleika eins og sver ísastafur. Þegar
rakið var, lék neðri endi þessa áss í spori í gólfinu, en efri endinn í
velgerðri holu í loftbita stofunnar. Þegar rakgrindin var notuð mynduðu
þverslárnar kross. En þegar rakgrindin var ekki í notkun, var hún
lögð saman, svo að minna færi fyrir henni og látin liggja upp við vegg.
Hér var rakgrind til ásamt vefstólnum. Balbínur, balbínustóll:
Snældurnar hétu balbínur. Ég sá einu sinni balbínur og balbínustól.
Þær

p10
voru fengnar að láni.
Þá var ég barn og var ákaflega hrifin. Balbínurnar voru geysistórar
snældur og balbínustóllinn í líkingu við snældustól. Þannig að balbínurnar
léku um tein hver í sínu hólfi. Mig minnir að raðirnar væru 2 og
6 snældur eða balbínur í hvorri röð. Oftast var rakið á 12. Verkið
við að spóla á balbínurnar hét að balbína. Rakningsspaði.
hër var hann oft kallaður gataspýta. Það var flöt spýta eða
fjöl með 2 gataröðum og 6 göt í hvorri röð. Milli gatanna í röðinni
var rúmur þumlungur, til þess að þræðirnir slægjust ekki saman, en milli
raðanna var lengra, á að giska hálf fingurhæð. 12 gata spaði hefur
verið um 35 cm. langur, fyrir utan skaft. Riss af spaðanum á baksíðu.


p11
Rakningsstokkur:
Þeir voru með hólfi fyrir hvern hnykil. Tvær hólfaraðir. Hólfin
voru ferköntuð um 12 cm. á kant nokkuð djúp. Hér voru til 2 rakningsstokkar.
Án þeirra var ekki hægt að rekja á grind. Vefjarþráðinn varð að vinda
upp á völur, annars hoppaði hnykillinn upp úr hólfunum þegar hann fór að
minnka. Rakning á grind: Hún stóð á gólfi og náði til
lofts, lék rakgrindarmöndullinn í holu eða spori hvor endi. Til að
halda rakgrindinni út voru notaðar 2 spýtur, kallaðar hælaspýtur. Önnur
efst á rakgrindinni, en hin neðst. 2 hælar voru í báðum spýtunum
(3 hælar í efri), og á hælaspýtunum var búið til skilið. Það var
alin (eða rúmleg) milli stólpanna í grindinni og hringurinn um grindina
var því rúmar 4 álnir, því stólparnir voru auk bilsins milli þeirra. Vön
kona við að rekja vissi

p12
hvað bilið milli
hringanna þurfti að vera breitt og með því að telja hringana sinnum 4,
fannst lengd voðarefnisins. Umferðirnar urðu auðvitað að liggja dálítið
á ská. Þegar vitað var hvað hátt slönguefnið þurfti að ná upp eftir
grindinni, var hælaspýtan látin þar. Svo byrjaði rakningin. Þræðirnir
voru þræddir í gegnum rakspaðann einn í hvert gat. Rakið oftast á
12. Síðan voru endarnir hnýttir saman og hendinni smeygt milli þráðaraðanna
á spaðanum, og þeir þannig klofnir, 6 hvoru megin, og látið yfir hælinn
nær stólpanum. Hinn hællinn var ekki langt frá þeim fremri. Það
var byrjað efst og rakið niður eftir. Já, þegar búið ar að smokka
yfir fremsta hælinn var skilið tekið niðri við rakspaðann. Hælarnir
á efri spýtunni voru 3. (Athuga riss af spaðanum). Þráðurinn 2 var
tekinn milli þess 1. og þess 3. Þráður 4 milli þess 3. og þess 5.
Þráður 6 milli þess 5. og þess 7. Þráður 8 milli þess 7. og
þess 9. Þráður 10 milli þess 9. og þess 11.

p13
Þráðurinn 12 fyrir
aftan þann 11. Skilið var fært upp eftir og smokkað yfir miðhælinn.
Svo var aftur farið niður að spaðanum og hendinni smokkað milli raðanna
og smeygt yfir aftasta hælinn. Skilið, þráðarskilið, kom á milli
aftari hælanna. Fyrir aftan aftasta hælinn voru þræðirnir allir sameinaðir
og rakið niður eftir. Grindinni snúið réttsælis. Þegar kom
niður að neðri hælaspýtunni var fetaskilið tekið. Þráðunum öllum
í einu brugðið yfir hælana (teikning) Fetaksil. Þá var snúið við
og rakið upp eftir og grindinni snúið rangsælis. Í hverri ferð var
tekið þráðarskil ogst og fetaskil neðst. Ég held að ein umferð upp
og niður hafi heitið feti. Hver umferð varð að liggja þétt að þeirri
fyrri. Haldið var áfram að rekja þar til nógu margir þræðir voru
komnir. Fór þá oft að þrengjast á grindinni, og varð að þjappa hverjum
hring saman. Þegar kom upp að efri hælunum aftur, var farið milli
þráðaraðanna á spaðanum og þeir látnir beggja megin á hælinn, sem

p14
fyrst var komið að
svo var tekið skilið eins og fyrr og smokkað yfir miðhælinn, síðan voru
þræðirnir sameinaðir og brugðið yfir endahælinn eins og á fetaskilinu,
og enn var tekið skil, farið milli raðanna og látið beggja megin á miðh.
og tekið skilið milli aftari hælanna eins og fyrr. Það mun stundum
hafa verið látið merki við vissan þráðafjölda, var það einn þráður. Þegar
slangan var tekin af grindinni var bundið eða smokkað bandi, þar sem fetahælarnir
voru, um leið og smokkað var fram af hælunum (annar í einu). Það
band var úr margföldum skóþræði og hét varptág. Alltaf voru 2 við
að rekkja. Líka var bundið í þráðarskilin. Varptágin þurfti
að vera löng og sterk. Því henni var bundið um báða enda á rifskaftinu.
Þegar vefjarefnið var tekið af grindinni, ar gerð úr því flétta.
Hún var kölluð slanga. Ég veit ekki til að rakið hafi verið
án rakningsspaða. Slangan var tekin þannig af grindinni. Byrjað


p15
efst hnýtt lykkja
af sjálfri slöngunni. Hendinni smokkað í lykkjuna og gripið utan
um slönguna og dregið í gegn. Kom þá önnur lykkja, sem eins var farið
með. Þannig koll af kolli, þar til slangan var á enda. Var
þá komin sver flétta, sem líka var kölluð slanga. Hælsaspýtunum var
fest þannig, að þær voru skorðaðar milli stólpanna, sýlt í báða enda á
spýtunum. (Hér er teikning). Stundum voru stórgripavölur látnar
leika á þráðunum, ef þráðurinn var snúðharður. Ég veit ekki betur
en alltaf væru sömu handtökin við að rekja. Á tví- eða marglitri
uppistöðu, er mér sagt, að hver litur hafi verið rakinn út af fyrir sig,
jafnvel þótt fáir þræðir væru í lit. Hægt var líka að rekja það með,
er mér sagt.

p16
Ég þekkti ekki til
að rakið væri á vegghæla eða rúmstólpa. Á baksíðu er riss af hafaldagrind.
Hafaldaefnið var vafið yfir um grindina lagnsum, og skorið upp úr.
Grindin var lengri en hún var breið. Efnið í höföldin var tvennskonar,
hör og þrinnaður eða fjórfaldur togþráður. Ég veit til að togþráðarhnykillinn
var soðinn í vatni. Hnýting hafalda: Þræðinum í hafaldið var
brugðið undir neðri hlið (1) grindarinnar og hnýttur þverhnútur yfir báða
þræðina fast neðan við rimina (2), sem mátaði hafaldaaugað. Svo voru
þræðirnir sinn hvoru megin utan um rimina og hnýttur þverhnútur fast fyrir
ofan. Síðan var bundinn annar þverhnútur fyrir ofan hliðina sem upp
snéri (3). Þræðirnir auðvitað sinn hvoru megin við efri hliðina.
Endarnir voru hafðir þumlungur að lengd eftir síðasta hnút. Höföldin
voru ýmist hengd upp eða vafin upp og geymd á þurrum og góðum stað.

p17
Stálhöföld heyrði
ég talað um, en þekkti ekki. Veit ekki um nafn á bandinu, sem varnaði
höföldunum að fara út af skaftinu. Vefjarkambur, fetakambur:
Hér var hann alltaf kallaður fetakambur. Hann var allur úr tré. Tennurnar
voru sívalar, grennri eða líkt gildar og blýantur. Lengd tannanna
var um 5 cm. Neðri sláin var föst og endaspelarnir, en efri sláin
var laus, til þess að hægt væri að raða fetlunum milli tannanna í kambinum.
Efri sláin smokkaðist yfir endaspelina, em stóðu upp fyrir slána,
voru göt á þeim, og þar í var látinn splittur, sem hélt efri slánni fastri.
Verkið við að dreifa slöngunni í kambinn hét "að láta
í kamb". Einn feti, 24 þræðir, ef rakið var á 12, var látinn
milli tanna eða í hvert bil. Fetarnir aðskildu sig. Skaftið,
sem tengt var við slöngurifin hét rifskaft. Þráðurinn í

p18
fremra gangskilinu
hét vartág. Henni var bundið utan um skaftendana. Á endum rifskaftsins
voru skorur þvert yfir fyrir vartágnina. Hún var úr margföldum skóþræði.
Að festa upp, hét verkið við að vinda upp á rifinn
eða setja til vef, að koma slöngunni í vefstólinn, draga í höföld og skeið,
og festa uppistöðu í framrif. Ég veit ekki til að verkið við að vinda
slönguna upp á rifinn héti neinu sérstöku nafni. Rifskaftið féll
í skoru, sem var eftir endilöngum rifnum, og svo var kringlum eða krögum
smokkað upp á rifinn beggja megin slöngunnar, og náðu endar rifskaftsins
innundir kringlurnar. Þannig héldust rifsköftin föst, og svo áttu
þær að halda utan að slöngunni. Í gatið á kringlunum voru fest eltiskinnsspeldi
of 4 eða 5. Þau voru um 6 cm. breið og 8-10 cm. löng. Þau lágu


p19
frá kringlunum með
rifnum, og var slangan undin yfir þau um leið og hún vanzt um rifinn. Þetta
festi vel kringlurnar. Kringlurnar voru úr viði þykkum, og var ytri
brún þeirra 6 köntuð. 2 og stundum 3 unnu að því að vinda slönguna
upp á rifinn. Einn hélt fast í slönguna og smokkaði slöngulykkjunni
upp á úlnliðinn, svo að ekki rektist of langt. Svo þurfti öðru hvoru
að rekja niður slönguna. Þegar það sem tekið var fyrir var orðið
svo stutt, að sá sem hélt í slönguna var kominn að frambómunni eða nálægt
henni. Einn vatt upp á rifinn. Þurftu báðir þessir menn að
vera sæmilega sterkir. Sá þriðji færði til fetakambinn og leit eftir,
að slangan færi vel á rifnum. Hún mátti ekki hrúgast ójafnt upp.
Mest ábyrgð hvíldi á þeim,sem þetta starf hafði. Slangan átti
ekki að ganga að sér á rifnum. Skilsköftunum var smokkað í skilið
og héldust þau kyrr, en stundum voru þó endar þeirra

p20
tengdir saman með
spotta. Göt voru á endum skaftanna. Slönguendanum var tyllt
í fremri rifinn. Verkið við að draga í höföldin hét "að
draga í höföld". Snærin, sem héldu höföldunum uppi voru bundin
saman. 2 unnu að því að draga í höföld. Annar dró í, hinn rétti
þræðina. Sá sem dró í, hafði höföldin í 4 núpum vinstri handar. Hafaldaraðirnar
voru 4 og hafði hver röð sína núp. Tekin voru fyrir í núpirnar nokkur
höföld í einu. Að draga í skeið: Áhaldið hét skeiðarkrókur.
2 unnu að því að draga í skeið. Annar rétti, hinn rétti krókinn
í tennurnar og mátti ekki hlaupa yfir. Stundum voru 2 eða 3 þræðir
í tönn, en aldrei nema 1 í hafaldi. Það hét að voðin væri mikið verpt,
ef margir þræðir voru í tönn. Skeiðinni var fest fyrir ofan höföldin meðan
dregið var í skeiðina. Sá sem rétti þræðina sat í setbekknum, en
hinn var fyrir aftan vefstólinn. Svo var bundinn lykkja á þræðina eða þeir
bundnir

p21
saman með lykkju
þegar þeir voru hæfilega margir til að hnýta á skaftið. Skaftið hét
engu sérstöku nafni. Verkið hét, "að hnýta á skaft". Það
var tekið skil um leið og hnýtt var á. Skaftinu var fest á rifinn
með 3 snærum, sem lágu yfir bómuna og niður í rifinn. Það var kallað
"að draga fyrir", þegar skyttunni var skotið. Gefið var
í, í einum stórum boga. Þegar skilið var stigið, var þrifið í slagborðið
og þráðurinn laminn að voðinni. Spjálkin var færð öðru hvoru. Mátti
aldrei vera mjög langt frá mótum voðar og uppistöðu. Styttsta bilið
rúmur þumlungur og þegar spjálkabreiddin hafði vel bætzt við var hún færð
á ný. Álnarlangt band mældi voðina jafnóðum. Þegar alin var
komin, var bandið dregið til baka og endinn með hnútnum var látinn milli
þráðanna við brún voðarinnar. Festist spottinn þegar næsti fyrirvafsþráður
bættist við voðina. Þegar þráður slitnaði þurfti að "bæta"
hann. Hnýtt var við endann og viðbótarspottinn látinn ná fram á voð.
"Að fella vef" hét, þegar voðin var tekin af vefstólnum.
Afgangur af slöngunni hét afvikur. Það var saumað með afvikum.


p22
Þóf: Voðin
var þvegin upp úr heitu keytublönduðu vatni í stórum bala. Undin
þannig að endarnir voru tengdir saman, svo að hún var tvöföld, smokkað
spýtum í báða enda og snúið upp á, og vattst þá voðin vel. Einhver
heima karlmaður þæfði. Stundum var þæft á tréfleka á auðum bás í
fjósinu, stundum í baðstofu. Stundum var þæft undir fótum. Gerði
það einn maður, en stundum var þæft í botnlausri tunnu. Gerðu það
tveir, sem lágu á gólfinu uppí loft á undirsæng með brekán yfir sér. Þeir
spyrntust í iljar og höfðu tunnuna langsum á milli sín. Í tunnunni
var þófið. Svo spörkuðu þeir og þvældu þófinu milli sín. Öðru
hvoru var þófið "hrist upp". Það gerðu 2, hélu hæfilega
löngum hluta milli sín, héldu sinn í hvert horn, lögðu hendur sínar á mis
og með snöggri hreyfinu breiddu þeir úr voðinni, svo skall í. Þegar
fyrsta færa var búin var önnur tekin fyrir, voðina á enda. Full þæfð
var voðin, þegar hún þótti vel þétt og áferðin falleg. Fór það eftir
smekk hvers eins.

p23
Meðan á þófinu stóð
voru menn snöggklæddir, á nærbuxunum og milliskyrtunni. Þófurunum
var gefinn góður matur og aukakaffi með lummum. Ég veit ekki um kaup
fyrir þóf. Að loknu þófi var voðin undin upp á fjöl, t.d. sterka
rúmfjöl. Gerðu það 2 og tóku fast á. Voðarendinn var lagður
sléttur þvert á fjölina og svo vafið áfram og togað vel við hvert bragð,
strokið og sléttað með lófunum. Þegar voðin var uppundin, var endinn
saumaður niður og rúbagginn settur í farg, t.d. undir þunga kistu, látinn
vera þar nokkra sólarhringa. Til var að voðir voru sendar til verksmiðju
til lóskurðar og litunar. Þófaraþulan: Bárður minn á jökli
- leggstu með mér - Ég skal gefa þér lóna - leppana inn í skóna - mórautt
lamb og gimburskel - múra, ef þú þæfir vel - hálfskeifu undir hestinn þinn
- naglabrot í hófinn - gakk þú gakk þú duggarinn - allra mest í framleistinn.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Ull
Keyword:
Tóvinna